Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Blaðsíða 36
> 48 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998 íþróttir unglinga Sundið á fullu skriði Sundhópur 14-18 ára í Armanni er á fullu að æfa fyrir aldursflokkameistaramót íslands sem haldið verður 26.-28. júní í Kópavogi. Halldóra Brynjólfsdóttir og Aron Snorri Bjamason eru í miðjum undirbúningi fyrir mótið. „Við erum að fara í æfingabúðir um helgina þar sem við erum sérstaklega að æfa fyrir þetta mót. Markmiðið er bara að halda áfram að æfa vel og bæta sig,“ sagði Halldóra. Hún er búin að æfa sund í 5 ár og er hrifin af félagsskapnum sem það veitir. „Ég ætla að bæta mig á aldursflokkamótinu, og bara vera með,“ sagði Aron. Honum finnst gaman í sundi en skemmtilegast að fara í heita pottinn eftir æfingar. Aldursflokkameistaramót ís- lands er eitt stærsta sundmót bama- og unglinga á íslandi og mun DV fylgjast náið með gangi mála í því. Góð þátttaka í Landsbankahlaupinu: Allir fengu verðlaun Iris tekur íris B. Eysteinsdóttir hefur nú tekið við unglingasíðunni af Óskari Ó. Jónssyni og mun hún sjá um hana i sumar. íris er íþróttakennari ásamt því að vera með BA-próf í fjöl- miðlafræði frá High Point háskólanum í Norður-Karólinu í Bandaríkjunum. Við óskum írisi alls hins besta í nýju starfi og hlökkum til sumarsins. -VS/GH/JKS/SK Hið árlega Landsbankahlaup var haldið í þrettánda sinn þann 23. maí og tæplega 4000 krakkar tóku þátt. Hlaupið fór fram á þeim 35 stöðum á landinu þar sem Landsbankinn hefur útibú. útibúin í Reykjavík sameinuðust um eitt hlaup. Keppt var í tveimur flokkum þar sem 10 og 11 ára hlupu 1100 metra en 12 og 13 ára hlupu 1500 metra. Allir keppendur fengu verðlaunapening enda er aöalatriðiö að sem flestir séu með og hafi gaman af hlaupinu. Einnig voru veitt sérstök verðlaun fyrir þrjá efstu keppenduma í hverjum flokki. Hlaupið í Reykjavík fór fram í Laugardalnum og var þátttakendum boðið upp á veitingar að hlaupi loknu. Ýmis skemmtiatriði vora einnig sett á svið, gestum og þátttakendum til mikillar ánægju. Landsbankinn og Fi-jálsíþróttasamband íslands vinna í sameiningu að þessu hlaupi árlega og stuðla þannig að heilbrigðri æsku og hvetja börn og unglinga til frekari þátttöku í íþróttum. Aftari röð frá vinstri: Þorlakur Árnason þjálfari, Stefán Jónsson, Kristinn Svanur Jónsson, Sverrir Arnór Diego, Guömar Gíslason, Elvar Guöjónsson, Jóhannes Sigurðsson, Jóhann Hreiöarsson, Guömundur Kristjánsson, Ágúst Guömundsson, Þórarinn Gunnarsson liösstjóri, Þorleifur Valdimarsson formaöur knattspyrnudeildar. Fremri röö frá vinstri: Matthías Guömundsson, Bendikt Hinriksson, Gunnar Jónsson, Henrý Þór Reynisson, Kristinn Guömundsson, Steinarr Guömundsson, Sigöuröur Sæberg og Helgi Már Jónsson. Valsmenn urðu Reykjavíkur- meistarar í 2. flokki karla i knatt- spymu þegar þeir sigraðu Víking í úrslitaleik, 2-1. Valsmenn töpuðu ekki leik í mótinu en unnu 7 leiki og gerðu aðeins 1 jafntefli. Umsjón íris B. Eysteinsdóttir „Þetta var sætt. Það er alltaf gaman að vinna,“ sagði Sigurður Sæberg Þorsteinsson, fyrirliði Valsmanna. Sigurður sagði að markmiðið í sumar væri að gera það sama og í fyrra en þá unnu þeir alla þá titla sem í boði vora. „Við stefnum allir að því að komast i meistaraflokk og at- vinnumennsku," sagði Sigurður. Hann sagðist ákveðinn í því að bæta sig í sumar. „Ég ætla að gera mitt besta til að liðið spili vel og reyna að komast í landsliðið," sagöi Sigurður. Hann hefur nú þegar spilað 4 leiki með U-18 ára landsliði íslands. Sigurður er að þjálfa yngri flokka Vals og helstu skilaboðin sem hann hafði til yngri kynslóðarinnar var að æfa vel, leggja sig fram og viðhalda áhuga á knattspymunni. Sigurður þakkaði góðri samvinnu sigurinn og sagði að Valsstrákamir legðu sig alltaf 110 prósent fram og það skilar greinilega árangri. Hann sagði að þeir tækju knattspyrnuna mjög alvarlega og sem dæmi um það sagði hann að í allan vetur hefði nánast enginn leikmaður sleppt æfingu og baráttan um að komast í hópinn er mikil. „Við vinnum þetta á liðsheildinni eins og í fyrra,“ sagði Sigurður. Hann sagði jafnframt að Þorlákur Ámason þjálfari væri mjög góður og að hann ætti mikinn þátt í velgengni liðsins. -ÍBE Tilhægri: Siguröur Sæberg, fyrirliöi 2. flokks Vals. Aö ofan: Sigurvegarar úr hópi drengja 10-11 ára frá vinstri: Jón Davíö Davíösson, sem hafnaöi í 2. sæti, Davíö Arnar Oddgeirsson sigurvegari, Sölvi Guðmundsson sem hafnaöi í 3. sæti. Til hægri: Sigurvegari í hópi stúlkna 12-13 ára, Þórdís Sara Þóröardóttir. 2. flokkur Vals Reykjavíkurmeistari: Sigu rganga - tapaði ekki leik á mótinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.