Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Page 6
6
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1998
Sýslumaðurinn á Patreksfirði kærður fyrir að hafa áhrif á kosningarnar:
Fór með kjörkass-
ann um bæinn
- og safnaði utankjörfundaratkvæðum - verulegar líkur á að kosið verði aftur
Þórólfur Halldórsson, sýslu-
maður á Patreksfirði, hefur verið
kærður fyrir að hafa haft óeðlileg
áhrif á úrslit kosninganna í Vest-
urbyggð. Kærandinn er Sigríður
Pálsdóttir, íbúi í Vesturbyggð.
Þórólfur er varaformaður Sjálf-
stæðisfélagsins Skjaldar og jafn-
framt kjörstjóri við utankjörfund-
arkosningu í Vesturbyggð. Þórólf-
ur er sakaður um að hafa farið
með kjörkassa í heimahús og á
sjúkrahús Patreksfjaröar þar sem
hann lét eldra fólk og sjúklinga
kjósa. í kærunni kemur fram að
fyrir liggi að fimm aðilar hafi kos-
ið utan kjörfundar með þessum
hætti. Mjög sterkar líkur eru á
því að fleiri en fimm hafi kosið á
þennan hátt. Þórólfur mun hafa
verið einn á ferð í flestum ferðum
sínum með kjörkassann.
Einnig er kært að sýslumaður
skuli sjá um utankjörfundarat-
kvæði og á sama tíma hafa aug-
ljós tengsl við D-lista sjálfstæðis-
manna. Þórólfur er sagður hafa
beitt sér í kosningabaráttunni fyr-
ir sjálfstæðismenn í Vesturbyggð.
Sigríður telur að hann hefði átt
að láta fulltrúa sinn sjá um utan-
kjörfundaratkvæðagreiðsluna. í
kærunni er jafnræðisregla stjórn-
BILATORG
Funahöfða 1
Sími 587-7777 - Fax 587-3433
Jeep Grand Cherokee Limited '96,
dökkbrúnn, einn með öllu, toppl.,
leðurinnr., ek. 36 þús. km.
Verð 4.200.000.
Plymouth Voyager SE '97, dökkgrænn,
einn með öllu, ek. aðeins 7 þús. km.
Verð 3.150.000. ATH. skipti.
Coleman fellihýsi, bæði Taos 97/ -
Bayport / 96 - Yukon / 96. Allir vagnar og
fellihýsi eru uppsett til sýnis hjá okkur.
Það eru allir velkomnir til okkar.
Vantar allar gerðir bíla
á staðinn og á skrá.
Einnio tialdvaana oq fellihvsi.
Stratus LE '97, svartur, beinsk.
rafdr. rúður, CD-magasín. Kemur
frá umboði.
Verð 2.380.000.
arskrárinnar talin vera þverbrot-
in með þessu. Farið er fram á að
sýslumaður verði ávíttur fyrir
vinnubrögð sín og kosið verði aft-
ur i Vesturbyggð. Samkvæmt
heimildum DV eru miklar líkur á
að það verði gert.
Mjótt var á mununum
Mjög mjótt var á mununum í
kosningunum í Vesturbyggð.
Vesturbyggðarlistinn var með tvo
menn inni í bæjarstjórn þar til að
utankjörfundaratkvæöum kom.
Þá komst fjórði maður af lista
sjálfstæðismanna inn í bæjar-
stjórn á kostnað annars manns af
Þórólfur Halldórsson, sýslumaður
á Patreksfirði.
Vesturbyggðarlistanum. Sigriður
segir í kærunni að ljóst sé af
þessu að utankjörfundaratkvæðin
hafi skipt máli um hvernig bæjar-
stjórnin var skipuð. Þess má geta
að systir Sigríðar er Kolbrún
Pálsdóttir sem var í 2. sæti á Vest-
urbyggðarlistanum. Kolbrún
komst ekki inn í bæjarstjórn.
Sýslumaður hefur nú vikið sæti
í málinu og dómsmálaráðuneytið
mun skipa annan til að fara með
rannsókn þess. Ekki náðist í
Þórólf sýslumann vegna þessa
máls en í viðtali við Sjónvarpið
svaraði hann í bundnu máli. -RR
Notendum Vísis var á laugardaginn boðið upp á að spjalla við fegurðardrottninguna á Spjallinu, nýrri spjallrás á
www.visir.is. DV-mynd Hilmar Þór.
Grindvísk fegurðardrottning íslands:
Er enn í sjokki
Guðbjörg Hermannsdóttir var á
fóstudagskvöldið kjörin fegurð-
ardrottnirig íslands. Guðbjörg er 19 ára
stúlka úr Grindavík en býr á Akureyri
um þessar mundir vegna náms síns í
Verkmenntaskólanum þar og hún
mun klára stúdentinn næsta vor. Hún
ætlar að líka að vinna þar i sumar.
Stúlkur af Suðumesjum hafa verið
sigursælar í þessari keppni en þess er
skemmst að minnast að fegurðar-
drottning síðasta árs, Harpa Lind
Harðardóttir, var úr Keflavík. Það er
því ekki bara körfúboltinn sem blífur
á Suðumesjum.
Enn í sjokki
„Ég tók þátt í þessu bara til að
vera með. Það er ekkert meira með
það. Maður fær bara einu sinni
svona tækifæri. Ég komst áfram í
keppnina um ungfrú ísland og mér
fannst það meiri háttar. Ég bjóst
ekki við neinu meira og var „súper-
sátt“ við það,“ segir Guðbjörg. „Ég
er enn í hálfgerðu sjokki og er að
reyna að jafna mig á þessu. Ég bjóst
engan veginn við þessu." Hún segist
hafa hugsað að þama væra einhver
mistök og að kynnirinn ætti að líta
aftur á blaðið.
Tvö próf eftir
Það var komið að máli við Guð-
björgu og hún beðin um að koma í
viðtal vegna keppninnar og hún sló
til. Hún hafði verið beðin að taka
þátt í keppninni áður en vildi það
ekki þá. „Ég var beðin um það fyrir
sunnan en mér fannst ég vera of
ung þá. Mér fannst það ekki rétti
aldurinn. Ég var ekki orðin átján,"
segir Guðbjörg.
Framtíðin óráðin
Nánasta framtíð í fegurðarmálum
er óráðin hjá Guðbjörgu. Guðbjörg
fer núna að vinna og tekur tvö síð-
ustu prófin seinna í þessari viku.
Síðustu vikur era búnar að vera
mjög erfiðar en undirbúningur fyrir
keppnina var mikill. „Þetta tók
verulega á,“ segir Guðbjörg.
-sm
Stúlku bjargað úr klettabelti
DV, Akureyri:
Ungri stúlku var bjargað úr
klettabelti við sjóinn aðfaranótt
sunnudags, nærri þeim stað þar
sem Grenivíkurvegur og Víkur-
skarðsvegur mætast i Eyjafirði.
Lögreglan fékk tilkynningu um
aö stúlkan væri í sjálfheldu í klett-
unum sem era þama um 15 metra
háir niður i fjörana. Lögreglan fór
með tæki á staðinn en einnig var
farið þangað með sjúkrabifreið og
kallaðir voru út menn frá Hjálpar-
sveit skáta og Flugbjörgunarsveit-
inni þvi talið var hugsanlegt að síga
þyrfti eftir stúlkunni.
Svo fór þó ekki. Tveir lögreglu-
menn bundu um sig kaðla og tókst
að komast niður klettana til stúlk-
unnar og ná henni upp og mun hún
hafa verið ómeidd þegar náðist til
hennar. Að ná henni upp var hins
vegar nokkuð snúið og tók sú að-
gerð um tvær og hálfa klukkustund
frá því lögreglan var kölluð á stað-
inn. -gk
Umdeildur
áróður
Fyrir nýafstaðnar kosningar
í borginni gaf Samband ungra
sjálfstæðismanna út mjög um-
deilt myndband.
Ekki virkaði
þessi áróður
SUS betur en
svo að allar
símalínur Val-
hallar glóðu
um sinn vegna
óánægju.
Ósköpin end-
uðu með því
að Kjartan Gunnarsson
framkvæmdastjóri bað for-
mann SUS, Ásdísi Höllu
Bragadóttur, vinsamlegast
um að sambandið yrði penna i
framtíðinni...
Hljómsveit
Hagkaups
Um nokkurt skeið hafa
nokkrir af helstu köppum Hag-
kaups leikið saman í hljóm-
sveit. Þar fara
fremstir í flokki
Sigurður G.
Pálmason,
stjórnarfor-
maðm og einn
eigenda fyrir-
tækisins, og
Óskar Magn-
ússon for-
stjóri. Hann
er söngvari hljómsveitar-
innar. Vegna fyrirhugaðra
kaupa Bónus-feðga á veldi
Hagkaups hafa vaknað spurn-
ingar um hvort Óskar Magn-
ússon verði látinn fjúka úr
sveitinni og Jóhannes Jóns-
son settur á míkrófóninn ...
Glæsileg
lögreglukylfa
Dagskráin á Selfossi greinir
frá því að tveir af efnilegustu
og bestu sonum Selfoss hafi
staðið sig vel á
lokaprófum i
Lögregluskólan-
um, ekki síst
annar, sem
varð hæstur
yfir skólann.
Og sá góði
drengur kom
aldeilis ekki
tómhentur
heim frá prófborðinu í Lög-
regluskólanum því að meðferð-
is hafði hann góðan verðlauna-
grip fyrir frammistöðuna -
„glæsilega lögreglukylfu sem
viðurkenningu fyrir frábæran
árangur", eins og segir í frétt
Dagskrárinnar...
Átökí
Heimdalli
Átök eru nú hafin bak við
tjöldin um stjómarsæti í
Heimdalli, félagi ungra sjálf-
stæðismanna í
höfuðborginni.
Tvær fylkingar
bítast um sæt-
in með þvílík-
um ósköpum
að elstu
menn muna
varla annað
eins. Sand-
korn hefur traustar
heimildir úr innsta hring fýrir
því að hér séu annars vegar á
ferö nokkrir af lærisveinum
Hannesar Hólmsteins Giss-
urarsonar og hins vegar fylk-
ing Hjálmars Blöndals með
Soffíu Kristínu Þórðardóttur
sem formannsefni en Soffia er
jafhframt varaformaður Heim-
dallar í dag...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn is