Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1998, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1998, Blaðsíða 1
13. MAI 1998 LANDSSIMA E, F.1LH1N sr \ C Elns og jafnan meö vori ríkir mikil eftirvænting meöal knattspyrnu- áhugamanna varðandi þá leiktíð sem senn hefst. Undanfarna mánuöi hafa íslenskir knattspyrnumenn búið sig af kost- gæfni undir komandi átök og von- andi verður boðið upp á skemmti- lega knattspyrnu í sumar. Eins og áður kynnir DV liðin sem leika í efstu deild á íslandsmóti karia, tíu talsins. Birtar eru myndir af öllum leikmönnum liðanna, greint frá leikjafjölda þeirra í efstu deild og skoruöum mörkum á sama vett- vangi. Þá geta knattspyrnuáhuga- menn séð breytingar sem orðið hafa á skipan liðanna frá í fyrra. Þjálfar- arnir eru kynntir og spáð er í gengi liðanna í sumar. Þá fylgir leikjatafla með umsögn um hvert lið og árangur hvers liös á íslandsmótinu frá 1987 fylgir á línu- riti. Kynninguna unnu íþróttafrétta- menn DV, Guðmundur Hilmarsson, Jón Kristján Sigurðsson, Stefán Kristjánsson og Víöir Sigurðsson. Myndirnar tóku þeir Brynjar Gauti Sveinsson, Hiimar Þór Guðmunds- son, Einar Ólason, Pjetur Sigurðsson og Ægir Már Kárason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.