Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1998, Blaðsíða 9
X>V FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 1998 nlist- HLJ0MPL9TU Space - Tln Planet ★★★ Space eru fimm strákar frá Liverpool. Þetta er önnur platan. Sú fyrsta, Spiders, kom út fyr- ir tveim árum og hún, ásamt laginu Female of the Spacies, gerði þá fræga á einni nóttu. í kjöl- farið fylgdu tónleikaferðalög, taugaáföll og hin hefðbundna tilvistarkreppa sem kemur yfirleitt í kjölfarið á hinum snörpu umskiptum að fara af bótum á háklassahótel. Nema hvað: Þeir unnu sig úr sjálfskaparvítinu og snúa nú aftur með ágæta plötu. Fáir reyna að blanda gríni og rokki saman og enn færri tekst að fá góða út- komu úr slíkri blöndu. Madness er nokkum veginn eina bandið sem ég man eftir í svipinn sem hefur komist skammlaust frá grínrokkinu. Space treður þessa vafasömu braut og sleppur oft fyrir horn en líkt og Madness er þetta smáskífuband frekar en breiðskífuband. Þessi plata byrjar geysivel - þrjú frábær lög í röð. Fyrst er Begin Again, episk trega- ballaða sem jafnvel John Barry þyrfti ekki að skammast sín fyrir, þá Avanging Angels, glitrandi finlega ort popp, og loks The Ballad of Tom Jones, þar sem Cerys söngkona Catatonia mætir í dúett í pottþéttu popplagi. Eftir þessa frábæru byrjun fer að halla undan fæti og hápunktum að fækka. Hljómsveitin ræðst glottandi í að spila hinar að- skildustu tónlistarstefnur, gítarballöður yfir í gamaldags evrórusl og viðvaningslegt diskó. Útkoman er ágæt yfir í hræðilega slappt því stundum er eins og bandið sé á al- gjöru einkaflippi og sé ekki að reyna annað en að vera ofsa fyndið en er þá um leið yf- irleitt ófyndnast. Það þarf nefnilega verulega frábæran brandara til að hægt sé að hlæja að honum oftar en einu sinni en gott lag er margnota. ' Gunnar Hjálmarsson Ýmsir/George Martin - In My Life ★★ í stað þess að láta það ráðast af „happi og glappi" hver yrði síðasta platan sem hann vann ákvað George Martin að hóa í vini og frægt lið og láta síðasta verkefnið verða safnplötu þar sem mislitur hópurinn tekur bitlalög í ýmsum útgáf- um. Um snilli Georgs við stjórnvöl hljóðversins þarf ekki að fjölyrða en öll snilldin varð til á ævi- skeiði Bítlanna. Ef fitonskraftur hefði verið í kalli hefði hann kallað á frjóustu poppara dagsins og bruggað með þeim vítamínbætt bítlaseyði, en George er orðinn gamall maður og ekki líklegur í stórræðin. Áður en inniskórnir og notalegt kjag á golfvellinum verða hans aðalmál kemur þessi plata með bítlalögum í allinnantómum búningi. Á plötunni fara bítlalögin á stofnun, leggjast hálfpartinn á elliheimili en fá slitrótta næringu í æð frá upptökustjóranum. Upphafinn virðuleiki lekur af útgáfum Vanessu Mae, Celine Dion og Johns Williams. Jálkarnir Jeff Beck og Phil Collins kjósa að fara svipaða leið og bitlarnir gerðu sjálfir og bæta engu við og svo hefur George þótt við hæfl að smala saman leikaraskríl til að klæmast á bítlinu. Hinn drepleiðinlegi Jim Carrey fer hefðbundnum hamfórum um „I Am the Walrus", sem fær mann alveg til að gleyma snilld þess lags, Goldie Hawn kisulórast um A Hard Day’s Night og Sean Connery muldrar In My Life. Flestir bítlaaðdáendur eiga eftir að samþykkja útgáfuna, með miklum semingi, og telja hana til elliglapa í þeim gamla. Helsti kosturinn við pakkann eru minnispunktar Georgs við hvert lag og tónlist sem hann semur sjálfur; tónlist úr Yellow Submarine og fallegt lag, Friends and Lovers, sem hann samdi skömmu eftir að John Lennon var myrtur. Gunnar Hjálmarsson Cappadonna - The Pillage ★★★ Ekkert virðist geta stoppað flug þeirra Wu-Tang félaga með meistara RZA í fararbroddi. Þegar hafa verið gefnir út tveir diskar á árinu og þeim á eftir að fjölga. Fyrir stuttu var fjallað um diskinn Hea- vy Mental með Killapriest á þessum vettvangi og nú verður getið um 6. sólóskífuna sem Wu-Tang clan stendur fyrir, Cappadonna: The Pillage. Cappadonna kom fyrst fram í laginu „Ice Cr- eam“ með Raekwon the Chef og hefur síðan tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum Wu-tang Clan, núna síðast á diskinum Wu-Tang Forever. The Pillage er mjög í sama anda og Ironman með Ghostface. Mjög þungir taktar og að sama skapi þungar bassalínur einkenna diskinn. Þetta er stíll sem þarf að venjast en eftir að hafa hlustað nokkrum sinnum þá smellur eitthvað og þá mega nágrannarnir alvar- lega fara að íhuga að kaupa sér hljóðeinangrun fyrir allt húsið sitt. Eins og aðrir Wu-Tang-Iiðar stendur Cappadonna ekki einn að disknum heldur fær hann aðstoð í nokkrum lögum frá Ghostface, Raekwon og síðast en ekki síst þeim mikla snillingi Method Man. The Pillage er góður diskur. Ef honum er bara gefinn séns þá veldur hann ekki vonbrigð- um. The Wu- Tang saga continues.Judgement Day“ is near. Guðmundur Halldór Guðmundsson The Bluetones - Return To The Last... ★★★ Bluetones kemur gjörsamlega á óvart með þessarri plötu. Sveitin hefur notað síðastliðin tvö ár síðan fyrsta platan kom út til að semja lög enda voru engin í handraðanum. Lög fyrstu plötunnar voru samin á tíu ára tímabili og fóru öll á plötuna og því nokkurt þrekvirki að semja lög fýrir þessa plötu. Rokk er allsráðandi hér og rödd Mark Morriss notuö á áhrifaríkari máta en í fyrri lög- um sveitarinnar. Þetta er sýnilegast í laginu Sle- azy Bed Track sem að mínu mati er besta lag plöt- unnar, hálfgerður blús um konu sem er farin að ofnota pillumar og er ráðlagt að fleygja þeim í vaskinn, sparka af sér skónum og leggjast niður með manninum. Bluetones leggja hér meira upp- úr sándi og finiseringum en áður og á margan hátt eru lögin aðgengilegri fyrir stærri hóp þó ekki sé hægt að kalla þetta hreint popp. TO þess eru lögin of rokkuð, ólík hvert öðru og mestmegnis frumleg og óvenjuleg. Tónlistin líkist áhrifavöldum sveitarinnar, Stone Roses, en líka er hægt að greina Supergrass áhrif í raddútsetningum og viðlögum. Ekki er að mínu mati hægt að fara fram á betri „aðra plötu“ sveitar en Bluetones koma hér með. Ég var enginn sérstakur aðdáandi sveitarinnar áður en nú bíð ég óþreyjufuUur eft- ir næstu plötu. Páll Svansson Dúettinn skipa söngvarinn Darren Hayes og hljóöfæraleikarinn Daniel Jones. Þeir kynntust i gegnum smáaugiýsingu í dagblaöi í Brisbane fyrir fjórum árum og smullu snarlega saman, lögöust í híöi og fóru aö senda út prufuupptökur af frumsömdu efni. Garden - ástralskt popp á uppleið Ástralska hljómsveitin Savage Garden hefur verið viðloðandi vinsældalista beggja vegna Atlantshafsins síðustu mánuði með smáskífu- lagið Truly Madly Deeply og breiðskífu, sam- nefnda sveitinni. Tónlistin er algjört popp og meðlimimir tveir skammast sín ekkert fyrir það. Þeir segjast hafa verið leiðir á flrrtu gítar- rokki og ákveðið strax að fara aðrar leiðir. Dúettinn skipa söngvarinn Darren Hayes óg hljóðfæraleikarinn Daniel Jones. Þeir kynnt- ust í gegnum smáauglýsingu í dagblaöi í Bris- bane fyrir fjórum ámm og smullu snarlega saman, lögöust í híði og fóru að senda út prufu- upptökur af fmmsömdu efni. „Við náðum sam- bandi strax,“ rifjar Darren upp. „Við vomm báðir fullir af metnaði og ákveðnir í að standa okkur.“ Prufuupptökurnar féllu í kramið og eins og hendi væri veifað var dúettinn kominn í hljóð- ver, ermarnar uppbrettar og næstu átta mán- uðir fóra í að fullklára fyrstu plötuna. „Þetta var mikil lærdómsupplifun," útskýrir Daniel. „Við vorum enn að reyna aö átta okkur á því að ferðalagið var byrjað, að við værum í raun byrjaðir að gera þaö sem við höfðum stefnt að allt okkar líf.“ Popp Savage Garden er ofið úr ýmsum glitr- andi þráðum og vefnaðurinn tekur á sig ýmsar myndir. Stundum minna þeir félagar á önnur áströlsk bönd, eins og Midnight Oil eða Men at Work, oft er komið popphljóð níunda áratugar- ins í strokkinn og tónlistin minnir meira en lítið á Tears for Fears og þvílíkt hárgreiðslu- popp og á öðrum stöðum skreppur Savage Gar- den í hægbráðnandi R&B-fíling. Þetta stefnu- flakk skýrist kannski af ungum aldri strák- anna (báðir eru nýorðnir tvítugir) og miklum ákafa og ástríðu sem þeir leggja í tónlistina. Persónuleiki félaganna skín einnig í gegn. Daniel útskýrir: „Lagið Universe átti fyrst að vera ósungið, var samið fyrir gítar og hljómaði eins og blanda af Clapton og Steve Vai. Þá kom Darren inn og núna hljómar það eins og eitt- hvað frá Motown.“ Fyrsta smáskífan, I Want You, varð söluhæsta smáskífan í Ástralíu árið 1996 og allar smáskífur i framhaldi af henni hafa þotið beint í efsta sæti ástralska listans. Með alþjóðlegan hljómplötusamning við Col- umbia upp á vasann hefur hljómsveitin svo verið að taka Vesturlönd með traustu trukki síðustu mánuði og ekkert lát virðist ætla að veröa á. En poppið er fallvalt eins og annað og þessu gera strákamir sér grein fyrir: „Við vit- um vel að allt getur gerst i þessum bransa. Þaö er aldrei að vita hvað morgundagurinn ber í skauti sér og við höfum enga tryggingu fyrir því að ná því takmarki sem við settum okkur. Hingað til höfum við verið heppnir og fengið mörg góð tækifæri. Það eina sem við getum gert er bara að halda áfram að búa til góða tón-» list; gera það sem við gerum best.“ -glh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.