Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998 helgina * ★ -)ir Myndlist 11 ára barna Olafsvík: Erró sýnir á heimaslóðum Um þessar mundir stendur yfir friðarsýning í Kringlunni. Um er að ræða myndverk 11 ára barna í Reykjavík en þann 15. maí síðastlið- inn hlupu sömu krakkar með log- andi kyndil sem tákn friðar. Þetta er í þriðja sinn sem friðarhlaupið er haldið en í fyrsta sinn sem sýning Söfnin í Nesi: Sumarið komið Nú er sumarið komið á Lækn- ingaminjasafninu í Nesstofu og Lyfjafræðisafninu á Seltjamamesi. Söfnin verða opin fjórum sinnum í viku í sumar, á sunnudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum, milli klukkan 13 og 17. Söfnin munu einnig opna sali sína fyrir áhugcimannahópum á öðr- um tíma ef um er beðið en söfnin standa hvort hjá öðra við Neströð á Seltjamamesi. f Lyfjafræðisafhinu má sjá muni og minjar úr íslenskum apótekum frá upphafi þessarar aldar og fram til okkar daga og skoða hvernig lyfjagerð var háttað enn lengra aft- ur í tímann. Lækningaminjasafnið er til húsa í Nesstofu sem er eitt af elstu stein- húsum landsins, reist á árunum 1761 til 1763 fyrir fyrsta landlækni íslendinga, Bjama Pálsson. Þar gef- ur á að líta muni sem tengjast sögu heilbrigðismála síðustu aldar. Langholtskirkja: Jón og séra Jón ásamt hestamönnum Árleg kirkjureið Hestamanna- félagsins Fáks verður næstkom- andi sunnudag. Hestamenn leggja upp frá félagsheimili Fáks klukkan 9.30 og klukkan 10.30 frá hesthúsunum við Bústaða- veg. Hestamannafélagið Fákur set- ur upp rafmagnsgirðingu við kirkjuna og sér um gæslu hest- anna meðan á messu stendur. Prestur er séra Jón Helgi Þór- arinsson, organisti Jón Stefáns- son en lesarar og tónlistarmenn koma úr röðum hestamanna. Eftir messu gefst kirkjugest- um kostur á að kaupa sér kjöt- súpu í safhaðarheimili kirkjunn- ar en þess má geta að 21 ár er síðan þessi siður var tekinn upp og hefur haldist nær óslitinn síð- an. er á verkum hlauparanna, sem vita- skuld tengjast öll friði. Sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag. Ólafsvíkingar sitja ekki einir að Hrró um þessar mundir því tvær sýningar standa nú yfir á vegum listahátíðar; önnur í Hafnarhúsinu og hin í Galleríi Sævars Karls. DV-mynd Hilmar Þór Nú stendur yfir sýning á verkum Errós í grunnskólanum í Ólafsvík. Það var lista- og menningarnefnd Snæfellsbæjar sem gekkst fyrir sýn- ingunni með aðstoð Listasafns Reykjavíkur sem lánaði verkin. Mjög er vandað til sýningarinnar og gladdi það heimamenn sérstaklega að listamaðurinn sjálfur skyldi opna sýninguna. Erró er fæddur í Ólafsvík og mun alla tíð hafa haft sterkar taugar til staðarins sem ger- ir sýninguna áhugaverðari en ella. Lokadagur sýningarinnar er 24. maí nk. -DVÓ NOKKRARVISBENDINGAR: GOTTVERÐ GLÆSILEGUR 2 LOFTPÚÐAR ABS HEMLAR RÚMGÓDUR SPARNEYTINN SPRÆKUR ÞU GETUR ORUGGLEGA EKKIIMYNDAÐ ÞÉR HVAÐA BÍLTEGUND ÞETTA ER !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.