Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Qupperneq 3
17
FÖSTUDÁGUR 26. JÚNÍ 1998
* *
Pedro A modovar
mmm
Kvikt hold
Háskólabíó frumsýnir í dag nýj-
ustu kvikmynd spánska leikstjórans
Pedro Almodóvars, Kvikt hold (Car-
ne Tremula). Hefur þessi mynd
hans fengið víðast hvar góðar vitök-
ur. Fjallar hún um Victir Plaza, sem
ólst upp við ógnarstjórn Francos.
Eina heppni hans í lífinu er að hann
fær frítt í strætó alla ævi þar sem
hann fæddist í strætisvagni. Að-
stæður haga því svo að hann telur
að örlögin hafi leitt hann og Elenu,
dóttur diplómats saman, og ákveður
því að heimsækja hana eftir að hafa
átt með henni sína fyrstu kynlífs-
reynslu. Þegar hann kemur heim tii
hennar heldur Elena fyrst að hann
sé eiturlyfjasali sem hún er að bíða
eftir og heimsókn hans gerir líðan
hennar aðeins verri. Til sögunnar
koma tveir lögreglumenn, sem eins
og Victor og Elena hafa ekki átt góð-
an dag. Þegar fundum þessara fjög-
urra aðalpersóna sögunnar ber sam-
an á það eftir að hafa alvarlegar af-
leiðingar.
Pedro Almodóvar er af flestum
talinn einn merkasti kvikmynda-
leikstjóri dagsins í dag. Hann þykir
frumlegur og áræðinn og þótt allar
myndir hans hafi ekki verið i náð-
inni hjá gagnrýnendum þá hafa þær
alltaf vakið athygli og forvitni.
Pedro Almodóvar fæddist í bæn-
um Calazda De Calatrava í La
Mancha, 25. september 1951. Þegar
hann var tiu ár flutti hann til mun
stærri bæjar, Cáceres, þar sem
hann fór í fyrsta sinn í bíó. Það kom
fljótt i ljós að Almodóvar hafði ekki
sama smekk á kvikmynd og skólafé-
lagar hans og þegar hann fór að
segja þeim hversu stórkostleg hon-
um hafi fundist Meyjarlind-
in eftri Ingmar
Bergman héldu
þeir hann vera
orðinn snarrugl-
aðann. Þegar
Almodóvar var
sextán ára flutti
hann af sjálfsdáðum til Madrid.
Upprunalega var það ætlun hans
að fara í háskólanám, sem aldrei
varð af. Þegar hann svo fór að
kanna hvort einhver kvikmynda-
skóli væri starfandi kom í ljós að!
Franco hafði lokað þeim og var það
til þess að hann varð virkur í neð-
anjarðarstafsemi gegn Franco og
Kvikmyndir Pedro
Almodóvars í fullri
lengd:
Pepi, Luci, Bon y
otras chicas del
montón, 1980
Laberinto de
Pasiones, 1982
Entre Tinieblas, 1983
Que he hecho yo
para merecer esto?,
1984
Matador, 1985
La Ley del Deseo,
1986 Mujeres al bor-
de de un ataque de
nervios, 1987
Atame, 1989
Tacones Lejanos,
1991
Acción Mutante,
1992
Kika, 1993 La flor de
mi secreto, 1995
Carne Tremuia, 1997
Eftir langa og erfiðan
meðgöngu sendi
Almodóvar árið 1980
sína fýrstu leiknu kvik- jj
mynd í fullri lengd og 9
hefur hann síðan ein- \|
göngu starfað við kvik-
myndagerð og gert allar sín-
ar kvikmyndir á Spáni.
-HK
unda aratugnum
Francesca Neri leikur
örlagavaldinn Elenu.
a 8 millnnetra
tökuvél sina.
if
Liberto Rabal leikur hinn ógæfusama Victor Plaza
lenti oft í því að vera barinn af lög-
reglmmi þegar ógnarstjóm Francos
var mótmælt.
Áhugi Almodóvars á kvikmynd-
um dofnaði aldrei og notaði hann
þau átta ár sem hann vann hjá
Landsíma Spánar, til að kynna sér
leyndardóma kvikmyndavélarinnar
og gerði nokkrar
kvikmyndir á átt-
Háskólabíó -
Holdlegt líf
Myndir spænska leikstjórans Pedro Almodóvar hafa getið
sér frægð fyrir óvenjulega erótík og Antonio Banderas. Live
Flesh hefur bæði skemmtilega erótík og nýjan Antonio Band-
eras (Liberto Rabal) sem er strax byrjaður að sverja af sér Hollywood.
Plottið er lauslega byggt á sögu Ruth Rendell og segir frá einmana strák,
Victor, sem verður óvart ástfanginn af stúlku, Elenu (Francesca Neri),
sem hann á stutta fundi við inni á klósetti. Þegar hann heimsækir hana
bregst hún hin versta við, enda að bíða eftir eiturlyfjasala, og dregur upp
byssu. Lögreglu er tilkynnt um skot. Hún kemur á staðinn, Victor „pani-
kerar“ og annar lögreglumannanna verður fyrir skoti. Eftir sex ára fang-
elsisvist er Victor enn upptekinn af þessari stúlku en hún hefur losað sig
úr eiturlyfjum og er hamingjusamlega gift skotna lögreglumanninum,
David (Javier Bardem), sem er nú i hjólastól. Victor leggur á ráðin um
hefnd og heldur við eiginkonu hins lögreglumannsins og flækjast nú mál-
in mjög.
Þrátt fyrir sætan strák og skemmtilega takta er eitthvað sem ekki
gengur fullkomlega upp við þessa nýju mynd meistarans. Plottflækjum-
ar eru óþarflega fyrirsjáanlegar og einhvem veginn næst aldrei alveg
upp þessi spenna sem þráhyggja Victors og Davids krefst, auk þess sem
Francesca Neri náði varla að vera nógu heillandi (minnti of mikið á Júl-
íu Roberts). Sem betur fer er handritið býsna gott og heilmikið um
skemmtilegar smáuppákomur sem bjarga: Fundur Victors og Clöm,
konu hins lögreglumannsins, í kirkjugarðinum var frábærlega útfærður,
svo og samband þeirra. Samband Clöru og eiginmanns hennar var líka
KVIKMYUJA
vel gert, þrátt fyrir að dramað undir lokin væri nokkuð yfirkeyrt (meira
að segja miðað við spænska mynd!). Victor sjálfur var líka mjög skemmti-
lega útfærður og vel leikinn af Rabal - þó að persóna hans minnti
kannski óþarflega á persónu Banderas í Bittu mig, elskaðu mig - og 1
heildina litið verður að segja að þrátt fyrir alla galla séu myndir
Almodóvars alltaf þess virði að sjá.
Leikstjóri: Pedro Almodóvar. Aðalhlutverk: Javier Bardem, Francesca Neri,
Liberto Rabal. Úlfhildur Dagsdóttir
564 35 35
Gnoðavogi T-I - Nýbvlavegi 1T