Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
Djasshátíð í
Valaskjálf
Árni Isleifs lætur ekki deigan
síga því að hann stendur nú fyrir
elleftu djasshátíðinni á Egilsstöð-
um. Hún hófst i gær, 25. júní, og
mun ljúka á morgun, 27. júni.
Meðal þeirra sem koma fram á
hátíðinni er kvartett víbrafónleik-
arans Árna Schevings ásamt Þóru
Grétu Þórisdóttur djasssöng-
konu,Tríó Ólafs Stephensens og
Amis-kisulórurnar. Muff Worden,
Aðalheiður Borgþórsdóttir og Mar-
grét Lára (Lady M.) munu syngja
saman i djasstríói. Djasssmiðja
Austurlands býður upp á ungliða-
latínband og dixie- og swingband en
í lokin verður jam session þar sem
djassgeggjarar frá Austfjörðum, Ak-
ureyri, Húsavík og Reykjavík munu
leiða saman hesta sína. -SB
ná sjá þær fimm listakonur sem
ningunni í Gerðasafni.
Listaskálinn í Hveragerði:
íslensk grafík
Á morgun, 27. júní, verður sum-
arsýning félagsins íslensk grafik
opnuð í Listaskálanum í Hvera-
gerði. Sýning þessi er viðbót við
hinar hefðbundnu samsýningar fé-
lagsins sem haldnar eru fjórða
hvert ár.
Á sumarsýningunni sýna 12 fé-
lagsmenn verk sín. Þau eru Aðal-
heiður Skarphéðinsdóttir, Benedikt
G. Kristþórsson, Dröfn Friðfmns-
dóttir, Guðný Björk Guðjónsdóttir,
Hjalti Einar Sigurbjörnsson, Jó-
hanna Sveinsdóttir, Jónina Lára
Einarsdóttir, Kristín Pálmadóttir,
Sigrún Ögmundsdóttir, Sveinbjörg
Hallgrímsdóttir, Valgerður Hauks-
dóttir og Þorgerður Sigurðardóttir.
Öll verkin eru ný og unnin í hina
ólíku miðla grafíklistarinnar. Sýn-
ingin verður opin daglega frá kl.
13-18 og mun standa til 12. júlí.
Skúlaskeið í Viðey
Á morgun verður árlegt fjölskylduhlaup í Viðey.
A morgun, 27.
júní, verður hið ár-
lega fjölskylduhlaup
í Viðey. Það er
kennt við hinn
mikla athafnamann
Skúla Magnússon
landfógeta og nefnt
Skúlaskeið. Þetta er
3 km hlaup, skokk
eða ganga fyrir alla
fjölskylduna. Hlaup-
ið hefst kl. 14, en
bátsferðir verða á 20 mínútna fresti
frá kl. 12. Þátttökugjald er kr. 500
fyrir fullorðna og kr. 300 fyrir
böm. í gjaldinu er innifalið far-
gjald, enn fremur grillaðar pylsur
og kaldir drykkir að loknu hlaup-
inu. Loks fá allir þátttakendur
verðlaunapening með mynd af inn-
sigli Skúla fógeta, sem hlaupið er
kennt við. Þetta er ný gerð af pen-
ingum. Hlaupið hefst norðan Við-
eyjarstofu og því lýkur við grill-
skálann Viðeyjarnaust. Ferðir í
land aftur hefjast upp úr kl. 15. Öll
skipulagning og umsjón Skúla-
skeiös er í höndum Reykjavikur-
maraþons.
Hefðbundin gönguferð fellur nið-
ur þennan dag, en ljósmyndasýn-
ingin í Viðeyjarskóla er opin, eins
hesta- og hjólaleigan og grillskál-
inn siðdegis. Á sunnudag verður
staðarskoðun kl. 14.15.
Bátsferðir um helgar eru á
klukkutíma fresti frá kl. 13-17 og á
hálfa tímanum í land aftur. Þess
utan eru kvöldferðir og hægt er að
panta aukaferðir eftir þörfum.
5 H-00 FU.6. .
C US :M %
5 M H Z’* zoemixi.5
m helgina
** ik
SÝNINGAR
Eden, Hveragerði. Birgir Schiöth
heldur sýningu á 50 pastelmyndum
og teikningum. Sýningunni lýkur á
sunnudagskvöld.
Epal, Skeifunni 6. Anna María Sigur-
jónsdóttir með ljósmyndasýningu til
30. júni. Opiö alla virka daga frá kl.
9-8 og ld. 10-14.
Gallerí Gangur. ltobert Derriendt
sýnir olíumálverk út júni.
Gallerí Handverks & hönnunar við
Amtmannsstíg. Sigrún Lára Shanko er
með fyrstu einkasýningu sína á hand-
máluðum silkislæðum. Opið þd.-föd.
11-17 og ld. 12-16. Sýningunni lýkur ld.
27. júní.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15.
Páll Heimir Pálsson og Ólöf Sigríö-
ur Davíösdóttir með samsýningu.
Sýningin veröur opin alla daga kl.
11-23.30, sérinngangur þó aðeins
kl. 14-18, og stendur til 8. júli.
GaHerí Ingólfsstræti 8. Ný verk eftir
Sigurð Guömundsson. Sýningin stend-
ur til 26. júlí.
Galleri Listakot, Laugavegi 70.
Maria Valsdóttir sýnir textilskúlpt-
úra frá 13. til 28. júní.
Gallerí Lundur, Varmahlíö. Sigurrós
Stefánsdóttir er meö sýningu á olíu-
málverkum og vatnslitamyndum. Sýn-
ingin stendur til fód. 3. júlí og er opin
alla daga frá 10-18.
Gallerí Pizza, Hvolsvelli. Hafþór
Bjarnason sýnir vatnslitamyndir.
Sýningin stendur til 20. júlí.
Gallerí Stöölakot. Guðmundur W. VU-
hjálmsson meö sýningu á vatnslita-
myndum tU 28. júní. Opið frá kl. 14-18
aUa daga.
Gerðarsafn, Kópavogi. Sumarsýn-
ing Gerðarsafns. Á henni sýna
fimm Ustakonur. Opið alla daga
nema sd. frá 12-18 og stendur til 19.
júli.
Hafnarborg. Sýning eftir ýmsa lista-
menn í tUefni af 90 ára afmæli Hafnar-
fjarðar og 15 ára afmæli Hafnarborgar,
tU 4. ágúst.
Hafnarhúsið. Sýningin „Konur'* eft-
ir Erró. Opið kl. 10-18 aUa daga til
23. ágúst.
HaUgrímskirkja, Reykjavík. Eiríkur
Smith sýnir málverk.
Jómfrúin, Lækjargötu S.Organon,
ljósmyndasýning Ingu Sólveigar,
stendur út júní. Opið kl. 11-22.
Kjarvalsstaöir. Sýning á úrvali verka
úr eigu Listasafns Reykjavikur. Sýn-
ingin stendur tU 30. ágúst og er opin
frá kl. 10-18 alla daga. Leiðsögn um
sýninguna alla sd. kl. 16.
Linsan, Aðalstræti 9. „í viUubirtu
hugmyndanna" er yfirskrift kynn-
ingar i Linsunni á málverkum Óla
G. Jóhannssonar.
Listahátíð í Reykjavík. Útisýning á
vegum Listahátíðar í Reykjavík sem
Myndhöggvarafélagiö í Reykjavik
stendur fyrir. Sýningin er 6 km löng
og nær frá Sörlaskjóli í vestri og inn í
Fossvogsbotn..Stendur tU 7. október.
Listasaih ASÍ við Freyjugötu. í Ar-
instofu: Portrettmyndir af skáld-
um. I Ásmundarsal: Mannamyndir
eftir Ágúst Petersen til 5. júli. Opið
alla daga.nema mán. kl. 14-18.
Listasafn Islands, Frikirkjuvegi 7. Sýn-
ing á verkum eftir Max Ernst stendur
tU 28. júní. Opið frá kl. 11-17 alla daga
nema mád.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, Rvík. Sýning á
þrivíddarverkum úr málmi eftir
Om Þorsteinsson til 1. júli. Opiö
alla daga nema mán. kl. 14-17.
Listasetrið, Kirkjuhvoli, Akranesi. Nú
stendur yfir myndlistarsýning Bjama
Þórs Bjamasonar. Sýningin er opin
daglega frá kl. 15-18 og lýkur 5. júlí.
Listaskálinn í Hveragerði. Bubbi
(Guðbjörn Gunnarsson) högg-
myndalistamaður er með sýningu í
garði skálans. Sýningin stendur til
16. sept. Einnig er sumarsýning 12
listamanna sem sýna grafíkverk til
12. júlí.
Listhúsiö í Laugardal, Engjateigi 17.
Sjöfn Har. er með sýningu. Opið virka
daga 12-18. Laugardaga 11-14.
Loftkastalinn. Sýning á verkum eft-
ir Arnór Bieltvedt Ustmálara.
Norræna húsið. „Skjáir veruleikans'',
sýning á verkum 10 evrópskra listmál-
ara, stendur tU 28. júní. Opiö frá kl.
14-19 alla daga.
Nýlistasafnið. Þrjár einkasýningar.
Að þeim standa listamennirnir Ein-
ar Falur Ingólfsson, Erla Þórarins-
dóttir og Harpa Árnadóttir. Á sama
tíma er bókverkasýning eftir sviss-
neska listamanninn Dieter Roth.
Opið frá kl. 14-18 alla daga nema
mád. og lýkur 28. júní.
Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaða-
stræti 74. Sumarsýning á verkum Ás-
gríms. Opið aUa daga nema mánud. kl.
13.30-16.
Stofnun Áma Magnússonar Hand-
ritasýningin „Þorlákstiðir" til 31.
ágúst. Opið aUa daga kl. 13-17.
Stöðlakot viö Bókhlöðustíg. Guðmund-
ur Vilhjálmsson. Síðasta sýningar-
heigi.
Akógessalurinn í Vestmannaeyjum.
Ríkey Ingimundardóttir heldur
sýningu á verkum sfnutn.
Café Riis, Hafnarbraut 39, Hólmavík.
Kári Sigurðsson myndlistamaður er
með sýningu sem ber yfirskriftina „Á
ströndum’'.
Gallerí Sölva Helgasonar að Lón-
koti í Skagafirði. Ragnar Lár er
með myndjistarsýningu.
Listasafn Árnesinga á Selfossi. Inga
Margrét Róbertsdóttir sjúkraþjálfari
heldur sýningu á ljósmyndum, textum
og textílum. Opið 14-17 aUa daga nema
mád. til 28. júní.
Ijósmyndakompan, Kaupvangs-
stræti, Akureyri. Ljósmyndasýning
eftir svissneska visinda- og Usta-
manninn Andreas Zúst.
Safnahús Borgarfjaröar. Daði Guð-
björnsson sýnir frá 27. júní- 16. ágúst.
Slunkaríki á Isafirði. 4 listamenn
eru meö sýningu á verkum sinum.
Sýningin ber yfirskriftina Vestur.
Opið fid.-sud. frá kl. 16-18. Sýning-
in stendur til 28. júni.
Sögusetrið á Hvolsvelli. Sýningin „Á
Njáluslóð'1.