Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Page 5
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
19
Hfoi helgina
Frá flugmódelkeppni 1996 en á morgun veröa flugvélar af öllum stæröum og geröum á Hamranesflugvelli.
frá Krýsuvlkurvegi. Þegar farið er
frá Reykjavik er ekið eftir Reykja-
nesbraut uns komið er að íþrótta-
svæði Hauka sem er á vinstri hönd.
Þar þarf að aka út af veginum
hægra megin og síðan undir Reykja-
nesbraut og fram hjá Haukavelli til
að komast á Krýsuvíkurveg. Eftir
honum er síðan ekið um kílómetra
þar til komið er að vegi sem liggur
að Hamranesflugvelli. Leiðin mun
verða vandlega merkt.
Freyvangsleikhúsiö mætir i Þjóö-
leikhúsiö á sunnudaginn og býöur
höfuðborgarbúa velkomna i Villta
vestrið.
Þjóðleikhúsið:
Ahuga-
leiksýning
ársins
Hamranesflugvöllur:
Afmælis-
flugsýning
Kringlan:
Gunnella í nýju rými
Á morgun opnar Gunnella, Guð-
rún Elín Ólafsdóttir, sýningu á olíu-
myndum i hinu nýja sýningarrými
Kringlunnar og Gallerí Foldar á
annarri hæð Kringlunnar, gegnt
Hagkaupi.
Gunnella er fædd árið 1956. Hún
stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1974-1976 og
aftur 1983-1986. Hún hefur haldið
nokkrcir einkasýningar og tekið þátt
í samsýningum. Gunnella var bæj-
arlistamaður Garðabæjar á síðasta
ári. Sýningin er opin á sama tíma
og Kringlan og stendur til 22. júní.
í tilefni 10 ára afmælis Hamranes-
flugvallar efnir flugmódelfélagið
Þytur til glæsilegrar flugsýningar á
morgun ef veður leyfir. Flugsýning-
in mun hefjast kl. 13.30 með listflugi
véla i fullri stærð. Síðan verður fjar-
stýrðum flugvélum af öllum gerðum
og stærðum flogið til kl. 16 en sýn-
ingunni lýkur svo með listflugi véla
í fullri stærð. Eftir það verður dag-
skrá óformleg fram eftir degi.
Hamranesflugvöllur er skammt
fyrir sunnan Hafnarfjörð, spölkorn
Gunnella viö eitt verka sinna.
Hin serstæða hollenska íþrótt, kappskriö á tréklossum, verður kynnt Islend-
ingum um helgina.
Dubliners:
Kappskrio á
Um helgina verður haldin
„Grolsch-hátíð“ á veitingastaðnum
Dubliners með margs konar uppá-
komum. Þar verða á ferðinni alls
kyns leikir þar sem gestir geta unn-
ið sér inn veglega vinninga. Aðal-
númerið verður þó fyrsta íslands-
mótið í kappskriði á tréklossum
sem er sérstakt hollenskt fyrir-
brigði.
Keppnin verður haldin fyrir utan
tréklossum
Dubliners og fer hún þannig fram
að tveir keppendur keppa sín á milli
um það hvor sé fljótari að skríða eft-
ir 15 metra löngum plönkum fram
og til baka. Á öðrum endanum þarf
að klára einn Grolsch-bjór áður en
haldið er til baka. Plankamir eru
mjóir þannig að hætta er á að falla
af þeim, auk þess sem keppendur
verða með tréklossa á fótum sem
þeir mega ekki missa af sér.
Á sunnudaginn verður sýnt á
Stóra sviði Þjóðleikhússins leikritið
Velkomin í Villta vestrið í upp-
færslu Freyvangsleikhússins. Sýn-
ingin er í tilefni þess að stykkið var
valið áhugaleiksýning ársins fyrir
stuttu. Þetta er fimmta árið í röð
sem besta áhugaleiksýningin er
sýnd i Þjóðleikhúsinu.
Velkomin í Villta vestrið er sér-
staklega skrifað fyrir Freyvangs-
leikhúsið en höfundur þess er Ingi-
björg Hjartardóttir. Leikritið fjallar
um atburði í heimahéraði, átök kúa-
bænda og hestamanna. Freyvangs-
leikhúsið hefur áður komist á svið
Þjóðleikhússins er sýning þess á
Kvennaskólaævintýrinu varð fyrir
valinu leikárið 1994-1995. Helga E.
Jónsdóttir stjómaði þeirri sýningu
og gerir það ekki endasleppt því
hún stýrir hópnum einnig tii sigurs
i ár.
í umsögn sinni um sýninguna
segir dómnefnd m.a.: „Leikaramir,
sem em tuttugu talsins, ná margir
hverjir að skapa óvenjulegar og
minnisstæðar persónur og hópur-
inn vinnur vel saman sem heild á
sviðinu.
Leikstjórn sýningarinnar er
vönduð og ólíkir þættir tvinnast vel
saman. Leikmyndin er einfold en
falleg og nýtt á hugvitsamlegan
hátt. Þá falla búningar vel inn í
heildarmyndina.
Velkomin í Villta vestrið er
skemmtileg og vel unnin sýning
sem ber vott um mikinn metnað
þeirra sem að henni standa."
immsm
Áskriftarsíminn er 515 6100