Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
37
Hulda Hákon
í Gerðubergi
og Galleríi
Sævars Karls
Sýning á verkum Huldu Hákon
stendur yfir I Gerðubergi til 17.
maí en í Galleríi Sævars Karls til
12. maí. Hulda leitaði strax í upp-
hafi myndlistarferilsins fanga í ís-
lenskum frásagnarheimi og skap-
aði nýjar goðsögur og ævintýri
sem hún fléttaði saman við upplif-
un sína á nánasta umhverfl.
Sýningar
Vinnuaðferðir hennar draga dám
af alþýðulist. Hún segir okkur
gráglettnar sögur í formi lág-
mynda er snúast um Pétur og Pál
og ósköp venjuleg mannleg sam-
skipti. Þetta eru staðlaðar týpur,
tákngervingar þeirra ólíku þjóðfé-
lagshópa sem mynda samfélagið. í
seinni tíð hafa skírskotanir Huldu
til umhverfisins orðið æ almenn-
ari og táknrænni. Verk hennar
eru ekki bundin við sérstakar að-
stæður heldur þann kynngimagn-
aða veruleika sem hvert manns-
barn þekkir af eigin raun.
Konur, athugið
Aglow-fundurinn verður haldinn
þriðjudaginn 5. maí, kl. 20, í Kristni-
boðssalnum, Háaleitisbraut 58-60.
Kaffi, söngur, hugvekja og fyrirbænir.
Vatnafræðistofa
Á morgun, miðvikudag, flytur
Claus Schuster, prófessor í hreins-
un fráveituvatns og varmafræði i
Paderborn í Þýskalandi, gestafyrir-
lestur á vegum vatnafræðistofu
Verkfræðistofnunar kl. 16 í stofu
157 í VR-II. Fyrirlestur sinn nefnir
hann „Nýja tækni við hreinsun frá-
veituvatns" og verður hann fluttur
á ensku.
Samkomur
Lýsingarhönnun
Janet Tumer, einn virtasti lýs-
ingarhönnuður Evrópu í dag, held-
ur fyrsta fyrirlestur sinn á íslandi
um eiginleika og aðferðir lýsingar-
hönnunar miðvikudaginn 6. maí, kl.
17-19, í samkomusal Akóges, Sól-
túni 3 (áður í Sigtúni), Reykjavík.
Stuðningsstarf innan
grunnskólans
Staddir eru á landinu Svíamir
Anders Wedelin og Tomas Selin í
boði Samstarfsnefndar Reykjavíkur
um afbrota- og fiknivarnir. Þeir
munu kynna stuðningsstarf innan
grunnskólans sem reynst hefur
mjög vel í sænskum skólum. Þeir fé-
lagar verða með fræðslu og kynn-
ingu á hugmyndum og fyrirkomu-
lagi forvarnastarfs á fundi í Gerðu-
bergi í dag, 5. maí, kl. 14-16.30, og er
fundurinn öllum opinn.
Karlakór Keflavíkur
Karlakór Keflavíkur er þessa dag-
ana á ferð og flugi um landið að
halda sína árlegu vortónleika.
Karlakórinn verður með tónleika í
Ytri-Njarðvíkurkirkju í kvöld og
hefiast þeir kl. 20.30. Einnig verða
þeir á sama stað og sama tima 7.
maí. Karlakórinn er í mjög góðu
formi og söngur félaga hans er
glæsilegur í alla staði eins og þeir
em þekktir fyrir. Efnisskrá tónleik-
anna samanstendur af íslenskum og
erlendum lögum. Má þar nefna hefð-
bundin karlakóralög, óperukóra og
dægurlög. Stjómandi kórsins er Vil-
Skemmtanir
berg Viggósson. Undirleikari á pí-
anó er Ágota Joó. Annan undirleik
annast Ásgeir Gunnarsson harmon-
ikkuleikari og Þórólfur Þórsson
bassaleikari. Einsöng syngja Steinn
Erlingsson og Gísli Marinósson.
Karlakór Keflavíkur var stofnað-
ur 1. desember 1953 og hefur hann
ferðast vítt og breitt um landið og
eins haldið tónleika erlendis. í kóm-
um er 46 manns. Karlakórinn gaf út
geisladisk í fyrra sem ber heitiö
Suðurnesjamenn og seldist hann
mjög vel. Karlakórinn mætir nú í
nýjum búningi, sem er afar glæsi-
legur, en sá gamli hefur verið notað-
ur frá 1983. -ÆMK
Eljagangur um norðanvert landið
Skammt austur af landinu er 995
mb lægðasvæði sem hreyfist lítið en
yfir Norður-Grænlandi er 1030 mb
hæð.
Veðrið í dag
Næsta sólarhring verður norð-
austanátt um allt land, allhvasst eða
hvasst á Vestfiörðum, stinnings-
kaldi á Norðurlandi en heldur hæg-
ari syðra. Éljagangur verður um
norðanvert landið en þurrt og víð-
ast léttskýjað syðra. Heldur kóln-
andi veður.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
gola en síðar kaldi. Léttskýjað en
fremur kalt í veðri.
Sólarlag í Reykjavík: 22.04
Sólarupprás á morgun: 04.43
Síðdegisflóð í Reykjavík: 14.41
Árdegisflóð á morgun: 03.01
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjóél 1
Akurnes skýjað 4
Bergstaðir úrkoma í grennd -1
Bolungarvík snjóél -1
Egilsstaðir 1
Keflavíkurflugv. skýjað 2
Kirkjubkl. léttskýjað 3
Raufarhöfn slydda -0
Reykjavík léttskýjaó 2
Stórhöfði léttskýjaó 2
Helsinki þokumóða 6
Kaupmannah. skýjað 8
Osló súld 8
Stokkhólmur 4
Þórshöfn skýjaö 5
Faro/Algarve léttskýjaó 14
Amsterdam skýjað 10
Barcelona skýjaö 12
Chicago heiðskírt 13
Dublin rigning og súld 8
Frankfurt skýjaó 5
Glasgow skúr á síó.kls. 8
Halifax þoka 6
Hamborg súld 9
Jan Mayen skafrenningur -2
London skýjaó 9
Lúxemborg þokumóða 5
Malaga léttskýjaó 13
Mallorca súld á síö.kls. 13
Montreal 16
París skýjaó 8
New York þokumóöa 13
Orlando heiöskírt 17
Róm rigning 14
Vín skýjaö 10
Washington Winnipeg heiöskírt 2
Víða þung
færð
Á Vestfiörðum er óveður á Dynjandisheiði. Verið
er að hreinsa veginn frá Þingeyri til ísafiarðar.
Einnig er verið að moka um Steingrímsfiarðarheiði
en þar varð ófært í nótt. Ekki er vitað um færð um
Færð á vegum
Klettsháls. Á Norðausturlandi er þæfingsfærð frá
Raufarhöfn til Þórshafnar og um Vopnafiarðar-
heiði. Þungfært er um Möðrudalsöræfi. Þá er Fljóts-
heiði aðeins fær jeppum vegna aurbleytu.
Ástand vega
Skafrenningur
m Steinkast
0 Hálka
Cd Ófært
H) Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir
m Þungfært ® Fært fjallabtlum
Dóttir Sigrúnar
og Guðmundar
Stúlkan á myndinni,
Dagbjört Heiða, fæddist
24. janúar á Landspítalan-
Bara dagsins
um. Við fæðingu var hún
3075 g og 50 sm. Foreldrar
hennar eru Sigrún Ás-
geirsdóttir og Guömund-
ur Páll Axelsson og er
hún þeirra fyrsta bam.
agsCmp^
C
Tveir af heitustu leikurum sam-
tímans, Gwyneth Paltrow og
Ethan Hawke.
Great
Expectations
Myndin, sem sýnd er í Regn-
boganum, er ögrandi nútímasaga
með tveimur af heitustu leikur-
um samtímans, Gwyneth Pal-
trow og Ethan Hawke. Önnur
stjama er Robert De Niro og leik-
stjóri er Alfonso Cuarón.
Myndin, sem útleggst á ís-
lensku Vonir og væntingar, er
lauslega byggö á sígildri
skáldsögu eftir «(•
Kvikmyndir
meistara Charles Dic-
kens.
Hún fiallar um Finn Bell frá
barnæsku og þar til hann er
kominn á fullorðinsár. í æsku
unir hann sér best við aö teikna
myndir á ströndinni. Mörgum
árum seinna fer hann til New
York þar sem hann finnur veröld
lista og skemmtana. Þar hittir
hann æskuástina aftur sem hann
hefúr ekki séö í mörg ár.
Nýjar myndir:
Stjörnubíó: 8 Heads in a Duffel
Bag
Kringlubíó: U.S. Marshals
Laugarásbíó: Deconstructing
Harry
Háskólabió: The Big Lebowski
Krossgátan
Lárétt: 1 ábreiðu, 8 húð, 9 munda,
10 æst, 11 skóli, 12 jafningja, 14 fé, 16
dýpi, 18 hrósa, 20 ílát, 22 bors, 23
flökt, 24 sofa.
Lóðrétt: 1 auga, 2 hviða, 3 ellegar, 4
hreysi, 5 spil, 6 lærði, 7 tapa, 13 út-
ungun, 15 muldra, 17 fiskilína, 10
blöskrar, 21 óreiða.
Lausn ásíðustu krossgátu:
Lárétt: 1 kollótt, 7 efi, 8 ösla, 10
lunti, 11 ár, 12 trúr, 14 nef, 16 af, 18
lanir, 20 höfðar, 22 ats, 23 iðar.
Lóðrétt: 1 kelta, 2 ofur, 3 lin, 4 lötr-
aði, 5 +osinn, 6 tarf, 9 lá, 13 úlfs, 15 ♦
eira, 17 föt, 19 rör, 20 ha, 21 að.
Gengið
Almennt gengi LÍ 05. 05. 1998 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgenni
Dollar 71,110 71,470 72,040
Pund 118,480 119,080 119,090
Kan. dollar 49,470 49,770 50,470
Dðnsk kr. 10,5050 10,5610 10,4750
Norsk kr 9,6450 9,6990 9,5700
Sænsk kr. 9,3080 9,3600 9,0620
Fi. mark 13,1760 13,2540 13,1480
Fra. franki 11,9450 12,0130 11,9070
Belg. franki 1,9415 1,9531 1,9352
Sviss. franki 47,8600 48,1200 49,3600
Holl. gyllini 35,5600 35,7700 35,4400
Þýskt mark 40,0700 40,2700 39,9200
ít. líra 0,040450 0,04071 0,040540
Aust sch. 5,6930 5,7290 5,6790
Port. escudo 0,3910 0,3934 0,3901
Spá. peseti 0,4712 0,4742 0,4712
Jap. yen 0,535300 0,53850 0,575700
írskt pund 100,780 101,400 99,000
SDR 94,990000 95,56000 97,600000
ECU 79,0700 79,5500 78,9600
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270