Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1998, Blaðsíða 3
DV FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 1998
17
L.A. Confidentai ★★★★
SkuggahliSar Los Angeles sjötta áratugarins
eru sögusviSiö í óvenju innihaldsríkri og
spennandi sakamálamynd sem enginn ætti
aö missa af. Spilltar löggur, ósvífnir
æsifréttamenn, melludólgar og glæsilegar
vændiskonur eru á hverju strái. -HK
Titanic ★★★i
Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af
miklum fitonskrafti tókst James Cameron aö
koma heilli í höfn dýrustu kvikmynd sem
gerð hefur veriö. Fullkomnunarárátta Camer-
ons skilar sér í eölilegri sviösetnlngu sem
hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Leonardo
DiCaprio og Kate Winslet eru eftirminnileg I
hlutverkum elskendanna. -HK
Good Will Hunting ★★★i
) eria;
3q the Doq ★★★
isfeyttur svartur húmor, se
I mynd þar sem svo mikiö erlagt upp úr per-
sónunum verður leikurinn aö vera góður. Sér-
staklega eftirminnilegur er samleikur Will-
iams og Damons. Hiö sama má reyndar
segja um flesta leikara í aukahlutverki. Best-
ur er þó Stellan Skarsgárd en 1 túlkun sinni á
stærðfræöingnum Lamþeau dregur hann
upp sannfærandi mynd af manni meö mikla
sérgáfu sem þó verður aö játa sig sigraðan í
návist ótrúlegrar snilligáfu. -ge
Jackie Brown ★★★tL
Jackie Brown er sterk kvikmynd meö góöum
leikurum þar sem svartur húmorinn nýtur sín
þegar þaö á viö og hinn grófi talsmáti per-
sónanna minnir okkur sterklega á hver þaö
er sem leikstýrir myndinni. Tarantlno er
stundum t hægagir en það gneistar af hon-
um í mörgum frábærum atriðum. -HK
Anastasía -*■★★
Sagan af týndu prinsessunni Anastasíu er
hreinn ævintýramatur. Myndin einkenndist öll
af hugmyndariki og hélt gamlingianum mér
uppteknum allan timann, þrátt fyrir fremur leiö-
inlega músík sem virðist skylda i skemmtiefni
af þessu tagi. Fyrir utan smáhroil yfir söguskýr-
ingum fannst mér Anastasía hin besta
skemmtun og meö betri teiknimyndum sem ég
hef séö lengi. -úd
Wa
Beinslleyttur svartur húmor, sem beinist aö
forsetaembætti Bandarikjanna og stríðs-
rekstri stórveldanna, er undirstaöan i kvik-
mynd sem er vel heppnuð og göö skemmtun
en er þó ekki gallalaus. Dustin Hoffman er
frábær í hlutverki kvikmyndaframleiöanda
sem setur stríð í Albaniu á sviö. -HK
Litla hafmeyian ★★★
Teiknimyndir Walts Disneys eru klassiskar og
þegar ný kynslóö rís eru þær settar á markaö-
inn á ný og er ekkert annað en gott um þaö að
segja. Litla hafmeyjan kom meö ferskan blæ inn
i þetta kvikmyndaform eftir aö teiknimyndir I fullri
lengd höföu veriö I lægö um nokkurt skeiö og hún
a fullt erindi enn til ungu kynslóðarinnar. fslenska
talsetningin er vel heppnuö. -HK
The Boxer ★★★
Handrit þeirra Sheridans og Georges er
ágætlega unnið, leikur Daniel Day-Lewis til
fýrirmyndar og hnefaleikaatriöin vel úr garði
gerö. Aörir leikarar standa sig einnig meö
stakri prýöi. -ge
Djarfar nætur ★★★
I Eíoogie Nights snýst allt um hinn gríöarlanga
lim klámsfiömunnar Dirks Digglers. Sem
tímabilskönnun er mynd Anderssons af-
bragðsgóö, handritið er vel skrifað og ef
drengurinn heföi bara skafiö af eins og hálfa
Tarantinósenu hér og hálfa Travoltasenu þar
(og sleppt ofurlanga gúmmítyppinu) hefði
þetta getaö oröiö ansi fullkomiö. En veröur aö
láta sér nægja að vera bara ómissandi. -úd
Það gerist ekki betra ★★★
Framan af er As Good as It Gets eins góö og
gamanmyndir gerast. Samræöurnar einkenn-
ast af óvenjumikilli hnyttni, leikurinn er með
ólíkindum og handritshöfundunum Andrus og
Brooks tekst að stýra fram hjá helstu gildrum
formúlufræöanna. Það var mér því til mikilla
vonbrigða þegar myndin missti flugið eftir hlé.
Lelkurinn var enn tii fyrirmyndar en þær fjör-
miklu og óvenjulegu persónur sem kynntar
voru tii sögunnar i upphafi fengu ekki svigrúm
til þess að vaxa. -ge
Þú veist hvað þú gerðir ...
★★★
Handritshöfundurinn Kevin Wllliamson er hér
aftur búinn aö hrista þessa finu unglinga-
hrollvekju fram úr erminni og er hér með
mynd sem er bæði sjálfsmeðvituð og alvöru
spennandi hrollvekja, smart og vel gerö. Og
þaö flaug popp. Það hlýtur aö vera þriggja
stjörnu virði. -úd
Stikkfrí ★★★
Gott handrit og góöa barnaleikara þarf til aö
gera góöa barnamynd og þetta er að finna í
kvikmynd Ara Kristinssonar sem auk þess
gerir góðlátlegt grín að þeim aöstæöum sem
börn fráskilinna foreldra lenda í. Skemmtileg
og Ijúf fyrir alla fjölskylduna. -HK
Flubber ★★★
Rubber býr yfir einfaldleika sem þvi miður er
allt of sjaldséöuf i kvikmyndum síöustu ára.
Hún er barnamynd fyrir börn og ég get engan
veginn séö þaö sem galla. Besti mælikvarö-
inn á slíkar myndir er salur fullur af ánægö-
um börnum. Og krakkarnir voru i stuði. -ge
Seven Years in Tibet
Myndin ber meö sér aö hvert einasta atriöi er
þrauthugsað og raunsæið látiö ráða ferðinni,
kannski um of. Myndin veröur af þeim sökum
aldrei þetta mikla og spennandi drama sem
efnið gefur tilefni til þótt einstaka atriði risi
hátt. Utlit myndarinnar er óaðfinnanlegt, kvik-
myndataka stórfengleg og leikur mjög góöur
en neistann vantar. -HK
Desperate Measures ★★i
Sem spennumynd er Desperate Mesures,
hin sæmilegasta skemmtun en býöur þó
ekki upp á neitt nýtt i frásagnarfiéttu og per-
sónusköpun. Helsti kostur hennar eru leikur
Michaels Keatons, sem er afbragðs illmenni
og moröhundur, og Andy Garcia sem er sann-
færandi sem faöirinn sem fórnar öllu í þágu
sonar síns. Túlkun þeirra er það eina sem
hefur myndina yfir meöalmennskuna. -ge
%vikmyndir
w ★ ★
Denzel
Washington
Denzel Washington er sjáfsagt sá
svarti leikari sem mestrar virðingar
nýtur um þessar mundir. Was-
hington á að baki einstaklega far-
sælan feril og lék stórt hlutverk í
sinni annarri kvikmynd, A Soldi-
er’s Story árið 1984. Leikur hans
vakti athygli og fékk hann í kjölfar-
ið góð hlutverk, meðal annars í Cry
Fredom, en fyrir leik í þeirri mynd
var hann tilnefhdur til óskarsverð-
launa. Washington fékk síðan ósk-
arsverðlaun fyrir leik sinn í Glory
og fékk sína þriðju óskarstilnefh-
ingu fyrir Malcohn X. Hann var
einnig verðlaunaður fyrir leik í
Mississippi Masala.
Washington hefur unnið að
mörgu öðru með fram kvikmynda-
leik. Hann framleiddi heimilda-
myndina Hank Aaron: Chasing the
Dream, sem tilnefhd var til Emmy-
verölaunanna og fékk Grammy-
verðlaun fyrir upplestur á bama-
plötu. Næsta kvikmynd Denzel Was-
hington er He’s Got a Game, sem
Spike Lee leikstýrir og er það í
þriðja sinn sem hann leikur undir
stjórn Lees, áður höfðu þeir gert
Malcolm X, Mo’ better Blues. Hér á
eftir fer listi yfir þær kvikmyndir
sem Denzel Washington hefur leikið
í:
Carbon Copy, 1981
A Soldier's Story, 1984
Power, 1986
Cry Freedom, 1987
For Queen and Country, 1988
The Mighty Quinn, 1989
Glory, 1989
Mo' Better Blues, 1990
Heart Condition, 1990
Ricochet, 1991
Mississippi Masala, 1992
Malcolm X, 1992
Much Ado about Nothing, 1993
The Pelican Brief, 1993
Philadelphia, 1993
Crimson Tide, 1995
Devil in a Blue Dress, 1995
Virtuosity, 1995
Courage under Fire, 1996
The Preacher's Wife, 1996
Fallen, 1997 -HK
Denzel Washington leikur lögreglumanninn Hobbes sem á ekki marga vini
þegar snaran þrengist.
Fallen:
Morðingi myrðir úr gröfinni
í Fallen, sem Sam-bíóin taka til sýn-
ingar í dag, leikur Denzel Washington
lögreglumanninn John Hobbes sem
ásamt félaga sínum, Jonesy, hefur
komið íjöldamorðingja i rafmagnsstól-
inn og orðið vitni að aftökunni. Þeir
verða því ekki htið undrandi þegar
morð verða framin með sömu aðferð
og hinn látni fjöldamorðingi notaði.
Lögregluforinginn Stanton er ekki
viss um hvort morðin séu framin af
einhverjum sem veit nákvæmlega
hvemig hinn morðinginn hagaði sér
eða lögreglumanninum Hobbes en það
er ýmislegt sem bendir til þess að
hann sé viðriðin morðin. Hobbes þarf
því að reyna að ráðast gegn hinu óút-
skýranlega, hvemig morðinginn getur
alltaf látið hta út sem hann sé grun-
samlegur. I rannsókn sinni reynist
honum dýrmætt að hafa leitað til guð-
fræðiprófessors sem einnig er vel að
sér í hinu yfimáttúrlega.
Auk Denzels Washingtons leika
John Goodman Donald Sutherland,
Embeth Davidtz, James Gandolfini og
Elias Koteas stór hlutverk. Leikstjóri
er Gregory Hoblit sem hefur að baki
langa reynslu í gerð sjónvarpsmynda
af ýmsum gerðum en hefúr nýlega
snúið sér að kvikmyndaleikstjóm.
Hoblit hefur í mörg ár verið fenginn
til að leikstýra fyrstu þáttum í sjón-
varpsseríum sem mikið er búist við af
og má nefiia L.A. Law, Hooperman, og
NYPD Blue sem allar urðu mjög vin-
sælar. Þekktastur er hann þó fýrir Hih
Street Blues en sú sjónvarpssería
hafði mikil áhrif á gerð spennumynda
í sjónvarpi. Áður en Hoblit sneri sér
að gerð Fallen hafi hann leikstýrt
einni kvikmynd, Primal Fear, með
Richard Gere í aðalhlutverki .-HK
- aösókn dagana 10.-12. apríl. Tekjur i mllljónum dollara og helldartekjur
Englaborgin á
toppnum
Geimfantasian Lost in Space
geröi stutta viödvöl á toppi
listans og I staöinn er kom-
in hin rómantíska kvikmynd
City of Angels, sem einhverj-
ir hafa veriö aö líkja viö
Ghosts enda er ein aðalper-
sónan engill sem fær sigflutt-
an í mannslíkama um stund.
City of Angels er lauslega
byggö á einni frægustu kvik-
mynd Wim Wenders, Wings of Desire. Þaö aö City of Angels komst í efsta
sæti listans geröi þaö aö verkum aö stórfyrirtækiö Warner Bros kom kvik-
mynd í efsta sætiö, síöasta myndin frá Warner til að verma toppsætið var
Fire down below, 7. september síöastliöinn. Fjórar aðrar nýjar kvikmyndir
eru einnig ofarlega á listanum, en aösókn á þrjár þeirra olli vonbrigöum,
Species II er geimhrollvekja sem greinilega ætlar ekki aö gera stóra hluti
og The Odd Couple II (Jack Lemmon og Walter Matthau) og My Giant (Billy
Crystal) eru gamanmyndir sem ná kannski aö rétta sinn hlut í næstu viku.
Þeir sem geröu The Players Club, sem er í fimmta sæti, brosa breitt. Um
er aö ræöa ódýra kvikmynd sem þegar er búin að ná inn fýrir kostnaöi. Leik-
stjóri hennar er rapparinn lce Cube. Aðeins heimildarmyndin Everest var
meö meiri aösókn ef miöaö er við fjölda sýningarsala.
-HK
Helldartekjur
15,36
40,22
City of Angels
Lost in Space
Tekjur
15,36
13,39
3. (2) Tltanic 8,55 542,85
4. (-) Species II 7,27 7,27
5. (-) The Players Club 5,89 8,42
6. (3) Mercury Rlsing 5,45 18,84
7. (-) The Odd Couple II 4,81 4,81
8. (-) My Glant 3,11 3,11
9. (4) Grease 2,51 187,99
10. (5) Prlmary Colors 2,41 32,73
11. (8) As Good as it Gets 2,06 139,62
12. (9) Good Will Hunting 2,00 129,22
13. (7) The Man In the Iron Mask 1,60 52,22
14. (6) Wild Thlngs 1,56 26,68
15. (ii) Barney’s Great Adventure 1,38 4,88
16. (18) Everest 0,88 6,37
17. (12) U.S. Marshall 0,79 54,50
18. (10) The Newton Boys 0,61 9,17
19. (14) The Weddlng Singer 0,60 74,00
20. (15) L.A. Confídental 0,48 62,01
EáiSSi k-xiííi-* :»at I *
jbÍ’j at -Í JtÍ 2