Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1998, Qupperneq 8
MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1998
. 28
Iþróttir
Björgvin Sigurbergsson, GK, er lengst til hægri
meö sigurlaunin en hann varö í gær
íslandsmeistari ( holukeppni. í miöjunni er
Ólafur Már Sigurösson, GK, sem varö í ööru
sæti, og lengst til vinstri er Sveinn
Sigurbergsson, GK, sem hafnaöi f þriöja sæti.
Athygli vekur góö frammistaöa kylfinga úr
Golfklúbbnum Keili i Hafnarfiröi en þrír efstu
mennirnir eru allir t Keili.
Á myndinni til vinstri eru þrjár efstu konumar i
holukeppni kvenna. Lengst til hægri er Herborg
Arnarsdóttir, GR, sem varö í ööru sæti. Fyrir
miöri mynd er íslandsmeistarinn, Óiöf María
Jónsdóttir, GK, og lengst til vinstri er
Ragnhildur Siguröardóttir, GR, sem varö i
þriöja sæti.
DV-myndir Jói
Danny Granville vamarmaður
hefur verið keyptur til Leeds
United frá Chelsea.
Granville fékk engin tækifæri
hjá Vialli, stjóra Chelsea, og var
seldur á 1,6 milijónir punda.
Úrvalsdeildarlið Nottingham
Forest keypti um helgina Frakk-
ann Jean-Claude Darchewille frá
Rennes. Kaupverðið var 700 þús-
und pund.
Bandaríkjamaðurinn Maurice
Green náði frábærum árangri í
100 metra hlaupi um helgina á
móti í Bandaríkjunum.
Green hljóp á 9,88 sekúndum en
hafði áður hlaupið á 9,86 sekúnd-
um en meðvindur var þá of mik-
m.
Rallkeppnin á Hólmavík um
helgina þótti takast mjög vel og
heimamenn sýndu keppninni
töluverðan áhuga. Höfðu nokkr-
ir j>eirra á orði að gaman væri
að taka þátt í ralli i náinni fram-
tíð.
Þrir leikir fóru fram í 3. deild
karla í knattspymu í gær. Bmni
vann KFS, 2-0, Léttir tapaði á
heimavelli sínum fyrir Víkingi,
Ólafsvík, 2-3, og loks vann
Sindri stórsigur á heimavelli
Hugins, 0-7.
Sœnski kylfingurinn Mats
Lanner vann í gærkvöld sigur á
Madeira Island-golfmótinu á
Spáni. Lanner lék holumar 72 á
277 höggum, 11 höggum undir
pari.
Mats Lanner vann þama mjög
mikilvægan sigur því að með
sigrinum tókst honum að endur-
heimta leikrétt sinn á Evrópu-
mótaröðinni en þeim rétti tapaði
hann fyrir 18 mánuðum.
Spœnski miðvallarleikmaður-
inn Guillermo Amor, sem leikið
hefur með Barcelona, hefúr feng-
ið frjálsa sölu frá félaginu. Amor
er með spænska liðinu á HM en
hefur ekki náð sér á strik þar
frekar en aðrir leikmenn
spænska landsliðsins. -SK
HM-leikur Spörtu í síma
905 5050
Kemst þú í HM-liðið?
Ellefu bestu vinna HM-treyju frá Spörtu,
Laugavegi 49
Þú svararfjórum HM-spurningum.
Þeir ellefu sem komast oftast í pottinn
vinna HM-landsliðstreyju að eigin vali.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPARTA
Laugavegi 49 • Sími 551 2024,
66.50 mínútan
íslandsmótið í holukeppni í golfi:
Spenna og
gott golf
Björgvin Sigurbergsson, GK, varð
um helgina íslandsmeistari í holu-
keppni karla í golfl og Ólöf María
Jónsdóttir, GK, varð íslandsmeist-
ari í kvennaflokki.
íslandsmótið í holukeppni var
annað mótið í sumar í íslensku
mótaröðinni og gaf stig til landsliðs.
Björgvin lék til úrslita um ís-
landsmeistaratitilinn gegn Ólafi Má
Sigurðssyni, GK. Báöir léku þeir
mjög gott golf en svo fór að lokum
að Björgvin náði að knýja fram sig-
ur á 16. brautinni og sigraði því 3-2,
átti þrjár holur á Ólaf þegar einung-
is tvær holur voru eftir.
Þorsteinn Hallgrímsson, GR, og
Sveinn Sigurbergsson, GK, áttu að
eigast við í slag um þriðja sætið en
af baráttu þeirra varð ekki. Þor-
steinn varði aðfaranótt sunnudags-
ins á fæðingardeildinni þar sem
kona hans ól honum bam og mætti
Eyjapeyinn því svefnlaus í Grafar-
holtið að morgni sunnudags og var
skiijanlega ekki vel upplagður til
golfiðkunar. Ákvað Þorsteinn að
gefa leikinn gegn Sveini enda hafði
hann leikið 36 holur daginn áður.
Óiöf María sigraöi Herborgu
Til úrslita í kvennaflokki léku
þær Ólöf María Jónsdóttir, GK, og
Herborg Amarsdóttir, GR. Ólöf sigr-
aði eftir nokkra baráttu, 3-2.
Um þriðja sætið léku þær Þórdís
Geirsdóttir, GK, og Ragnhildur Sig-
urðardóttir, GR, og sigraði Ragn-
hildur, 3-2.
„Kylfingar vom að leika mjög
gott golf á þessu móti sem var gott í
alla staði. Margar viðureignir vom
jafnar og spennandi og þetta lofar
góðu fyrir sumarið," sagði Ragnar
Ólafsson landsliðseinvaldur í sam-
tali við DV í gærkvöld.
Björgvin í efsta sætinu
Staðan í stigakeppni karla til
landsliðs er þannig, 5 efstu menn:
1. Björgvin Sigurbergsson, GK .... 144
2. Þórður Emil Ólafsson, GL .......129
3. Sigurpáll Sveinsson, GA.........126
4. Sveinn Sigurbergsson, GK.......121
5. Ólafur Már Sigurðsson, GK .... 118
Staðan hjá konunum:
1. Ólöf María Jónsdóttir, GK......124
2. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR . . 119
3 Herborg Amarsdóttir, GR.........112
4. Þórdís Geirsdóttir, GK..........100