Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Síða 12
26 (myndbönd -A ; 5 * ★ 4 MYNDBffHDA Gattaca: *** Undir járnhæl erfðafræðinnar Gattaca gerist í framtíðarþjóðfélagi þar sem erfða- vísindi eru orðin ráðandi þáttur í samfélaginu. Getnaður fer í flestum tilfellum fram með gervifrjóvgun, þar sem allir helstu mögulegu erfða- fræðilegu gallar eru útilokaðir. Vincent Freeman er getinn á venjulegan hátt og telst því erfðafræðilegt úrhrak. Hann dreymir um að gerast geimfari en uppruni hans og meðfæddur hjartagalli útiloka þann draum. En það er hægt að finna leiðir framhjá öllu, m.a.s. jafn óskeikulum vís- indum og erfðafræðinni. Vincent kemst að hjá geimferðafyrirtækinu Gattaca á fölskum forsendum, en reglulegt eftirlit með blððprufum, þvagsýnum og læknisskoðunum skapa stöðuga hættu á að upp um hann komist. Þessi mynd gerði ekki miklar rósir í kvikmyndahúsunum og ástæðan er einföld - hún er alveg laus við hasar og grín og er því utan- veltu í nútíma afþreyingarmenningu. Hins vegar býður hún upp á margt sem kröfuharðari áhorfendur kunna að meta, eins og góðan leik og per- sónusköpun, athyglisverða sögu og góða spennu sem er byggð upp í gegnum vitsmunalega sögu, fremur en ofbeldiskenndan bægslagang. Þetta er ein af þessum afar sjaldgæfu greindarlegu framtíðarmyndum. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Andrew Niccol. Aðalhlutverk: Ethan Hawke og Uma Thurman. Bandarísk, 1997. Lengd: 106 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ George of the Jungle: **** Hinn klaufalegi konungur frumskógarins George á svipaða sögu og Tarzan apabróðir. Hann týndist eftir flugslys í hjarta Afríku og var alinn upp af góriilum, einna mest af sérstaklega siðmenntaðri talandi górillu (John Cleese). Hann hefur þann hæfi- leika að geta talað við dýrin í skóginum, hann er feykisterkur og getur sveiflað sér milli trjáa af mik- illi list, þótt hann endir reyndar sveiflurnar yfirleitt með því að fletja andlitið á sér út á trjábol. Auð- mannsdóttirinn Ursula villist inn í ríki hans og tek- ur hann með sér heim í heimsókn til siðmenningar- innar. Þetta er ein af þessum myndum sem tekur vel þekktar klisjur upp á sína arma og leikur sér með þær þannig að þær verða eins og nýjar. Sagan er tómt bull frá upphafi til enda, en full af skemmtilegum uppákomum, og sprenghlægileg mestallan tímann. Þar skipta mestu máli ótvíræðir hæfileikar Brendan Fraser í líkamlegum gamaleik og hann fer létt með að vera þungamiðja myndarinnar og helsta brandarasmiðja. Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Sam Weisman. Aðalhlutverk: Brendan Fraser. Bandarísk, 1997. Lengd: 88 mín. Öllum leyfð. -PJ The Jackal: Amerísk og rússnesk samvinna Rússneskur mafíósi telur sig eiga eitthvað sökótt við bandarísku alríkislögregluna og ræður færasta leigumorðingja heimsins til að senda þeim skýr skilaboð um afleiðingar þess að kássast upp á sig. Þegar FBI og rússneska herlögreglan komast á snoð- ir um þessar fyrirætlanir taka þau höndum saman um að finna morðingjann og stöðva hann, en það eina sem þau vita um hann er að hann gengur und- ir nafhinu Sjakalinn. Eini maðurinn sem vitað er til að hafi séð Sjakalann er írskur hryðjuverkamaður og er honum því kippt tímabundið úr fangelsi til að aðstoða við rannsóknina. Eins og í langflestum hasarmyndum er söguþráðurinn heimskulegur og persónusköpun í grynnsta lagi. Væmni og melódramatík er í aðeins meiri mæli en geng- ur og gerist, og hasarinn er í rétt rúmu meðallagi. Ágætur leikhópur nær síðan að lyfta myndinni upp á örlítið hærra plan. Sidney Poitier er að vísu fremur myglaður og Richard Gere ekki mikið meira en fram- bærilegur, þótt hann skarti ágætum hreim, en Bruce Willis er ofursval- ur í hlutverki vonda kallsins og Diane Venora eiginlega ennþá svalari sem rússneska ofurlöggan. Myndin gengur fyllilega upp sem afþreying- arefni í skárri kantinum en gerir ekkert meira. Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Michael Caton-Jones. Aðalhlutverk: Bruce Willis og Richard Gere. Bandarísk, 1997. Lengd: 119 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Un átá á la Goulette: í sátt og samlyndi *** Myndin gerist sumarið 1967 í litla sjávarbænum Goulette í Túnis, þar sem múslíminn Youssef, gyð- ingurinn Jojo og kaþólikkinn Guiseppe eru perluvin- ir. Sama má segja um dætur þeirra Mériem, Gigi og Tinu, sem ákveða að missa meydóminn um sumarið. Ákvörðun þeirra og athafnir vekja litla hrifningu hjá feðrum þeirra, ekki síst vegna þess að til verksins velja þær allar stráka úr öðram trúhópum. Nú reyn- ir á hvort vinaböndin eru nógu sterk til að yfirvinna fordóma og spennu á grundvelli trúarbragða þeirra. Goulette er e.k. paradís þar sem ólíkir menningar- heimar mætast i sátt og samlyndi, en atburðir úti í heimi, svo sem spennan i Miðausturlöndum, ógna friðnum í paradís- inni, og háttalag stelpnanna er sem olia á eld. Allir ná sáttum í lokin og paradísin er óhult i bili. Samkvæmt texta i lok myndarinnar stóð það stutt yfir og kristnir og gyðingar flúðu land skömmu síðar. Þar með verður myndin nostalgísk minning um horfna paradís. Svolítið ýktur leikur dregur myndina niður og sömuleiðis ruglingsleg atburðarás, en myndin var rúmlega hálfnuð þegar ég var loksins farinn að átta mig á því hverjir tilheyrðu hvaða fjölskyldu. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Férid Boughedir. Aðalhlutverk: Of marg- ir til að telja upp. Frönsk, 1997. Lengd: 100 mín. Öllum leyfð. -PJ SÆTI j FYRRI VIKA ; VIKUR Á LISTA IjHHHH TITILL j j j. j ÚTGEF. J j j TEG. i : 1 J 2 j Tomorrow Never Dies J J J Sam Myndbönd J Spenna 2 i j Ný ! i j The Jackal j j CIC Myndbönd j j Spenna 3 ! Ný ! i George Of The Jungle SamMyndbönd f Gaman J 4 ! 2 ! 3 i j j 1 Know What You Did Last Summer j j j Skrfan J j Spenna 5 ! 3 i 5 The Game Háskólabíó j Drama J 6 i nwn 4 J 5 i In & Out j j SamMyndbönd Gaman j 7 J j 8 ! J 5 ! 6 j L.A. Confidential j j Alien Resurrection j j J WamerMyndir J Spenna 6 j ! 4 j Skífan J j Spenna 9 ! Ný j i i Gattaca Skífan 1 j Spenna io ! j Ný i i One Night Stand j j j Myndform i j Drama ii ! 7 1 4 j Perlur&Svín Sam Myndbönd J Gaman 12 | 9 j j 6 j j j That Old Feeling CIC Myndbönd Gaman 13 ! 10 i 2 ! 8 Heads In A Duffle Bag ! J Bergvík j Spenna Ihhhi 14 ! ) 8 iggg/m ! 3 j j Plump Fiction J J BHMU Myndform ■ - • j Gaman 15 i 1 12 ! ío j The Peacemaker i,. w .... , t~ CICMyndbönd J .V,. .. „ Spenna 16 í ■ • • j 11 J J' 4 FnBHBHI > ) Playing God j j | ) - Myndform J Spenna ! 16 j n J My Best Friend's Wedding J Skffan J Gaman j 18 J j 13 I s J ! Life Less Ordinary j j J Skífan J ''■■■'' ■ J Gaman 19 i 14 ! u ! Face/Off SamMyndbönd J Spenna : J 20 ; Ný j j í D.N.A. • I Myndform J Spenna 9. -15. júní James Bond situr sem fastast í efsta sæti myndbandalistans þrátt fyrir harða atlögu The Jackal, þar sem innanborðs eru stórstjörnurnar Bruce Willis og Richard Gere. Kemur hún beint inn í annað sætið. í þriðja sæti er einnig ný mynd, gamanmynd- in George of the Jungle, en hún var ein þeirra kvikmynda á síö- asta ári sem kom á óvart hvað vinsældir varöar. Fleiri nýjar myndir eru á listanum. I níunda sæti er framtíðartryllirinn Gattaca, sem því miöur komst ekki á hvíta tjaldiö hér á landi, en það er staðreynd að slíkar myndir njóta sín betur á breiðtjaldi. Þá má einnig geta One Night Stand, nýjustu kvikmyndar Mike Figgis, þess hins sama og gerði verðlaunamyndina Leaving Las Vegas. -HK Tomorrow Never Dies Pierce Brosnan og Jonathan Price. Styrjöld milli Bret- lands og Kína vofir yfir eftir aö kín- verskar þotur sökkva bresku herskipi undan strönd Víetnams. Þnunu lostnir fulltrú- ar krúnunnar og hers- ins spyrja sig hvernig í ósköpunum herskip- inu tókst að villast svona rækilega af leið. Og hvers vegna brugð- ust Kínverjar svona harkalega við? Lausn- in á gátunni er falin í bækistöðvum fjöl- miðlakonungsins Elliots Carvers og að- eins einn maður er fær um að leysa gátuna og koma í veg fyrir stríð. Hann heitir Bond, James Bond. The Jackal Bruce Willis og Ric- hard Gere. Launmorðingi (Bruce Willis) er ráð- inn af rússneskum glæpasamtökum til að drepa háttsettan aðila i bandaríska stjóm- kerfinu. Alríkislög- reglufulltrúinn Carter Preston (Sidney Poiti- er) og rússneska lög- reglukonan Valentina Koslova (Diane Ven- ora) reyna i samein- ingu að hafa upp á launmorðingjanum og stöðva hann en það eina sem þau vita um hann er að hann geng- ur undir nafninu „Sjakalinn". Þau neyð- ast til að semja við írskan hryðjuverka- mann (Richard Gere) sem situr í bandarísku fangelsi og er eini maðurinn sem vitað er til að hafi séð Sjakal- ann. George of the Jungle Brendan Fraser. í George of the Jungle er mikið grín gert að Tarsan-ímynd- inni. Aðalpersónan er George sem hefur alist upp frá unga aldri i skóginum meðal dýr- anna. Þangað kom hann þegar flugvél sem hann var í ásamt foreldrum sínum hrapaði. Hann vingast við öll dýrin og er þegar myndin hefst orðinn konungur frum- skógarins þar sem hann eyðir deginum í að sveifla sér úr einu tré i annað. Dag einn verður breyting á högum Ge- orge þegar hann bjargar af tilviljun ungri stúlku, Ursulu, frá þvi að lenda í ljónskjafti. Ursula er hefðardama sem kemur til skógarins i leit að ævintýrum og frnnur þau eins og nærri má geta. I Know what You Did Last Summer Jennifer Love Hewitt og Sarah Michelle Gellar. Helen, Barry, Julie og Ray eru búin að ljúka prófum og stefna hvert í sína áttina næsta vetur. Öll hafa þau metnað til aö gera stóra hluti í lífinu og stefna hátt. Á þjóðhá- tiðardaginn keyra þau út á afskekkta strönd og skemmta sér þar við drykkju og hryllings- sögur en á leiðinni heim verða þau fyrir því óhappi að keyra á mann sem liggur hreyf- ingarlaus eftir. Þau sjá fyrir sér hneyksli og jafhvel ákærur fyrir manndráp af gáleysi og ölvim við akstur. Þau ákveöa því að losa sig við líkið með því að fleygja því í sjóinn. The Game Michael Douglas og Sean Penn. Nicholas Van Orton á 48 ára afmæli. Frá bróður sinum sem hann hefur ekki séð lengi fær hann gjafa- bréf frá CRS- fyrirtæk- inu sem sérhæfir sig i að krydda tilveru manna með óvæntum uppákomum. Van Orton þiggur gjafabréf- ið en honum finnst hugmyndin það fárán- leg að hann leiðir ekki hugann að henni fyrst um sinn. Smám saman er forvitni hans þó vakin og það endar með því að hann fer í höfuðstöðvar fyrirtæk- isins til að innheimta gjöfina. Þar með tekur llf hans kollsteypu. r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.