Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 Spurningin Hvorir finnst þér fyndnari, Fóstbræður eöa Spaugstofumenn? Þóra Jónsdóttir eðlisfræðingur: Spaugstofumenn. Hulda Þórsdóttir bankastarfs- maður: Fóstbræður. Ólafur Magnússon rafvirki: Spaugstofumenn. Karen Ósk Hrafnsdóttir banka- starfsmaður: Spaugstofumenn. Baldur Baldursson: Spaugstofu- menn, ekki spurning. Lilja Björk Birkisdóttir: Spaug- stofumenn. Lesendur Ríkissjónvarpið fullkomlega óþarft Bjarni Guðjónsson hringdi: Það er ef til vill að bera í bakkafullan læk- inn að minnast yfirleitt á Sjónvarpið sem við skattgreiðendur borg- um með. En svo mikið er kvartað yfir dagskrá þess, óstundvísi og óvönduðu efni, ekki síst af þeim sem kannski eru dyggustu áhorfendurnir, að full- yrða má að Ríkissjón- varpið, í því starfsum- hverfi sem það er rekið í dag, sé fullkomlega óþarft. Vönduð skoðana- könnun um gildi og þörf Ríkissjónvarpsins er brýn. Þar má ekki gleyma afstöðu til skylduáskriftarinnar (þ.e. áskriftarinnar að Sjónvarpinu en ekki hljóðvarpinu sem ég held að fólk vilji ekki missa) eða þættimnn um „öryggið" sem fólki er ranglega talin trú um að Sjónvarpið sé (það er hljóðvarp en Edls ekki sjónvarp). Og síðast en ekki síst er það hinn gífurlegi kostnaður Rikisútvarpsins vegna sjónvarpsrekstrar. Þótt maður búi ekki á höfuðborg- stillis ríkisins eða annarra hér á landi. Auðvitað er engin þörf ríkisrekstrar fjölmiðlunar og allra síst sjónvarps sem er aðeins óendanlegur kostnaður. Hinir fáu vinsælu þættir Sjónvarps, Spaugstofa, Á elleftu stundu o.tl., færðust bara til annarra sjón- varpsstöðva. - Málið er líka að ég, eins og margir aðrir, hef ekki efni á að kaupa nema eina sjónvarps- dagskrá þótt ég vildi, en í er í dag bundinn við neyðaráskrift RÚV á sjónvarpinu. Þessi atriði verður menntamálaráð- herra að líta á, og það með fyrra fall- inu. Það mun ekki líða langur tími þar til fólk almennt mót- mælir áskriftinni að RÚV og neitar að greiða hana. Þá væri betra að aðskilja Sjónvarpið frá bákn- inu og bjóða þeim sem vilja hljóð- varpið frjálsa áskrift. Hverjum dytti í hug í dag að gerast áskrifandi að ríkisdagblaði? - Lítum raunhæft á málið. Sjónvarpið er ekki öryggisþáttur á borð við hljóövarp, segir bréf- ritari m.a. - Á fréttastofu Sjónvarps. arsvæðinu þá eru skilyrði til að horfa á aðrar sjónvarpsstöðvar orð- in góð viðast hvar um landið. Ég undanskil þá gervihnattasjónvarp sem margir eru aðnjótandi án til- Lífsins þraut í góðærinu Katrín skrifar: í þættinum Lífsins þraut, sem sýndur var í Sjónvarpinu þriðjud. 21. apríl, var rædd forgangsröðun sjúklinga vegna peningaskorts til heilbrigðismála í landinu. Áður fyrr var þessi þjónusta innifalin í sköttunum. Síðan þá hef- ur forsætisráðherra talað um góð- æri og virðist því vera um að ræða aukiö fjármagn í ríkissjóði. En það er varla um góðæri að ræða nema það taki til hins sameiginlega sjóðs þjóðarinnar. Hvers vegna er þá í sömu andrá talað um að það séu ekki til peningar fyrir heilbrigðis- kerfið? - Hér virðist sem verið sé að lítilsvirða fólk og meina því um sjúkrahjálp og auðvelda borgun fyr- ir hjálpina (borgunin innifalin í skattinum). Ég tel því að viðkomandi ráðherr- ar séu ekki starfi sínu vaxnir. Það er engu líkara en að þeir sjálfir dragi til sín þetta fé sem talað er um í góðærinu til sérstakra gæluverk- efna sinna í kerfinu. Það er ekki sýnilegt að láglaunastéttimar hafi fengið að njóta hagnaðarins af nefndum góðærum. Og ég tel ráð- herrana til alls vísa, likt og aðra menn í opinberum stofnunum, t.d. bankastjóra, forstöðumenn opin- berra stofriana og lögfræðinga (eins og t.d. dæmið sannar í Húsnæðis- stofnuninni). Kanna ætti hversu mikil aukn- ingin er sem kom í ríkiskassann á umliðnum góðærum og i hvað sú aukning þá fór. - Halda mætti að ráðherrarnir hafi keypt landið, en enginn tekið við söluverðinu. Málið er hins vegar einfalt; landið var aldrei til sölu. Ráðherrar eru í þjón- ustustörfum fyrir fólkið í landinu en svo virðist sem þeir misnoti að- stöðu sína. Að falla með atvinnumálunum Erla Magnúsdóttir skrifar: „Reykjavíkurlistinn mun standa og falla með atvinnumálum", sagði í kosningablaði R-listans fyrir síðustu kosningar. Listinn lét þessa fullyrð- ingu ekki nægja, heldur bætti viö: „Reykjavíkurlistinn setiu- atvinnu- málin á oddinn", og: „Reykjavíkur- listinn telur að nýta eigi afl Reykja- víkurborgar til þess að skapa þessi störf. Atvinna, já takk“. - Enginn ef- ast um að Reykjavíkurlistinn ætlaði sér að útrýma atvinnuleysinu. Nú, eftir fjögurra ára góðæri, syngur R-listafólk sama sönginn. Ástæðan fyrir því að hann er sung- inn á ný er vitaskuld sú að loforðið um bætt atvinnuástand hefur ekki verið efnt. Úti um allt land hefur at- vinnuleysi nánast horfið, á meöan lítið hefur gerst í atvinnumálum í [L1IÍ)[M]GM\ þjónusta allan sólarhringii R-listinn viröist halda aö leiöin tii aö auka atvinnu í borginni sé aö þenja út yfirbygginguna í Ráöhúsinu, segir m.a. í bréfinu. Reykjavík. Engin furða, þar sem rétt umhverfi hefur ekki verið skapað til aö stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. í staö þess að lækka álögur í borg- inni og draga úr reglum og eftirliti, sem kæfa vaxtarbrodda atvinnulífs- ins, kaus R-listinn að auka hvort tveggja. R-listann skortir algjörlega rétta sýn í atvinnumálum og virðist halda að leiðin til að auka atvinnu í borginni sé að þenja út yfirbygging- una í Ráðhúsinu. Lítil dæmi um þá útþenslu er sú furðulega ákvörðun að ráða aðstoð- armann fyrir borgarstjóra, og tíma- bundin ráöning Stefáns Jóns Haf- stein í „sérverkefni" fyrir borgar- stjóra. Óhætt er að fullyrða að þeir sem greiddu R-listanum atkvæöi í síð- ustu kosningum í von um bætt at- vinnuástand höfðu allt annað í huga en pólitíska atvinnusköpun af þessu tagi. Til allra átta - frábært lagaval Ragnar skrifar: í útvarpsþættinum sem Sigríð- ur Stephensen stjórnar er oftar en ekki hið besta lagaval sem útvarp- ið býður upp á af léttara taginu. Þarna eru fremur lög frá fjarlæg- ari löndum en þeim í næsta ná- grenni. Síðast voru t.d. kynnt lög frá Grænhöfðaeyjum, framandi tónlist en hugljúf og falleg hrynj- andi. Einnig hefur maður heyrt lög frá Suöur- Ameríku sem eru sjaldheyrð í útvarpi hér yfirleitt. Dægurlög og þjóðlög frá þessum heimshluta eru framandi flestum okkar en afar vel þegin. Hneykslast á ökumanni Kristinn hringdi: Ég reikna með því að margir hafi hneykslast á ökumanninum sem sagt var frá í frétt DV nýlega. Ökumaðurinn keyrði á hund í grennd Akureyrar og sinnti lítt eða ekkert um dýrið dauöa en ók burt. Hann hafði þó rænu á, að sögn, aö skoða skemmdimar á bíl sínum eftir höggið. Svona frarn- koma er vítaverð og sýnir að margir landa okkar eru ekki býsna tillitssamir þegar dýrin eru annars vegar. Kannski eru engin viðurlög við því að aka yfir eða á dýr. En háar sektir eru það eina sem koma við taugar margra ís- lendinga nú oröið. 24 nýjar ríkisstofnanir Á.K.J. hringdi: í fyrirspurnatíma á Alþingi kom fram að á síðustu 10 árum hafa hvorki fleiri né færri en 24 nýjar ríkisstofnanir séð dagsins ljós með tæpum 700 stöðugildum. Er þetta nokkur hemja, jafnvel í góðæri? - Stofnanir eins og Barnaverndarstofa (aðrar stofn- anir gegna sama hlutverki), Einkaleyfastofa, Fiskistofa og Vinnumálastofhun eru vita þarf- lausar. Einkennilegt að mikið af þessum nýju stofnunmn hafa orð- ið „stofa“ í nafninu. Skyldi það vera til að gera stofnunina meira aðlaðandi? Er hér ekki bara um hreint bruðl að ræða? Það er mín skoðun a.m.k. Göngin verða fráhrindandi Sæmundur hringdi: Undir þeim kringumstæðum sem nú eru upplýstar í sambandi við nýju Hvalfjarðargöngin verða þau afar ffáhrindandi til umferð- ar fyrir hinn almenna ökumann og fjölskyldu hans. Að greiða 1000 krónur fyrir aðara leiðina dregur fólk ekki að göngunum. Maður getur þá eins farið gömlu leiðina. Afsláttur er enginn fyrir þá sem fara þama um tvisvar til þrisvar á ári. Alls staðar er gefinn afslátt- ur í einhverri mynd í venjulegum viðskiptum, t.d. magnafsláttur. Hér á hann að miðast fyrst við 20 feröir. Þetta verða ekki viðskipta- væn göng, svo mikið er víst. Afstaðan til fanga Sævar hringdi: Það er mjög í tisku um þessar mundir að höfða til fanga og þeirra sem afplána refsivist fyrir afbrot, stór og smá. Ég er á móti þessu. Ég vil að refsifangar af- pláni sinn dóm og sitji allan sinn dómstíma, án mikilla, helst engra, afskipta fjölmiðla. Hins vegar, og ég endurtek, hins vegar, eigum við taka á móti fyrrverandi fóngum með gleði og hjálpa þeim að feta sig áfram fyrsta kastið eft- ir að komið er úr fangelsi. En þá viO bregða svo við að fáir eða eng- ir vilja kannast við fangana sem allt átti að gera fyrir meðan þeir sátu inni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.