Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1998, Blaðsíða 9
UV FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 HLJÓMPLjÍTU Pulp - This is Hardcore ★★★★ Nýja Pulp-platan er frábær. Hún er ekki „Common People" annar hluti, heldur eitt- hvað allt annað. Platan hefur sterk áhrif á mann. Jarvis greyið er óðum að verða mið- aldra og lífsefmn farinn að herja á hann. Gamla ósvaraða spurningin „TU hvers er maður að þessu?“ brennur á honum og hann veltir henni og svipuðum spurningum fyrir sér. Textarnir eru góðir - háðið slípað og pælingarnar ferskar - og maður leggst ekki í andlega kör þótt Jarvis sjái sjaldan Ijós í svartnættinu. Að hlusta á hann jafnast næst- um á við að sitja með góðum vini yfír kaffi- bolla og ræða viðkvæm einkamál ofan í kjöl- inn - manni líður betur eftir á. Tónlistin hefur breyst mikið, þótt enn megi fmna létta Pulp-slagara með grípandi söngvænum viðlögum, lög eins og „I’m a Man“ og „Dishes“. Þá er „Party Hard“ frábært keyrslulag en Jarvis þar kannski fulllíkur David Bowie í söngstU. Hljómsveitin hefur þyngst til muna frá síðustu plötu. Það segir sig sjálft að á plötu sem er tólf laga og tæplega sjötiu mínútur eru nokkur löng lög. Smáskífurnar, lögin „Help the Aged“ og „This is Hardcore" eru frábærlega sam- ansett. Þar er uppbyggingin óvænt og útkoman snilldarleg. Eina lagið sem ég sætti mig ekki alveg við er „Seductive Barry“; þar fer bandið í eina skiptið yfir hið við- kvæma strik snilldar og tilgerðar. Það breytir því ekki að „This is Hardcore" er besta plata sem ég hef heyrt mjög lengi. -Gunnar Hjálmarsson Blur - Bustin' & Dronin' ★★ Blurdrengirnir reyndu með öllum tiltæk- um ráðum að losa sig við fyrri frægð og poppvirðingu þegar þeir gáfu út síðustu plötu. Nú vilja þeir ganga enn lengra í að að- skilja sig Britpoppinu. Á fyrri disk þessarar tvöíoldu plötu eru 9 endurmix af lögum af síðustu plötu. Margt er þar ágætt. William Orbit hakkar í sig „Movin’ On“ og breytir í rafpönk. Það er eina áðurútkomna lag disks- ins (var á B-hhð). „Beetlebum" í meðfórum Mobys er óþekkjanlegt og laglega ort af- slappelsis grúf og álíka meðferð fær „Theme FFrom Retro“ hjá John McEntire (úr Torto- ise), sem á best heppnaða endurmix disks- ins. Hann breytir laginu í mjög friskt og fljótandi víbrafónsdjamm. Annað verra er mix Walters Wall, sem breytir „On Your Own“ í þriðja flokks Underworld-lag, og Sonic Youth-foringinn Thm-ston Moore hefur greinilega engan áhuga á Blur og ger- ir hálfpartinn grín að þeim með sínu mixi. Á seinni disknum eru hráar tónleika- upptökur af sex lögum úr þætti Johns Peel á BBC. Blurstrákar eru þar í ágætu formi og rokka geyst. í heild er platan fin fyrir aðdáendur Blur, en aðrir hafa lítið með þennan sundurleita pakka að gera. -Gunnar Hjálmarsson Lionrock - City Delirious ★★★ Justin Robertson er heilinn á hak við Lionrock, plötusnúður sem stundum hefur hrætt liftóruna úr dansliðinu með því að mæta með rafmagnsgítar í plötusnúðsbúrið. City Delirious er önnur plata Lionrock og mikil framför frá þeirri fyrstu. Að vanda fer Justin út um víðan völl f leitinni að góðu grúfi. Við lifum jú á tímum menningarlegs hrærigrauts og í tónlistinni kemur þetta fram i algjöru kaosi. Justin setur góðan takt á grautinn og ber niður í hipphoppi, blús, rokki, sálartónlist, þýskri tölvutónlist og teknói, að ógleymdu gamla ska-inu sem hann notar sem aðalbyggingarefni í besta lagi disksins, hinu dúndurskakhæfa „Rude Boy Rock“. Þegar best lætur er tilrauna- blærinn skemmtilegur og öörvandi, en stundum verður hræringurinn einum of blandaður, og þegar maður veit nákvæmlega hvaðan „sömplin" í tónlistinni koma verður tilfmningin svipuð og að flnna plástur í blönduðum ávaxtagraut. Justin kann að gera góða danstónlist, en reynir einum of oft að smíða lög sem hann er bara algjör amatör í. Rapparinn MC Buzz B kemur við sögu í nokkrum lögum, Ijær þeim djúpa rödd sína og bætir velþegnum mannlegum þætti við. Ágæt plata á köflum en í heild ekkert sérstök. - Gunnar Hjálmarsson ln tha beginning... there was rap ★★★ Það hefur ávallt verið talin vís leið til vinsælda að taka eitthvert gamalt lag og endurgera það. Margar hljómsveitir hafa farið þessa leið en með vægast sagt mis- jöfnum árangri og því er ekki laust við að það skjóti manni smáskelk í bringu að sjá lagalistann á þessari plötu. Allt gamal- kunnir smellir og svo nöfh flytjendanna fyrir aftan. En um leið og maður setur diskinn í og meðlimir Wu-tang clan eru búnir að hita sig upp kemur þessi líka þungi og hrái RZA-taktur, búinn til úr slögum þeirra félaga í Run DMC. Þá þurrkast allir fordómarnir úr heilabúinu og maður byrjar að dilla höfðinu. Á diskinum er samansafn klassískra old school hip hop laga (meðal annars Sucker MC’s og Fuck tha Police) i flutningi ýmissa fremstu rappara nútímans. Lögunum er ekki mikið breytt en stíll hverrar hljómsveitar skín þó hvarvetna í gegn. Gott dæmi er lagið Fuck tha Police sem er upprunalega mjög hrátt og hart. Þar kemur skýrt fram hinn melódíski stíll Bone thugs-N-Harmony þótt þeir noti fyrst og fremst hljóð úr frumútgáfunni. Meðal annarra flytjenda eru Puff Daddy, Cypress Hill og The Roots, en þeir síðastnefndu útfæra „old school antheminn", The Show, á frábæran hátt. Góður ruddi sem enginn oldschool-aðdáandi ætti að láta fram hjá sér fara. -Guðmundur Halldór Guðmundsson Því hefur verið hald- ið fram að unglingar þrái ekkert heitar en að gera uppreisn gegn foreldrum sinum. Það var á ’ sínum tíma nokkuð örugg leið að hlusta á rokk og ról ef átti að storka gamla settinu og fá það öskr- andi inn i herbergi. Nú eru flestir foreldr- ar gamlir rokkarar, hippar, pönkarar eða diskófrík og því erfitt lengur að ögra með tónlist, nema kannski með framúrstefnulegri raftónlist sem flestum foreldrum og öðrum gamalmennum finnst óskiljanlegt píp. Jap- anska hljómsveitin Guitar Wolf spilar að vísu rokk og ról en gerir það á svo yfir- náttúrlega hráan hátt að allir nema heyrnar- lausustu rokka- billípabbar koma æð- andi og æpa á ungling- inn: „Taktu þennan helvítis hávaða af eins og skot!“ sé tónlist Jap- anana brúkuð heima fyrir. Síðan kjarnorku- sprenjurnar féllu hafa Japanir verið hallir undir amerísk áhrif. Þeir gleyptu rokkið þegar það kom á sín- um tíma og gerðu að sínu en þó var alltaf eitthvað skrýtið við japanskt rokk og er enn. Þremenningarnir Japönsku Gítarúlfarnir: „Þú þarft að fara í sturtu eftir að hafa hlustað á þessa hljómsveit!" Guitar Wolf - hráasta rokkhljómsveit í heimi? í Guitar Wolf kynntust nálægt Tokyo í byggingarvinnu fyrir rúmlega tíu árum og ákváðu að stofna hljómsveit þótt enginn þeirra kynni á hljóðfæri. Þeir drógust hver að öðrum því þeir voru einu mennirnir á svæðinu sem notuðu brilljantín í hárið og voru í leðurjökkum. Seiji söng og spilaði á gítar af því hann var kræfastur en Billy og Toru fóru á trommur og bassa af því þeir gátu verið svip- brigðalausir og svalir lengi í einu. Síðan hafa þeir verið að og geflð út einar fimm plötur meö ofurpönkuðu rokki og róli sem hljómar eins og það hafl verið tekið upp á lélegasta kasettutækið í bænum sem þar að aúki var haft oní ruslatunnu á meðan bandið ruddist í gegn- um lögin sín. Töffaratrlx Fyrir utan að kunna ekki á git- ar kann Seiji varla ensku en það hindrar hann ekki í því að syngja á „máli rokksins". Hann syngur á algengasta rokkfrasamáli, á tón- Þremenningarnir í Guitar Wolf kynntust nálægt Tokyo í byggingarvinnu árum. leikum æpir hann ýmis rokkslag- orð, eins og „Jeee!“, „Rock!“ og „Let’s Go!“ með sinni skræku hvellu japönsku rödd og kann þar að auki öll helstu töffaratrix rokksins eins og að hoppa upp á hátalarabox, spila með tönnunum og á góðum stundum kveikir hann í gítarnum en slekkur hratt í honum aftur því hann á bara einn gítar. Á meðan þessu fer fram stendur bassaleikarinn graf- kyrr en útglenntur og hamast á jórturgúmmíi í munninum og trommarinn ber settið í æsingi en tekur sér stundum pásur í miðj- um lögum til að greiða sér. Þessi svakalega sviðsframkoma hefur orðið til þess að hljómsveitin hef- ur spilað með snilldarrokksveit- um eins og The Cramps og Jon Spencer Blues Explosion. Þar að auki hefur plötufyrirtækið Mata- dor gefið út tvær plötur með sveit- inni. Matador er með happasæl- ustu smáfyrir- tækjunum í bandarísku rokki og gefúr út plötur með Pizzicato 5, Yo La Tango, Pave- ment og fleiri. Nýjasta plata Guitar Wolf heit- ir Planet of The Wolves og er bæði músikalsk- ari og klikkaðri en fyrri plötur. Tímaritið Entertainment Weekly sagði um verkið: „Þú þarft að fara í sturtu eftir að hafa hlustað á þessa hljómsveit." Betri dóma gætu japönsku villi- mennirnir varla fengið! fyrir rúmlega tiu . gjjj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.