Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1998, Side 20
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1998
lk
Meö ferð sinni um Vestfirði fetar
Margrét Þórhildur II Danadrottning í
fótspor föður síns og móður sem voru
á þessum slóðum fyrir nákvæmlega 60
árum, eða árið 1938.
Friðrik krónprins og Ingiríður
prinsessa komu til ísafjarðar í ágúst
með Dronning Alexandrine og var að
sjálfsögðu tekið á móti þeim með mik-
illi viðhöfn. Svo skemmtilega vill til
að Grimur Kristgeirsson, faöir Ólafs
Ragnars, forseta Islands, var bæjar-
fulltrúi á ísafirði á þessum árum og
var einmitt í móttökuliði ríkisarfans
og konu hans.
Móttakan á vegum bæjarstjórnar-
innar var haldin í svokölluðum Sim-
songarði sem var sumarbústaður ljós-
myndarans Martins A. Simsons en
hann var af dönsku bergi brotinn.
Simson var mikill áhugamaður um
skógrækt og bar sumarbústaður hans
í Neðstakaupstað á ísafirði á leið til
velslu.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður ísfirðinga, sýnir Henrik prins, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur forsetafrú, Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands,
og Margréti Þórhildi II Danadrottningu menjar snjóflóðanna sem féliu á Flateyri árið 1995. Snjóflóð eyddu einnig Kornastöðum í Tungudal á ísafirði, þar
sem móttaka fyrir Friðrik krónprins og Ingiríði prinsessu, foreldra drottningar, var haldin fyrir sléttum 60 árum. DV-myndir GVA
2. ágúst 1938. Lengst til hægri á myndinni má sjá Tryggva Jóakimsson bakara og Matthías Ásgeirsson. Þá kemur
Grímur Kristgeirsson, bæjarfulltrúi og faðir Ólafs Ragnars forseta, og við hlið hans stendur Friðrik krónprins, faðir
Margrétar drottningar. Torfi Hjartarson sýslumaður stendur næstur krónprinsinum, þá Helgi Hannesson bæjarfull-
trúi, Ingiríður krónprinsessa, Hannibal Valdimarsson, forseti bæjarstjórnar, Anna Jónsdóttir, kona sýslumanns, Guð-
rún Pétursdóttir, séra Sigurgeir Sigurðsson, síðar biskup, Guðrún Ottósdóttir, Kristján Arinbjarnar læknir, Halldór
Ólafsson altmuligmand, Arngrímur Fr. Bjarnason, ritstjóri Vesturlands, Elías Kærnested skósmiður. Talið er að full-
trúar stjórnarráðsins standi lengst til vinstri.
Ólafur Ragnar, Margrét drottning, Hinrik prins og Guðrún Katrín virða fyrir
sér gamia verbúð í Ósvör við Bolungarvík og létu rigninguna ekkert ásig fá.
í Tungudal, Komastaðir, þess merki
og þótti tilhlýðilegt að sýna konungs-
hjónunum tilvonandi hvað hægt væri
að gera í þeim efnum nyrst á hjara
veraldar. Simson var einnig listamað-
ur, og prýddu styttur eftir hann garð-
inn við bústaðinn. Því miður lentu
Kornastaðir í snjóflóði árið 1994.
Ólafur Ragnar færði Margréti Þór-
hildi Danadrottningu mynd sem Sim-
son Ijósmyndari tók af fundi feðra
þeirra beggja er hann fór í sína fyrstu
opinberu heimsókn sem forseti árið
1996. -Sól.