Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 7 I>V Sigmundur Guðbjarnason, fyrrverandi háskólarektor: Mótfallinn gagna- gr u nnsfr u mvarpinu - telur einkarétt leiða til stöðnunar „Ég lít á þetta sem tvö vandamál. Annars vegar er þetta spuming um hvort setja eigi upp miðlægan gagna- grunn en hins vegar spuming um hvort veita eigi einkarétt á tilteknum rannsóknarsviðum," segir Sigmundur Guðbjamason, fyrrverandi háskóla- rektor, um fyrirhugað frumvarp um gagnagrunna. Varðandi smiði gagnagrunnsins sjálfs segist Sigmundur helst kjósa að menn geti unnið með þá gagnagrunna sem þegar em fyrir hendi og hafa stuðlað að ágætum árangri. „Þar með væm menn ekki að stofna til þess ófriðar sem fylgir miðlægum gagna- granni sem er umdeilt efni víða um lönd. Þetta hefur til dæmis hvergi ver- ið heimilað í nágrannalöndunum þótt eftir þvi hafi verið leitað. Ég tel bæði að hið ágæta fyrirtæki, íslensk erfðagreining, þurfi ekki slíkan grunn og að önnur fyrirtæki á sama vett- vangi hafi eðlilegan aðgang að þeim gagnalindum sem fyr- ir eru.“ Fráleitt að veita einkarétt „Um einkaréttinn hefur það komið fram að menn hafa ekki eingöngu sóst eftir einkarétti á smíði gagnagrunns heldur einnig á rannsóknum á hveraörverum, svo að dæmi sé tekið. Mín skoðun er að menn eigi að samnýta þær auð- lindir sem fyrir hendi em í rannsóknum, á hvaða sviði sem þær era. Það er sjálfsagt að menn fái einkaleyfi á því sem menn hafa sjálfn skapað, hvort sem það er tæki, þekk- ing eða aðferð. Þær gagnalindir sem hér er um að ræða hafa hins Sigmundur vegar fjölmargir skapað Guðbjarnason. á löngum tima og era þar af leiðandi ekki sköpunarverk eins manns. Því tel ég fráleitt að veita einhverjum aðila einkaleyfí á þessum gagnalindum." Sigmundur telur hætt við að einka- rétturinn muni leiða til stöðnunar á viðkomandi rannsóknarsviðum ef það verður veitt. „Ég þekki það mætavel af eigin reynslu hvaða áhrif einkarétt- ur hefur á framgang rannsókna. Það var til að mynda ríkt viðhorf þegar ég kom heim frá Bandaríkjunum kring- um 1970 að tilteknar sto&anir töldu sig hafa einkarétt á vissum rannsókn- arsviðum. Innan tíðar var þó rýmkað um þetta og afleiðingamar urðu frjórra samstarf bæði einstaklinga og stofnana, hraðari framfarir og aukin afköst." -kjart Fréttir Tannaförí kálfa lög- reglumanns Lögreglumaður í Reykjavík var bitinn illa í kálfann þegar verið var að koma til hjálpar manni sem hafði legið á götu í vestur- bænum á laugardagskvöldið. Tildrögin voru þau að klukkan rúmlega tíu um kvöldið var til- kynnt um mann sem lá hreyfmgar- lítill við Ægisíðu. Þegar lögreglu- menn komu á staðinn reyndist maðurinn ölvaður. Ákveðið var að aka manninum á brott og var hann færður inn í lögreglubíl. Þegar þangað var komið rankaði götu- maðurinn heldur við sér og beit einn lögreglumannanna illa í hægri kálfann. Að sögn lögreglu komst sá mis- skilningur á kreik aö stykki hefði verið bitið úr fæti lögreglu- mannsins en svo reyndist ekki vera. Engu að síður bólgnaði kálfínn illa og tannaför „götu- mannsins" vora greinileg í kálf- anum sem marðist illa. Lögreglu- maðurinn var sprautaður með sýklalyfi og síðan geflnn skammt- ur til að taka inn. -Ótt SUZUKI SWIFT GERIR INNANBÆJARAKSTURINN SKEMMTILEGRI Rúmgóður, sparneytinn, nettur og lipur að keyra. Sestu inn og láttu fara vel um þig. 5WIFT 1.3 GLS; 3d 98( SWIFT 1.3 GLX, 5d 1.020.000: 1 ÓVENJU MIKILL STAÐALBÚNAÐUR FYRIR BÍL I ÞESSUM VERÐFLOKKI Vökvastýri • 2 loftpúðar • Þjófavörn • Samlæsingar Krumpusvæði að framan og aftan • Upphituð framsæti Rafmagn í rúðum og speglum • Samlitaðir stuðarar Hæðarstillanleg öryggisbelti • Hemlaljós í afturglugga Skolsprautur fyrir framljós • Styrktarbitar í hurðum eins taklega $ SUZUKI SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabtaut 2, síml 431 28 00. Akureyrl: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavik: BG bílakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.