Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1998, Qupperneq 2
24 kvikmyndir
Godzilla
Nokkrara risa-
myndir verða
frumsýndar í
ríkjunum í sumar
og ein af þeim
fyrstu er God-
zilla sem frum-
sýnd veröur
20. maí. Hún
er byggð á
nokkrum
Godziila-
myndum
sem uprruna sinn
áttu í Japan i byijun sjötta
áratugarins. Þeir félagar Roland
Emmerich og Dean Devlin fram-
leiða, leikstýra og skrifa handrit-
iö. Hafa þeir unnið að þessu verki
allt frá þvi þeir luku við að gera
Independence Day. Sony Pictures
hefur gert áætlanir um að myndin
taki minnst 250 milljónir dollara
inn í aðgangseyri sem mörgum
þykir mikil bjartsýni.
Keitel vinsæll
á Ítalíu
Harvey Keitel er farinn að fá
fleiri tilboð frá ítölskum kvik-
myndaleikstjórum heldur en vin-
sælustu itölsku leikararnir. Það
sem eftir er af þessu ári mun
hann leika í þremur ítölskum
kvikmyndum, fyrst ber að telja
Shylock í Merchant of Venice,
sem verður fyrsta enskumælandi
kvikmyndin sem Marco Bell-
occhio leikstýrir, þá mun hann
leika í itölskum gamanvestra I
sumar sem Giovanni Veronesi
leikstýrir og að síðustu mun hann
leika ítalsk/amerískan prest í nýj-
ustu kvikmynd Linu Wertmuller,
An Interesting State.
Affleck og Damon
Leikaramir, handritshöfundamir
og vinimir Ben AfQeck og Matt
Damon vom
hressir þegar
þeir tóku á
móti ósk-
arsverðlaun-
unum fyrir
handritið aö Good
Will Hunting. í þeirri mynd
lék Damon aðalhlutverk og Afíleck
aukahlutverk. I næsta handriti sem
þeir skrifa ætla þeir að snúa hlut-
unum við, AfQeck verður í aöalhlut-
verki en Damon í aukahlutverki.
Áður en að þvi kemur munu þeir
leika í Dogma, sem Kevin Smith
(Clerks, Chasmg Amy) leikstýrir, en
það var einmitt hann sem kom
handriti þeirra að Good Will Hunt-
ing á framfæri við Miramax, sem
siðar geröi myndina.
Morgunverður með
meisturum
Alan Rudolph hefur eins og Ro-
bert Altman og nokkrir einfarar í
leikstjórastéttinni í Bandaríkjunum
staðið fyrir utan risafyrirtækin í
Hollywood og því ráðið öll um end-
anlega útkomu án afskipta. Þetta
frelsi hefur þó Rudolph ekki í nýj-
ustu kvikmynd sinni, Breakfast of
Champions. Aðalstjama myndar-
innar, Bruce Willls, hefur eirrnig
eitthvað með það að gera enda er
hann einnig framleiðandi. Þetta er í
fyrsta sirrn sem Alan Rudolph gerir
kvikmynd sem telst til dýrari kvik-
mynda í Hollywood. Er myndin
gerð efrir skáldsögu Kurt Vonneguts
sem fiaUar um bilasala sem breytir
um lifsstU eRir að hafa lesið bók.
Saga
Tobys
Gabriel Byme
sem leikur í
The Man in
Iron Mask
skyttu númer eitt,
D’Artagnan, hefur fengið aðalhlut-
verkið 1 dulúðugri sakamálamynd,
Toby’s Story. Mótleikkona hans
verður Patricia Arquette. Byrne
leikur prest sem Vatíkanið sendir
tU Boston tU að kanna hvað hæft
sé i þvi að kona ein fái heim-
sókn frá himneskum verum.
Leikstjóri er Rupert Wein-
wright og hefst kvikmynda-
taka nú í byrjun aprU.
\ ' s.r) -li . ■ .
\ •
V ;/ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
Dustin Hoffman, Samuel L. Jackson og Liev Schreiber í bækistöö sinni neðansjávar.
sinna verkefninu og
bækistöðvar eru
settar á laggirnar
neðansjávar. Fljótt
eftir að rannsókn
hefst finna þau
kúlu sem vekur
áhuga þeirra, eink-
anlega vegna þess
að það virðist ein-
hver lífskraftur
inni í henni. Þegar
líður á rannsóknina
fara ýmnsir hroða-
legir atburðir að
gerast sem engin
önnur skýring er á
en að eitthvert lífs-
form sé um borð í
geimskipinu.
Auk Dustins Hoffmans leika í
Sphere, Sharon Stone, Samuel L.
Jackson og Peter Coyote. Leik-
stjóri er Barry Levinson og er
þetta ekki í fyrsta sinn sem hann
leikstýrir eftir skáldsögu
Crichtons. Það var þegar þeir
voru að vinna að Disclosure að
upp kom sú hugmynd að gera
kvikmynd eftir Sphere, sem þá
var orðin tíu ára.
Gerir myndir í Baltimore
Barry Levinson er fæddur í
Baltimore og þar ólst hann upp og
kann enn best við sig þar. Hafa
sumar kvikmynda hans verið
gerðar þar, meðal annars sú
fyrsta, Diner, sem hann byggði að
hluta til á aevi sinni og Tin Men
og Avalon. Áður en Barry Levin-
son hóf leikstjórn vann hann sem
handritshöfundur við gerð ým-
isssa gamanþátta í sjónvarpi.
Meðal annars vann hann með Mel
Brooks sem fékk hann með sér til
að aðstoða sig við að gera tvær
myndir, Silent Movie og High
Anxiety. Barry Levinson á sitt
eigið framleiðslufyrirtæki,
Baltimore Films, og meðal kvik-
mynda sem fyrirtæki hans hefur
framleitt án þess að hann sé leik-
stjóri má nefna Quiz Show og
Donnie Brasco auk sjónvarpsser-
íunnar Homicide: Life on the
Street. -HK
Sam-bíóin frumsýna í dag
spennumyndina Sphere, sem gerð
er eftir skáldsögu Michaels
Crichtons, en sögur hans hafa
reynst kvikmyndageröarmönnum
gjöfular á undanförnum árum.
Má þar nefna Jurrasic Park-
myndirnar tvær, Rising Sun,
Congo og Disclosure svo nokkrar
séu nefndar. Sphere er ein af hans
fyrstu sögum og gerist hún að
miklum hluta neðansjávar.
Dustin Hoffman leikur Dr.
Norman Goodman, sem ríkis-
stjórn Bandaríkjanna fær óvænt
til að sinna verkefni úti á miðju
hafi. Með honum fara fleiri vís-
indamenn og er þeim jafnhulið
verkefnið og Goodman. Þegar
komið er á ákvörðunarstað er
hópnum sagt að verkefnið sé að
kanna ókunnugt geimskip sem
liggi á hafsbotni. Hefur það legið á
hafsbotni að talið er í ein þrjú
hundruð ár. Hópurinn hefur alla þá
tækni sem vísindin ráða yfir til að
Sharon Stone, sem á myndinni er í kafarabúningi,
leikur vísindamanninn Beth Halphrin.
SPHEHF
K V I
K IVI Y N
D A T Ó N L
I
S T
Fingrafimi og diskósmellir
Þær tvær hljómplötur sem fjall-
að er um og innihalda tónlist úr
kvikmyndunum Wag the Dog og
Boogie Nights eru sýnishorn af
tvennu sem einkennir útgáfu á tón-
list fyrir kvikmyndir í dag, frum-
saminni kvikmyndatónlist og sam-
ansafni þekktra laga. Yfirleitt er
þetta sameinað á eina plötu en á
þessum tveimur plötum er þetta
aðgreint. Báðar þessar kvikmyndir
hafa vakið mikla athygli og eru
sýndar i kvikmyndahúsum Reykja-
víkur um þessar mundir.
Á Wag the Dog er eingöngu
frumsamin tónlist eftir Mark
Knopfler, einn besta gítarleikara
rokksins. Með fram gitarleik i Dire
Straits og sólóferli hefur Knopfler
verið að fikta við kvikmyndatón-
list og er Wag the Dog fimmta
kvikmyndin sem hann semur tón-
list við. Eins og við er að búast er
gítarinn í framlínunni og Knopfler
sýnir og sannar að hann er snill-
ingur á hljóðfæri sitt. Lögin átta á
plötunni, sem er aðeins um hálf-
tíma löng, eru einföld, meðtækileg
WAG THE DOG
Mark Knopfler
og bera þess greinilega merki að
Knopfler hefur meira og minna
starfað í Nashville undanfarin ár.
Titillag myndarinnar, er góður
kántrí/blús og eina lagið sem
Knopfler syngur. í heildina er tón-
list Knopflers þægileg og heillandi
hlustun á gítarsnilling sem þarf
ekki að vera með neina sýndartil-
burði á hljóðfseri sitt til að sýna
hvers hann er megnugur. Það hefði
verið 'hægt að bæta við lögum á
plötuna til að fá hana í fulla lengd
og má kannski segja að skemmti-
legt hefði verið að heyra tilraunir
Willie Nelsons í myndinni til að
semja lag og texta sem höfðar til
þjóðemiskenndar Bandaríkja-
manna.
V
Ólíkt Wag the Dog, sem getur al-
veg staðið sem sjálfstætt verk, em
lögin sem notuð em í Boogie Night
svo samtvinnuð efni myndarinnar
að þegar hlustað er á plötuna eina
sér verður hún sundurlaus. Boogie
Nights gerist snemma á áttunda
áratugnum og fjaOar um dekkri
hlutann i skemmtanabransanum í
Hollywood. Á plötúnni eru ein-
göngu lög frá þeim tíma og þar sem
diskóið var I algleymingi þá em
margir diskósmellir á plötunni
sem lítill fengur er að í dag, lög
sem falla vel að efni myndarinnar
en era mörg hver lúnar lummur
þegar hlustað er á þau utan við
myndina. Það eina sem í raun til-
heyrir beint myndinni fyrir utan
slakt lokalag er raul John C. Reilly
og Mark Whalberg í byrjun plöt-
unnar. Allt annað efni er gamlir
smellir. Boogie Night er sem sagt
ekki mjög spennandi hlustun ein
og sér, vert er þó að geta þess að
einstaka lög eiga alveg erindi á
plötuspilarann til hlustunar, en
þegar á heildina er litið nýtur tón-
listin úr Boogie Nights sín best í
góðu danspartíi.
Wag the Dog ★★★
Tónlist: IVIark Knopfler.
Boogie Nights ★★ -HK