Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998 I i"\7~
22 A
helgíha
Hadda sýnir íVarmahlíð:
Sitt af hvoru
Listakonan Hadda, Guðrún H. Bjamadóttir, opnar sýningu í Gallerí
ASH í Varmahlíð á morgun, laugardaginn 23. maí, klukkan 14.
Hadda kýs að kalla sýningu sina „Sitt af hvoru“ og vísar til þeirra
verka sem hún hefur unnið á síðasta ári.
Hadda nam almennan vefnað í Svíþjóð auk þess að stunda nám í lista-
deild Lýðháskólans í Svíþjóð og við Myndlistarskólann á Akureyri. Hún
hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum og haldið einkasýningar. Sýn-
ingin stendur til 12. júní nk.
Listasafnið á Akureyri:
Margslungin
myndlist Fribergs
Nýtt keramik-
verkstæði
Rannveigar
Rannveig Tryggvadóttir leirlistar-
kona opnar á morgim nýtt kera-
mikverkstæði að Smiðjuvegi 4 í
Kópavogi. Rannveig hefur lengi
stundað leirlist og þykja munir
hennar vera frumlegir og nýmóðins.
Hún var áður til húsa með listiðju
sína að Laugavegi en verkstæði það
sem hún opnar á morgun mun
einnig gegna hlutverki gallerís.
Opnunarhófið verður á milli klukk-
an 15 og 18 og eru allir velkomnir.
Sýnishorn af verkum Rannveigar,
og níu annarra leirlistarkvenna, eru
nú til sýnis á vegum Listahátíðar í
Kringlunni.
Sænski listamaðurinn Roj Fri-
berg opnar myndlistarsýningu í
Listasafninu á Akureyri laugardag-
iun 23. maí næstkomandi. Þetta er í
annað skipti sem Friberg sýnir hér
á landi en hann hélt sýningu í
Reykjavík árið 1982.
Roj Friberg er fæddur árið 1943 í
Uddevalla í Svíþjóð. Hann er mjög
þekktur í norrænu listalífi og hefur
haldið fjölmargar sýningar viða um
Norðurlönd.
Verk Roj Friberg eru fjölbreytt að
gerð en hann tjáir sig jöfnum hönd-
um með málverkum, graflktækni,
leiksviðsmyndagerð, útilistaverkum
og myndskreytingum. Friberg setur
sjálfúr upp sýningu sína og er stadd-
ur á Akureyri ásamt eiginkonu
sinni.
? * tn:
>- SK- * -
Eitt af verkum Fribergs, Processen frá árinu 1994.
Veglegt rit um list Fribergs hefur
veriö gefið út i tilefni sýningarinn-
ar. Ritið er á þremur tungumálum,
íslensku, færeysku og dönsku, en
það var unnið í samstarfl við lista-
stofnanir i Færeyjum og Danmörku.
Unga Klara-leikhópurinn í Borgarleikhúsinu:
Eins og hinir
Irinas Nya Liv er nafn á gaman-
leik sem sænski leikhópurinn Unga
Klara flytur á vegum Listahátíðar í
Borgarleikhúsinu næstkomandi
sunnudagskvöld. Leikgeröina samdi
Nils Gredeby upp úr bók
sænsk/flnnsku skáldkonunnar Ir-
inu von Martens, sem er með
Downs-heilkenni. Hér er á ferðinni
óvenjulegt leikrit sem fjallar um
þroskahefta einstaklinga sem allir
hafa Downs-heilkenni
og búa saman á
sambýli. Þá dreymir
um aö véra éíns og
hinir; þá langar í
sambúð og vera
færir um að
vinna fyrir laun-
um. Þá langar aö
vera eðlilegir en
löngunin er
blandin
hræöslu og
margar spurn-
ingar vakna
eftir því sem
liður á
leikritiö.
Verkið
er
leikið á sænsku en persónumar
ættu að vera mörgum íslendingum
að góðu kunnar því þær lifa sig inn
í heim Ronju ræningjadóttur.
Leikstjóri sýningarinnar er Suz-
anne Osten en hún stofnaði leikhóp-
inn Unga Klara árið 1975 en hópur-
inn starfar innan Borgarleikhússins
í Stokkhólmi. Leikhópurinn hef-
ur allt frá þvi hann var stofn
aður þótt einn sá framsækn-
asti á Norðurlöndunum. Ost-
en sjálf er velþekkt um alla Evrópu
og hún segir það aðalsmerki leik-
hópsins að fjalla um málefhi sem
alla jafna fara ekki hátt í þjóðfélag-
inu. Hópurinn setur upp tvær sýn-
ingar á ári hverju en vinsældir Ir-
inas Nya Liv hafa hins vegar verið
gríðarlegar og hefur stykkið verið í
tvö ár á fjölum Borgarleikhússins
í Stokkhólmi.
Með aðalhlutverk í sýning-
unni fara þau Lennart
Jahkel, Simon Norrthon, Ann
Petrén, Sylvia Rauan og Cilla
Thorell. Auk sýningarinnar á
sunnudagskvöld
. ^ veröur leik-
verkið einnig
sýnt á mánu-
dags- og
þriðjudags-
kvöld.
Odella situr fyrir á mynd hjá Carlotu Duarte.
og sjai mig
- segir fyrirsætan Odella
Alls taka fimm leíkarar þátt f
Irinas Nya Llv en það eru þau
Lennart Jakhel, Simon
Norrthon, Ann Petr-
én, Sylvia Rauan
og cnia -
Æ? Thorell. I
Eg vil að fólk komi og sjái mig og
elski mig og hafi áhuga á mér. Ég er
manneskja." Svo hljóma orö fyrir-
sætunnar Odellu á myndum ljós-
myndarans og nunnunnar Car- A
lotu Duarte sem nú eru til sýn- Æá
is á vegum listahátíðar í ÆM.
menningarmiðstöðinni /jtg
Gerðubergi. JfÆÆk
Carlota Duarte er ÆáHH
V merki- wÆMB
V
Ljósmyndir í Gerðubergi:
Ég vil að fólk komi
legur ljósmyndari og framlag henn-
ar er tvenns konar á þessari sýn-
ingu. Annars vegar sýnir hún
myndir af utangarðskonunni Odellu
sem ólst upp við slæmar aðstæöur
og var sett á stofnun fyrir geðsjúka
aðeins 9 ára gömul. Duarte tók
myndir af Odellu í gegnum tveggja
ára tímabil þar sem Odella bregður
sér í alls kyns líki. Hverri mynd
fylgir svo frásögn fyrirsætunnar.
Hins vegar sýnir Duarte myndir
sem teknar eru af Maya-indíánum í
Mexíkó undir yfirskriftinni Sópaðu
aldrei síðdegis. Duarte gætti þess að
hafa engin áhrif á myndsýn indíán-
anna né leiðbeina þeim almennt um
ljósmyndun. Þessar myndir hafa
verið sýndar víða um heim og hvar-
vetna hlotið mikla athygli. Sýningin
stendur til 21. júní nk.