Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1998, Qupperneq 4
26
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 T>V
#n helgina
Ásmundarsalur:
Uppstillingar
ogeitthús
í Ásmundarsal Listasafns ASÍ við Freyjugötu opnar Þorbjörg Þorvaldsdóttir sýningu á
morgun kl. 15. Á sýningu hennar, sem er ljósmyndasýning, verður að finna þrettán upp-
stillingar og eitt hús. Þetta er fyrsta stóra einkasýning Þorbjargar en hún lauk námi frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands 1993. Að auki hefur hún stundað framhaldsnám í hin-
um franska Ecole Nationale d’Arts de Cergy-Pontoise.
Ein hinna þrettán uppstillinga Þor-
bjargar sýnir barnaafmæli.
Söng-
bræður
Karlakórinn Söng-
bræður úr Borgarflrði
leggur land undir fót á
laugardaginn og held-
ur tvenna tónleika.
Þeir fyrri verða i Lista-
skálanum í Hveragerði
kl. 15 og þeir seinni í
sal Félags íslenskra
hljómlistarmanna að
Rauðagerði 27 í
Reykjavík kl. 20.30.
Kórinn mun flytja
fjölbreytta og skemmti-
lega dagskrá þar sem
fleira verður á ferðinni
en kórsöngur. Meðal
þess sem mun heyrast
er tvöfaldur kvartett,
tríó, dúett og einsöng-
ur. Stjórnandi kórsins
er Jerzy Tosik- War-
szawiak og undirleik-
ari er Zsuzsanna Bu-
dai.
Leikfálag Kópavogs:
Ur uppfærslu Leikfélags Kópa-
vogs á verkinu Umhverfis jörðina
á 80 dögum sem frumsýnt verður
á morgun.
DV-mynd Pjetur
iH
a
Umhverfis jörðina
80 dögum
Á morgun kl. 14 ætlar Leikfélag Kópavogs að frumsýna leikritið
Umhverfis jörðina á 80 dögum. Leikgerð er eftir Bengt Ahlfors en
Stefán Baldursson þýddi leikritið.
Flestir kannast við sjáifa söguna eftir Jules Veme, því hún
hefur verið endursögð í ýmsum myndum; á prenti, i kvikmynd-
um og teiknimyndum. Þar segir frá breska heiðursmanninum
Fíleasi Fogg og veðmáli hans um hvort mögulegt sé að ferðast
í kringum heiminn á innan við 80 dögum. Á ferðalaginu lend-
ir hann í ýmsum hrakningum ásamt fóruneyti sínu og ekki
dregur hið sífellda kapphlaup við tímann úr spennunni.
Leikritið er stórskemmtflegt því á vegi aðalpersónanna
verða ýmsir skrautlegir karakterar og greiða þaif úr margs
konar flækjum. Vegna þess hver mannmörg sýningin er ákvað
Leikfélagið að auglýsa eftir fólki sem hefði áhuga á að starfa
með félaginu. Viðtökurnar voru afar góðar að sögn forráða-
manna leikfélagsins og því taka fjölmargir nýir leikarar þátt í
sýningunni.
Leikstjóri verksins er Frosti Friðriksson, um lýsingu sér
Skúli Rúnar Hilmarsson og Þorleifur Eggertsson sér um leik-
mynd.
Hallgrímskirkja:
Atburðir dymbilviku
Sýning á teikningum eftir Val-
gerði Bergsdóttur myndlistarmann
verður opnuð í anddyri Hallgríms-
kirkju eftir messu á pálmasunnu-
dag, 5. apríl. Valgerður sýnir þar í
boði Listasafns Haflgrímskirkju og
Listvinafélags Hallgrímskirkju.
Á sýningunni verða sjö stórar
blýantsteikningar á pappír er lýsa
atburðum dymbilviku, eins og
þeim er lýst í Biblíunni. Stærsta
myndin ber nafnið í loftsal, Kvöld-
máltíð. Hún sýnir Jesús frá Nasar-
et með lærisveinunum ásamt Mar-
íu Magdalenu við máltíðina að
kvöldi skírdags. Hinar myndimar
nefnast Bænin, Miskunnin, Dimm-
an, Fórnin, Fullkomnunin og loks
Birtan.
Myndimar era unnar sérstak-
lega fyrir Hallgrímskirkju til að
vera í kirkjunni nú um páskana.
Fmmdrög þeirra flestra voru þó
gerð fyrir nokkram árum og tengd-
ust vinnu Valgerðar við lýsingu
Sólarljóða með glugga Reykhoits-
kirkju í huga. Síðan hefur Valgerð-
ur verið skólastjóri Myndlistar-
skólans í Reykjavík og ekki sýnt
verk sín opinberlega.
Valgerður Bergsdóttir sýnir sjö stór-
ar blýantsteikningar í anddyri Hall-
grímskirkju um páskana.
Eitt verka Egils Sæbjörnssonar sem sýnir okkur möguleika sýndarveru-
leikans.
í tölvunni er ekki þyngdarafl
í dag verður opnuð sýning á
verkum Egils Sæbjörnssonar á
Mokka við Skólavörðustíg. Egill
útskrifaðist úr fjöltæknideild
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands síðastliðið vor og hefur
einkmn fengist við tölvutengda
listsköpun.
Á sýningunni veltir Egill m.a.
fyrir sér sýndarveruleika og
veruleika. „I sýndarveruleika
tölvunnar er ekkert þyngdarafl.
Þar getum við flogið og gengið í
gegnum veggi, verið risastór eða
á stærð við sandkorn og háhýsi
geta litið út eins og rykhnoðri á
gólfinu. Allt sem við getum
ímyndað okkur er mögulegt og
það sem áöur var óhagganlegt
tekst nú allt í einu á flug,“ segir
Egill.
Dansað til Blackpool
Á morgun fer fram árleg danshátíð Kringlunnar og Dansskóla Jóns
Péturs og Köru. Þar mun fjöldi glæsilegra keppnispara frá skólanum
dansa fyrir verslanir Kringlunnar milli kl. 10 og 16.
Danshátíðin er hluti af fjáröfiun keppnisparanna sem halda utan til
danskeppni í samkvæmisdönsum í Blackpool í Englandi í apríl og maí
næstkomandi. Keppni þar er sú stærsta sem haldin er í heiminum og
hafa sum paranna sem dansa í Kringlunni náð frábærum árangri í
Blackpool.
Danspör skólans sem fóru til Blackpool í fyrra. Nú stendur til að fara
utan með jafnfríðan hóp í ár.