Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Page 12
Iyndbönd
FÖSTUDAGUR 5. JUNI 1998
MYNDBANDA
#
i
fl'
||
ft
Lv
Perlur og svín:
Lísubakarí
★★'i
Helsti draumur Lísu er að komast á fjarlæga sólar-
strönd en þar sem fjölskyldan berst í bökkum verður bið á að draumurinn
rætist. Þau eru að reyna að koma sér upp þaki yfir höfuðið og Finnbogi,
maðurinn hennar, er með mörg jám í eldinum. Þau láta plata sig til að
kaupa bakarí en sambland heppni og klókinda færir þeim mikil og góð við-
skipti sem aftur ergir eiganda stórrar brauðgerðar sem er að missa við-
skiptavini til þeirra. Finnbogi reynir að drýgja tekjumar með sölu kyn-
lífstóla og sonur þeirra stundar vafasöm viðskipti með Lödur og vodka við
rússneska sjómenn. Allt endar síðan í miklu uppgjöri þar sem allir skilja
að lokum sáttir við sitt (nema auðvitað vondi brauðgerðareigandinn). Ósk-
ar Jónasson sýnir hér svipaða takta og í Sódóma Reykjavík, sem verður
þó að teljast sú betri af þessum tveimur. Perlur og svín er þó ágæt skemmt-
un og í betri kantinum af íslenskum myndum. Óskar býr til margar
skemmtilegar aðstæður í handritinu og skrifar skemmtilegar persónur.
Ólafía Hrönn er engli líkust í ljúfmennsku sinni, María Guðmundsdótth-
er sannfærandi fyllibytta og hrokagikkur og Ingvar Sigurðsson er alveg
stórfenglegur Rússi. Aðrir leikarar standa sig flestir vel. Þreytandi og leið-
inleg tónlist dregur myndina nokkuð niður.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Óskar Jónasson. Aðalhlutverk:
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Jóhann Sigurðarson og Edda Björgvinsdóttir. ís-
lensk, 1997. Lengd: 90 mín. Öllum leyfð. -PJ
Sólbruni:
Fortíðardraugur
★★★
Maroussi er gift stríðshetjunni Sergei Kotov og þau
3 eiga saman unga dóttur. Hún er hamingjusöm þrátt
fyrir að Sergei sé þó nokkuð eldri en hún, enda er
hann mikils metinn í sveitinni. Allt í einu kemur
Dimitri, gamall elskhugi Maroussi, í heimsókn. Hann
hefur ekki sést né til hans spurst I tíu ár, eða síðan
hann yfirgaf hana jafhskyndilega og hann nú kemur
aftur. Það er ekki laust við að Maroussi beri tilfinn-
ingar til hans enn þá, ekki síst eftir að hann gefur í
skyn að það hafi verið stríðshetjan Sergei Kotov sem
stuggaði homnn burt fyrir tíu árum, en þar reynist
meira búa að baki en hann lætur uppi. Það skemmtilegasta við þessa
mynd er hversu djúpar persónur Sergei og Dimitri eru og hvernig áhorf-
andinn fær að kynnast þeim smátt og smátt. Þær verða loks fullmótaðar
í blálokin. Það eru Oleg Menshikov og leikstjórinn Nikita Mikhalkov sem
leika þessa fjendur og ná að skapa sterkar persónur. Persónusköpun er
annars misjöfn og sumar persónurnar eru aðeins yfirborðskenndar
skrípafigúrur. Dramað byggist nokkuð hægt upp en verður mjög grípandi
í lokin og síðasti hluti myndarinnar er mjög eftirminnilegur.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Nikita Mikhalkov. Aðalhlutverk: Oleg Mens-
hikov og Nikita Mikhalkov. Rússnesk, 1994. Lengd: 130 mín. Öllum leyfð. -PJ
Waiting for Guffman:
Að slá í gegn *★*
Leiklistarkennarinn Corky St. Blair er lifandi þjóð-
sögn í smábænum Blaine í Missouri, enda hefur hann að
baki reynslu úr leikhúslífi New York. Hann tekur að sér
að setja upp söngleik í tilefni 150 ára afmælis bæjarins
og velur hæfileikaríkustu einstaklingana úr fremur litl-
um hópi bæjarbúa með leiklistardrauma í maganum.
Leikaramir kunna reyndar fremur lítið fyrir sér í dansi,
söng og leiklist, en það er sosum ekki verið að gera mikl-
ar kröíúr. En þegar fréttist að von sé á Gufíman, fulltrúa
frá virtu leikhúsi í höfuðborginni, kvikna með leikstjór-
anum og leikurum hans draumar um frægð og frama og
skal aldeilis taka á til að gera sýninguna sem glæsileg-
asta. Stór hluti myndarinnar er gerður eins og heimildarmynd, þar sem per-
sónumar era teknar tali og lýsa atvikum eins og þau koma þeim fyrir sjónir.
Þessi stíll er svolítið hæggengur en þjónar því hlutverki að undirstrika það
að persónumar era venjulegt smábæjarfólk og hægt væri að finna þeirra líka
hvar sem er. Leikaramir standa sig vel og skapa ljóslifandi og skemmtilegar
persónur. Þetta er gæluverkefni Christopher Guest sem leikstýrir og leikur
aðalhlutverkið. Hugmyndin er ágæt og margt fyndið i myndinni en tilrauna-
starfsemin gerir atburðarásina stundum svolítið stirða.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri og aöalhlutverk: Christopher Guest. Bandarísk, 1997.
Lengd: 90 mín. Öllum leyfö. -PJ
4§l fir s
Alien Resurrection:
Upprisa Ripley
★★★
Ripley var drepin í þriðju myndinni en lætur ekki
þannig smáatriði þvælast fýrir sér og mætir til leiks í
númer fjögur. Nú er hún klónuð úr genasulli hennar og
skrímslisins og við fáum e.k. Súper-Ripley, með svolítið
af styrk, skilningarvitum og hegðunarmynstrum óffeskj-
unnar. Þessi nýja Ripley er skemmtilega svöl en þvi mið-
ur gerist hún mannlegri eftir því sem líður á myndina. Það er franski leik-
stjórinn Jeunet sem fær það hlutverk að endurlífga Ripley og Alien-seríuna
og ferst það vel úr hendi. Hann hefur mjög sérstakan myndrænan stíl sem
nýtist honum vel í gerð myndar sem þessarar. í mynd sem er númer fjögur í
bálki er nauðsynlegt að taka sig mátulega alvarlega og Jeunet reynir sem bet-
ur fer ekki að búa til eitthvert meistaraverk. Hann gerir einfaldlega flotta af-
þreyingarmynd með skemmtilegum persónum og velur góða leikara í hlut-
verkin. Ripley hefúr ekki verið betri síðan í fyrstu Alien-myndinni en sakleys-
isleg Winona Ryder passar ffernur illa í hópinn. Aukaleikaramir era hver
öðrum betri og of langt mál að telja þá alla upp. Myndin þynnist allnokkuð út
í lokin en er engu að síöur næstbesta myndin í seríunni, á eftir þeirri fyrstu.
Útgefandl: Skifan. Leikstjóri: Jean-Pierre Jeunet. Aðalhlutverk: Sigourney Weaver
og Winona Ryder. Bandarísk, 1997. Lengd: 108 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Myndbandalisti vikunnar
1 n«f* • © • C 7/^W^ )* © «
1 —- 26 -01. júní
SÆTI j FYRRI i VIKA j VIKUR i Á LISTA j TITILL j “7 ÚTGEF. j j TEG.
1 J 3 i 3 J ) 2 J 2 i Game, The Háskélabíó j Spenna
2 2 j In&Out i ' .■■ " :■,;' ■ i). i SamMyndbönd j I Gaman
3 ' i i 1 3 i L.A. Confidential WamerMyndir j Spenna
4 J J Ný j 1 ■» j j Alien: Resurection 1 Skrfan > J Spenna
5 i 4 3 i That Old Feeling J CIC Myndbönd j Gaman
6 J j Ný 1 i j Playing God J Myndform Spenna
7 J i 5 7 J Peacemaker, The CIC Myndbönd J Spenna
8 : * 1 i PerlurogSvín i SamMyndbönd j j Gaman
9 i 6 3 i Spice World: The Movie j Skrfan j Gaman
10 J ‘ 7 J J ^ 8 j j Face/Off i SamMyndbönd J j Spenna
11 1 8 i 8 5 i Event Horizon CIC Myndbönd j Spenna
12 J i w j 2 i j HomeAlone3 1 Skrfan j Gaman
13 i 19 2 i She's So Lovely j J Skrfan j Spenna
14 J i n j 7 i j G.I. Jane i Myudfoim j Spenna
15 J i 9 5 i Life Less Ordinaty Skrfan 1 Gaman
16 i 10 j 8 i 1 j 4y Best Friend's Wedding i j Skrfan 1 '&z.' ■ ... ‘■•■-'7. J Gaman
17 i 12 4 J * j Chasing Amy Skrfan j Gaman
18 J | 16 j 8 > j j Shooting Fish i Stjömubíó J i Gaman
19 ! 17 6 i Excess Baggage Skrfan j Gaman
20 J ! 20 j . ii ! J AirForceOne j SamMyndbönd j Spenna
Sakamalamynd tekur við af sakamálamynd á toppi mynd-
bandalistans. Þær hafa sætaskipti L.A. Confidential og The
Game. Leikstjóri The Game er David Fincher, sem leik-
stýrði einhverri bestu spennumynd síöari ára, Seven. Þótt
the Game þyki síöri kvikmynd þá má ætla að ailir sem
höfðu gaman af Seven hafi einnig gaman af The Game því
höfundareinkenni David Finchers leyna sér ekki. Þrjár nýj-
ar myndir eru á iistanum, fjórða Alien-myndin, Alien:
Resurrection, fer beint í fjórða sætið og á myndinni er
Sigourney Weaver sem hefur leikið í þeim öllum. í sjötta
sæti er Þlaying God en það er fyrsta kvikmyndin sem Dav-
id Duchnovy (X-Files) leikur aðalhlutverkið í og í áttunda
sæti er íslenska kvikmyndin Perlur og svín, skemmtileg
gamanmynd þar sem leikgleðin leynir sér ekki. -HK
The Game In 8 Out L.A. Confid- Alien: Resur- That Old
Michael Douglas og Sean Penn. Kevin Kline og Joan Cusack. entiai rection Feeling
Nicholas Van Orton
á 48 ára afmæli. Frá
bróður sínum sem
hann hefur ekki séð
lengi fær hann gjafa-
bréf frá CRS-fyrirtæk-
inu sem sérhæfir sig í
að krydda tilveru
manna með óvæntum
uppákomum. Van
Orton þiggur gjafabréf-
ið en honum finnst
hugmyndin það fárán-
leg að hann leiöir ekki
hugann að henni fyrst
um sinn. Smám saman
er forvitni hans þó
vakin og það endar
með því að hann fer i
höfuðstöðvar fyrirtæk-
isins til að innheimta
gjöfma. Þar meö tekur
lif hans kollsteypu.
Lífið í smábænum
Greenleaf í Indiana
gengur sinn vanagang
fyrir utan dálitla
spennu sem er í loftinu
vegna óskarsverð-
launafhendingarinnar
en einn af sonum bæjar-
ins er tilnefhdur sem
besti leikari. Þegar sá
hlýtur verðlaunin þakk-
ar hann öllum sem hafa
stutt hann, meðal ann-
ars gömlum kennara
sínum, Howard Beckett,
sem hann segir að sé
hommi. Howard, sem
eins og aðrir bæjarbúar
hefúr fylgst með útsend-
ingunni, verður felmtri
sleginn, enda hefur
hann aldrei verið við
karlmann kenndur.
Hann reynir hvaö hann
getur til aö koma í veg
fyrir þennan misskiln-
ing sem veldur miklu
írafári í heimabæ hans.
Kevin Spacey og
Russell Crowe.
Hrottalegt morð er
framiö imii á litlum
veitingastaö og í ljós
kemur að einn hinna
myrtu er lögreglumað-
ur. Hvað hann var að
gera þama er félaga
hans í lögreglunni, Bud
White, hulin ráðgáta
enda bendir allt til þess
að hann hafi verið
flæktur í eitthvert
glæpsamlegt athæfi.
Bud ákveður þvi að
hefja rannsókn á mál-
inu upp á eigin spýtur
og kemst fljótlega að
því að þar með er hann
búinn að stinga sér út i
lífshættulegt hyldýpi
svika og morða þar
sem enginn er óhultur.
Sigourney Wea-
ver og Winona
Ryder
Alien: Ressurrect-
ion er fjórða kvik-
myndin i einhverri
vinsælustu framhalds-
seríu kvikmyndanna.
Flestir héldu að búið
væri að ganga frá serí-
unni í mynd númer
þrjú þegar Ripley var
látin drepast, en allt er
hægt i framtíðinni og
nú hefur hún verið
klónuð af hópi vísinda-
manna og hermanna
sem eru að fást við
gamlan draum. Þéir
vilja koma sér upp her
af óvættum og Ripley
er mikilvægur þáttur í
þeirri vinnu. I þessari
mynd er Ripley ná-
tengd geimverunum
og mun skuggalegri
persóna en áður.
Bette Midler og
Dennis Farina.
Lily og Dan hafa ver-
ið hamingjusamlega
skilin í flórtán ár og eiga
aðeins einn hlut sameig-
inlegan, dóttur, sem nú
er að fara að gifta sig.
Þar sem þau hafa aldrei
þolað hvort annað þá
munar engu að brúð-
kaupsveislan fari út um
þúfur þegar þau hittast
þar. í miðju klúðrinu
gerist nokkuð óvænt.
Ævafom ástameisti sem
allir héldu að væri
löngu kuinaður, ekki
síst Lily og Dan, blossar
skyndilega og verður að
miklu ástarbáli. Eins og
við er að búast breytast
allar aðstæður og skyndi-
lega era ástarfuglamir
komir á flótta undan æst-
um blaðaljósmyndara
sem ásamt stressaðri
dótturinni reynir að hafa
uppi á þeim.