Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 13 Erfðafræði og persónuu pplýsi ngar A örstuttum tíma hef- ur orðið kúvending varðandi þann miðlæga gagnabanka sem íslensk erfðagreining hefur haft áform um að byggja upp. I stað þess að keyra frumvarp um þetta efni án fullnægjandi umfiöll- unar í gegn á vorþingi hefur verið ákveðið að bíða til haustsins. Því mun gefast nokkur tími til að finna viðeigandi úrlausn. Sérleyfi og forgangur Bjargföst sannfæring mín er að til sé lausn á þessu máli sem allir að- ilar geti sætt sig við. Grundvallaratriði í henni er að leggja til hliðar hugmyndir um einn miðlægan gagnabanka og byggja þess í stað á dreifðum sam- hæfðum gagnagrunnum í vörslu þeirra heilbrigðisstofnana einna þar sem gögnin verða til. Enn fremur á lokuðu gagnaneti heil- brigðisstofnana sem enginn utan- aðkomandi aðili kemst inn í nema undir eftirliti. Miðað við slika uppbyggingu geta fyrirtæki á borði við íslenska erfðagreiningu fengið sérleyfi og forgang á rannsóknum á tiltekn- um sjúkdómum í afmarkaðan tima. Lengra er að minni hyggju ekki unnt að ganga til móts við neinn aðila, jafhvel þótt í boði sé verulegt fé til uppbyggingar eða sem endurgjald fyrir upplýsingar. Meira að segja þetta gæti valdið erfiðleikum. Lausn af þessu tagi á að geta tryggt réttlætan- lega viðskiptahags- muni kaupanda. Lyfjafyrirtæki hafa tæpast áhuga á því hvað stendur í ein- stökum sjúkra- skýrslum. Óskir um að komast yfir slíkar upplýsingar í stórum stíl eru til þess eins fallnar að vekja tortryggni og andstöðu. Fyrir- tækin hafa á hinn bóginn eðlilegan og réttlætanlegan áhuga á að kynnast áhrifum lyfja- gjafar, erfðum sjúkdóma í ættum og fleiru af því taginu. Hugsanleg- ir sérleyfishafar þurfa ekki að fá eina einustu sjúkraskýrslu í hend- umar til að fá svör við spurning- um af þessu tagi. Toppurinn á ísjakanum Mál það sem hér er til umræðu er vart nema toppurinn á miklu stærri isjaka er varðar samspil erfðafræði, erfða- greiningar (e. Genetic Screen- ing), vísindapóli- tíkur, siðfræði, persónuréttar, gagnabanka, gagnaneta, með- ferðar viðkvæmra persónuupplýs- inga og hugsanlega misnotkunar þeirra andstætt hagsmunum al- mennings. Almenningur hér á landi er enn sem komið er fákunn- andi um þessi málefni. Fjölmargt fólk lýsir því óhikað yfir að því sé nákvæmlega sama um hvað gert sé við sjúkraskrár þess. Kjallarinn Jón Erlendsson yfirverkfræðingur Upplýsingaþjónustu Háskólans Almenningur hér á landi er enn sem komiö er fákunnandi um þessi málefni. Fjölmargt fólk lýs■ ir því óhikaö yfír að því sé nár kvæmlega sama um hvað gert sé við sjúkraskrár þess. “ „Ljóst er að þróunin i erfðarannsóknum og upplýs- ingatækni er svo hröð að mörg núgildandi lög veita ónóga vernd." Allt annað hljóð er í strokknum í Bandaríkjunum þar sem menn eru farnir að finna fyrir afleiðing- um misnotkunar á heilbrigðis- og erfðaupplýsingum. í glænýrri skýrslu vinnumálaráðuneytis Bandaríkjastjórnar er getið um mörg hundruð dæma hvernig erfðakannanir hafa verið notaðar á skipulegan og óeðlilegan hátt gegn hagsmunum almennings. Upplýsingar sem fengnar eru úr þeim eru notaðar til að útiloka fólk sem gæti hugsanlega fengið arfgenga sjúkdóma frá vinnu og tryggingum. Engu skiptir þótt við- komandi fái aldrei viðkom- andi sjúkdóm! Það eitt að vissar líkur eru á því næg- ir til að fjar- lægja hann af listum yfir þá sem teknir eru til greina. Erfðagreining á samt fullan rétt á sér í mörgum til- vikum. Með þeim má til dæmis koma í veg fyrir að fólk sem er í hættu á að fá tiltekna sjúk- dóma sé valið til starfa í um- hverfi sem auka líkur á veikindum. Hröö þróun í Bandaríkjun- um er nú, seint og um síðir, hafin vinna við lög til að rétta hlut almenn- ings og koma í veg fyrir erfða- fræðilega mismunun (e. Genetic Discrimination). Ljóst er að þró- unin í erfðarannsóknum og upp- lýsingatækni er svo hröð að mörg núgildandi lög veita ónóga vernd. Brýnt er að íslendingar fari að huga að víðtækri fræðslu fyrir al- menning um þessi málefni sem og löggjöf sem tekur á öllum þáttum þeirra. Ella munu árekstrar af því tagi sem hér hefur verið lýst koma á færibandi á næstu árum og ára- tugum með öllum þeim óþarfa illindum, átökum og vandræðum sem af slíku mun leiða. Jón Erlendsson Bankahneyksli og sjálftaka Ekki var ætlun mín að hóa í læti sem orðið hafa út af laxi, risnu og ferðalögum bankaforkólfa. En það er ekki úr vegi að gera nokkrar at- hugasemdir um þær ályktanir sem menn hafa verið að draga af slík- um og þvílíkum málum. Margir segja sem svo: slík hneyksli gerast hjá rikisfyrirtækjum eins og Landsbankanum. Einkarekstur er lækning spillingar. Þetta er vissulega rangt. Einka- framtakið hefur aldrei verið eftir- bátur embættismanna í því sem hér er um að ræða: að blanda sam- an með sjálftöku (fríðinda, kaupauka eða annars) einkaþörf- um og rekstri fyrirtækis eða stofn- unar. Þetta kemur fram í stóru sem smáu, eins og við munum frá því við vorum krakkar í sjávar- plássum og einhver Bogesenfrúin tók út úr búð jólahangiketið og páskarjómann og skrifaði á bát- inn, á útgerð fjölskyldunnar. Þegar svo Landsbankinn er orð- inn hlutafélag og verður væntan- lega einkavæddur þá munum við eiga óhægt um vik að komast að því hvort þar hefur veruleg siðbót orðið: þá verða kjör og fríðindi æðstu manna orðin að einkamál- um sem öðrum koma ekki við. Eins og við sjáum þegar dæmi af hjá Pósti og síma. Vondu lánin í öðru lagi: Landsbankahneyksl- in mestu, segja margir, eru ekki tengd laxi og brennivini held- ur vondum fyrir- greiðslulánum. Þegar pólitíkus- ar geta ekki lengur ráðskast með bankann þá er tekið fyrir þann leka og þau útlát úr ríkis- sjóði sem honum fylgja. Þetta er heldur ekki nema hálfur sannleikur og varla það. Einka- bankar eru víða um lönd duglegir við að veita vond lán. Norska ríkið varð ekki alls fyrir löngu að koma einkabönkum ýmsum til hjálpar með stórfé því ríkisstjórn má ekki við þeim illu keðjuverkunum sem gjaldþrot stórra banka draga á eftir sér. Því er gripið til þess sem Vil- mundur Jónsson kall- aði sósíalisma and- skotans - töpin eru þjóðnýtt (en gróðinn einkarekinn). Enn segja margir: Það þarf fyrst og síð- ast að losa bankakerf- ið úr fjötrum ríkisaf- skipta. Einnig það frelsi reynist dýrt. Reagan forseti hleypti frelsinu lausu á sparilánakerfið bandaríska með ill- ræmdum afleiðing- um: alfrjálsir íjár- málagammar slitu sjóðina í sig með gíf- urlegu tapi fyrir sak- lausa viðskiptavini og svo ríkissjóð Bandaríkjanna. Vanþróun, háþróun? Enn er sagt: Landsbankamálið sýnir hvemig forréttindi og bruðl breiða úr sér í skjóli lítið þróaðra þjóðfélagshátta. Það er rétt að sum spilling tengist vanþróun og hér á íslandi neikvæðum hliðum fá- mennis og kunningjasamfélags. En spillingin finnur sér alltaf farveg. Háþróuð samanburðarfræði reka grimmt áfram háttsett sjálftökulið í öllum geirum: inn- lendir embættismenn reyna að krækja sér í lífsstíl forstjóra einka- geirans, þeir forstjórar bera sig saman við erlenda starfsbræður. Forstjóri Hydro í Noregi tók sér heil forsætisráðherralaun í kjarabætur í fyrra og þegar lýðurinn möglar mun hann sjálfsagt hugsa sem svo að hann hafi nú ekki mikið miðað við bandaríska forstjóra. Einn þeirra hafði í fyrra 230 miljónir dollara í tekjur. Business Week skýrði reyndar frá þessu fyr- ir skömmu og fylgdi með að árið 1997 höfðu bandarískir forstjórar tekið sér 35% launahækkun - meðan aðrir hópar fengu svosem 2,5-3,5% 1 góðærinu. Með þessu er ekki verið að vísa bankahneyksli hér og nú frá með tilvísun til þess að allt sé það eins, liðið hans Sveins. Það er rétt ver- ið að minna á það hve margir spillingarhausar eru á sjálftökurisanum. Og svo á það að brýnt er og þarft að höggva af þá hausa sem flesta með gagnrýni, rannsókn, eftirliti, reglum. Já, boðum og bönnum! Sjálftökuspill- ing fer víða en ástandið er ekki það sama á öllum tímum og í öll- um samfélögum, annaðhvort er það að versna eða okkur miðar nokkuð á leið. Árni Bergmann „Þegar svo Landsbankinn er orð■ inn hlutafélag og verður væntan■ lega einkavæddur þá munum við eiga óhægt um vik að komast að því hvort þar hefur veruleg siðbót orðið: þá verða kjör og fríðindi æðstu manna orðin að einkamál- um sem öðrum koma ekki við.“ Kjallarinn Árni Bergmann rithöfundur Stefán Reynir, framkvæmdastjóri Spalar. Með og á móti 1.000 kr. á fólksbil önnur leiðin um Hvalfjarðargöng Hagnaður fyr- ir stærri bíla „Því miður gat verðið ekki verið lægra en þetta því við vor- um bundnir af samningum við lánveitendur. Þeir útreikningar sem við höfum gert, og eru í samræmi við tölur FÍB um akstur bif- reiða, sýna að svo til allir sem um göng- in fara hagn- ast beint pen- ingalega með því að notfæra sér göngin í stað þess að aka fyrir fjörð. Það verður aðeins í tilfellum minnstu bílanna sem menn hagnast ekki beint peningalega á því að spara sér að aka þessa 42-60 kílómetra sem styttingin verður. Fyrir fólksbíla fáum við út samkvæmt þessum útreikn- ingum að umframkostnaður verði um 350 krónur hvora leið með því að aka um göngin. Veg- farandinn verður þá að meta hvort hann tekur tímasparnaö- inn fram yfir, um 30 mínútur eða svo hvora leið. Ef tveir eða fleiri eru í bílnum virðist þetta þó nokkuð auðsær hagnaður. Fyrir aðra er um beinan pen- ingalegan sparnað að ræða. Svar mitt er því að þúsund króna staðgreiðslugjald aðra leiðina sé réttlætanlegt." Á að vera 600-700 kr. „Það sem við leggjum til grundvallar hjá FÍB er að þama er 42ja kílómetra styttri ferð ef menn fara göngin. Að okkar mati er aukakostnaðurinn sem fylgir því að aka inn í Hvalfjarð- arbotn og þá leið rúmlega 600 krónur fyrir allflesta bíleigend- ur á landinu. í ljósi þess að þarna er um ákveðinn tímaspamað að ræða er vert að geta þess að hann meta ekki all- ir, til dæmis þeir sem eru í fríi. Sam- kvæmt upplýs- ingum Spalar run útreiknaðan kostnað liggur fyrir að þeir munu láta eigendur minni og meðalstórra bila niðurgreiða verðið fyrir eigendur stæn-i og þyngri bíla. Við höfum áhyggj- ur af því að þama séu menn markaðslega að búa til vand- ræði. Hvatinn til að fara í gegn fyrir eigendúr minni og meðal- stórra bíla hverfur. Með öðrum orðum: Verði verðið lægra munu menn fá miklu fleiri bíl- eigendur til að fara í gegn. Markaðslega eru menn því að grafa sér gröf. Auk þess verður að horfa til þess að afsláttar- gjöld verða ekki valkostur fyrir stærstan hóp landsmanna. Eðli- legt verð fyrir fólksbíl aðra leið verður því 600-700 krónur.“ -Ótt Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. Netfang ritstjórnar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.