Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998 3**- Fréttir Bolungarvík: Háhyrningur fannst dauð- ur á floti Elías Ketilsson, skipstjóri á Sæ- bimi ÍS, fékk sannkallaðan hval- reka á Vestfjarðamiðum fyrir nokkru þegar hann sigldi fram á þúst á sjónum. Við nánari athugun reyndist þama vera dauður háhym- ingur. Eftir að hafa ráðfært sig við starfsman Hafrannsóknastofnunar var ákveðið að draga hvalinn i land til rannsókna. Háhyminguriim, sem er 5-6 metrar að lengd, var orð- inn lítillega hruflaður þegar að landi kom og taldi Hjalti Karlsson, útibússtjóri Hafrannsóknastofnunar á ísafirði, að hann hefði velkst eitt- hvað á sjávarbotninum áður en gas fór að myndast í maga hans vegna rotnunar og lyfti honum upp á yfir- boröið. Höfðu menn sem staddir vom á Brjótnum í Víkinni þegar El- ías kom með hvalinn á orði að þetta væri án efa einn úr fjölskyldu Keikós og að öllum líkindum bróðir hans. Kynferðið lá ekkert á milli mála eins og sjá má af myndinni. Sjálfskipaðir sérfræðingar á bryggj- unni töldu því víst að hvalurinn hefði hreinlega verið kynóður og það hefði orðið honum að aldurtila. Líklega verður beinagrind hvalsins varðveitt fyrir náttúmgripasafn sem opnað var fyrir skömmu í Bol- ungarvik. -HKr. „Frændi" Keikós vakti óskipta athygli á bryggjunni í Bolungarvík. Beina- grind hvalsins mun væntanlega enda á náttúrugripasafninu í Bolungarvík. DV-mynd Hörður Freygerður Pálmadóttir, formaður verkefnanefndar Lionsklúbbsins Eirar, afhenti Georgi Lárussyni, sett- um lögreglustjóra, gjafir fyrir hönd klúbbsins. Á myndinni eru, auk þeirra, taiið frá vinstri, Camela Hall- grímsdóttir frá Eir, Olga Baldvins- dóttir frá BECO, Sigrún Steinsdóttir frá Eir, Ómar Smári Ármannsson og Ásgeir Karlsson frá lögreglunni og Gunnur Axelsdóttir frá Eir. Fíknó fær góð- ar gjafir Lionsklúbburinn Eir á Seltjamar- nesi færði fíkniefnadeild lögregl- unnar í Reykjavík góðar gjafir á dögunum. Gjafimar em sjónvarps- og mynd- bandstæki auk millilinsu fyrir myndavél. Lionsklúbburinn hefur oft gefið fíkniefnadeildinni góðar gjafir er nýtast henni vel í barátt- unni við fíkniefnavandann. Þegar eigendur verslunarinnar BECO fréttu af hinu góða framtaki Lions- klúbbsins ákváðu þeir að gefa fíkni- efnadeildinni viðbótarbúnað af sama tilefni. Georg Lámsson, settur lögreglu- stjóri, veitti búnaðinum viðtöku og þakkaði sérstaklega þann mikla vel- vilja sem Lionsklúbbamir og aðrir hafa sýnt starfsemi lögreglunnar. -RR www.visir.is (VHS1UR Ml:D IRfTTIHNAR (\breytt»r Suinarkortio .?jn nianaóii korl á 7200. (iilda IVá 1 (> - .'50 S 100,S cygjiiumar. púltímar, }sh tímar, púlsinn upp. Ný taeW' naunr. þrokhoNCar ofl. heilsusuHTur. Munið að endurnýja JSB kortiðj Splunkunýir 10 tíma kort kynningarverði kr. 3.700.- Engar tímatakmarkanir Jsi goður staður jýrir Jng | Jsb kort veitir I 30% afslátt í ljós muÐÐBBIa Audi A6 Quattro '95,4 d„ ssk„ ek. 40 þús. km, dökkgrænnm ABS, topplúga< o.fl. Verð 3.950.000. Merceses Benz 300 E '88, 4 d„ ssk„ ek. 172 þús. km, dökkgrár, topplúga o.fl. Verð 1.350.000. VW Golf CL '96, 3 d„ 5 g. ek. 50 þús. km, hvítur. Verð 940.000. Toyota Corolla GLi '94, 4 d„ 5 g„ ek. 62 þús. km, hvítur. Verð 1.020.000. Opel Astra Station '96, 5 d„ 5 g„ ek. 38 þús. km, dökkgrár. Verð 1.050.000. Toyota Landcruser GX '94, 5 d„ 5 g„ ek. 62 þús. km, , vínrauður. Verð 3.300.000., MMC Pajero V6 3000 '96, 5 d„ ssk„ ek. 41 þús. km, dökkgrænn, sóllúga. Verð 2.990.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.