Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Síða 40
52 («|!ai)ónn vir Ummælii | Tölvukallinn „Eftir á að hyggja hallast ég að því að Finnur Ingólfsson hljóti , þrátt fyrir allt að vera tölvu- kall því hvaða skyni gæddur maður gæti borið aðrar j eins afsakanir * á borð og þóst maður að j meiru fyrir.“ lllugi Jökulsson, á Rás 2. Skotgrafahernaöur „Nú hefúr Davíð boðað aft- ? urhvarf til fyrri skotgrafa- hernaðar og keppist við að grafa sína eigin gröf þaðan j sem hann kýs að beita aðferð- um ógnarstjórnar gegn frétta- mönnum Sjónvarpsins." Gisli Sigurösson islensku- fræðingur, í DV. Með hann á hægra brjósti „Mér finnst í framhaldinu fróðlegt að vita hvort Halldór Ás- grímsson geti setið áfram sem ráðherra miðað við þaö sem hann gerir varðandi fyrr- verandi fram- kvæmdastjóra Lind- ar. Sá maður er nú á hægra brjósti formanns Framsókn- i arflokksins." Jón Magnússon lögfræö- ingur, í DV. Er sökudólgur fundinn? „Svona málatilbúningur eftir kosningar er ódrengileg- ur og leiðir óneitanlega hug- ann að því að menn þurfi á einhverjum sökudólg að halda.“ Helgi H. Jónsson, frétta- stjóri Sjónvarps, um aðför aö fréttastofu Sjónvarps, í Morgunblaðinu. Ekki starf hans að rífa niður „Maður hefði haldið að það væri fremur hlutverk hans að byggja upp i en rífa niður." Guðmundur Torfason knatt- spyrnuþjálfari um ummæli Guðjóns Þórð- arsonar landsliðsþjálfara, í Morgunblaðinu. Leikritahöfundurinn „Þú verður ekki leikrita- höfundur fyrr en leikarinn j fer að flytja textann þinn.“ Hallgrímur H. Helgason, í Morgunblaðinu. ÞRIÐJUDAGUR 2. JUNI 1998 DV Kristján Þór Júlíusson, verðandi bæjarstjóri á Akureyri: Dalvíkingurinn kominn Jheim" til Akureyrar rr DV, Akureyri: „Ég hef aldrei verið verkkvíðinn maður og það er miklu fremur að ég sé óþreyjufullur að byrja að vinna en að ég sé kvíðinn," segir Kristján Þór Júlíusson sem eftir nokkra daga sest í stól bæjarstjóra á Akureyri. Þar með hafa Akureyringar fengið Dalvíking til að hafa for- ---------------------- ræði með sín- um málum næstu árin, mann sem kom eins og stormsveip- ur inn í pólitíkina á Akureyri fyrir skömmu og leiddi Sjálfstæðisflokk- inn til stórsigurs i kosningunum á dögunum. Kristján er fæddur á Akureyri árið 1957 og má því segja að hann sé „kominn heim“. Hann segist þó vera Dalvíkingur í húð og hár en á Dalvík sleit hann bamskónum. Frá 15 ára aldri stundaði hann sjó- mennsku með námi og að loknu námi í Menntaskólanum á Akureyri lá leiðin í Stýrimannaskólann þar sem hann lauk 1. og 2. stigi eða svokölluðu fiskimannaprófi. Næstu ár fóru í ýmsa hluti, s.s. að vera á sjó í 3 ár, lesa íslensku við Háskóla íslands og fást við kennslu áður en hann settist í stól bæjarstjóra í einu heimabæ sínum, Dalvík. kom- Hann var bæjarstjóri á Dalvík ist 1986 til 1994 en þá lá leið- in til Vestfjarða þar sem Kristján hann var bæjarstjóri í ísa- Þór fjarðarkaupstað til 1996 og Júlíusson. síðan bæjarstjóri í ísa- DV-mynd gk fjarðarbæ þar til seint á síðasta ári. „Mér leið vel á ísafirði og tel mig hafa lært mikið þar, öðlaðist reynslu og það er ekkert til að skyggja á þennan tíma það sem olli því að ég sagði upp starfi mínu þar. Hitt er annað mál að þessi landshluti er í af- skaplega mikilli Maður dagsins vorn og a undir högg að sækja en það er því miður að hluta til heimatilbú- inn vandi, án þess að ég fari nán- ar út í það.“ Kristján Þór segir lít- inn tíma hafa gefist undanfar- in ár til að sinna áhugamálum. „Ég hef ekki einu sinni Klúbbur Listahátíðar: a: Tortelier og Eggert feldskeri í Klúbbi Listahátíðar í dag eru sérstakir gestir Yan Pascal Tortelier hljómsveit- arstjóri, sem verður í klúbbnum kl. 17, og Eggert feldskeri sem verður með tískusýninguna Look n’Touch kl. 21. Helgihald í Hallgrímskirkju Helgihald í Hall- gríms- kirkju er á þriðjudög- um, kl. 10.30, en þá er fyrir- bænaguðsþjónusta. Einnig er boðið upp á léttan hádeg- isverð á vægu verði. Samkomur Aglow-fundur Síðasti Aglow-fundurinn fyrir sumarfrí verður í kvöld, kl. 20, í Kristniboðs- salnum, Háaleitisbraut 58-60. Katrín Söebech, for- maður Aglow, Reykjavík, er ræðukona kvöldsins; Kaffi, söngur, hugvekja og fyrir- bænir. Allar konur eru hjartanlega velkomnar. Félag eldri borgara í Reykjavík Kúrekadans verður í Ris- inu í dag, kl. 18.30. Myndgátan til að veiða á stöng sem ég hef þó mjög gaman af að gera. Ég kann ekkert að veiða lax en hef gaman af að veiða silung. Ég sé því miður ekki fram á að geta komist í veiði alveg á næstunni, það bíða allnokkur verkefni sem þarf að leysa. Bóklestur er annað sem ég hef áhuga á en það er afskaplega ljúft að ferðast um í tíma og rúmi og besta leið- in til þess er í gegn um bæk- ur,“ segir Kristján Þór. Hann er giftur Guð- björgu Ring- sted og eiga þau fjögur böm; Maríu, 13 ára, Júlíus, 12 ára, Gunnar, 8 ára, og Þorstein sem er eins árs. -gk Valur og Keflavík áttust við f Keflavík fyrir ári og sigraði þá Keflavík. Valur-Keflavík Fótboltinn rúllar áfram i kvöld. Siðasti leikurinn í fjórðu umferð úrvalsdeildarinnar er í kvöld og eigast þá við Valur og Keflavík. Fer leikurinn fram á Valsvellinum að Hlíðarenda og hefst hann kl. 20. Keflvíkingar hafa byrjað illa, sérstaklega þegar miðað er viö frábæra byrjun þeirra í fyrra þegar þeir unnu nánast alla leiki þannig að Valur verður að teljast sigur- stranglegri á sínum heimavelli. íþróttir Þrír leikir em í 1. deild karla sem virðist ætla að verða jöfn og spennandi, á Fylkisvelli leika Fylkir-Skallagrímur, á Kaplakrikavelli leika FH-Stjarnan og á Kópavogsvelli leika HK-Þór. í þriðju deild eru einnig tveir leikir í kvöld, á Blönduóssvelli leika Hvöt og Magni og á KA-velli leika Nökkvi og HSÞB. Allir leikirnir hefjast kl. 20. Bridge Þegar þetta spil kom fyrir á HM í parasveitakeppni á Ródos 1996, lentu n-s í misskilningi í sögnum. Kerfið var flókið og norður var bú- inn að gleyma einni útfærslunni. Sagnir gengu þannig, suður gjafari og a-v á hættu: 4 KG10 * D ♦ A765 4 ÁD1094 4 64 4 A9832 — 92 ♦ G10 4 KG32 N * K10853 ♦ D843 4 75 Viðbit Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi. 4 D75 * ÁG764 4 K92 4 86 Suður Vestur Norður Austur 1 grand pass 2 4 pass 3 4 pass 4 4 p/h Grandopnun suðurs lýsti jafn- skiptri hendi með 10-12 punkta (fimm spil í hálit voru þó leyfð í kerfinu). Tveggja tígla sögn norð- urs var gervi og var fyrst og fremst gamekrafa. Þriggja spaða sögn suð- urs sýndi 5 spil í hjarta, en norður gleymdi kerfinu og hélt að sögnin sýndi 5 spil í spaða. Ekki var útlit- ið gæfulegt, en eitthvað varð að gera. Útspilið var tígulgosi sem sagnhafi drap á kónginn heima og svínaði laufdrottningu. Síðan var laufásinn tekinn og laufi spilað úr blindum. Austur tromp- aði með fjarka og sagnhafi yfir- trompaði á fimmu. Næst kom tígull á ás og fjórða laufinu spilað. Aust- ur trompaði með sexu og sagnhafi yfirtrompaði á sjöu. Nú var hjarta- ásnum spilað, hjarta trompað í blindum og síðasta laufinu spilað og trompað með drottningu. Vestur yfirtrompaði, en sagnhafi hafði þegar fengið 8 slagi og átti 2 örugga í blindum. Á hinu borðinu í leikn- um var samningurinn 3 grönd með 9 slögum og misskilningurinn því virði eins impa í gróða. ísak Örn Sigurðsson ■"fm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.