Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Page 2
16 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 DV ikvikmyndir Titanic ★★★★ Stórfarotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af miklum fítonskrafti tókst James Cameron að koma heilli f höfn dýrustu kvikmynd sem gerð hefur verið. Fullkomnunarárátta Camerons skil- ar sér í eðlilegri sviðsetningu sem hefur á sór mikinn raunsaeisblæ. leonardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftirminnileg i hlutverkum elskendanna. -HK Good Will Hunting ★★★★ i mynd þar sem svo mikið er lagt upp úr per- sónunum verður leikurinn að vera góður. Sér- staklega eftirminnilegur er samleikur Williams og Damons. Hið sama má reyndar segja um flesta leikara í aukahlutverki. Bestur er þó Steli- an Skarsgárd en i túlkun sinni á stærðfræð- ingnum Lambeau dregur hann upp sannfær- andi mynd af manni með mikla sérgáfu sem þó verður að játa sig sigraðan í návist ótrú- legrar snilligáfu. -ge Jackie Brown ★★★★ Höfundaeinkenni Quentins Tarantinos eru sterk þótt myndin sé gerð eftir þekktri skáldsögu Elmore Leonards. Jackie Brown er heillandi kvikmynd sem er mýkri en fyrri myndir Tar- antinos en gerist samt óvefengjanlega í þeim heimi sem Quentin Tarantino hefur skapað.-HK U Turn ★★★* Myndin vinnur afbragðsvel úr hefðinni. Per- sónurnar eru eftirminnilegar og þótt húmorinn i noir-myndum sé oft gráglettinn hefur sjaldan verið gengið lengra en hérna. Lokasenan er i senn óborganleg og óhugnanleg. -ge The Assianment ★★★■* Leikstjórnin er tiT fyrirmyndar og handritið að sama skapi vandað. Timi er tekinn til að leyfa persónunum að mótast og fyrir vikið verða þær trúverðugri. Aidan Quinn túlkar þá breyt- ingu sem verður á Ramirez í gervi Carlosar af mikilli leikni og Sutherland hefur ekki verið jafn sannfærandi árum saman. ge Mouse Hunt ★★★★ Músaveiðamynd sem segir frá vitgrönnu bræðrunum Smuntz sem erfa snærisverk- smiðju og niðurnitt hús (með mús) eftir föður sinn. Sjálf músin er aöalhetja myndarinnar, þarsem hún klifur og stekkur og sveiflar sér af mikilli fimi og hugrekki um húsið, sigrast bæði á banvænum ketti og meindýraeyði og hvoms- ar í sig kílói af osti án þess að svo mikið sem gildna um miðbikið. -úd Scream 2 ★★★ Þó Scream 2 nái ekki þeirri snilld sem 1 átti, þá held ég að ég geti ekki annað en kallað þetta þriggja stjörnu hrollvekjuskemmtun. Eftir magnaða byrjun fór Scream 2 of hægt af stað en síðan tók hún kipp, og brunaði af stað og hélt uppi þessari líka finu spennu, án þess að slaka á drepfyndnum hroll-visununum og skildi við áhorfandann ánægjulega hrylltan.-úd The BiqLebowski -'r** Yfirhöfuð erThe Big Lebowski hlaðin ánægju- legum senum og smáatriðum eins og við mátti búast frá þessu teymi. Jeff Bridges er ákaflega viðeigandi lúði f hlutverki sínu sem hinn „svali" og algerlega áhyggjulausi Le- bowski og John Goodman sömuleiðis góður sem bilaður uppgjafa Víetnamhermaður. -úd Deep Impact ★★★ Vel gero og áhrifamikil kvikmynd þar sem fjall- að er um einhverja mestu hættu sem vofir yfir okkur, að halastjarna tæki upp á því að rekast á jörðina. Myndin er góð skemmtun, sem um leið setur að áhorfandanum léttan hroll. -HK Búálfarnir ★★★ Búálfar eru varkárir og láta litið fyrir sér fara því ef þeir sjást eru þeir klesstir af manneskj- unum sem taka þá fyrir mýs eða önnur mein- dýr. Sjónræn útfærsla er sérlega snjöll, þar sem kunnuglegir smáhlutir i nýjum hlutverkum flugu svo hratt hjá að maður mátti hafa sig alla við að fylgjast með, sjónræn veisla, hraði og húmor. Omissandi fyrir álfa og fólk af öllum stærðum. -úd Anastasía Sagan af týndu prinsessunni Anastasiu er hreinn ævintýramatur. Myndin einkenndist öll af hugmyndariki og hélt gamlingjanum mér uppteknum allan tímann, þrátt lyrir fremur leiðinlega músik, sem virðist skylda i skemmti- efni af þessu tagi. Fyrir utan smáhroll yfir söguskýringum fannst mér Anastasía hin besta skemmtun og með betri teiknimyndum sem ég hef séð lengi. -úd The Rainmaker i Hefur ekki sama hraða og spennu og aðrar myndir gerðar eftir sögum Grishams. Hún lýsir ekki auði og munaði hástéttarinnar og er laus við óþarfa fegrun á bandarisku réttarkerfi. En ( því felst styrkur hennar. Handritið er þétt og sannfærandi og leikurinn með ágætum. Gam- an var að sjá gamla og nú ósköp þreytta leik- ara á borð við Mickey Rourke og Virginiu Mad- sen í bitastæðum smáhlutverkum. -GE Litla hafmevjan ★★★ Teiknimyndir Walts Dtsneys eru klassískar og þegar ný kynslóð rís eru þær settar á markað- inn á ný og er ekkert annað en gott um það að segja. Litla hafmeyjan kom með ferskan blæ inn í þetta kvikmyndaform eftir að teiknimyndir i fullri lengd höfðu verið í lægð um nokkurt skeið og, hún á fullt erindi enn til ungu kynslóðarinnar. ís- lenska talsetningin er vel heppnuð. -HK Fallen Leikstjórinn Gregory Hoblit ætlar sór greinilega stóra hluti með þessari mynd og leggur mikla áherslu á frumlega myndatöku og önnur myndræn brögð til þess að undirstrika þá trufl- uðu heimsmynd sem hann dregur upp. Með þessu og hinum frábæra Washington tekst honum vissulega að skapa ansi magnaða stemningu á köflum. -úd Það gerist ekki betra Framan af er As Good as it Gets eins góð og gamanmyndir perast. Samræðurnar einkenn- ast af óvenjumikilli hnyttni, leikurinn er með ólíkindum og handritshöfundunum Andrus og Brooks tekst að stýra fram hjá helstu gildrum formúlufræðanna. Það var mér því til mikilla vonbrigða þegar myndin missti flugið eftir hlé. Leikurinn var enn til fyrirmyndar en þær fjör- miklu og óvenjulegu persónur sem kynntar voru til sögunnar f upphafi fengu ekki svigrúm til þess að vaxa. -ge Mad City: Hoffman Travolta Dustin Hoffmann leikur sjónvarpsfrétta- mann sem er á niður- leið í faginu. Sam-bíóin taka til sýninga í dag nýjustu kvik- mynd gríska leikstjórans Costa-Gavras og í þetta sinn hefur Costa-Gavras fengið til liðs við sig tvær af skærustu kvikmyndastjörnunum í Hollywood, Dustin Hoffman og John Travolta. Hoífman leikur sjónvarpsfréttamanninn Max Brackett sem í eina tíð var besti fréttaritari stöðvarinnar. Honum verður á í messunni í eitt skipti þegar hann er að lýsa flugslysi. Þegar hon- um er skipað að sýna líkin í nærmynd missir hann stjóm á sér fyrir framan bandarisku þjóð- ina og hellir úr skálum reiði sinnar. Það næsta sem hann veit er að hann er nánast gerður útlæg- ur af fréttastofunni og er settur í ómerkileg verk- efni. John Travolta leikur Sam Baily, sem eitt sinn átti sér þann draum að verða orrustuflugmað ur. Skortur á menntun gerði þennan draum hans að engu. Eftir að hafa gegnt ýmsum að- stoðarmannsstörfum í flughernum fór hann til sins heima, giftist og fékk starf sem öryggis- vörður á Náttúrasögusafni í heimabæ sínum. Hann lifði góðu fjölskyldulífi með eiginkonu og tveimur bömum þar tU honum er sagt upp störf- um í kjölfar þess að fjárveiting til safnsins er minnkuð. Þegar hann reynir að fá skýringu neit- ar yfirmaður hans að taka á móti honum. Dag einn er Max ásamt ungri aðstoðarkonu í heimsókn í safninu til að taka viðtal við safn- stjórann. í sömu andrá og Max er að hefja við- talið birtist Sam Baily með skammbyssu og heimtar að fá svör við sínum málum. Að sjálf- sögðu sér Max þama tækifæri til að ná aftur fyrri virðingu í fréttamannastéttinni.... Það ætti ekki að koma á óvart að handritshöf- undur Mad City er fyrrum blaðamaður, Tom Matthew, sem þekkir út og inn blaðamanna- og fréttamannabransann. Matthews byrjaði að skrifa handritið í kjölfar atburð- anna í Waco í Texas árið 1993 þeg- ar all- j0hn Travolta leikur örvænt- t*1- ingartullan öryggisvörð sem leitar örþrifaráða til að bjarga andlitinu. heimurinn fylgdist með fyrirsátinni þar, en þar gerðust allir atburðir nánast fyrir framan nefið á bandarísku þjóðinni. Auk Dustin Hoffmann og John Travolta leika stór hlutverk í myndinni Alan Alda, sem leik- ur fréttastjóra, Mia Kirshner leikur að- stoðarmann Max Brackett, Ted Levine leikur lögreglustjóra og Blythe Danner leikur yfirmann Sam Baily. -HK Costa-Gavras við tökur á Mad City. Costa-Gavras Leikstjóri Mad City er Costa-Gavras, sem fæddist 1933 í Arkadia, Grikklandi, en hlaut menntun sína í Aþenu og París. Við Sorbonne-háskólann í París nam hann bókmenntir en hætti í miðju kafi til að leggja stund á kvikmyndagerö í Institut des Hautes Etudes Cinematographiques i París. Eftir að hafa lokið námi hélt hann kyrru fyrir í París þar sem hann vann sem aðstoðarmaður leikstjóra á borð við Rene Clair, Yves Allegret, Rene Clement, Henri Verneuil, Jacques Demy og Marcel Ophuls. Fyrstu kvikmynd sína, Compartment Tueurs, geröi Costa-Gavras 1965 með Yves Montant, Jean-Louis Trintignant og Simone Signoret i aðalhlutverkum. Myndin hlaut Edgar All- an Poe verðlaunin og var valin ein af tiu bestu kvik- myndum í Bandaríkjunum. Þriðja kvikmynd hans, Z, gerði hann heimsfrægan. Fékk sú kvikmynd verðlaun í bak og fyrir, meðal annars óskarsverðlaun sem besta erlenda kvikmynd- in og einnig óskarinn fyrir klippingu, dómnefndar- verðlaunin í Cannes og yfirleitt völdu gagnrýnendur i Evrópu sem og I Bandaríkjunum hana bestu mynd ársins 1970. Costa-Gavras hefur siöan sent frá sér misgóðar myndir, nokkrar þeirra margverðlaunaðar, til dæmis Missing. Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem Costa- Gavras hefur leikstýrt: Compartment Tueurs, 1965 Un homme de Trop, 1967 Z, 1969 L'Aveu (The Confession), 1970 Etat de Siége, 1972 Section speciale, 1975 Clair de Femme, 1979 Missing, 1981 Hanna K, 1983 Family Buisness, 1986 Betrayed, 1988 The Music Box, 1990 La petite apocalypse, 1993 -HK laununum með irönsku myndinni Keimur af kirsuberi. Kvikmyndin fjallar um skrifstofu- blókina Yamashita sem kemst að því að konan hans er ávallt heimsótt af elskhuga sínum þeg- ar hann er í vinnunni. Einn daginn kemur hann óvænt heim til sín og drepur konuna sína og er sendur í fang- elsi í átta ár. Þegar hann losnar úr prísundinni stofnar hann rakarastofu í smábæ nokkrum og talar við engan nema gæludýr sitt, ál sem hann eignaðist í fangelsinu. Dag einn rekst hann á meðvit- undarlausa konu sem hafði gert tilraun til að svipta sig lífi. Hann ræður hana í vinnu til sín og í fyrstu er sambandið á milli þeirra stirt vegna þess að konan minnir Yamashita óþægilega mikið á hina látnu eiginkonu hans. Ralph Fiennes í öðru aðalhlutverkinu í Ósk- ar og Lúsinda. Vorvindar: Állinn og Óskar og Lúsinda Háskólabíó og Regnboginn halda áfram að sýna listrænar kvikmyndir á kvikmyndahátíð- inni sem hefur yfirskriftina Vorvindar. Átta myndir eru á hátíðinni, fjórar í hvom bíói, og er hver mynd sýnd í eina viku og hafa tvær þeg- ar verið sýndar. Myndimar átta hafa allar feng- ið mikla athygli og hlotið ótal viðurkenningar á kvikmyndahátíðum víðs vegar um heim. Allar leggja þær áherslu á hinn mannlega þátt og fara óhefðbundnar leiðir til að segja sögur sínar. Eru þær ferskur andblær fyrir þá sem vUja taka sér smáhvíld frá hinum dæmigeröu af- þreyingarmyndum. Þær tvær myndir sem fmmsýndar vom á miðvikudag og veröa sýnd- ar fram á þriðjudag eru ÁUinn (Unagi) og Ósk- ar og Lúsinda (Oscar and Lucinda). Állinn ÁUinn eftir leikstjórann Shohei Imamura, sem þekktastur er fyrir Skordýrakonuna og Hiroshima-myndina Svart regn, hlaut guUpál- mann í Cannes á síðasta ári, deUdi hún verð-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.