Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998 C fónlist, Sketches for My Sweetheart, the Drunk: Látlaus eftirmáli um Jeff Buckley Jeff Buckley var sonur Tim Buck- leys, þekkts lagahöfundar sem dó úr of stórum heróínskammti árið 1975, aðeins 28 ára að aldri. Faðemið hjálpaði Jeff til að komast í sviðs- ljósið en varð einnig til þess að miklar kröfur voru gerðar til hans. Tim blandaöi saman þjóðlagatón- list, djassi og framsæknu rokki en Jeff fór aðrar leiðir, kannski má segja með mikilli einfoldun að rödd hans hafi minnt á Van Morrison og tónlistin á hinn nútímalega Led Zeppelin. Jeff byrjaði að spila og semja í menntaskóla í New York. Hann flutti til Los Angeles, fór þar í tónlistamám og spiiaði með ýmsum djass- og fonksveitum, auk þess að spila með dansiballa-raggeasveit- inni Shinehead. Nokkmm ámm síð- ar flutti Jeff aftur til New York og stofnaði Gods & Monsters með gít- arleikaranum Gary Lucas. Sveitin lifði stutt en vakti þónokkra athygli. Nú var Jeff tilbú- inn í sólóferil og aflaði sér nokkurs fylgis með því að spila einn á kassagítar og syngja á pöbbum og kaffihúsum. Eftir að hann gerði samning við stórfyrirtækið Col- umbia fór boltinn að rúlla. Platan „Live at Sine“, þar sem kassagítar- inn og rödd Jeffs er í aðalhlutverki, fékk góða dóma en platan „Grace“, sem kom út 1994, gerði nafn Jeffs Bucleys þekkt í tónlistarheiminum. Platan var víða talin til bestu platna ársins og fékk hvarvetna rífandi góða dóma. Á plötunni er Jeff kom- 1______________________:________I inn með heila hljómsveit sér til að- stoðar og saman spinnur hópurinn ljómandi gott rokk og angurværar rokkballöður. Sviplegur dauði í midjum upptökum í kjölfar plötunnar spilaði Jeff Buckley ásamt hljómsveit víða um lönd eins og gengur en fór að því loknu að huga að næstu plötu sem fékk vinnsluheitið „My Sweetheart, the Drunk". Tom Verlaine (fyrrum aðalmaður í hljómsveitinni Televisi- on) var fenginn til að annast hljóð- stjórn. Upptökur hófust í New York um sumarið 1996 og var haldið áfram í hljóðveri í Memphis snemma árs 1997. Upptökurnar gengu vel svo ákveðið var að taka smápásu. Tom og hljómsveitin flugu til New York en Jeff varð eftir í Tennessee, í litlu húsi sem hann leigði, og hélt áfram að semja og taka upp efhi á 4-rása heimastúdíói. Ný lög hlóðust upp og Jeff sendi sveitarmeðlimum í New York prufuupptökur að nýju lögun- um svo þeir gætu fylgst með. Hann ákvað loks að taka stjórnina úr höndum Toms og sjá sjálfúr um að taka plötuna upp en fá þó aðstoð hjá Andy Wallace, hljóðstjórnanda „Grace“. Hljómsveitin sneri til baka þann 29. maí og æflngar voru fyrir- hugaðar á nýja efninu. Um leið og þotan með hljómsveitarmeðlimum tók sig á loft ffá New York voru Jeff og félagi hans úti að keyra og áðu á Mud Island höfninni til að fá sér bita af samlokum sem þeir höfðu keypt. Jeff hafði alltaf verið maður augna- bliksins og í miðri samloku fann hann snögglega ærslafúlla þörf hjá sér að stökkva fullklæddur út í Miss- issippi-ána. Nokkrum mínútum síð- ar hvarf hann í öldumar og sást ekki aftur á lífi. Þrátt fyrir mikla leit fannst líkið ekki fyrr en fimm dög- um síðar. Sólóbandið Solex: Nýstárleg tónlist - eldgamall hljómur í Hollandi veit hvert mannsbarn að Solex er frönsk skellinöðrutegund sem hefur verið gífurlega vinsælt far- artæki þar síðan innflutningur hófst fyrir tuttugu árum. En Solex er líka það listamannanafn sem Elisabeth Esselink tók sér þegar hún hóf sóló- feril fyrir nokkrum árum. Hún er þrjátíu og eins árs og fyrsta platan, „Solex Vs. the Hitmeister", hefur ver- ið aö fá sallafma dóma. Tónlistinni hefur verið líkt við Björk, Cibo Matto og Cabaret Voltaire. Þessar samlík- ingar segja þó lítið - þó „sirkus tripp- hopp“ nái andanum hjá henni ágæt- lega - og það er meira en þess virði að tékka á Solex með eigin eyrum. Tón- listin er nýstárleg en hljómurinn fom sem hlýtur að skrifast á græjurnar. „Ég nota eldgamlar græjur,“ segir hún. „Ég er með gamalt átta rása ana- log-upptökutæki og mono sampler frá áttunda áratugnum. Það er ekkert minni í honum. Það var minni en ég fæ hvergi réttar diskettur. Svo er ég með lítið effektabox. Ég tók flest lögin upp heima hjá mér. í nokkrum lögum þuifti ég að fara á klósettið eða í svefniherbergið til að fá rétt sánd.“ Blankir eiga líka sáns Elisabeth var í hljómsveitinni So- netic Vet áður en sólóferillinn hófst. Hún rekur plötubúðina C&D í Amsterdam og höndlar þar með not- aðar plötur. Mörg sömpl á Solex- plöt- unni em komin af plötum sem hún hefur fundið í grúski sínu í búðinni, plötur sem enga langar að kaupa en henni hefur tekist að skrapa af skemmtilega tóna. Hún spilar á flest hljóðfæri á plötunni en fær aðstoð á tónleikum. Hún hefur m.a. spilað með Cornershop, Stereolab og Sleater- Kinney. Hún syngur á ensku um upp- diktuð ævintýri Solexar og röddin er barnaleg og hollenski hreimurinn sterkur. Solex sendi prufuspólur með heimalagaðri tónlistinni og Matador útgáfan í New York beit glöð á agnið. Þar eru m.a. Pizzicato 5 og Pavement gefnar út. í bransanum er venjan að senda nýsamningsbundna listamenn í dýr hljóðver til að fá sem bestan hljóm en hjá Matador vildu menn ekki heyra á það minnst og Solex-plat- an var gefin út í sínu upprunalega formi með smávægilegum endurbót- um. Solex er gott dæmi um hvernig nýjasta tækni er ekki endilega lykill að velgengni. Blankari tónlistarmenn eiga alveg eins séns ef hugmyndaflug- ið er til staðar. „Það skiptir mestu að búa sér til sérstöðu og vera með sitt eigið sánd,“ segir hún. „Ekki herma eftir neinum. Plötufyrirtæki eru ekki að bíða eftir nýrri Oasis eða Radi- ohead. Lykilorðið er að trúa á sjálfan sig.“ „Lykilorðið er að trúa á sjálfan sig,“ segir Solex. í miðri samloku fann hann snögglega ærslafulla þörf hjá sér að stökkva full- klæddur út í Mississippi-ána. Nokkrum mínútum síðar hvarf hann í öldurnar og sást ekki aftur á lífi. Nafnið lifir Jeff lifði tveim árum lengur en pabbinn, var þrítugur þegar hann drukknaði. Ekki er talið að drukkn- unin hafi verið sjálfsmorð, enda var Jeff lífsglaður ungur maður og grallari; átti það oft til að grínast og ærslast. Hann var því líkur sjálfum sér þegar hann tók stökkið afdrifa- ríka í ána. Dauði hans var vissulega sviplegur en Jeff hataði þá sjúklegu dýrkun sem oft er höfð á listamönn- um sem deyja ungir og gerði grin að henni við hvaða tækifæri sem gafst. Nýlega kom út það efni sem Jeff var að vinna við og hefði verið á annarri plötu hans hefði honum enst aldur til. Móðir hans hefur um- sjón með útgáfunni og tileinkar það aðdáendum Jeffs. Engu hefur verið bætt við eða breytt. Efnið á „Sket- ches for My Sweetheart the Drunk" er á tveim diskum, frá nánast full- unnum lögum frá þeim tíma er Tom Verlaine hélt um stjómvölinn til einfaldra og hrárra heimaupptakna þar sem sköprmargáfa Jeffs skín einna skærust og alveg án utanað- komandi áhrifa. Pakkinn er vegleg- ur - með ýtarlegum upplýsingum á textablaði og á öðmm disknum, sem einnig er CD-ROM - ómissandi þeim fiölmörgu sem hrifust af „Grace" og látlaus eftirmáli um listamann sem dó í blóma lífsins. 1% ±1l Á Reggae on lce Annað kvöld munu pilt- arnir í Reggae on Ice skemmta Sunnlendingum á Inghóli á Selfossi. Rósenberg í kvöld leika Sagtmóð- igur, Vágestur, Kristiní- us og Aids í musteri rokksins. Hótel Valaskjálf Hljómsveitin 8villt mun leika á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum í kvöld. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem sveitin spilar á Austurlandi. Stuðbandalagió Hljómsveitin Stuðbanda- lagið skemmtir gestum og gangandi á Kaffi Reykjavík föstudags- og laugardagskvöld. Wunderbar Sunnlenski Austfirðing- urinn Jónas Sigurðsson verður á Wunderbar um helgina. Hann ætlar að rifia upp stemninguna frá Oktoberfest með söng og gítarspili. Broadway í kvöld verður sýningin Rokkstjömur Islands á skemmtistaðnum Broad- way. Á eftir skemmtir svo Hljómsveit Geir- mundar Valtýssonar. Annað kvöld verður ABBA-sýningin fyrri hluta kvölds en kosninga- vaka R-listans tekur við að lokinni sýningu. Bylting Á skemmtistaðnum Café Amsterdam verður fiör um helgina því hljóm- sveitin Bylting sér um fiörið. Skítamórall Skítamórall heldur dans- leik að Miðgarði í Skaga- firði í kvöld en á morgun spilar hljómsveitin á leyni- dansleik. Á morgun verður kynnt hvar hann verður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.