Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Heimsfræg rússnesk sópransöngkona syngur í Háskólabíói:
Það er frábær hljóm-
burður í sturtuklefum
- segir Galina Gortsjakova í samtali við DV
Þegar ég spyr Galinu Gortsja-
kovu hvað hún hafi verið að bedrífa
síöustu vikur þá segir hún mér frá
yndislegum tónleikum í Vínarborg.
Þar vann hún með miklum lista-
mönnum á borð við Placido Dom-
ingo sem Galina segir að sé drengur
góður. „Hann kann að fást við flest
þau vandamál sem upp koma við
undirbúning stórtónleika. Hann er
heldur enginn einræðisherra sem
vill ráðskast með samstarfsfólk
sitt.“
Dagskráin sem Galina Gortsja-
kova ætlar að syngja fyrir íslend-
inga í kvöld er hennar uppáhalds-
dagskrá: ástarsöngvar frægra rúss-
neskra tónskálda. Hún hefur farið
með þessa sömu dagskrá um allan
heim og segir að þaö sé mjög gaman
því að ástin eigi alls staðar við, þó
svo að áheyrendur séu ólíkir. Raun-
ar þyki henni mjög spennandi að
fylgjast með því hvaö salurinn er
breytilegur og hve hennar tilfinn-
ingar í söngnum breytast með
áheyrendum.
Galina hefur sagt í viðtali aö
söngvarnir geri hana hamingju-
sama og ég viðra furðu mína á þvi
þar sem söngvarnir eru margir um
opin og blóðug hjartasár - í einum
þeirra segir: „Mér til angurs varð ég
ástfangin af munaðarlausum vesal-
ingi. Slík örlög voru mér ráðin.
Sterkir menn skildu okkur að, fóru
með hann burt og skráðu hann í
herinn... Og hermannskona er ég,
einmana er ég, og lítur út fyrir að ég
verði gömul í húsi vandalausra.
Slík örlög voru mér ráðin. A!“
Galina hlær og segir að það sé
rétt að sumir söngvarnir séu mjög
sorglegir og fjalli um óhamingju-
sama ást, en aðrir fjalli líka um ást
sem er fógur og hamingjurík. Gal-
ina segir að samt sé rússneskur
skáldskapur yfirhöfuð mjög sorg-
legur og þunglyndislegur. Ég segi
henni þá frá okkar íslensku köldu
og kvöldu ást og spyr hvort hún
haldi að ást sé breytileg eftir
heimshlutum: „Nei, það held ég
Galina Gortsjakova ásamt undirleikara sínum, Larissu Gergievu. Þær munu flytja rússneska ástarsöngva á tónleik-
um Listahátíöar í Háskólabíói í kvöld. DV-myndir Hiimar Þór
ekki,“ segir hún. „Ef fólk elskar þá
elskar það, hvaða hluta heimsins
sem það svo tilheyrir. En söngv-
amir höfða sterkt til tilfinninga-
næms fólks. Ég er líka mjög tilfmn-
inganæm sjálf og tel að það sé
nauðsynlegt söngvurum og öllum
sem fást við að flytja tónlist að hafa
djúpar tilfinningar.“
Galina hefur verið hér síðan í
fyrradag og segir að feröalagið hafi
verið langt og strangt. Hún hafi
þurft að sitja á flugvellinum í Kaup-
mannahöfn í átta klukkustundir. Ég
spyr hana þá hvort hún hafi ekki
notað tímann á vellinum til þess að
æfa sig en hún segir að það sé
ómögulegt að syngja á flugvöllum.
Hins vegar æfi hún sig á ólíklegustu
stöðum og eins og við hin þá syngi
hún alltaf í sturtu. Heita vatnið geri
röddinni gott, auk þess sem hljóm-
burðurinn í sturtuklefum sé frábær:
„Ég las einhvern tíma í viðtali
við Pavarotti að hann syngi ekki í
sturtu þar sem hann segist ekki
syngja fyrir ánægjuna heldur pen-
ingana. Ég syng hins vegar vegna
þess að söngurinn færir mér svo
mikla gleði. Ég er líka mjög heppin
því að hvar sem ég kem þá taka
tónleikagestir mér svo vel. Það
skiptir öllu máli því það er fólkið
sem ég vil ná til. Og það er fólkinu
að þakka að ég lít framtíðina björt-
um augum.“ -þhs
Samfélag heilagra
Það má ekkert lengur. Samfélagið
er orðið heilagt og leggst gegn og vill
uppræta spillingu hvar sem hennar
er vottur. Þá er lítið gaman að vera
bankastjóri eða ríkisforstjóri af
hvaða tagi sem er. Þá er engin trygg-
ing heldur í ráðherradómi. Vandlæt-
ingin er hlaupin í allt og alla.
Það hafa allir vitaö af sukkinu og
svínaríinu hjá burgeisunmn. Fram
til þessa hefur það verið talið eðli-
legt, hluti starfskjara. Allir vissu
eða máttu vita að bankastjórar voru
öllum stundum í laxi með vinum og
vandamönnum. Myndir hafa birst af
þeim árum saman i fjölmiðlum. Þaö
var líka vitað aö hver laxveiðidagur
kostaði ofíjár. Almenningur gat ekki
keppt við ríkisforstjórana sem skrif-
uðu veiðidagana á stofnanir sínar.
Það voru helst erlendir ríkisbubbar
sem ekki vissu aura sinna tal sem
náðu að keppa um bestu dagana í
ánum.
Þá fóru glæsibílarnir ekki fram hjá neinum.
Dýrustu jeppar og drossíur. Eitthvað þurfti til
þess að komast á milli staða og ekki síður í ám-
ar. Spumingin var bara hvaða tegund stjórarnir
völdu sér og hve oft þeir skiptu.
Nú er þetta búið. Það er ekki lengur eftirsókn-
arvert að verða bankastjóri, svo ekki sé minnst á
önnur og ómerkari embætti. Biðraðir eru ekki
lengur til staðar. Nú verða stjórarnir að standa
reglulega fyrir máli sínu og geta helst ekkert gert
nema taka við strípuöum mánaðarlaununum.
Samfélagið þolir ekki lengur að horfa á bruðlið.
Hvað gerðist í þjóðarsálinni? Var það heilög
Jóhanna sem náði þessum ógnartökum á alþýðu
manna að ekki sér fyrir endann á ósköpunum?
Eða var það Sverrir sem gekk fram af mönnum
með hroka sínum og kjaftbrúki þá
er hann var gómaður í bmðlinu
með félögunum. Deilan milli hans
og Renda stendur nefnilega um það
hvort hann hafi eytt 104 þúsund
krónum á dag í utanlandsreisunum
eða 114 þúsund krónum. Hinn
venjulegi Jón gerir ekki mikinn
mun á þessu. Hvort tveggja er utan
skilnings fólks í Breiðholtinu og
Grafarvoginum. Það skiptir jafnvel
ekki máli hvort Lalli mágur fann
þetta út eða einhver annar. Þetta er
bitamunur en ekki íjár.
Það er þvi vandlifað í samfélagi
sem gengið hefur í gegnrnn sam-
fellda hundahreinsun í margar vik-
ur. Mest vorkunn er þó afdönkuð-
um stjómmálamönnum. Þeir hafa
nokkuð getað treyst því að komast á
jötuna þegar kjósendur fá leið á
þeim. Bankastjórastöður hafa verið
vinsælar sem og sendiherrastörfin.
Aðrar meiriháttar forstjórastöður
hafa einnig notið vinsælda.
Hvað gera þeir núna? Hvert getur Friðrik far-
ið eða Guðmundur Bjarna? Siðvætt þjóðfélagið
hefúr alveg eyðilagt elliárin fyrir þessum góðu
sonum.
Hver bað Jóhönnu og Ástu Ragnheiði um þetta
allt saman?
Dagfari
Tapaði 30 miiljónum
Eiður Smári Guðjohnsen hef-'
ur lítið getað
leikið knatt-
spymu síðan
hann meiddist
í leik fyrir
tveimur árum.
Hann hefur þó
verið atvinnu-
maður hjá
PSV Eind-
hoven í Hollandi en ekki fengið
bónusgreiðslur frá félaginu sem
hefðu numið allt að 30 milljón-
um króna ef hann hefði verið
tryggður af hálfu Knattspymu-
sambandsins í umræddum leik.
Fékk flogakast
Mikil mildi þykir að ekki
varð stórslys þegar ökumaður
lítils sendibíls fékk flogakast
undir stýri í gær. Bifreiðin ók
stjómlaust yfir báðar gangstétt-
ir og akreinar Snorrabrautar og
hafnaði að endingu á steinvegg.
Ökumaðurinn hlaut ekki alvar-
lega áverka.
Haglabyssan upp?
Sverrir Hermannsson, fyrr-
verandi bankastjóri Lands-
bankans, hótaði í gær þeim
mönnum sem að hans sögn
standa að rógsherferð gegn hon-
um. Hann sagði að nú væri mál
til komið að hann færi að sækja
haglabyssuna sína. Hann sagði
Kjartan Gunnarsson hafa lekið
upplýsingum um Svíþjóðarferð
sína til Sjónvarpsins.
Valtýr skipaður
Valtýr Þór Hreiðarsson hefur
verið skipaður forstöðumaður
Verðlagsstofu skiptaverðs frá 1.
júní nk. Verðlagsstofan veröur
staðsett á Akureyri. Bylgjan sagði
frá.
Magnús tekur við
Bæjarstjóra-
skipti verða í
Hafharfirði
þriðjudaginn
9. júní þegar
Magnús Gunn-
arsson tekur
við embætti af
Ingvari Vikt-
orssyni. Þann
dag verður fyrsti bæjarstjómar-
fundur nýrrar bæjarstjórnar.
Sígarettur teknar
Tollverðir í Hafnarfirði hafa
lagt hald á 20 þúsund sígarett-
ur sem rússneskir togarasjó-
menn reyndu að smygla í land.
Tollgæslan tók vindlinganna í
bíl á hafnarbakkanum og við-
urkenndi ökumaður hans að
hafa keypt smygliö af Rússun-
um. Bylgjan sagði frá.
Viðræöur
Fulltrúar framsóknarmanna
og Bæjarmálafélags ísafiarð-
arbæjar ræddu í gær um meiri-
hlutasamstarf í bæjarstjórn
staðarins. Framsóknarmenn
ákváðu í gærkvöld að hefia
viðræður við Sjálfstæðismenn.
Jón Kjartansson kominn
Nóta- og
togveiðiskip-
ið Jón Kjart-
ansson, sem
búið er að
breyta mikið
í Póllandi,
kom til Eski-
fiaröar á laug-
ardagsmorg-
un. Skipið er
eitt af fengsælustu loðnuskip-
um flotans og hefur átt þátt í
að auka veg Hraðfrystihúss
Eskifiarðar og forstjóra þess,
Aðalsteins Jónssonar, hin síð-
ari ár.
Valt á bílastæði
Ung stúlka slasaðist alvar-
lega við félagsheimilið á Lýsu-
hóli í fyrrinótt. Hún virðist
hafa setið í sóllúgu á jeppa sem
valt á bOastæðinu. Hún mjaðm-
argrindarbrotnaði ásamt því að
hljóta fleiri áverka og var flutt
á Sjúkrahús Reykjavíkur.
-þhs