Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Síða 44
Vinningstölur laugardaginn: 30. 05.’S
12(14^161241281 1
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphaoð
1. 5 af 5 » 4.661.925
2. 4 af 5 3 135.460
3. 4 af 5 90 7.780
4. 3 af 5 2.707 600
5 Aukaúrdráttur: 7-11-14-1
Jókertölur vikunnar: 0 3 6 4 Ö
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Hrapaði í
Hvannadals-
hnjúki
17 ára piltur fótbrotnaði í Ferða-
félagsferð á Hvannadalshnjúk um
helgina. Hópurinn hafði náð tind-
inum og var lagður af stað niður er
félagar mannsins tóku upp á því að
rykkja í línuna sem hann var festur
með. Hann féll við þetta með fyrr-
greindum afleiðingum.
Björgunarsveitarmenn voru á þess-
um slóðum og bjuggu þeir um meiðsl
htms. Þeir fluttu hann síðan í skáiann
Jöklasel við Skálafellsjökul en þaðan
var honum ekið til Hafnar. -sf
Nær dauða en lífi
Litiu mátti muna að illa færi er
18 ára piltur var nærri drukknaður
‘ Reykjadalslaug í Miðdölum í fyrr-
inótt. Fólk sem var með honum í
lauginni veitti því athygli að ekki
var allt með felldu og dró hann upp
úr lauginni. Hann var aðframkom-
inn og þurfti að blása í hann lífi.
Þá gerðist sá fáheyrði atburður
við Gunnarsholt að maður fékk hjól
flugvélar í lágflugi í höfuðið.
Mennirnir voru báðir fluttir á
sjúkrahús og eru þeir á batavegi. -sf
Fyrstu laxarnir
Laxveiðin byrjaði vel í Norðurá í
-y Borgarfirði í gær og veiddust 11 lax-
ar. Kristján Guðjónsson, formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
heldur hér laxinum sem hann veiddi
en sleppti skömmu seinna aftur í
ána. Þetta var annar laxinn sem
veiddist í ánni. Sjá nánar á bls. 50.
DV-mynd G. Bender
Kona brenndist
Eldur kviknaði í feiti í húsi við
Flétturima í gærkvöld. Kona sem þar
var að djúpsteikja kartöflur gerði til-
raun til að slökkva eldinn með þeim
afleiðingum að hún missti pottinn á
gólflð og brenndist. Nágranni hennar
slökkti síðan eldinn. Konan slapp
furðanlega vel, var flutt á Landspítal-
->ann með annars stigs bruna á hönd-
um og lítils háttar bruna á fótlegg.-sf
Hvítasunnukappreiðar Fáks enduðu í gær með veðkappreiðum. Keppt var í fjórum greinum og var þátttaka töluverð.
Alls var veðjað fyrir 260 þúsund krónur. Hér geisast fjórir gæðingar af stað með öfluga knapa á baki. DV-mynd E.J.
Sverrir Hermannsson boðar framboð á landsvísu:
Eg mun alls
ekki sitja hjá
- segir Matthías Bjarnason, fyrrverandi ráðherra
„Ég er nú senn dauður en ég mun
alls ekki sitja hjá,“ segir Matthías
Bjamason, aðspurður um það hvort
hann mundi taka þátt í baráttu
stjórnmálasamtaka þeirra sem
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi
bankastjóri, hefur boðað að bjóða
muni fram í öllum kjördæmum
landsins, með það að meginbaráttu-
máli að kveða niður kvótakerfið.
Matthías sat i fjölmörg ár sem
fyrsti þingmaður Vestfirðinga fyrir
Sjálfstæðisflokk. Meðan hann
gegndi þingmennsku var hann ráð-
herra sjávarútvegsmála, auk þess
sem hann gegndi fleiri ráðherra-
embættum. Hann gefur lítið fyrir
sinn gamla flokk i dag.
„Ég segi fyrir mitt leyti að ég er
algjörlega andsnúinn Sjálfstæðis-
flokknum í sjávarútvegsmálum. Það
er orðið fulireynt að flokkurinn
mun ekki ná áttum þar. Ég sé raun-
ar ekki neina ástæðu til að hafa sér-
stakan sjávarútvegsráð-
herra meðan flokkurinn
er við völd. Hafrann-
sóknastofhun sér um
þetta aflt saman og það
mætti spara með því að
senda ráðherrann út á
land og gera að hrepp-
stjóra þar. Þannig vill
hann fara með þá sem
eru til óþurftar," segir
Matthías. „Mér líst mjög
vel á hvem þann flokk
og hverja þá menn sem
vilja berjast gegn þeim
óskapnaði sem kvóta-
kerfið er. Mér líst vel á kröftuga
andspymu gagnvart þeim mönnum
sem núna stjórna þessu landi. Þeir
taka ekkert tiliit til neins svo sem
nýlegt hálendisfrumvarp undir-
strikar. í öllu þeirra atferli felst að
þeir líta niður á fólk og því hef ég
óbeit á," segir Matthías.
Aðspurðm: um stöðu
Sverris Hermannssonar
eftir að hann sagði af sér
bankastjórastarfi sagði
Matthías að þeir væru
aldavinir.
„Við Sverrir erum
gamlir vinir í gegnum ára-
tugi. Það hefur stundum
kastast í kekki á milli okk-
ar. Það er ljómandi gott á
milli okkar og allt þetta
mál einkennist af því að
vera eltingaleikur við
einn mann. Ég hélt að það
hefðu verið þrír banka-
stjórar við Landsbankann. Ég get
ekki fundið eða heyrt annað en
Sverrir hafi verið einn. Síðan þá
held ég nú að formaður bankciráðs-
ins eigi að bera stóra ábyrgð en
hann virðist bara vera í leynihem-
aði,“ segir Matthías. -rt
- sjá viðtal við Sverri á bls. 2
Matthías Bjarnason,
fyrrum alþingismað-
ur og ráðherra, er
tilbúinn í slaginn.
DV-mynd Hilmar Þór
Veðrið á morgun:
Skúrir sunn-
anlands
Á morgun er gert ráð fyrir
fremur hægri norðaustlægri eða
breytilegri átt. Skúrir verða
sunnanlands, einkum síðdegis, en
skýjaö með köflum annars staðar.
Hiti verður á bilinu 3 til 11 stig,
mildast sunnan- og vestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 53
Enn eitt
banaslysið
Kona á þrítugsaldri lést í bílslysi
á Hólmavíkurvegi í fyrrinótt. Bif-
reið sem hún ók valt og kastaðist
hún út úr bílnum með þeim afleið-
ingum að hún lést. Hún var ekki í
belti. Með henni í bílnum voru kona
og barn en þau voru í bílbeltum og
sluppu með minni háttar meiðsl.
Banasiys í umferðinni
- árin 1995-1998 -
- 18
■ 15
- ■ 10
-
1995 1996 1997 1998
1 DV-graf IJ
Það sem af er árinu hafa orðið
tólf banaslys. Til viðmiðunar vora
banaslys í umferðinni árið 1996 tíu.
Óli H. Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Umferðarráðs, segir þennan
fjölda slysa vera langt yfir því sem
verið hefur.
„Síðustu árin hefur banaslysum
farið fækkandi en nú virðist þróun-
in vera að snúast við. Þetta er mun
meira en síðustu 3 til 4 ár miðað við
árstíma."
Til að bregðast við þessari þróun
hefur löggæsla verið aukin umtals-
vert undanfarnar vikur, ásamt því
að sektir hafa verið hækkaðar vera-
lega. Að sögn Óla H. era það sömu
þættirnir sem koma við sögu í
mörgum slysanna.
„Það er allt of algengt að fólk noti
ekki bilbelti. Ölvunarakstur kemur
oft við sögu, of mikill hraði miðað
við aðstæður og lélegur búnaður
ökutækja, sérstaklega era lélegir
hjólbarðar algengir." -sf
www.visir.is:
Díanna Dúa
á Spjallinu
í dag klukkan 16 verður notend-
um Vísis boðið upp á að spjalla við
Díönnu Dúu Helgadóttur á Spjall-
inu, nýrri spjallrás www.visir.is.
Díönnu Dúu var fyrir skemmstu
meinað að taka þátt í Fegurðarsam-
keppni íslands þar sem hún hafði
setið fyrir hjá Playboy.
Spjallið var formlega opnað á
laugardaginn þegar notendum Vísis
var boðiö upp á að spjalla við Guð-
björgu Hermannsdóttur, nýkrýnda
fegurðardrottningu íslands.
Leiðin inn á Spjallið er einfóld.
Það þarf einungis að slá inn slóðina
www.visir.is og smella á Spjallið.
-sm