Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Blaðsíða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998
Spurningin
Hver er sætasti
fréttamaöurinn?
Ragna Lindberg ökukennari: Sig-
mundur Ernir Rúnarsson.
Kristinn Fannar Pálsson nemi:
Stefán Hrafn Hagalin í punktur.is.
Sigmar B. Hauksson: Sverrir Her-
mannsson, blaðamaður Morgun-
biaðsins.
Ólína Torfadóttir hjúkrunarfor-
stjóri: Logi Bergmann Eiðsson.
Lára Sóley Jóhannsdóttir nemi:
Hrannar Pétursson.
ívar Helgason: Ólöf Rún Skúladótt-
ir.
Lesendur
„Mér finnst þó sorglegast aö á vegum hins opinbera skuli aldrei vera hægt aö koma
svo saman aö þar fljóti ekki allt í áfengi og þyki fínt.“
Árni Helgason skrifar:
Alltaf sígur á ógæfu-
hliðina. Fleiri og fleiri
kjósa yfir sig Bakkus og
festast svo í neti hans.
Þeir ætla svo sem ekki að
verða ofdrykkjumenn en
fyrr en varir er snaran
komin og þeir flæktir í
henni og hvort sem þeir
vilja eða ekki verða þeir
að halda áfram. Bakkus
er harður húsbóndi. Það
er talað um vímuvamir?
En það er eins og fortölur
þeirra sem vilja þjóðinni
vel láti alltof margir sem
vind um eyrun þjóta. Höf-
um við ekki hin hrylli-
legu dæmi daglega fyrir
augum? Vissulega. Við
sjáum blindan leiða
blindan um ógæfubrautir
alls konar eiturefna. Okk-
ur þykir sárt að vita vini
okkar á þessum brautum
böls og eyðileggingar og
reynum að koma viti fyr-
ir þá en án árangurs.
Það merkilegasta við þetta allt er
að eftir því sem þjóðin þroskast
skuli alltaf færast meir og meir í
þjóðlífinu á ógæfuhliðina. Þrátt fyr-
ir sannanir á hversu áfengið veldur
þjóðinni miklu tjóni, bæði líkam-
lega og andlega, virðist varla hægt
að búast við viðreisn fjöldans á
þessum vettvangi og finnst mér það
niðurlægjandi fyrir þjóðina að
þurfa að horfast i augu við allt það
böl sem áfengið veldur.
Mér fmnst þó sorglegast að á veg-
um hins opinbera skuli aldrei vera
hægt að koma svo saman að þar
fljóti ekki allt í áfengi og þyki fint.
Staðreyndir þessa máls eru þannig í
mótsögn við reynsluna. Ég er viss
um að ef ráðamenn þjóðarinnar
vildu í raun forða þjóðinni frá
ógæfu væri hægt að gera mikið til
að koma í veg fyrir allt það tjón sem
mannfólkið líður vegna drykkjunn-
ar. Það hefir sannast gegnum árin
að öll takmörkun sem gerð hefir
verið á sölu og meðferð áfengis hef-
ir verið til bóta og hver tilslökun á
reglum þar um verið til bölvunar. í
dag er talað um vímulaust umhverfi
árið 2002.
Það er vonlaust að mínum dómi
meðan áfengið fær að leika lausum
hala í þjóðfélaginu, því þar er upp-
spretta alls þessa böls. Við vitum
það lika að bjórinn hefur markað
sín ógæfuspor í þjóðfélaginu en eins
og við munum eftir var það talið
eitt af kostum bjórsölu að áfengis-
nautnin í landinu myndi þverra. En
hvað segir sagan? Ef vel á að fara
þarf að byrja á byrjuninni. Bjórinn
og áfengið burt. Þá munu verða
straumhvörf í landinu til hins
betra. Látum ekki Bakkus ljúga
alltaf að okkur. Hann er aldrei
nema til skaða í þjóðfélaginu og á
honum tapa allir bæði dómgreind
og fjármunum.
Á hvaða leið?
Páll Óskar öfundaður
Aðdáandi Páls Óskars skrifar:
Ég er hissa á því hvernig þessi
H.Þ. skrifar í mánudagsblaðið (DV
18. maí), um „yngissveininn" Pál
Óskar, eins og hann kýs að kalla
hann. Hann talar um að Páll Óskar
hafi unnið það „afrek“ að koma
okkur niður í 21. sætið og setur síð-
an út á kynningu hans á
söngvakeppninni í ár. Mér og okk-
ur hér heima fannst og finnst Páll
Óskar vera stórkostlegur í öllu sem
hann gerir og hann stendur sig
alltaf frábærlega hvar sem hann
kemur fram. Hann er einfaldlega
besti kynnir sem við höfum haft í
Evrópusöngvakeppninni, fram-
koma hans var mjög lífleg og
skemmtileg og braut þessa stöðluðu
keppni upp. Það eru mjög fáir eins
og Páll Óskar á íslandi, því miður,
því að hér er meira en nóg af karld-
urgum sem hafa ekkert annað að
gera en að fussa yfir hinu og þessu
og yfirleitt öllu sem þeim dettur í
hug.
Páll Óskar eyðir ekki tíma sin-
um í svoleiðis leiðindi heldur er
alltaf skemmtilegur hvar sem hann
kemur. Þessi H.Þ. hlýtur að öfunda
Pál Óskar því að annars væri hann
ekki að tuða þetta. Ég er viss um að
ef Páll Óskar væri sohur hans væri
hann að springa úr monti yfir
stráknum.
Páll Óskar er 100% skemmti-
kraftur og fæddur í þetta allt sem
hann hefur verið að gera hingað til.
Og ég ætla bara rétt að vona að
hann haldi alveg stíft áfram með
fjörið og hlusti ekki á þessar ein-
stöku óánægjuraddir.
Allir
Rúnar Aðalsteinsson skrifar:
Ég er maður seinþreyttur til vand-
ræða en nú get ég bara ekki orða
bundist lengur og verð að létta á mér
áður en ég hreinlega spring af reiði.
Þannig er að fyrir nokkrum dög-
um þurfti ég að keyra sem leið ligg-
ur frá Húsavík til Þórshafnar sem
ætti nú í sjálfu sér ekki að þurfa að
vera í frásögur færandi en er það
nú aldeilis samt því að öðrum eins
fornaldarvegaslóðum hef ég aldrei á
ævi minni kynnst. Þó hef ég séð
ýmislegt í þá áttina áður þar sem ég
er fæddur og uppalinn á Norður-
landi og vegimir hafa ekki alltaf
verið góðir á þeim slóðum.
,„Vegurinn“ frá Húsavík um
fLfl^fl#|[D)Æ\ þjónusta
allan sólarhringii
i sima
5000
kl. 14 og 16
vegir færir?
„Ég blæs á allt jarðgangatal hér og þar um landið á
meðan ekki er hægt aö keyra á vegum ofanjarðar",
segir Rúnar í bréfi sínu.
Tjömes er hrein-
lega ónýtur þar
sem allt efni er far-
ið úr honum og eft-
ir stendur stórgrýt-
isurð sem á lítið
skylt við vegi.
Leiðin frá Tjörnesi
og til Þórshafnar
er nú skömminni
skárri þó þar sé
fráleitt um hrað-
braut að ræða.
Mér er hreinlega
fyrirmunað að
skilja hvernig
hægt er að bjóða
fólki upp á svona
ástand árið 1998 og
ég blæs á allt jarð-
gangatal hér og
þar um landið á
meðan ekki er
hægt að keyra á
„vegum“ ofanjarð-
ar.
Að endingu skora
ég á íbúa þessa
svæðis að setja nú
hnefa af alefli í
borð og heimta úr-
bætur.
Áfram
Kontra-
punktur!
K.R. hringdi:
Ég vil þakka innilega fyrir
spumingaþættina Kontrapunkt-
ur. Þetta er eitt albesta sjónvarps-
efni sem komið hefúr á skjáinn.
Sixten Nordström, stjórnandi
þáttarins, er mjög skemmtilegur
og líflegur. Ég sakna þó danska
stigavarðarins Benny Dahl-Han-
sen sem var mjög skemmtileg.
Finninn Mats Liljeros mætti þó
laga hárgreiðsluna. Hann er ægi-
lega púkalegur svona. Hann brýt-
ur svolítið í bága við hinn áferð-
arfallega blæ. 1 heildina em þetta
mjög góðir og vandaðir þættir og
hin besta skemmtun.
Rugluö
dagskrá
B.S. hringdi:
Ég horfi mikið á Stöð 2 og er
mjög ánægður með hana fyrir ut-
an auglýsingamar sem em alltof
fyrirferðarmiklar. Skiljanlega
þurfa þeir að fá inn tekjur af aug-
lýsingum en þeir fá varla tekjur
af auglýsingum ffá sjálfum sér en
það em einmitt auglýsingar frá
Stöð 2 sjálfri, Sýn eða Bylgjunni
sem eru uppistaða auglýsingatím-
anna. Maður fær sama auglýs-
ingapakkann svo oft sama kvöldið
að undir rest er maður búinn að
fá ógeð á þeim dagskrárliðum
sem verið er að auglýsa. Slappið
aðeins af með þessar auglýsingar.
Þið gerið ykkur greiða með því.
Lögreglu-
revían
Ökumaður hringdi:
Nú er búiö að hirta lögregluna
fyrir að sleppa þrjótunum við að
greiða sektir en að sjálfsögðu
sluppu þeir ekki sem greiddu á
réttum tima. Þá tekur hún sig til
og sektar alla, jafnvel fyrir smá-
yfirsjónir eins og að fara lítillega
yfir hámarkshraða, þótt lögreglu-
menn treysti sér ekki sjálfir til
að fara að lögum um hámarks-
hraða eins og allir vita. Er ekki
tími til kominn að setja upp rev-
íu um afrek lögreglunnar á síð-
ustu árum? Alla vega er efniviö-
urinn yfirdrifinn.
Tónleikum
seinkað
Einar J. hringdi:
Ég fer stundum á tónleika þá
sjaldan ég kemst og þá kemur oft
fyrir aö tónleikarnir byrja ekki á
auglýstum tíma. Maður bíður í
hálftíma eða klukkutíma eftir
hljómsveitinni sem húkir ein-
hvers staðar á bak við, sjálfsagt
að leggja kapal eða eitthvaö, og á
meðan bíð ég frammi eftir því að
kapallinn gangi upp.
Kannski er hljómsveitin að
bíða eftir því að fleiri komi í hús
en mér finnst hún þá um leið
sýna þeim dónaskap sem sitja
frammi og bíða.
Kofar fyrir
börn
Halldóra K. hringdi:
Er einhver sem tekur að sér að
smíöa kofa eða dúkkuhús fyrir
krakka? Ég sá svo skemmtilega
mynd í blaði af svona kofa en er
ekki í aðstöðu til að gera þetta
sjálf eða nokkur annar sem ég
þekki. Ef einhver gæti veitt upp-
lýsingar þá væru þær vel þegnar.