Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 41
DV ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998 53 Galina Gorchakova syngur f Há- skólabíói í kvöld. Ein mikilfeng- legasta söngkona samtímans Einn af hápunktum Listahátíð- ar í Reykjavík verður í kvöld í Há- skólabíói þegar Galina Gorc- hakova stígur á svið og hefur upp rödd sína. Gorchakova var að- alsópran Kirovóperunnar i Sankti Pétursborg og búin að vinna hug og hjörtu Rússa þegar hún sló í gegn á Vesturlöndum í hlutverki Renötu í óperu Prokofjevs, Eld- englinum, á Proms-tónleikunum í London árið 1991. Eftir það var leiöin greið á toppinn og hafa helstu óperu- og tónleikahús heimsins keppst um að fá hana til liðs við sig. í dag er hún talin ein fremsta sópransöngkona veraldar. íslendingum gefst því einstakt tækifæri til að hlýða á „eina mik- ilfenglegustu söngrödd samtím- ans“, eins og einn gagnrýnandinn komst að orði. Á tónleikunum í Háskólabíói mun Galina Gorchakova syngja rússneska ástarsöngva við undir- leik Larissu Gergievu. Ingibjörg Haraldsdóttir hefur þýtt söngvana á íslensku og fylgir þýðingin efn- isskrá tónleikanna. Veður á Faxaflóasvæði næstu viku - samkv. tölum frá Veöurstofu íslands - Úrkoma -á 12 tima un 18 mm 16 14 12 10 8 6 4 2 mán. þri. miþ. fim. fös. Joik frá Sömum og spuní í kvöld verða tónleikar í Norræna húsinu, þar sem leikin verður tón- list sem á rætur sínar að rekja til joiks Sama og spuni skipar einnig mikilvægan sess. Það er norska hljómsveitin TransJoik sem leikur, en hana skipa Frode Fjellheim, hljómborð og söngur, Nils-Olav Jo- hansen, gítar og söngur, Snorre Bjerck, trumbur og söngur, og Tor Haugerud, trommur og söngur. TransJoik er nýtt nafn hljóm- sveitarinnar JazzJoikEnsemble og markar nafnið tímamót fyrir hljóm- sveitina. Nafninu var breytt um leið og nýja geislaplatan, Mahkala- hke, var gefin út. Áður hafði hljóm- sveitin gefið út geislaplötuna Saajve Dans sem hlaut mikið lof gagnrýnenda. Nafnið TransJoik endurspeglar tónlistina á marga vegu; í því felst hinn sefjandi þáttur tónlistarinnar og það ber með sér umbreytinguna frá hefðbundnu joiki til nútímalegri tónlistar þar sem áhrifa þjóðlagatónlistar gætir, auk þess sem það felur í sér löngun- ina til að ferðast yfir landamæri Skemmtanir tónlistarinnar. Suður-samíska joikið er lagt til grundvallar tónlistinni og spuni skipar þcir mikilvægan sess. í TransJoik er spuninn nátengdur þema og tjáningarformi joiksins og leitað er eigin leiða til að nálgast spunann og tilbrigðin við þemu tón- listarinnar. Þetta er ekki joik í hefð- bundinni merkingu en tónlistin miðlar því sama og joikið; lífsþrótti, geöhrifum, sterkum myndum af fólki og náttúru. Tónlistin er nýtískuleg og notast er bæði við rafmagnshljóðfæri og frumstæðari hljóðfæri en raddimar eru meginstoð tónlistarinnar. TransJoik þróar sérstakar söngað- ferðir og raddsvið sem skapa, ásamt hljóðfæraleiknum, einstök tónhrifl Og margbreytileikinn er gífurlegur; tónlistin spannar allt frá rólegri ihugun yfir í sefjandi og taktfasta tóna! Verið við öllu búin. TransJoik skemmtir á tónleikum í Norræna húsinu í kvöld. Mildast suð- vestanlands Veöurstofa íslcmds gerir ráð fyrir fremur hægri norðlægri átt eða breytilegri átt. Smáskúrir eða slydd- uél verða viö austurströndina og víða síðdegisskúrir sunnanlands en léttskýjað norðvestan- og vestan- Veðrid í dag lands. Hiti verður á bilinu 2 til 12 stig, mildast suðvestanlands. Veðriö kl. 12 á hádegi: Akureyri léttskýjað 7 Akurnes húlfskýjaó 8 Bergstaðir léttskýjaó 6 Bolungarvík heióskírt 6 Egilsstaóir 3 Keflavíkurflugv. úrkoma í grennd ’ 9 Kirkjubkl. rigning 6 Raufarhöfn alskýjaó 3 Reykjavík léttskýjaö 9 Stórhöfði súld 5 Helsinki skúr 11 Kaupmannah. skýjaó 18 Osló aískýjaö 13 Stokkhólmur 10 Þórshöfn skýjaö 8 Faro/Algarve þokumóöa 20 Amsterdam léttskýjaö 19 Barcelona skýjaó 22 Chicago léttskýjaó 13 Dublin skýjaö 15 Frankfurt skýjaö 18 Glasgow úrkoma í grennd 10 Halifax súld 13 Hamborg skýjaö 16 Jan Mayen alskýjaö -O London skýjaö 21 Lúxemborg hálfskýjaö 17 Malaga skýjað 23 Mallorca léttskýjaó 26 Montreal léttskýjaö 12 París skýjaö 22 New York hálfskýjaö 19 Orlando alskýjaö 24 Róm hálfskýjaö 26 Vín rigning 18 Washington skýjaö 22 Winnipeg léttskýjaö 7 Svandís Myndarlega stúlkan á myndinni heitir Svandís Dagmar. Hún fæddist á fæðingardeild Landspítal- ans 24. mars síðastliöinn. Barn dagsins Dagmar Við fæðingu var hún 3580 grömm að þyngd og mældist 50 sentímetra löng. Foreldrar hennar eru Helga Rut Rúnars- dóttir og Valgeir Helga- son og er hún fyrsta barn þeirra. dagsBJJC) i Walter Matthau og Jack Lemmon eru í aöalhlutverkum í Out to Sea. Lemmon og Matthau til sjós Jack Lemmon og Walter Matt- hau hafa náð einstaklega vel sam- an sem leikarapar og hafa oftar en ekki farið á kostum i bráðfyndn- um kvikmyndum og er skemmst að minnast Grumpy Old Men- myndanna tveggja. í Out to Sea, sem Bíóborgin sýnir, leika þeir enn einar nöldurskjóðumar sem era tengdar en ekkert sérstaklega vel til vina. Þeir ráða sig þó saman sem dans- herrar á skemmti- Kvikmyndir ferðaskip. Félagamir, sem heita Herb Sullivan (Lemm- on) og Charlie Gordon (Matthau), hafa ekki mikla reynslu af dansi og þeirra versta martröö verður því skipstjórinn sem er mikill áhugamaður um dans, enda var það alltaf ætlun Charlies með ferðinni að ná sér i ríka ekkju. í Out to Sea leika einnig Dyan Cannon, Brent Spiner, Gloria De Haven, Elaine Stritch og gamla dansséníið Donald O’Connor. Leikstjóri er Martha Coolidge. Nýjar myndir: Háskólabió: Deep Impact Háskólabíó: Állinn Laugarásbíó:The Wedding Sin- ger Kringlubíó: Mouse Hunt Saga-bió: The Stupids Bíóhöllin: 'til there was you Bíóborgin: Mad City Regnboginn: Scream 2 Regnboginn: Óskar og Lúcinda Stjörnubíó: The Assignment Krossgátan T~ T~ T~ r~ T~ 2 IO i II vr s- 1 ir 1+ 18 ir lö" Ite r j F Lárétt: 1 hröð, 6 málmur, 8 heim- reið, 9 dimmviðri, 10 reikuðu, 11 hress, 13 rándýr, 14 fíkn, 16 tví- hljóði, 18 maður, 20 blundur, 22 svelgur, 23 fjarlægð. Lóðrétt: 1 taugar, 2 knæpa, 3 lík-,- ingu, 4 hratt, 5 frétt, 6 keraldið, 7 endaöi, 12 makaði, 15 gangur, 17 lausagrjót, 19 skóli, 21 mælir. Lausn á sfðustu krossgátu: Lárétt: 1 verk, 5 oft, 7 æsa, 8 ofan, 10 skutur, 11 kind, 13 rag, 14 asa, 16 rosa, 18 værar, 17 tá, 21 álag, 22 fús. Lóðrétt: 2 eski, 3 raunar, 4 kot, 5 of- ur, 6 farast, 7 æska, 9 naga, 12 drag, 15 sæl, 17 orf, 18 vá, 20 ás. Barn dagsins í dálkinum Bam dagsins em birtar myndir af ungbörnum. Þeim sem hafa hug á að fá birta mynd er bent á að senda hana í pósti eða koma með myndina, ásamt upplýsingum, á ritstjóm DV, Þverholti 11, merkta Bam dagsins. Ekki er síðra ef bamið á myndinni er í fangi systur, bróður eða foreldra. Myndir em endur- sendar ef óskað er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.