Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Side 11
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 tónlist,' Tricky um nýju plötuna sína: „Þessi tónlist gerir mig skít- hræddan!" Tricky heitir réttu nafni Adrian Thawes og er fæddur 27. janúar 1968. Móðir hans framdi sjálfsmorð þegar hann var 4 ára og var strákur alinn upp hjá vandafólki. Tricky er einn af hinni heilögu tripp-hopp þrenningu frá Bristol, ásamt Massive Attack og Portishead. Á væntanlegri plötu sinni, Angels With Dirty Faces, fjarlægist hann þó enn tripp- hoppið og er kominn út í blúsaðar og framúr- stefnulegar pælingar, minnir m.a. stundum á Captain Beefheart eða Miles Davis í villtum gír. Hann hefur verið að fá misgóða dóma fyrir plöt- una en flestir geta þó verið sammála um að þetta sé plata sem þurfl mikla hlustun áður en hún fer að síast inn. Of Ijótur fyrir verðlaun Tricky heitir réttu nafni Adrian Thawes og er fæddur 27. janúar 1968. Móðir hans framdi sjálfs- morð þegar hann var 4 ára og var strákur alinn upp hjá vandafólki. Þrettán ára gamall heyrði hann í ska-hljómsveitinni The Specials og ást hans á tónlist kviknaði umsvifalaust. Tricky er hasshaus, segist nota grasið í vinnunni til að komast í stuð og eftir vinnu til að slappa af. Sem unglingur stefndi hann ekki að öðru en að sitja einhvers staðar með kærustu, músik og stóran poka af hassi. Tricky var partur af Wild Bunch- genginu í Bristol sem Massive Attack þróaðist úr. Hann var meðlimur í Massive Attack á tímamótaplöt- unni Blue Lines en var hættur áður en Protect- ion kom út, þótt hann hafi tekið þátt í gerð þeirr- ar plötu. Ástæðan fyrir brotthlaupinu var að Tricky fannst aðrir meðlimir halda aftur af sér. Hann hætti í illu, skotin gengu á milli; 3D, með- limur Massive, sagði að Tricky myndi aldrei hafa sig í það að gera plötu sjálfur því hann kæmist ekki einu sinni úr rúminu á morgnana vegna leti en Tricky vill meina að fyrrum félag- ar sínir hafi breyst í peningapúka og semur lag til þeirra á nýju plötunni, Money Greedy. Það hefur verið aðall textagerðar Trickys að hann skefur ekkert utan af hlutunum og ef hon- um finnst sér misboðið er umsvifalaust kominn gremjufullur texti. Atvinnurekendurnir fá t.d. á baukinn á nýju plötunni. Þótt vinsældir og plötusala hjá Tricky hafi verið á niðurleið siðan hann gerði fyrstu plötuna, Maxinquaye, er hann þó nógu stórt númer til að fá að vera í friði fyr- ir plötufyrirtækinu nokkurn veginn hvað sem hann gerir. „Ég er í þeirri aðstöðu að ég get sagt fokk jú við hljómplötufyrirtækið," segir hann. „Fólk fer varlega að mér. Ég þarf ekki að vera hræddur við neitt. Ég læt engan halda mér niðri með samningum því þá er ég orðinn þræll. Ef ég væri alltaf hræddur um að missa samninginn gæti ég eins gefið frá mér lífið. Ég þekki fullt af fólki sem er hrætt um að missa samninga og þess vegna er auðvelt að stjórna því. Ég fæ að vera í friði.“ Tricky fmnst allur bransinn rotinn og hann er fúll yfir að hafa aldrei fengið Brit-verðlaunin. „Ég er búinn að fatta út á hvað þessar verð- launaafhendingar ganga,“ segir meistarinn. „Það er bara verið að klappa fólki á bakið sem hefur búið til pening fyrir bransann. Shaun Ryder (söngvari Black Grape) sagði einu sinni við mig að við myndum aldrei fá nein verðlaun af því að við erum of ljótir og við leyfum ljótleik- anum að birtast í tónlistinni sem við gerum." Ný tónlist Nýja platan er frábrugðin öðrum plötum Trickys að því leyti að sömpl eru í miklum minnihluta og alvöru spilamennska allsráðandi. Hljómplötufyrirtækin vilja oft fá hljóðstjómanda til liðs við popparana en Tricky vildi ekki heyra neitt slíkt og vann nýju plötuna sjálfur enda seg- ist honum vera skítsama hvort platan verði spil- uð í útvarpinu eða ekki. Tricky segir efnið á plötunni vera nýja tónlist og kærir sig ekki um að útskýra það nánar, nema; „tónlist mín er „heavy shit“ - hún gerir mig skíthræddan." Margir leggja hönd á plóginn, t.d. Marc Ribot gítarleikari og fyrrum gítarleikari Anthrax, Scott Ian. PJ Harvey syngur í Broken Homes, sem nýlega kom út á smáskífu og Martina Topley-Bird syngur að vanda með Tricky í flest- um lögunum. Þau hafa lengi verið sálufélagar og eiga saman dótturina Maisey. Þegar blaðamaður hjá tímaritinu Face sakaði Tricky um að van- rækja dótturina og láta Martinu um allt erfiðið var hann ekki lengi að svara fyrir sig og sagðist ætla að troða blaðamanninum í skottið á bílnum sínum og skjóta hann í andlitið eins og hund. Hann róaðist svo niður og tekur málið fyrir eins yfirvegað og ** hann getur í laginu Demise á nýju plötunni. Annað dæmi um reiðikast sem hefur endað í texta er þegar Bob Marley-stælingin Finley Qu- aye sagðist vera frændi Trickys til að komast í sviðsljósið; þá brást Tricky við og samdi níð. Hann dregur þetta að visu eitthvað til baka: „Mér fmnst sumt af því sem Finley gerir ágætt og mér fannst að við gætum vel verið skyldir eft- ir að ég heyrði textana hjá honum. Öll mín fjöl- skylda hefur verið afbrigðileg og þessir textar gefa ekki annað til kynna en hann sé það líka.“ Frægt fólk í lyftu Þegar Tricky liggur ekki einhvers staðar í reykjarkófi, gruflandi í hljómborðinu sínu, er hann á sveimi í hópi fræga fólksins. Hann og Goldie lentu eins og frægt er orðið í hnippingum á diskóteki í New York og þar var Björk ekki > langt undan. Björk söng á plötu Trickys, Nearly God, en í dag kallar hann hana vampíruna og hefur engin skýring fengist á því uppnefni. Tricky lék illmenni í myndinni The Fifth Elem- ent og varð góðkunningi Garys Oldman, sem lék aðalillmennið. Þrátt fyrir frægðina er honum nauðsynlegt að vera ekta. Hann lætur ekki segja sér fyrir verkum og neitar t.d. að fara eftir fyrh - mælum leikstjórans þegar hann gerir mynd- bönd: „Glætan að ég fari að dansa. Ég er klaufa- bárður og kann ekki að dansa.“ Tricky neitar því ekki að hafa notað frægðina - „þegar glæsi- legar konur eiga í hlut, eða til að kjafta mig út úr veseni með lögguna" - en segist þó byrjandi" við hliðina á sumu frægu fólki, sem hann segir algjöra egóista, t.d. Bryan Adams, sem Tricky hitti í lyftu á stjörnuhóteli: „Bryan Adams kem- ur inn og lyftuhurðin lokast. Hann fer að tala; Ég er með gigg, þú ættir að mæta, bla bla bla, og á meðan er einhver að hamast á takkanum fyrir utan og vill komast inn en Bryan bara lokar aft- ur og aftur á nefið á honum og æpir; drullastu í burtu þarna! og bullar allan tímann við mig á meðan. Svo kallar fólk mig djöfullegan og skap- stóran! Ég er engill við hliðina á Bryan Adams!“ Sænskt einangrunarrokk Kent er snyrtipinnahljómsveit en textarnir eru þó oftast um einmanaleika, einangrun og almennt vonleysi. Svíar hafa sífellt verið að færa sig lengra upp á skaftið í rokkinu og poppinu og nú er útflutningur á tón- list að verða einn af aðalútflutningsaf- urðum landsins. The Cardigans, The Wannadies, Whale og Stina Nor- denstam eru allt nöfn sem poppáhuga- menn þekkja vel, grallarana í Bob Hund þekkja margir og Soundtrack Of Our Lives hefur verið að fá byr undir vængina í Bretlandi. Vinsælasta bandið í Svíþjóð er þó hljómsveitin Kent, sem hefur verið vinsæl hér á ís- landi með lagið „If You Were Here“ síðustu vikurnar. Ég var viss um að þetta væri nýtt lag með Smashing Pumpkins þegar ég heyrði það fyrst en svo fannst mér framburðurinn hjá söngvaranum eitthvað skrýtinn. Kent hefur einnig verið líkt við Radiohead, en sjálfir segjast fimmmenningarnir helst undir áhrifum frá David Bowie og Bítlunum. Kent varð tO fyrir átta árum í verk- smiðjubænum Eskilstuna, sem er í tveggja tíma keyrslu frá Stokkhólmi. Meðlimunum leiddist smábæjar- hokrið og dreymdi um neonljós stór- borganna. Langtímamarkmið sveitar- innar er að gera bestu plötu í heimi og þeir segja að eftir þriðju plötu sveitar- innar, Isola, sé ekki langt í það mark- mið. Kent komst á samning hjá RCA eft- ir að hafa hitað upp fyrir Cardigans og gáfu árið 1995 út fyrstu plötuna, Kent. Dómar voru ágætir og bandið spilaði úti um alla Svíþjóð og nálæg lönd. Ári síðar kom platan Verkligen, sem var tekið mjög fagnandi af Svi- um. Nú fóru sænsk tónlistarverðlaun að hrúgast yfir bandið og ekki var óal- gengt að sjá Kent kallaða bestu hljóm- sveit Svíþjóðar í fjölmiðlum. Til þessa hafði sænskan verið brúkuð á plötum Kent en þriðja platan, Isola, var líka tekin upp á ensku, enda stórhugur í mönnum. Hljómsveitin hefur veriö að gera það gott í Evrópu en enn eru stærstu vígin, England og Bandaríkin, ófallin. Kent er snyrtipinnahljómsveit en textamir em þó oftast um einmana- leika, einangrun og almennt vonleysi. Söngvarinn og gítarleikarinn, Joakim Berg, sem semur flest lög og alla text- ana, segir að hann sé ekki endilega að semja út frá eigin brjósti heldur séu Svíar yfirhöfuð mjög kaldir og ein- mana og horfi helst aldrei í augun á hver öðram. Þess vegna sé svartsýnis- röflið honum kannski meðfætt. Hann er þó grínari eins og sést þegar hann er spurður hvar Kent standi núna; „Þú veist aldrei hvar þú stendur nema þú sért einfættur!" ll. Ball í Húnaveri í kvöld halda hljómsveit- irnar Spur og Á móti sól sameiginlegt sveitaball í Húnaveri, A-Húnavatns- sýslu. Þetta er eina ball sumarsins í Húnaveri. SÍN á afmæli Um helgina á hljómsveitin SÍN 10 ára afmæli. Hún mun halda upp á tímamót- in með því að spila á Kringlukránni fóstudags- laugardags- og sunnudags- kvöld. Greifarnir Á sunnudagskvöld halda Greifarnir árlegt hvíta- sunnuball sitt í Hreöa- vatnsskála. Áttavillt Áttavillt verður á flakki um helgina. í kvöld leikur sveitin á Inferno þar sem írland var, annað kvöld spilar hún í Sjallanum á Akureyri og svo á Hlöðu- felli í Húsavík á sunnu- dagskvöldið. Millarnir og Bjarni Ara Milljónamæringamir ásamt Bjarna Arasyni halda dansleik á veitinga- staðnum Astro næstkom- andi sunnudagskvöld. Papar á In- ferno Stuðhljómsveitin Paparn- ir leika á hinum nýja skemmtistað Inferno á laugardags- og sunnu- dagskvöld. Sóldögg Hljómsveitin Sóldögg leikur í Logalandi í kvöld og í Bíókaffinu á Siglu- firði annað kvöld. Skítamórall Hljómsveitin Skítamórall spilar á Neskaupstað annað kvöld ásamt hljómsveitinni Stæner en skellir sér svo vestur dag- inn eftir og spilar í Skot- húsinu í Keflavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.