Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 3
T>V FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998 21 &ikmyndir Vorvindar: Keimur af kirsuberi Vængir dúfunnar Háskólabló og Regn- boginn standa sameigin- lega að kvikmyndahátíð sem hófst á miðvikudag og hefur yfirskriftina Vorvindar. Er hátíðin með öðruvísi sniði en áður hefur tíðkast. Átta myndir verða á hátíð- inni, fjórar í hvoru biói, og verður hver mynd sýnd í eina viku. Mynd- irnar átta hafa allar fengið mikla athygli og hlotið ótal viðurkenning- ar á kvikmyndahátíðum víðs vegar um heim. All- ar leggja þær áherslu á hinn mannlega þátt og fara óhefðbundnar leiðir til að segja sögur sínar. Ættu þær að vera fersk- ur andblær fyrir þá sem vilja taka sér frá hinum dæmigerðu af- þreyingarmyndum. Fyrstu tvær myndirn- ar sem sýndar verða eru Keimur af kirsuberi (T’am e guilass) Vængir dúfunnar (Wings of the Dove). Keimur af kirsuberi Keimur af kirsuberi, sem Háskólabíó sýnir, er eftir hinn íranska leikstjóra Abbas Kiarostami sem á að baki myndir eins og Gegnum ólifutrén og Hvítu blöðruna. Myndin fjallar um hinn mið- aldra herra Badii. Badii keyrir um Teheran og svæðið í kringum borg- ina í leit að manni sem er reiðubúinn að hann eftir að Badii hef- ur framið sjálfsmorð. Hann býður góða pen- ingaupphæð fyrir verknaðinn en ailir þeir sem hann talar við vilja ekki þiggja starfið og reyna að sannfæra hann um aö láta ekki verða af því. Þetta er vegamynd 1 ásamt Álnum. kvikmyndinni Helena Bonham Carter lelkur aðalhlutverkið í Vængjum dúfunnar og fékk óskarstilnefningu fyrir leik sinn í myndinni. hreinasta skilningi þess orðs þar sem söguhetjan er á leiðinni að ákvörðunarstað sínum en hittir á veginum margar hindranir. Keim- ur af kirsuberi hlaut gullpálmann á Cannes-hátíöinni á síöasta ári Vængir dúfunnar Vængir dúfúnnar, sem Regnborginn sýnir, er gerð eftir skáldsögu Henrys James. Hann skrifaði Vængi dúfunnar þegar hann var á hátindi rithöfundarferils síns. Kvikmyndaútgáfan af henni hefur fengið lof gangrýnenda og Helena Bonham Carter fékk ósk- arstilnefningu fyrir leik sinn í myndinni. Sagan fjallar um Kate Croy (Carter) sem hefur alla sína ævi búið við fátækt en þráð að komast i hóp ríka fólksins og lifa í vellystingum. Til þess að láta drauminn rætast verður hún að yfirgefa elskhuga sinn, Merton Densher, sem er blá- snauður blaðamaður. í heimi ríka fólksins kemst hún brátt í kynni við hina auðugu Millie Theale og kemst Croy brátt að þvi að Theale á ekki langt eftir ólifað. Hún fær því Merton til að fleka Theale og kvæn- ast henni síðan svo hún arfleiði hann að öllum sínum auðævum. Leik- stjóri myndarinnar er Ian Softley en hann er þekktastur fyrir bítla- myndina Backbeat. Eins og áður segir verða tvær kvikmyndir sýndar á viku og næstu tvær myndir eru Állinn (Unagi) og Óskar og Lús- inda (Oscar and Lucinda). Þriðju vikuna verða sýndar Dauði i Granada (Death in Granada) og Hin ljúfa ei- lifð (The Sweet Hereafter) og fjórðu vikuna verða sýndar Vomur (Ogre) og Frekari ábending (A Further Gesture). KVIKMYNDATÓ Tvær sjálfstæðar konur N L I S T Bæði Great Expection og Jackie Brown sem sýndar eru f kvikmyndahúsum í höfúð- borginni fjalla um konur sem fara sfnu fram þótt ólíkar séu, notfæra sér kynþokka og útsjónarsemi. Tónlistin á plötunum sem geöiar hafa verið út með myndunum er að mestu samansafh laga úr sitthvorri áttinni, eiga plöturnar þaö sameiginlegt að vera áhugaveröar en misvel heppnaðar. Ef lesið er smáa letrið á plötukápu Great Expectation, sem hefur undirskriftina The Album kemur í ljós að þetta er önnur tveggja platna sem gefnar eru út með tónlist úr kvikmyndinni. Á þeirri sem hér er til umfjöllun- ar eru eingöngu lög úr myndinni og einnig bætt viö lögum sem ekki eru í myndinni, hver svo sem tilgangurinn er með þvi. Á hinni plötunni, Great Expection - The Score er að fmna að meirihluta þeirrar kvikmyndatónlistar sem Patrick Doyle samdi fyrir myndina. Great Expection byrjar á tveimur góðum stefjum með Tori Amos sem sam- in eru af henni og Patrick Doyle og eru það einu lögin sem beint eru samin fyrir myndina. Þriðja lagið, Life in Mono, er mjög gott lag og sjálfsagt það lag sem skilur mest eftir sig á plötunni. í kjöl- fariö koma poppuð lög úr ýmsum áttum, flest ný af nálinni en gömul poppséni eins og Grateful Dead og Iggy Pop fá aö fljóta með. Great Expect- ion - The Album er þegar á heildina er litið ekki mjög áhugavert, rennur áreynslulaust inn um annað og út um hitt án þess að snerta. Allt annað er upp á teningnum i Jackie Brown. Engin frumsamin tónlist var í þeirri mynd, en eins og á plötunni með tónlistinni úr Pulp Fic- tion lætur Quentin Tarantino texta í meðfórum leikara i myndinni tengja lögin við myndina og tekst þetta mjög vel, Myndin sjálf verður alltaf i forgrunninum. Jackie Brown ger- ist á áttunda áratugnum og í því umhverfi þar sem soultónlistin blómstar. Það kem- ur því ekki á óvart að sú tónlist er mest áberandi á plötunni, má þar nefha góð lög á borð við Across llOth Street (Bobby Womack), Street Life (Randy Crawford) og Who Is He (And What is He To You (Bill Withers). Aftur á móti er Didn’t Blow Your Mind This Time (The Delfonics), lag sem kemur mikið viö sögu í myndinni, bams síns tíma og hundleiöinlegt. Af öðrum úr- valsslögum má nefna Tennesee Stud (Johnny Cash) og Inside My Love (Minnie Ripperton). Að- alleikkonan Pam Grier fær aö reyna sig í ágæt- um blús, Long Time Woman, en hefur ekki ár- angur sem erflði. Great Expection - The Album ★★ Dreifing: Spor hf. Jackie Brown ★★★ Dreifing Spor hf.- HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.