Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 38
50 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998 Afmæli Ragnar Arason Ragnar Arason vélstjóri, Norður- braut 5, Höfn í Hornafírði, er sjötug- ur í dag. Starfsferill Ragnar fæddist á Borg í Mýra- hreppi í Austur-Skaftafellssýslu, var þar í grunnskóla og ólst þar upp við öll almenn sveitastörf sem hann síð- an stundaði fram eftir starfsævinni. , Þá var Ragnar til sjós á vertíðarbát- um í nokkur ár. Ragnar festi kaup á vörubíl og stundaði akstur jafnframt bústörf- um en hann stundaði búskap að Borg ásamt móður sinni og eldri bróður. Ragnar flutti til Hafnar í Horna- flrði 1972. Þar byggði hann hús ásamt Ástvaldi bróður sínum og móður sinni. Ragnar hóf störf við vélgæslu frystivéla hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga. Hann var síðan vélgæslu- maður hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga og síðan hjá Borgey hf. en hætti störfum nú í vor. Ragnar starfaði í ung- mennafélaginu Val á Mýrum, söng í kirkjukór Brunnhólssóknar og einnig í kirkjukór Hafn- arsóknar. Ragnar var einn af stofnendum karla- kórsins Jökuls og hefur hann starf- að með kórnum alla tíð. Fjölskylda Ragnar kvæntist 20.2. 1981 Helgu Magnúsdóttur, f. 12.7. 1930, verka- konu. Hún er dóttir Magnúsar Bjamasonar, verkamanns á Höfn í Hornafirði, og Signýjar Stefánsdóttur húsmóður. Stjúpdætur Ragnars eru Guðbjörg Gísladóttir, f. 2.12. 1957, húsmóðir, bú- sett í Noregi, gift Stefáni Finnbogasyni og eiga þau fimm börn; Magnhildur Gísladóttir, f. 5.4. 1964, kennari á Homafirði, en sambýlismaður hennar er Þorvaldur Viktorsson og eiga þau tvo syni. Fóstursonur Helgu er Magnús Aðalsteinsson, f. 4.12. 1947, bílstjóri í Kópavogi, en sambýlis- kona hans er Lilja Hjartardóttir og eiga þau tvö börn. Hálfbróðir Ragnars, sammæðra, var Vigfús Vigfússon, f. 9.10. 1911, nú látinn. Systkini Ragnars: Sigurður Ara- son, f, 3.9. 1916, nú látinn; Gísli Ara- son, f. 17.9. mjólkurfræðingur á Höfn; Fjóla Aradóttir, f. 25.3. 1919, húsfreyja að Fossi i Vestur-Skafta- fellssýslu; Guðjón Arason, f. 11.5. 1921, bóndi að Hólmi á Mýmm í Austur-Skaftafellssýslu; Lilja Ara- dóttir, f. 23.7.1922, húsmóðir á Höfn; Ástvaldur Arason, f. 2.9. 1924, vél- stjóri í Garðabæ; Steinunn Aradótt- ir, f. 28.4. 1926, húsmóðir á Höfn; Jón Arason, f. 13.8. 1929, bæjar- starfsmaður á Höfn; Hólmfríður Aradóttir, f. 26.5. 1933, fóstra í Reykjavík. Foreldrar Ragnars: Ari Sigurðs- son, f. 14.5. 1891, bóndi á Borg, og Sigríður Gísladóttir, f. 26.3. 1891, d. 20.3. 1992, húsfreyja að Borg. Ragnar verður að heiman á af- mælisdaginn. Ragnar Arason. Veiðivon Laxveiöin byrjuö: Tíu laxar fyrsta hálfa daginn - einn lax í Þverá „Þessi lax á skilið að sleppa aftur í ána, hann hefur gefið mér helling. Þetta var skemmtileg barátta," sagði Kristján Guðjónsson, formað- ur Stangaveiðifélags Reykjavíkur, v en hann veiddi annan laxinn í Norðurá i Borgarfirði á þessu sumri við opunina í gærmorgun og sleppti honum aftur í ána. Skömmu áður hafði Stefán Á. Magnússon veitt fyrsta laxinn, 14 punda, á Eyrinni, beint á móti Kristjáni. Báðir tóku laxarnir flugu, sem og allir laxamir sem veiddust á þessari fyrstu vakt í Norðurá. „Fyrsta vaktin gaf 10 laxa og hann var 14 pund, sá stærsti. Þetta er mjög gott eftir aðeins hálfan dag,“ sagði Kristján Guðjónsson for- maður rétt áður en hann fór til veiða seinnipartinn í gær. „Árni Eyjólfsson veiddi tvo laxa á Berghylsbrotinu og missti einn. Laxinn virðist vera fljótur upp ána núna. Allir laxamir hafa veiðst á flugu og sá stærsti hjá Stebba tók fluguna Bláa engilinn, þessi 14 punda. Nokkrir laxar hafa sloppið en það gerir ekkert til,“ sagði Krist- ján enn fremur. Vatnið í Norðurá er ekki yflr- þyrmandi þessa dagana og verður örugglega verra ef ekki rignir þeim mun meira næstu vikurnar. „Við fengum einn lax í morgun hérna í Þverá og hann var 12 pund. Fiskurinn veiddist á Norðtungueyrum,“ sagði Jón Ólafsson í veiðihúsinu við Helga- vatn við Þverá 1 gær- dag. „Það var Ingveldur Viggósdóttir sem veiddi fiskinn og hann tók maðk. Það var hvasst við Þverá í morgun og frekar kalt. Eitthvað urðu menn varir við fiska en ekki mjög mikið," sagði Jón í lokin. Veiðin hófst í Laxá á Ásum um fjögurleytið í gærdag. Enginn lax var kominn á land þegar við fréttum síðast í gærkvöld. G. Bender „Þetta er nýja flugan Barbí sem Jónas hnýtir og gæti gefiö vel í sumar," sagöi Ólafur Vigfússon viö Noröurá í gær en þá haföi hann ekki enn fengiö fisk. Kristján Guðjónsson, formaður Stangaveiöifélags Reykjavíkur, bíður eftir rétta takinu. Skömmu seinna sleppti hann laxinum aftur í ána. DV-myndir G. Bender INNKA UPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR - Fax 562 26 16 - Netfang: i UTBOÐ F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboði í verkið: í Bústaðavegsæð, endurnýjun, 1. áfangi. Endurnýja skal 350 mm stofnlögn hitaveitunnar í Stjörnugróf milli Bústaðavegar og Smiðjuveg- ar. Helstu magntölur: Skurðlengd: 830 m Lengd 350 mm hitaveitulagnar í plastkápu: 830 m Malbikun: 130 m2 Þökulögn: 1.000 m2 Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 15.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: fimmtudaginn 11. júní 1998 kl. 14.00 á sama staö. hvr65/8 INNKA UPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík Sími 552 58 0(f- Fax 562 26 16 - Netfang: isr@rvk.is KAUP A IBUÐUM F.h. Húsnæöisnefndar Reykjavíkur er óskað eftir að kaupa 2ja til 4ra herbergja íbúðir, til afhendingar á árinu 1998. Alls er um aö ræða 36 íbúðir. Athygli er vakin á aö hámarksstærð félagslegra íbúða er 70 m2 brúttó fyrir 2ja herb. 90 m2 fyrir 3ja herb. og 130 m2 fyrir 4ra herb. Aöeins koma til greina íbúöir á 1.2. og 3. hæö. Kjallarar og risíbúðir koma ekki til greina. Æskilegt er að íbúðirnar séu innan við 15 ára gamlar, helst í fjölbýli og án bílskúrs. Tímamörk undirritunar kaupsamnings er 12. júní nk. Kaupsamningur er | háður fyrirvara um samþykki Húsnæöisstofnunar ríkisins og Borgar- ráös Reykjavíkur. Tilboðum ásamt lýsingu skal skila til Innkaupastofnunar Reykjavíkur- borgar í síðasta lagi föstudaginn 5. júní 1998. hnr 64/8 Til hamingju með afmælið 2* / / • juni 85 ára Aðalsteinn Sveinbjörnsson, Túngötu 34, Siglufirði. 80 ára Sigríður Meyvantsdóttir, Grensásvegi 60, Reykjavík. Hún er að heiman. 75 ára Gerða Irena Pálsdóttir, Hátúni 6B, Reykjavík. Elísabet G. Magnúsdóttir, Hjarðarhaga 46, Reykjavík. Karl Guðlaugsson, Háaleitisbraut 44, Reykjavík. 70 ára Sigurður Magnússon, Klapparstíg 1, Reykjavík. Sigrún Brynjólfsdóttir, Skólagerði 22, Kópavogi. Sigurður Reimarsson, Faxastíg 8A, Vestmanneyjum. 60 ára Sólveig G. Jónasdóttir, Holtagerði 3, Húsavík. Sigurbjörg Vigfúsdóttir, Háengi 11, Selfossi. 50 ára Sólveig Sveinsdóttir, Laugateigi 39, Reykjavík. Hólmfríður Þórólfsdóttir, Þinghólsbraut 61, Kópavogi. Reynir Sveinsson, Bjarmalandi 5, Sandgerði. Hólmfríður Alexandersdóttir, Lindargötu 14, Siglufirði. Guðrún Jóna Káradóttir, Kjalarsíðu 18 B, Akureyri. 40 ára Alma Elídóttir, Langholtsvegi 186, Reykjavík. Jónína Guðrún Sigurðardóttir, Aðallandi 8, Reykjavík. Bjarni Kjartansson, Búlandi 11, Reykjavík. Elín Hauksdóttir, írabakka 34, Reykjavík. Anna Finnbogadóttir, Garðhúsum 53, Reykjavík. Guðmundur K. Ásgeirsson, Lækjai'hjalla 20, Kópavogi. Björg Óskarsdóttir, Sæbólsbraut 30, Kópavogi. Sigurborg Daðadóttir, Fagrabergi 46, Hafnarfirði. Ómar Ásgeirsson, Ránargötu 1, Grindavík. Þórhildur Eggertsdóttir, Túngötu 3, Grindavík. Magnea S. Friðriksdóttir, Ásvegi 20, Akureyri. Jóhann Björgvinsson, Tjarnarlundi 16G, Akureyri. Birgir Baldursson, Stapasíðu 10, Akureyri. Pálmi Indriðason, Aðalbóli, EgUsstöðum. Lárus Elíeser Bjamason, Skriðuvölium 1, Skaftárhreppi. -----7------------------- jjrval - gott í hægindastólinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.