Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Síða 2
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998 JjV
i6 (förikmyndir
Titanic ★★★★
Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af
miklum fítonskrafti tókst James Cameron
aö koma heilli í höfn dýrustu kvikmynd sem
gerð hefur verió. Fuilkomnunarárátta
Camerons skilar sér í eölilegri sviösetningu
sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Leon-
ardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir-
minnileg I hlutverkum elskendanna. -HK
Good Will Huntina ★★★*
í mynd þar sem svo mikiö erlagt upp úr per-
sónunum veröur leikurinn aö vera góður.
Sérstaklega er samleikur Williams og
Damons eftirminnilegur. Hiö sama má
reyndar segja um flesta leikara í aukahlut-
verki. Bestur er þó Stellan Skarsgárd en í
túlkun sinni á stærðfræöingnum Lambeau
dregur hann upp sannfærandi mynd af
manni með mikla sérgáfu sem þó veröur aö
játa sig sigraðan í návist ótrúlegrar snilli-
gáfu. -ge
Jackie Brown ★★★★
Höfundareinkenni Quentins Tarantinos eru
sterk þótt myndin sé gerö eftir þekktri
skáldsögu Elmore Leonards. Jackie Brown
er heillandi kvikmynd og er mýkri en fyrri
myndir Tarantinos en gerist samt óvefengj-
anlega í þeim helmi sem Quentin Tarantino
hefur skapaö. -HK
U Turn ★★★*
Myndín vinnur afbragösvel úr heföinni. Per-
sónurnar eru efbrmlnnilegar og þótt húmor-
inn í noir-myndum sé oft gráglettinn hefur
sjaldan veriö gengiö lengra en hérna. Loka-
senan er f senn óborganleg og óhugnanleg.
-ge
The Assignment ★★★★
Lelkstjórnin er til fyrirmyndar og handritiö
að sama skapi vandað. Timi er tekinn til að
leyfa persónunum aö mótast og fyrir vikiö
veröa þær trúverðugri. Aldan Qulnn túlkar
þá breytingu sem veröur á Ramirez í gervi
Carlosar af mikilli leikni og Sutherland hef-
ur ekki veriö jafn sannfærandi árum saman.
-ge
Mouse Hunt ★★★
Músaveiöamynd sem seglr frá vitgrönnu
bræðrunum Smuntz sem erfa snæraverk-
smiöju og niðurnftt hús (með mús) eftir föö-
ur sinn. Sjálf músin er aðalhetja myndarinn-
ar þar sem hún kiífur og stekkur og sveiflar
sér af mikilli fimi og hugrekki um húsiö, sigr-
ast bæöi á banvænum ketti og meindýra-
eyöi og hvomsar f sig kilói af osti án þess
aö svo mikiö sem gildna um miöbikiö. -Úd
Mad City ★★★
Sterk kvikmynd um það hvernig fjölmiölar
búa til stórfrétt. Þótt deíla megi um aö
gíslatakan I myndinni geti staðið yfir I þrjá
sólarhringa kemur þaö ekki aö sök. Costa-
Gavras hefur styrka stjórn á því sem hann
er fjalla um og hefur ekkl gert betri kvik-
mynd í mörg ár. Dustin Hoffman og John
Travolta eru öryggið uppmálað f aöalhlut-
verkunum. -HK
Scream 2 *★★
Þó Scream 2 nái ekki þeirri snilld sem 1 átti
þá held ég aö ég geti ekki annaö en kallað
þetta þriggja stjörnu hrollvekjuskemmtun.
Eftir magnaöa byrjun fór Scream 2 of hægt
af stað en sföan tók hún kipp og brunaði af
staö og hélt uppi þessari lika fínu spennu,
án þess aö slaka á dreþfyndnum hroll-Vfs-
ununum og skildi viö áhorfandann ánægju-
lega hrylltan. -Úd
The Big Lebowski ★★★
Yfirhöfuö er The Big Lebowski hlaöin
ánægjulegum senum og smáatriöum eins
og viö mátti búast frá þessu teymi. Jeff
Bridges er ákaflega viöeigandi lúöi f hlut-
verki sínu sem hlnn „svali" og algerlega
áhyggjulausi Lebowskl og John Goodman
sömuleiðis góöur sem bilaöur uppgjafa Ví-
etnamhermaöur. -úd
Deep Impact ★★★
Vel gerö og ahrifamikil kvikmynd þar sem
fjallaö er um einhverja mestu hættu sem
vofir yfir okkur, aö halastjarna taki upp á þvf
aö rekast á jörðina. Myndin er góö skemmt-
un en um leið setur aö áhorfandanum létt-
an hroll. -HK
Búálfarnir ★★★
Búálfar eru varkárir og láta lítiö fyrir sér fara
þvl ef þeir sjást eru þeir klesstir af mann-
eskjunum sem taka þá fyrir mýs eöa önnur
meindýr. Sjónræn útfærsla er sérlega snjöll
þar sem kunnuglegir smáhlutir í nýjum hlut-
verkum flugu svo hratt hjá aö maður mátti
hafa sig alla vlö aö fylgjast meö, sjönræn
veisla, hraöi og húmor. Omissandi fyrir álfa
og fólk af öllum stæröum. -úd
Anastasía ★★★
Sagan af týndu prinsessunni Anastasíu er
hreinn ævintýramatur. Myndin einkenndist öll
af hugmyndarfki og hélt gamlingjanum mér
uppteknum allan tímann, þrátt fyrir fremur
leiðinlega músík, sem viröist skylda í
skemmtiefni af þessu tagi. Fyrir utan smá-
hroll yfir söguskýringum fannst mér
Anastasía hin besta skemmtun og meö betri
teiknimyndum sem ég hef séö lengi. -úd
The Rainmaker ★★★
Hefur ekki sama hraöa og spennu og aðrar
myndir geröar eftir sögum Grishams. Hún
lýsir ekki auði og munaði hástéttarinnar og
er laus viö óþarfa fegrun á bandarfsku rétt-
arkerfi. En f þvf felst styrkur hennar. Hand-
ritiö er þétt og sannfærandi og leikurinn
með ágætum. Gaman var aö sjá gamla og
nú ósköp þreytta leikara á borö viö Mickey
Rourke og Virginiu Madsen f bitastæðum
smáhlutverkum. -GE
Litla hafmeyian ★★★
Teiknimyndir Walts Disneys eru klassískar
og þegar ný kynslöö rfs eru þær settar á
markaðinn á ný og er ekkert annað en gott
um þaö aö segja. Litla hafmeyjan kom meö
ferskan blæ inn f þetta kvikmyndaform eftir
að teiknimyndir f fullri lengd höfðu veriö i
lægö um nokkurt skeið og hún,á fullt erindi
enn til ungu kynslóöarinnar. íslenska tal-
setningin er vel heppnuð. -HK
Maðurinn sem
ícómið morð
San Francisco-jarðskjálft-
inn 1906
Fyrir einu ári hefði það þótt fárán-
leg hugmynd að gera rómantiska
kvikmynd um tilurð og afleiðing-
ar jarðskjálftans mikla í San
Francisco árið 1906 en eftir sigur-
göngu Titanic varð handrit sem
rithöfundurinn James Daless-
andro hafði skrifað eftirsóttasta
handritið í Hollywood. Eftir að
stóru fyrirtækin höfðu bitist um
það hlaut Warner hnossið og hef-
ur þegar hafiö undirbúning. Jarð-
skjálftinn árið 1906 eru mestu
náttúruhamfarir í Bandaríkjunum
að mati margra en jarðskjálftinn
var talinn vera 8,3 stig á Richter
og loguðu miklir eldar í borginni í
fjóra daga. Barry Levinson hefur
verið nefndur sem líklegur leik-
stjóri.
The Truman Show
Hinn þekkti ástralski leikstjóri,
Peter Weir, þótti taka mikla
áhættu þegar hann
fékk Jim Carrey til
að leika aðalhlut-
verkið í The Tru-
man Show sem fjall-
ar um Truman
Burbank sem er, án
þess að hann viti, frægasta andlit-
ið í sjónvarpinu. Hann er stjarna
The Truman Show sem sýnt er all-
an sólarhringinn. Allt hans líf er
myndað og ailir sem hann um-
gengst og hann telur fjölskyldu,
vini eða kunningja eru leikarar.
Segir síðan í myndinni frá því
þegar Truman kemst að þessu og
reynir að losna úr sjónvarpsserí-
unni. Myndin hefur þegar vakið
umtal og er ein þeirra kvikmynda
sem menn bíða spenntir eftir að
verði frumsýnd.
Það er ekki laust við að The
Man Who Knew too Little hljómi
kunnuglega í eyrum kvikmyndaá-
hugamanna og ástæðan er að
sjálfsögðu sú að ein af frægum
kvikmyndum sem Alfred
Hitchcock gerði heitir The Man
Who Knew too Much. Sjálfsagt er
það ekki annað sem þessar mynd-
ir eiga sameiginlegt. The Man
Who Knew too Little er gaman-
mynd með Bill Murray í aðalhlut-
verki og er hún frumsýnd í Sam-
bíóum í dag.
Murray leikur Ritchie, af-
greiðslumann á myndbandaleigu.
Ríkur bróðir hans býður hon-
um til London. Ritchie birt-
ist á frekar óheppilegmn
tíma þegar bróðirinn,
James, er aö ganga
frá milljón punda
samningi. James
kaupir því miða á
leiksýningu hjá
leikflokknum
Theater of Life
þar sem áhorfend-
ur fá að taka þátt í
leiksýningunni.
Ritchie á aðeins
að bíða við sím-
ann og fá fyrir-
skipanir um hvað
hann eigi að gera og
í hvaða hlutverki
hann á að vera í. Sím-
inn hringir og Ritchie
telur að hann sé að fá það
hlutverk að bregða sér í hlut-
verk atvinnumorðingja og
fær hann fyrirmæli um
það hvað hann eigi
að gera. Það sem
Ritchie veit
ekki er
að símtalið sem hann tók á
móti var ætlað raunveru-
legum atvinnumorðingja
og því flækist Ritchie fljótt
inn í atburðarás sem hon-
um finnst mjög raunveru-
leg. Allir vita nákvæmlega
hvað þeir eiga að segja og
líkin, sem verða á vegi
hans, eru raunverulegri en
í öllum þeim kvikmyndum
hann hefur séð á mynd-
bandaleigunni.
Auk Bill Murray leika í
myndinni
Peter Gallagher, Joanne Whalley
og Richard Wilson. Leikstjóri er
Jon Amiel, breskur leikstjóri sem
varð þekktur þegar hann leik-
stýrði hinni rómuðu sjónvarpss-
eríu, The Singing Detective.
Fyrsta kvikmynd hans var Queen
of Hearts sem vakti mikla athygli
og var opnunarkvikmynd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes. The
Man Who Knew too Little er
þriðja kvikmyndin sem hann leik-
stýrir í Bandaríkjunum. Áður
hafði hann gert Sommersby og
Copycat.
IIIv
Bill Murray leikur afgreiðslumann á myndbandaleigu sem lendir í miklum ævintýrum í fyrstu ferð sinni til
London.
Michael Douglas,
Gwynneth Paltrow
og Viggo Mortensen
leika aðalhlutverkin
í A Perfect Murder,
sakamálamynd sem
frumsýnd verður i sumar. Er hún
lauslega byggð á klassískri mynd,
Dial M for a Murder. Leikstjóri er
Andrew Davis (The Fugitive). Ást-
aratriði milli Douglas og Paltrow
ollu nokkrum vandræðagangi hjá
þeim tveimur þar sem Douglas og
faðir Paltrow eru miklir vinir og
má segja að Michael Douglas hafi
haldið á Gwyneth frá því hún var
í vöggu. Atriðið var tekið en þau
voru ekki meira sannfærandi en
svo að það hefur nú verið klippt út
úr myndinni.
vissi of lítið
Dauði
Háskólabíó og Regnboginn halda
áfram að sýna listrænar kvikmyndir
á kvikmyndahátíöinni sem hefur yf-
irskriftina Vorvindar og er nú kom-
iö að fimmtu og sjöttu myndinni af
þeim átta sem sýndar verða. Allar
myndirnar hafa hlotið mikla athygli
og ótal viðurkenningar á kvik-
myndahátíðum víðs vogar um heim.
I þeím er lögð áhersla á hinn mann-
lega þátt og farnar óheföbundnar
leiöir til að segja sögur. Eru mynd-
imar ferskur andblær fyrir þá sem
vilja taka sér smáhvíld frá hinum
dæmigeröu afþreyingarmyndum.
Þær tvær myndir sem frumsýndar
voru á miðvikudag og verða sýndar
fram á þriöjudag eru Dauði í
Granada (Death in Granada) og Hin
ljúfa eilifð (The Sweet Hereafter).
Dauði í Granada
Dauði í Granada, sem Háskólabíó
sýnir, er umdeild spænsk kvikmynd
sem er byggð á sönnum atburðum. í
Vorvindar:
í Granada og Hin Ijúfa eilífð
henni er glímt viö ráðgátuna um
hinn dularfulla dauðdaga skáldsins
Federicos Garcia Lorca. Ricardo
(Esai Morales) er ungur blaðamaður
sem snýr aftur til Spánar eftir að
hafa búið í Puerto Rico með fjöl-
skyldu sinni frá byrjun spænsku
byltingarinnar. Á þessum tíma hefur
Ricardo fengiö brennandi áhuga á
lífi og starfi Garcia Lorca og er hann
staðráðinn í að komast að því hver
banamaður Lorca var í raun, sama
hvað það kostar. Aðrir leikarar í
myndinni eru Andy Garcia, sem
leikur Lorca, og Edward James
Olmos sem leikur skuggalegan yfir-
mann í hernum.
Hin Ijúfa eilífð
Hin ljúfa eilífö, sem Regnboginn
sýnir, er gerð af kandadíska leik-
stjóranum Atom Egoyan en hann
hefur sent frá sér myndir eins og
hina furðulegu mynd, Aðlagarann og
hina erótísku Exotica. Hin ljúfa ei-
lan Holm leikur lögfræðing í myndinni Hin Ijúfa eilífð