Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1998, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1998, Page 11
[ Blúskvöld í Björk Blúskvöld verður haldið í Hótel Björk í Hveragerði i kvöld kl. 21. Þar mun Hljóm- sveit Guðmundar Pétursson- ar leika af fingrum fram. Sóldögg Hljómsveitin Sóldögg heldur austur fyrir Qall á laugardag- inn og spilar á Inghóli á Sel- fossi. Svensen og Hallfunkel skemmta önnur kvöld. „Boogie' kvöld Haldið verður „Boogie" kvöld á skemmtistaðnum Broadway i kvöld. Þar verð- ur Páll Oskar með tónleika auk þess sem italskir karl- stripparar troða upp. Á laug- ardagskvöld mætir Björgvin Halldórsson svo á staðinn með sýninguna „í útvarpinu heyrði ég lag“. Leynifélagiö Grand ba|| Á skemmtistaðnum Sir Oli- ver leikur Jasstríóið Leynifé- lagið bæöi föstudags- og laug- ardagskvöld. Buttercup Hljómsveitin Buttercup spil- ar á HB-pöbb í Vestmanna- eyjum um helgina bæði föstudags- og laugardags- kvöld. Gullöldin Jasskvartett Þorsteins Ei- ríkssonar (Steina Krúbu) leikur á Gullöldinni i Grafar- vogi á sunnudagskvöldiö. Á Hótel Barbró á Akranesi verður haldiö Grand ball í kvöld. Hljómsveitin Gleði- gjafar mun leika fyrir dansi auk þess sem margvísleg skemmtiatriði verða á boðstólum. Naustkjallar- inn Á Naustkjallaranum spilar dúettinn Þotuliöiö í kvöld en á morgun mun dúettinn Gammeldansk halda uppi fjörinu. FOSTUDAGUR 3. APRIL 1998 ínlist Hljómsveitin Buttercup: „Já, við tókum nafnið úr myndinni Cingpin. Stærsti hesturinn í sveitinni ■ar kallaður Buttercup.“ Þetta fullyrð- r Heiðar Kristinsson trommari, en tann og Valur Sævarsson söngvari :ru mættir í kaííi. Aðrir í Buttercup iru Davið Þór Hlinason gítarleikari )g Símon Jakobsson bassaleikari. ?eir eru allir „rúmlega tvítugir“. Mis- -úmlega þó. Heiðar og Davíð voru jaman í hljómsveitinni Dos Pilas. „Við fórum á stúfana eftir að sú sveit hætti og fundum Val heima hjá hon- um. Hann tók lagið og við heyrðum að hann gat sungið.“ Valur hafði verið í ýmsum böndum í Vestmannaeyjum. Annar aðkomumaður, Símon Jakobs- son bassaleikari, var grafinn upp og bandið small saman. Símon hafði spilað með ísfírsku hljómsveitinni Urmull. Þeir byrjuðu að spila saman lög á ensku með „Seattle-ívafT', en músíkin gerði sig ekki alveg fyrr en þeir fóru að syngja á íslensku. „Við þroskuðumst úr enskunni og Seattle-rokkinu,“ segir Heiðar. - Hver var pælingin þegar þið byrjuðuð? „Við rottuðum okkur saman án þess að pæla mikið í því hvað við ætluð- um að gera,“ segir Valur. „Við spil- um allan fjandann, djass og pönk, yflr í smjörpopp. Við látum hug- myndaflugið og fiölbreytnina ráða. „Við tókum nafnið úr myndinni Kingpin. Það er lýðræði í hljómsveitinni." Hljómsveitin spilar bæði frumsamið efni og lög eftir aðra (kóverlög). Strák- arnir hafa verið að spila á Gauknum og á böllum úti á landi. Þeir eru bók- aðir fram í júní en segjast þó ekki lifa á spiliríinu. Þeir segjast leggja metnað sinn í spilamennskuna: „Við viljum ekki falla í froðupoppsdeildina og spil- um aðeins þyngri tónlist en flestar ballgrúppur. Við útsetjum og kryddum kóverlögin svo þau hljómi ekki alveg eins og upp úr útvarpinu." I vinnunni með Prodigy „Takk fyrir“ var það eina sem ég sá af upphitunarhljómsveitinni Quarashi. Það var reglulega vel flutt afkynning. Ég hafði nefnilega þurft að troðast áfram í iðandi þvögu framan við Laugardalshöll- ina í þrjú kortér. Alltaf sama frá- bæra skipulagningin hér um leið og fleiri en þrir koma saman. Mér var sagt að Quarashi hefði verið frábær, með hoppandi strumpa á sviðinu, og ég trúi því alveg. Það var annars hefðbundin stór- tónleikastemning í Höllinni. Smá- krakkarnir leiddust hressir í smá- taumum, einstaka foreldri sást skjótast smeykt á milli horna og margir flugu um á fyrsta farrými hjá einhverju öðru flugfélagi en ÁTVR- Airlines. Afslöppuð stemn- ing, en það tók að hitna í kolunum eftir því sem lengra leið án þess að Prodigy birtist. Hópurinn smá- stækkaði framan við sviðið og gæslumenn þurftu að draga sífellt fleiri rænulitlar smápíur úr þvög- unni. Séð úr flarlægð er eins og þvagan öðlist sjálfstætt líf á svona stórtónleikum, verði eins konar sí- breytilegt bakteríuský. Kannski fannst mér þetta bara af því grasa- lyktin þar sem ég stóð var svo stæk. Hljómsveitin tók öll sín helstu lög og ágætis lyfting var í trommaranum sem bæst hefur í hópinn síðan Prodigy spilaði hér síðast. Á milli laga tóku þeir hægari smádjömm sem tengdu prógrammið skemmtilega sarnan. DV-mynd Hari Skrímsli Frankensteins Hvað með það; hrúgan fór nú að hrópa Prodiggí, Prodiggí og loks- ins, loksins birtist sköllóttur Breti og spurði hranalega hvort við vild- um Prodigy. Jú, jú, jarmaði hrúg- an og bandiö smátíndist á svið. Að vanda kom Liam sér fyrir aftan við tækjahrúguna og ýtti á viðeig- andi takka. Hann er eins konar Doktor Frankenstein þessarar hljómsveitar; geðveikur tilraima- karl og sviðsmyndin undirstrikaði þetta; sviðið leit út eins og dular- fullur draugahellir. Skrímslin hans smástukku á svið. Maxim Reality verður að teljast aðal- skrímslið og var í ágætu stuði. Hann átti vinalegt spjall við sal- inn; æpti að viö gætum öll fokkað okkur, helvítin. Það var eins og Keith væri kvefaður eða eitthvað, nennti þessu hálfpartinn ekki, en lét sig þó hafa það enda' í vinn- unni. Hann hafði líkt og Maxim allt á hornum sér enda með klipp- inguna í það og veltist um sýlspik- aður og málaður. Dansspíran Lee- roy var hins vegar skælbrosandi allan tímann eins og Liam hefði gleymt að setja í hann heila; lufs- aðist í spastísku flogi fram og aft- ur um sviðið eins og grindhoraður og kryppulaus hringjari frá Notre Dame. Hann er vonarglæta fyrir alla lúsera heimsins; þótt þú getir ekkert er alltaf séns að vinur þinn fái þig sem dansara í hljómsveit. Félagarnir þurftu oft að skreppa frá og fá rafstuð baksviðs. Stund- um var því enginn uppi á sviði en ef svo heppilega vildi til að allir væru á sviðinu í einu dönsuðu þeir um, hrintu hver öðrum og ybbuðu sig. Pallaleikfimi Hljómsveitin tók öll sín helstu lög og ágætis lyfting var í trommaranum sem bæst hefur í hópinn síðan Prodigy spilaði hér síðast. Á milli laga tóku þeir hæg- ari smádjömm sem tengdu prógrammið skemmtilega saman og það var flnt flæði á þessum tón- leikum, en samt eins og Prodigy- menn væru I vinnunni - sem þeir voru reyndar - og hefðu ekkert alltof gaman af þessu sjálfir. Fá bönd eru þó betur faflin til að hafa heilalaust gaman að og skaka sér við. Krakkamir höfðu líka ótrú- lega gaman af bandinu, kösin trylltist á hárréttum stöðum og steytti hnefana og í öllum hornum mátti sjá krakka í geggjaðri palla- leikfimi. Sándið á tónleikunum var ágætt, eins ágætt og það verð- ur í þessari íþróttahöll sem er hræðilegur tónleikastaður í alla staði, en það hefði mín vegna mátt hækka meira. í lokin var Maxim voðalega sár að þurfa að yfirgefa sviðið. Hann fór mörgum orðum um fegurð lands og þjóðar og þakkaði öllum kærlega fyrir, sem var frekar skondið í ljósi þess að hann hafði eytt kvöldinu í að segja hópnum að fokka sér. En svona er bransinn; eintóm látalæti og vit- leysa. -glh Stærsti hesturinn í sveitinni var kallaður Buttercup." - Hvaða kóverlög takið þið? „Allan flandann. „My Sherona" (The Knack), „Blisters In The Sun“ (Violent Femmes), lög úr Grease ... Við reynum að finna sjaldgæfari ball- lög en það er erfltt. Þú finnur eitthvað í plötusafninu hjá pabba þínum, æfir það upp og spilar á Gauknum, og ef það virkar eru öll hin böndin komin með það á sitt prógramm daginn eftir. Okkur hefur verið gríðarvel tekið enda keyrum við fólk áfram og látum það svitna. En við erum með ballöður líka - erum með allan regnbogann." r I láttrugluðu skapi Frumsamda deildin hjá Buttercup er líka fyrirferðarmikil. „Það var á stefnuskránni að gera sjö laga plötu í sumar - svona létta sumarplötu til að hasla okkur völl á sem fljótlegastan hátt - en útgefendur réðu okkur frá því. í staðinn gefum við líklega út stóra plötu í vetur með metnaðarfyllri lögum og setjum eitt lag á safnplötu í sumar.“ Buttercup átti lagið „Af hverju“ á Pottþétt 10. „Ég er ósáttur við viðtökur útvarpsstöðva á laginu," segir Valur, „þar sem fólk á tónleik- um er vægast sagt ánægt með þetta lag. Ég er líka ánægður með það. Lag- ið er mjög heilsteypt, bæði uppbygg- ingin og textinn." Lagið „Grænar varir“ er nú farið að hljóma í útvarpi og er komið á ís- lenska listann. Valur viðurkennir að þaö sé dálítið léttvægt: „Við vorum allir í léttrugluðu skapi þegar við sömdum það og reyndum að hafa það eins poppað og við gátum, með dú- vopp-töktum og fleira." - Hver semur textana? „Allt það sem er gott sem ég,“ full- yrðir Valur sposkur. „Þeir eru um allt og ekkert. Stundum býður lagið upp á það að textinn sé ekki um neitt en oft fer maður í dýpri pælingar. Til dæm- is er eitt nýjasta lagið okkar - sem ég vona að fari á safnplötu í sumar - ádeila á ofbeldi og skeytingaleysi flöl- miðla. Það gengur undir nafninu „Sjónvarpslagið", en ég býst við að það verði látið heita „Doflnn“.“ Buttercup verða í Vestmannaeyjum um helgina en eiga örugglega eftir að láta að sér kveða annars staðar á næstunni. -glh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.