Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998
21
I>V
Fréttir
Nýr skemmtistaður 1 Brautarholti:
Á að vera
fínn staður
- segir Ólafur Jóhannesson, einn rekstraraðila
„Þetta á að vera finn skemmtistað-
ur þar sem boðið verður upp á mat og
aðrar veitingar samhliða skemmtun.
Það hafa verið gerðar miklar breyt-
ingar á húsinu og starfslið hefur ver-
ið að vinna hér á fullu undanfarnar
vikur. Við stefnum að því að opna upp
úr miðjum júní. Við erum að vinna í
því að fá veitingaleyfi,“ segir Ólafur
Jóhannesson, eigandi Gullsports og
einn rekstraraðila að nýjum skemmti-
stað í Brautarholti 20 þar sem Þórs-
kaffi var áður til húsa. Nýi skemmti-
staðurinn á að bera nafnið Þórshöll.
Samkvæmt heimildum DV eru er-
lendir aðilar á leið að skoða skemmti-
staðinn. M.a. eru þarna aðilar á ferð
sem reka skemmtistaðina Stringfell-
ows í New York og London. Þá hefur
heyrst að erótískir dansarar verði á
staðnum. Aðspurður um þetta sagði
Ólafur: „Ég get sagt að erlendir aðilar
munu skoða aðstæður. Það er engin
stefna komin í augnablikinu. Hug-
myndin er að vera með finan stað.
Þetta gæti orðið eins og gamla Þórs-
kaffi eða Stringfellows. Meira get ég
ekki sagt á þessari stundu," segir
Ólafur.
Heyrst hefur að aðilar sem starfa og
búa í nágrenninu séu ekki hrifnir af
því að fá skemmtistað í húsið.
„Ég hef heyrt sögur sem ganga út á
að þarna verði einhver búlla. Ég vísa
þvi aifarið á bug. Þessi staður verður
ekkert í líkingu við Vegas, Óðal eða
Bóhem. Raunar er stefnan að gera
hann ólíkan öðrum íslenskum
skemmtistöðum sem eru starfandi
nú,“ segir Ólafur. -RR
Þaö var kraftur í tíkinni Snúllu þar sem hún hljóp á haröa spretti á eftir boltan-
um hjá strákum sem voru að æfa sig á túni fyrir utan Klaustur. Ekki er víst aö
boltinn heföi gott af aö lenda í klóm eöa tönnum Snúllu en hún var óþreytandi
aö reyna að ná honum.
Dvalarheimilið Höfði:
Innan ramma fjárlaga
DV, Akranesi:
Rekstur Dvalarheimilisins Höfða á
Akranesi var á sl. ári innan ramma
fjárhagsáætlunar þrátt fyrir mikinn
niðurskurð í fjárframlögum til heimil-
isins. Viðbrögð stjómenda vom þau
að skera niður í rekstrinum og þá sér-
staklega í viðhaldi húseignar. Að sögn
Ásmundar Ólafssonar framkvæmda-
stjóra er það ekki vænlegur kostur að
fresta eðlilegum viðhaldsverkefnum
en hann vonast til að hægt verði að
vinna upp skaðann á þessu ári. Und-
anfarin ár hefur verið unnið í því að
hagræða í rekstrinum á sem flestum
sviðum og áfram verður haldið í ár.
En á næstu dögum verða myndaðir
þrír svokallaðir K.L.-hópar meðal
starfsmanna til að leita leiða til að
lækka kostnað: Einn fyrir innkaup á
vörum og búnaði, annar um stjórmm-
ar- og launakostnað og sá þriðji um
rekstur fasteignar (þ.e. viðhald, orku-
kostnað o.fl.). Dvalarheimilið Höfði er
sjálfseignarstofnun í eigu Akranes-
kaupstaðar og sveitarfélaganna fjög-
urra sunnan Skarðsheiðar. Formaður
stjómar er Jóhannes Finnur Halldórs-
son viðskiptafræðingur. -DVÓ
BIFREIÐASTILLINGAR
NICOLAI
Ólafur Jóhannesson er einn rekstraraöila Þórshallar sem stefnt er aö að
opna upp úr miðjum júní. Framkvæmdir eru í fullum gangi í húsinu.
DV-mynd Pjetur
Barnasandalar
margar gerðir
stærðir 20-34
Teg.311
St. 28-87
V. 8.890
sináskór
sérverslun m/barnaskó
í bláu húsi við Fákafen
HONDA
4 d y r a 1 . 4 $ i
9 0 h e s t ö f l
Traustur bíll fyrir ungt fólk á öLLum aldri
Innifalið í verði bílsins
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
1.550.000,-
115 hestöfl
Fjarstýrðar samlæsingar
4 hátalarar
Hæðarstillanlegt ökumannssæti
Sjálfskipting 100.000,-
1400cc 16 ventta vél með tölvustýrðri innsprautun4
Loftpúðar fyrir ökumann og farþegai
Rafdrifnar rúður og speglar4
ABS bremsukerfi4
Samlæsingar 4
14" dekki
Honda teppasett4
Ryðvörn og skráning 4
Útvarp og kassettutæki 4
Verð á götuna: 1.455.000.-
Sjálfskipting kostar 100.000,-
0
HONDA
Sími: 520 1100
Umboðsaðilar:
Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712
Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011