Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Page 12
12 ÞREÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 Spurningin Hlakkarðu til að byrja í skólanum? Atli Freyr Friðbjömsson, nemi í Háteigsskóla: Bæði og. Máni Ólafsson, nemi í Valhúsaskóla: Nei, alls ekki. Ég hef ekkert á móti lengra sumarfríi. Egill Búi Einarsson, nemi i Valhúsaskóla: Nei, ég kvíði fyrir. Mér þykir frekar leiðinlegt í skólanum. Sigurbjöm Agnar Daníelsson, nemi i Iðnskólanum: Nei, ekkert rosalega. Ásgeir Þór Guðmundsson, 12 ára: Nei, ekki get ég sagt það. Ég er að byrja í nýjum skóla og veit ekki hvort mér mun líka það. Margrét Ögmundsdóttir, nemi í Fellaskóla: Já, já. Það er alltaf ágætt að byrja í skólanum. Lesendur Vannýttur Kefla- víkurflugvöllur - markaðssetning má sín einskis Magnús Jónsson skrifar: Það er flestum sem fylgjast með fréttum af samgöngumálum, að ekki sé talað um málum er snerta flug til og frá landinu, ljóst að Keflavíkur- flugvöllur er mjög vannýttur flug- völlur, svö að ekki sé meira sagt. Aðalálagstímarnir á þessum eina al- vöruflugvelli hér á landi eru á tveimur tímum sólarhringsins; eldsnemma morguns og svo aftur siðdegis þegar íslenskar áætlimar- flugvélar koma frá Evrópu. Það er því deginum ljósara að væri Kefla- víkurflugvöllur betur nýttur þyrfti ekki að hafa svo miklar áhyggjur af rekstrarstöðu hans. íslenska flugstjómarsvæðið er afar stórt, nær yfir rúma 5 milljón ferkílómetra. Það er hins vegar ástæðulaust að ætla að eitthvert af þeim fjölmörgu flugfélögum sem um það fara hafi hug á að notfæra sér Keflavíkurflugvöll sem lendingar- stað. Skattlagning á Keflavíkurflug- velli er t.d. hærri og umfangsmeiri en víðast annars staðar. Ég nefni til sérstakt gjald á flugvélaeldsneyti og farþegaskatt og vopnaleitargjald á hvem brottfararfarþega. Og flefra kemur til. Markaðssetningu Keflavíkurflug- vallar er afar áfátt, raunar ófull- nægjandi með öllu. En ekki er við Markaðsráð aö sakast eingöngu. Því era skorður settar af ríkisvaldinu og oft einstökum ráðherram sem fara með mál vallarins og dæmi era um að togstreita milli ráðuneyta að ráða einstökum málaflokkum gerir ástandið óþolandi. Öll aðstaða á Keflavíkurflugvelli er þó mjög góð og samkeppnisað- Á Keflavíkurflugvelli. Öll aðstaða til reiðu en pólitískir vindar hindra betri nýtingu. staða gagnvart Reykjavíkurflugvelli margfalt betri. Betri flugbrautir, lægri lendingargjöld og opið allan sólarhringinn, gagnstætt því er ger- ist í Reykjavík. Það liggur því ljóst fyrir að Markaðsráð Keflavíkurflug- vallar verður að knýja á um að aflt innanlandsflug verði flutt til Kefla- víkurflugvallar. Það er mikið átak og á brattann að sækja gagnvart stjómmálamönnum sem vilja halda innanlandsfluginu óbreyttu við hin- ar ófullkomnu og ólöglegu aðstæður vegna atkvæða af landsbyggðinni. Með þeirri framkvæmd yrði Keflavíkurflugvöllur allvel nýttur og öryggi farþega myndi færast í það horf sem alþjóðareglur kveða á um. Þar skortir verulega á við lend- ingar á Reykjavíkurflugvelli. Sveit- arstjórn Reykjanesbæjar ber skylda til að standa vörð um Keflavíkur- flugvöll og veita Markaðsráði vall- arins alla þá aðstoð sem hún getur. Ekki síst þar sem Markaðsráði Keflavikurflugvallar er vandi á höndum um markaðssetningu á meðan rlkið og stjórnmálamenn nota flugvöllinn sem bitbein um bit- linga fyrir ótalda starfshópa og stéttir. Allt eftir hinum pólitísku vindum. Otiðindi af Flugleiöum Guðrún Einarsdóttir hringdi: Það eru mikil ótíðindi sem okkur landsmönnum berast af Flugleiðum, þessu eina flugfélagi sem heldur uppi reglulegu utanlandsflugi. Von- andi átta menn þar á bæ sig á fjár- reiðum og þvi hvar rétti markaður- inn bíður. Verði það ekki niðurstað- an virðist fátt til bjargar annað en sameining við eitthvert öflugt er- lent flugfélag sem treystandi er til að bjóða okkur viðunandi kjör í flugi til og frá landinu. Verst var að heyra um að Flug- leiöir skuli ætla að gefa Lúxemborg upp á bátinn, þennan trausta lend- ingarstað í miðri Evrópu þaðan sem vegir liggja til allra átta. Þar er lltil sem engin glæpatíðni og því eftir- sótt að leggja upp í ferð þaðan áfram, t.d. með lest eða bílaleigubíl. Bíll skráður í Lúxemborg er mun örggari en frá öðrum löndum Evr- ópu. Þeta vissu reyndir farþegar, ekki sist frá Bandaríkjunum. Ég held að það hafi verið rangt af Flugleiðum að leggja niður flug til Lúxemborgar, það hefði frekar átt að leggja kapp á að markaðssetja það flug betur vestanhafs með tilliti til þessa og fleiri þátta sem draga farþega þaðan til Evrópu. Hreinsun í Háaleitishverfi - snör handtök hjá borginni Snör voru handtökin við hreinsun illgresis á mót- um Háaleitisbrautar og Hvassaleitis. Sigurður Þórðarson hringdi: í lesendabréfi í DV sl. mánudag las ég skrif frá Angelu Baldvins sem tjáði sig um að snyrtingu á vegum borgarinnar væri verulega áfátt í Háaleitishverfi hér í Reykjavík. Birtist með mynd því til sönnunar þar sem njóli og annar óþurftar- gróður yxi innan um falleg tré sem plantað hefði verið á gatnamótum Háaleitisbrautar og Hvassaleitis. Þetta voru orð í tima töluð hjá Angelu því víða er þama ósnyrti- legt um að litast. Hefur Reykjavík- urborg ekki sinnt umhvertishreins- un sem skyldi alls staðar þótt ann- ars staöar sé allt til fyrirmyndar. Einkum á fjölfömum stöðum. íbúðahverfin hafa víða orðið útund- an og tek ég sem dæmi gömlu vest- urborgina, t.d. í götunum inn af Hringbrautinni vestanverðri þar sem arfi og gras vex ár eftir ár upp úr rennusteinum og gangstéttarhellum og hellurnar sjálfar orðn- ar svo skakkar og skældar að þær rísa allt að því upp á rönd. En talandi um lesenda- bréf Angelu frá því sl. mánudag verð ég að geta þess að eftir að bréf hennar birtist í DV liðu ekki nema einn eða tveir dagar þar til kominn var maður með sláttuvél og farinn að slá illgres- ið. Þetta voru snör handtök hjá borginni. Ég gat ekki látið hjá líða að kalla á ljós- myndara til að smella af mynd í tilefni þessa. Það er aðkallandi að Reykjavíkur- borg sinni hreinsun og endurnýjun á gangstéttarhellum víða. Ég er viss um að íbúamir meta það með því að ganga betur um utan dyra. Þar er enn ljóður á ráði borgaranna viða í hverfunum þótt sums staðar sé um- gengni þeirra til fyrirmyndar. Davíð með A-flokkunum Lárus hringdi: Ég sé fyrir mér að næstu al- mennu kjarasamningar sem geröir verða hér í kringum árið 2000 verða einhverjir þeir erfiðustu sem hér hafa verið gerðir. Allir munu ætla sér stóran hlut. Vand- inn væri þó ekki annar en sá að láta nú einu sinni verða af því að hífa þá lægstlaunuðu verulega upp úr hjólfarinu, t.d.upp í 120 þús. kr. lágmarkslaun, og segja stopp við alla aðra en þá sem hafa minna en 250 þús. krónur. Þaö verður hins vegar ekki gert nema með sterkri ríkisstjórn og þá á ég við Sjálf- stæðisflokk og Á-flokkana samein- aða. Þar yrði Davíð Oddsson að sjálfsögðu leiðandi foringi sem for- sætisráðherra. En öðruvísi rikis- stjórn eftir næstu kosningar verð- ur ekki langlíf. Starfslokasamn- ingur við opin- bera stjórnendur? J.Á.P. skrifar: Þeir ætla að verða sifellt erfið- ari og erfiðari þessir stjómendur sem era að yfirgefa stöður sínar í hinum opinberu stofnunum. Dæmi eru um að nokkrir þeirra hafi verið svo frekir að heimta sér- stakan starfslokasamning er þeir yffrgefa embættin. Ekkert mælir þó með því að gera slíkan samning við opinbera starfsmenn fyrir að hafa mætt til vinnu, rétt eins og aðrir. Nú er það orðin lenska að þessir stjórnendur stíla upp á starfssamning til allt að því eins árs! Hvaða vit er í því? í mesta lagi mætti hugsa sér að starfsloka- samningur væri gerður við menn sem hætta fyrr og þá vegna þess að þeim er nánast ýtt út fyrr en þeir þurfa að hætta. Alls ekki öðruvisi. Stuðningsmenn Sverris í skrapinu Jóhann Sigurðsson hringdi: Maðu les um hina og þessa menn sem Sverrir Hermannsson á að eiga visa fari hann í framboð í vor. Tíndir eru til hinir og þessir sem matarbragð þykir að og hafa verið að skrifa greinar um kvóta- kerfið. Mestmegnis rugl og fimbul- famb fram og til baka. Nú er það prófessorinn Þorvaldur Gylfason sem á að fá til liðs viö Sverris- framboð. Ekki hefur prófessor þessi gefið neitt merki í þá vera að hann styðji Sverri konung. Og þótt hann hafi skrifað og skrifað und- anfarin ár finnst mér þau skrif með þeim hætti að hann hafi ekki mikla burði til ákvarðanatöku. Hvorki i kvótamálum né fram- boðsmálum. Þeir geta því enn stundað „skrapið" á framboðs- markaðinum, Sverrismenn. Lottómenn Ijúka upp munni Guðmundur Ólafsson hringdi: Formaður Verkamannasam- bands íslands er að tjá sig þessa dagana um orð forseta íslands og segir þau það fyrsta sem sagt hefur verið af viti um erfðamálin, gagna- granninn og það mál allt. Ég er undrandi á því að heyra mann sem er formaður Verkamannasam- bands íslands tjá sig um að gagna- grunnsmálið sé mál málanna fyrir verkalýðshreyfinguna, en ekki það mál sem brennur á okkur launa- mönnum, að allir fara fram úr okk- ur í launum vegna þess að laun- )egahreyfingin brást í síðustu samningum með því að afþakka hin svokölluðu rauöu strik, sem heíðu verið vamagli fyrir okkur og um leið hemill á aðrar stéttir, t.d. hjá hinu opinbera, að krefjast hærri launa á miðju samnings- tímabili. Hins vegar sér maður for- ystumenn launþegasamtakanna í auglýsingu Lottó-happdrættisins allt að því vikulega. Þá geta þeir lokiö upp munni og hvatt til stór- ræða. Þaö nægir okkur ekki. Held- ur ekki undirtektir með forseta landsins um gagnagrunninn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.