Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998
Fréttir
Sverrir Hermannsson í pólitík á ný með framboð á landsvísu:
Undirtektir hafa
verið ótrúlegar
- segir Sverrir m.a. í viðtali sem DV átti við hann í gærkvöld
Sverrir Hermannsson hefur geflð
út þá yflrlýsingu að hann ætli í póli-
tík á ný. Hann hyggst stofna stjóm-
málaflokk á landsvísu fyrir næstu
kosningar sem mun hafa það efst á
stefnuskránni að leggja niður kvóta-
kerfið. DV náði tali af Sverri í gær-
kvöld vegna þessa máls. Þar stað-
festi hann nokkur nöfn stuðnings-
manna sem DV hafði heimildir fyr-
ir og bætti viö ef eitthvað var. í
þeim hópi em nokkrir fyrram al-
þingismenn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks, s.s. Matthías
Bjamason, Ellert B. Schram, Guð-
mundur G. Þórarinsson og Pétur
Bjamason. Þá hefur Kristinn
Pétursson á Bakkafirði verið
nefndur til sögunnar.
Hér fer á eftir samtal blaða-
manns DV við Sverri Hermanns-
son þar sem sá síðarnefndi hefur
fyrstur orðið:
„Hér þurfa menn að rísa upp
gegn þessu ráðslagi sem nú er við
lýði. Það er svo einfalt.“
- Er þetta pólitískt afl á lands-
vísu?
„Já, það er klárt mál.“
- Hefurðu fengið menn mér þér
á lista?
„Ja, héma. Það er nú ekki kom-
ið að því en undirtektir hafa verið
Sverrir Pétur
Hermannsson. Bjarnason.
ótrúlegar."
- Við höfum heimildir fyrir því
að Pétur Bjarnason á Vestfjörðum
sé með þér i liði.
„Já, einmitt það.“
- Er það rétt?
„Hundrað fyrir einn gefa sig
fram þegar nauðsyn krefur eins og
þessi.“
- Staðfestirðu þá að Pétur hafi
gefið sig fram?
„Ég hef ekkert um það að segja.
Mér þykir það mjög líklegt því
hann er maður sem brýst gegn
þessu ofurveldi sem menn standa
frammi fyrir.“
- Hvað með Matthías Bjama-
son?
„Hann verður í heiðurssæti á
listanum á Vestfjörðum ef ég fer
þangað.“
Matthías Eliert B.
Bjarnason. Schram.
- Hefurðu talað við hann?
„Ég er nú hræddur um það.“
- Hann hefur tekið vel í erindið?
„Vel? Hann bauðst til þess að
fyrra bragði."
- Hafa einhverjir fleiri haft sam-
band?
„Það er nú líkast til en ég segi
þér ekki frá því nú.“
- Hvað með Guðmund G. Þórar-
insson? Fer hann í framboð fyrir
þig í Reykjavík?
„Ja, héma. Hann verður nú í
fremstu fylkingu enda þekkir
hann nú Finn Ingólfsson að mis-
jöfnu. Ég er nú hræddur um það.
Ellert B. Schram er búinn að gefa
sig til kynna og ótal, ótal menn,
fylkingum saman.“
- Hvað á svo að setja á oddinn?
Eru það kvótamálin?
Guðmundur G. Kristinn
Þórarinsson. Pétursson.
„Að sjálfsögðu og bara þessa
frjálshyggjustefnu sem er að ríða
okkur á slig.“
Hef ekkert gert af mér
- Þú óttast ekki að afdrif þín
innan Landsbankans komi til með
að trufla framgang þinn í pólitík?
„Afdrif mín? Ég hef ekkert gert
af mér þar. Þeir eru því miður
búnir að missa af þeim sauð. Þeir
ætluðu sér að fanga mig en allt
rann það út í sandinn. Enda vita
menn hvemig að því var staðið og
til hvers leiðir."
- Hverjar meturðu líkurnar,
eins og staðan er nú, á þvi að þú
verðir kominn á þing innan árs?
„Það er nú ekki minnsti vafí.
Þar ætla ég að hitta þessa kóna og
ræða við þá.“ -bjb
Stjórnarandstaðan fundar um vantraust á Finn:
Ekki samstaða
Kveikt var í ruslagámi við fiskverk-
unarhús við Fiskislóð f Reykjavík á
föstudagskvöld. Eldurinn komst
undir klæðningu en siökkvilið réð
niðurlögum hans. DV-mynd S
„Ég er ekki frá því að tillaga um
vantraust komi fram. Annars ætla
ég ekki að ákveða hver verður nið-
urstaða þessa samráðs stjóm-
arandstöðunnar. Það þarf að
ákveða þetta á næstu tveimur dög-
um. Stutt er í þinglok," sagði Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, þing-
maður jafnaðarmanna, í samtali
við DV í gærkvöld, en fulltrúar
stjórnarandstöðuflokkanna koma
saman á Alþingi í dag til að ræða
hvort vantrauststillaga verði lögð
fram á Finn Ingólfsson vegna Lind-
armálsins.
„Davíð Oddsson og Kjartan
Gunnarsson ætla að taka ábyrgð á
Finni, ekki bara pólitíska heldur
einnig siðferðilega. Það er ljóst að
þinginu var sagt ósatt. í ljósi þess
að þetta hefúr gerst áður hjá þess-
um sama ráðherra, þegar Jóhanna
Sigurðardóttir spurði um laxveiði
og risnu Landsbankans, þá er mað-
urinn rúinn öllu trausti. Það er
spurning hvort hægt er að spyrja
hann spuminga í framtíðinni. Það
er hættulegt lýðræðinu ef það á að
viðgangast að ráðherra geti sagt
ósatt án þess að sæta ábyrgð, sér-
staklega í svona stórum málum,"
sagði Ásta enn fremur.
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins, sagð-
ist hafa efasemdir, eins staðan
væri í dag, um að rétt væri að
leggja fram vantrauststillögu.
„Yfirlýsing hefur komið fram
um að opinber rannsókn verði
gerð á Lindarmálinu. Ef ekkert
nýtt kemur í ljós á næstu dögum
þá finnst mér eðlilegt að bíða með
afgreiðslu á vantrauststillögu.
Fyrst þarf að sjá niðurstöðu þess-
arar rannsóknar. Ég tel eðlUegt að
henni verði flýtt og Alþingi komi
saman sérstaklega tU að ræða nið-
urstöðunar þegar þær liggja fyrir,“
sagði Margrét.
Vantraust vænlegra
Guðný Guðbjömsdóttir, þing-
kona Kvennalistans, taldi það aug-
ljóst að trúnaðarbrestur hefði orð-
ið á mUli Finns og Alþingis. Hann
heföi farið með rangt mál.
„Ef ríkistjómin tekur ekki sjálf
á þessu máli þá verður þingið að
gera það. Hægt er að gera það með
utandagskrárumræðu eða tUlögu
um vantraust. Sjálf tel ég að um-
ræða um vantraust sé vænlegri
leið. Hvort formið sem verður not-
að þá er mikUvægt að afstaða Dav-
íðs Oddssonar komi fram, hvort
hann ætli að taka ábyrgðina á sig,
SjálfstæðisUokkinn og Kjartan
Gunnarsson eða að Finnur beri
ábyrgð," sagði Guðný í samtali við
DV og vonaðist til að samstaða
næðist innan stjómarandstöðunn-
ar í málinu. Ef það gerðist ekki þá
yrðu rökin að vera sterk á móti
vantrauststUlögu.
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, sagði það
álitamál við núverandi aðstæður
hvort tUlaga um vantraust myndi
bera árangur.
„Eftir yfirlýsingar Davíðs Odds-
sonar og HaUdórs Ásgrímssonar,
um að þeir styöji Finn, þá má segja
að vantrauststillaga sé óþörf,“
sagði Sighvatur. -bjb/sm
Landsbankinn vill svör frá Sverri um Svíþjóðarferð:
„Skila ekki neinu uppgjöri"
„Ég mun ekki skUa neinu upp-
gjöri,“ var það eina sem Sverrir Her-
mannsson sagði við DV í gærkvöld
um yfirlýsinguna sem bankaráð
Landsbankans sendi frá sér í gær.
TUefhi yfirlýsingarinnar voru fréttir
undanfama daga í fjölmiðlum um að
bankinn hefði borgað Sviþjóðarferð
Sverris og eiginkonu hans í april sl. í
yfirlýsingunni er það staöfest að bank-
inn hafi borgað brúsann en umbeðið
uppgjör hafl ekki borist enn frá Sverri.
í yfirlýsingunni segir m.a.: „Sverr-
ir Hermannsson fór ásamt maka sín-
um tU Svíþjóðar dagana 4.-13. aprU
sl. Þá gegndi hann ennþá starfi
bankastjóra. Áður en ferðin hófst
hafði bankinn greitt ferðakostnað,
samtals kr. 353.451,-. Af þessari fiár-
hæð voru kr. 197.802,- vegna far-
gjalda; annars vegar vegna flugferðar
þeirra hjóna fram og tU baka mUli
Keflavíkur og Sto kkhólms en einnig
vegna ferðar fram og til baka milli
Stokkhólms og Helsinki með „SUja
Line“ (ferjufyrirtæki) dagana 10.-12.
aprfl. Restin, kr. 155.649,-, voru dag-
peningar fyrir Sverri. Þessi kostnað-
ur var greiddur að ósk Sverris."
í yfirlýsingunni er minnt á sam-
þykkt bankaráðs frá ársbyijun um
reglur um greiðslu kostnaðar vegna
ferðalaga bankastjóra. TU þess að
bankinn borgi ferðir þurfi þær að
vera þáttur í starfí bankastjóra. Regl-
umar kveða á um að ferðauppgjör sé
gert þar sem komi fram tUefni feröar
og greinargerð um kostnaðarhöi.
Helgi S. Guðmundsson, formaöur
bankaráðsins, vUdi ekki tjá sig um
mál Sverris og vísaði tU yfirlýsingar
ráösins. -bjb
Stuttar fréttir dv
Minningarreitur vígður
Fram kom í fréttum Sjónvarps
að minningarreitur um horfna,
drukknaða og þá sem í fjarlægð
hvUa hafi verið vígður í Hafiiar-
fjarðarkirkjugarði í gær. Með
minningarreitnum gefst ættingj-
um og vinum tækifæri tU þess aö
kveðja látna ástvini og minnast
þeirra með táknrænum hætti.
Saga Eimskipafélagsins
YfirgripsmikU saga Eimskipafé-
lagsins er nýkomin út. Hún er m.a.
byggð á rannsókn Guðmundar
Magnússonar sagnfræöings og í
henni kemur fram að Sambandið
keypti bréf í Eimskip en var feng-
ið tU að selja þau aftur. Þetta kem-
ur fram í Morgunblaðinu.
Hraðakstur
Lögreglan fylgdist grannt með
umferöinni tU höfúðborgarinn-
ar um helgina. Þrír ökumenn
voru teknir fyrir ölvun við akst-
ur í gærdag. Það telst mjög
óvenjulegt að degi tU.
Umferð var talsverð að sögn
lögreglunnar og nokkur viðbún-
aður vegna þess. AUmargir öku-
menn flýttu sér fullmikið og voru
sektaðir fyrir of hraðan akstur,
þrír í fyrrinótt og 16 í gær.
Þingmönnum þakkað
Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík var slitið í 100. sinn á fóstudag.
Guðjón Ármann
Eyjólfsson skóla-
meistari þakk-
aði sérstaklega
þingmönnunum
Guðmundi HaU-
varðssyni og
Kristjáni Páls-
syni stuðning
sem m.a. hefði
orðið tU þess að skólinn héldi hús-
næði sínu.
Dizkóiistinn í minnihluta
Sem kunnugt er gekk Framsókn
I Árborg tU viðiæðna við sjálf-
stæðismenn. Ljóst þykir að Diz-
kólistamenn, sem höfðu óskað eft-
ir meirUUutasamstarfi með Fram-
sókn og Árborgarlista, starfa því í
minnihluta. Dagskráin á Selfossi
greindi frá.
Nýjungí bankaþjónustu
Timamót urðu í bankaþjónustu
hér á landi þegar Sparisjóður
Hafharfiarðar opnaði á dögunum
bankaútibú í Fjarðarkaupum. TU-
gangurinn er að koma tU móts við
hinn almenna viðskiptavin sem
getur nú sinnt erindum í Spari-
sjóðnum um leið og hann gerir
innkaup. Fjarðarpósturinn sagði
ffá.
Á toppi McKinleys
íslensku íjaUgöngumennimir
Matthías Sigurðarson og Styrmir
Steingrímsson komust á topp
McKinley-fiaUs í Alaska 26. maí sl.
íslendingamir vom aUs fimm í
leiðangrinum en þrír þeirra urðu
að snúa við vegna óveðurs og veik-
inda. Morgunbiaðið greindi frá.
Ammoníakleki
Ammóníak lak úr röri í Fisk-
iöju Skagfirðings á Sauðárkróki í
gærmorgun. Starfsmaður fékk
ammoníakið í andlit, öndunarfæri
og maga og var hann fluttur á
sjúkrahús en er ekki talinn í
bráðri hættu.
Mok í Síldarsmugunni
Mokveiði var í Síldarsmugunni
um helgina. Dæmi em um að skip
séu búin með kvóta sína þrátt fyr-
ir að aðeins hafi verið veitt upp í
helming heildarkvótans.
Annir á þingi
Þrennar utandagskrárumræður
verða á Alþingi í dag. Um Scheng-
ensamstarfið að
ósk Hjörleifs
Guttormssonar,
um málefhi LÍN
að ósk Svavars
Gestssonar og
um heilbrigðis-
mál að ósk Sig-
hvats Björg-
vinssonar. Hefðbundnar eldhús-
dagsumræður verða síðan í þing-
inu á miðvikudagskvöld. -þhs