Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998
13
Préttir
Rannsóknarnefnd flugslysa um árekstur sem varð milli tveggja flugvéla:
Gagnrýnir „vallarsvið" flug-
vallar á Tungubökkum
- engar athugasemdir við flugmennina né Qarskiptabúnað flugvélanna
Rannsóknamefnd flugslysa gagn-
rýnir „vallarsvið" flugvallarins á
Tungubökkum vegna áreksturs
tveggja flugvéla við flugvöllinn á
Tungubökkum í Mosfellsbæ 7. mars
sL Vélamar voru báðar á lokastefnu
fyrir lendingu þegar þær rákust
saman. Flugmennimir tveir, báðir
fullorðnir menn, vora einir i vélun-
um og sluppu ómeiddir.
Annar mannanna, Bjöm Guð-
mundsson, 85 ára, sagði í viðtali við
DV eftir slysið að ótrúleg mildi
væri að þeir væra á lífi eftir slysið.
Hinn flugmaðurinn, sem er 65 ára,
flaug hraðskreiðari flugvél og rakst
ofan á vél Björns.
Rannsóknamefnd flugslysa gerir
ekki athugasemdir við flugmennina
né fjarskiptabúnað vélanna. Flug-
mennimir vora báðir með fullgild
réttindi og mjög vanir flugveflinum.
„Ég hef aldrei séð þessa fisktegund áður en vissulega heyrt af henni. Hann
er nú frekar Ijótur þessi fiskur," segir Jóhann Gunnlaugsson á Faxamark-
aðnum. Jóhann heldur hér á fisktegund sem kallast lúsífer. Lúsífer er sjald-
gæfur djúpsjávarfiskur. Það var skipið Snætindur frá Þorlákshöfn sem
veiddi fiskinn á humarveiðum skammt frá Þorlákshöfn. Lúsífer verður send-
ur til Hafrannsóknastofnunar og rannsakaður þar. DV-mynd S
Björn Guðmundsson, 85 ára flugmaður, lenti í miklum lífsháska þegar tvær
flugvélar rákust á við flugvöllinn á Tungubökkum 7. mars sl.
DV-mynd GVA
í niðurstöðum skýrslu rannsóknar-
nefndarinnar er því beint til Flug-
málastjórnar að hún endurskoði
reglumar „Vaflarsvið" við Tungu-
bakkavöll frá 10. júní 1997, þar sem
m.a. efra borð verði hækkað,
þannig að unnt sé að fljúga umferð-
arhringinn í þúsund feta flughæð
innan vallarsviðsins. Einnig verði
lögð rík áhersla á að flugmenn, sem
era á flugi í vallarsviðinu eða hyggj-
ast fljúga um það, tilkynni alltaf um
ferðir sínar á vallarbylgjunni 118,2
MHz.
Rannsóknarnefndin beinir því
einnig til Flugmálastjómar að sér-
stakir fræðslufundir verði haldnir
um flug við flugvelli þar sem ekki
er flugtum eða flugtumsþjónusta og
þar sem mikið er um einka- og
æfmgaflug, svo sem t.d. á Tungu-
bökkum. -RR
Amerísk leiktæki
vönduð og ódýr.
3ja stiga, tjald, 3 rólur, rennibraut,
sgndkassi. Stærð: 5,10 x 4,50 m.
Aætlað verð 138 þús. (ánvsk.)
Tjald, 3 stigar, 2 rólur, 1 kaðalstigi,
rennibraut, sandkassi.
Stærð: 6,60 x 3,0 m.
Aætlað verð 118 þús. (án vsk.)
Tjald, 3 stigar, 3 rólur, kaðalstigi,
rennibraut og sandkassi.
. Stærð: 5,70 x 3,60 m.
Aætlað verð 98 þús. (án vsk.)
Einnig minni tæki „pony“,
verð frá 48 þús. (án vsk.)
Öll tækin eru auðveld
í flutningu og uppsetningu.
Tjaldaleigan Skemmtilegt hf.
Dalbrekku 22, sími 544 - 5990
Erum Flutt í stærra húsnæði að Grensásvegi 50
Verið
velkomin
og kynnist
þjónustu okkar.
Frír pruFutími
í trimForm.
Einnig bjóðum
við uppá Ijós
og vatnsnudd
TRIM/\F0RM
Betgraar
Grensásvegi 50,
sími 553-3818