Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998 vefur og tölvur Vonast er til aö hinn sjáandi tölvubúnaður muni auövelda mönnum mjög alla skógrækt, hvort sem um eina eöa fleiri trjátegundir er aö ræöa. Þróa sjáandi tölvubúnað til að fylgjast með skógunum: Telur trén og fylgist með ástandi þeirra Sjáandi tölvubúnaður í gervi- tunglum mun á næstu 20 árum geta fylgst með ástandi skóga jarð- arinnar, ekki aðeins skógum sem einni heild heldur hverju tré í skóginum. Mun þessi tölvubún- aður gera viðvart komi upp sjúk- dómur í trjám eða eitthvað annað óvenjulegt gerist. í Jyllands Posten segir frá fimm dönskum og sænskum vísinda- mönnum sem vinna nú að þróun þessa búnaðar. Þeir vinna að þvi að telja og staðsetja rauðgreinitré í 3500 hektara skóglendi suðvestur af Silkiborg í Danmörku. Er stuðst við 60 loftmyndir sem teknar eru í 40 mínútna flugi yfir skóginum. Tækni þessari er ætlaö að stað- setja einstök tré með einungis eins metra fráviki. Talningin á að gefa lágmarks frávik. Marga mánuði tekur að fram- kvæma hefðbundna talningu trjáa í skógum og erfiðleikum bundið að staðsetja hvert og eitt tré. Með hinni nýjú tækni vonast menn til að tölv- ur, vélmenni og gervitunglastýring geti unnið með sjálfvirkum grisjun- arvélum. Á grisjunarvélin þá að vita nákvæmlega hvar tiltekið tré er að finna og getur hoggið það niður. Vísindamennirnir segja að þessi tækni geti orðið að veruleika eftir 10-15 ár. Tæknilegar forsendur séu til staðar, spumingin sé bara hvort menn vilji nýta sér þær. Auðveldar skógrækt Vonast er til að hinn sjáandi tölvubúnaður muni auðvelda mönnum mjög alla skógrækt, hvort sem um eina eða fleiri trjá- tegundir er að ræða. Skógræktin verður hagkvæmari þar sem menn munu geta séð hve há og hve göm- ul tré eru á hverjum stað. Þannig má skipuleggja plöntun og grisjun skóga á mun hagkvæmari hátt en áður. Þannig má t.d. losna við stór sár í skógum sem verða þegar hóp- ur jafngamalla trjáa er á einum stað og allur felldur í einu. Þá mun þessi tækni gera skógræktendum kleift að reikna út hve mikið af timbri má fá úr hverjum hektara skóglendis. Telur Ijósa toppa Stór þáttur í þessari trjáteljara- tækni er landfræðilegt upplýsinga- kerfi (GIS) sem er í örri þróun nú. Sem dæmi um notkun þessa kerfis má nefna gervitungl sem sendir upplýsingar um tiltekið tré til gagnabanka þar sem unnin er verk- áætlun fyrir sjálfvirka grisjunarvél. Hinn sjáandi tölvubúnaður getur einungis talið rauðgreni nú en verð- ur ætlað að telja hvaða trjátegundir sem er. Lauftré skapa reyndar viss- an vanda yfir sumarið og því mun talning á þeim væntanlega eiga sér stað á vetrum. Hugbúnaðinum í hinum sjáandi tölvubúnaði er ætlað að þekkja ljósa toppa grenitrjáa. Telur búnaðurinn ljósa díla á myndum sem samsvara eiga fjölda trjáa á ákveðnu svæði. En menn hafa rekist á ýmis vanda- mál eins og grasbletti. Þeir endur- varpa álíka sterku ljósi og trjátopp- arnir og tölvan getur túlkað þá sem tré. En unnið er hörðum höndum að því að finstilla hugbúnaðinn þannig að fólsk tré verði ekki talin með. 3L --------------------------------------> Agætu viðskiptavinir! Sumartilboð út júnímánuð: Ingunn Hávarðardóttir 0 f i i. hárgreiðslumeistari 2 tyrir I Klipping eða Prír hárþvottur + höFuðnudd með klippingu. s,__________________________________________ fBorgarverkfræðingurinn í Reykjavfk Borgarverkfræðingur og Borgarskipulag Reykjavíkur boða til kynningarfundar um mislæg gatnamót Skeiðarvogs-Réttarholtsvegar/Miklubrautar í Skúlatúni 2, 5. hæð, fimmtudaginn 4. júní kl. 17.30. HM Hársnyrtlstofa Njálsgötu 1, slmi 561 2391 ^öðkaupsveislur—úlisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og II. og fl. og II. ..og ýmsir fylgihlutir Ekki treysta á veðrið þegar skipuleggja á eftirminnilegan viðburð - Tryggið ykkur og leigiö stórt tjald á staðinn - það marg borgar sig. Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2. Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og tjaldhitarar. staðgreiðslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur Smcauglýnírtgcr Myndarleg sýning Komdu á skemmtilega Land Rover Ijósmyndasýningu í sýningarsal okkar við Suðuriandsbraut 14. Sýndur verður fjöldi frábærra Ijósmynda sem barst ( Ijósmynda- samkeppni sem haldin var í tilefni 50 ára afmælis Land Rover. Opið 9-18 virka daga og 10-16 laugardaga. riiTa Suðurlandsbraut 14 • sími 575 1200 rír kvttasiMnus SuMuujaJdcM' - Stuttar otj Uðar lcáfutr - SuMuwkattar Tilboð: SumarjaJckar kr. 7.900. Tilboð: Stuttkáfmr átj kr. 7.900. < t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.