Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON . Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastióri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@œntrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: tSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuöi 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafirænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Barónarnir taka Kreml Djúp efnahagskreppa í Rússlandi er aðeins hluti af skýringunni á fyrirvaralausum brottrekstri ríkisstjómar Kíríjenkós í Rússlandi. Stuðningur harðsvíraðrar flármálaklíku við framboð Tsjémómýrdíns til forseta réð hins vegar úrslitum. Jeltsín forseti, sem býr yfír mikiUi taktístri snilld þó hann skorti framtíðarsýn, þurfti að greina sig frá óvinsælum eöiahagsaðgerðum Kíríjenkós. Upprisa Tsjemómýrdíns í embætti forsætisráðherra fól því í sér sameiginlega hagsmuni hans og klíkunnar. Hún viil efla hann til forseta. Jeltsín þarf forsætis- ráðherra sem hlýðir honum og er yfirlýstur andstæð- ingur eöiahagsstefnu Kíríjenkós. Forsetinn fór, enn einu sinni, að ráðum klíkunnar og er nú búinn að lýsa vilja til að fá Tsjemómýrdín sem arftaka sinn. Valdamesti hópurinn í Rússlandi í dag er nefnilega hvorki herinn né stjómmálaflokkar. Það er örfámenn klíka ófyrirleitinna fjármálamógúla sem efnuðust gríðarlega undir vemdarvæng Tsjemómýrdíns og hafa nú tekið hann aftur upp á sína arma. Þessir menn em tengdir af sameiginlegum hagsmun- um og í dag mynda þeir eins konar skuggaráðuneyti Rússlands. Oftsinnis hefúr komið fram að Jeltsín hefur farið að ráðum þeirra, til dæmis þegar Tsjemómýrdín var upphaflega rekinn. Þegar kom í ljós að hinn ungi Kíríjenkó neitaði að þjóna hagsmunum þeirra og krafðist þess að fyrirtækjaveldi þeirra greiddu skatta snemst þeir öndverðir gegn honum og tóku aftur upp stuðning við Tsjémómýrdín. Nú vilja þeir hann í forsetastólinn í Kreml. í Rússlandi vita allir að Tsjemómýrdín er í nánum tengslum við nýríku valdabarónana og fíölmiðlar þar í landi segja fullum fetum að þeir muni greiða kosningabaráttu hans þegar kemur að forsetakjöri. Tengsl hans við þá em því öllum ljós. Allar skoðanakannanir sýna þó að Tsjemómýrdín nýtur langminnst fylgis allra þeirra sem orðaðir em við forsetaframboð. Sjálfúr fór hann ekki dult með að hann þyrfti að verða forsætisráðherra á nýjan leik til að vinna sér fylgi sem tryggði honum stól Jeltsíns. Eöiahagskreppan varð honum og skuggaráðuneyti barónanna tileöii til að láta skríða til skarar. í síðustu viku sté hann fram og gagnrýndi stjóm Kíríjenkós harkalega eftir mikla fúndi með klíkunni. í kjölfarið gerði Jeltsín hann aftur að forsætisráðherra. Hinn upprisni forsætisráðherra mun hins vegar engu bjarga. Það var nefnilega Tsjemómýrdín í samvinnu við Jeltsín sjálfan sem ber ábyrgð á efnahagslegum hrakforum Rússa. Hann var ábyrgur fyrir því að láta stórfýrirtæki sleppa við skattgreiðslur. Fyrir vikið varð flárþurrð í sjóðum ríkisins og ekki tókst að greiða ríkisstarfsmönnum laun misserum saman. Þetta var orsök djúprar pólitískrar ólgu sem vó svo sterkt að veldi Jeltsíns að hann rak Tsjemómýrdín með þeim orðum að hann væri duglaus. Aðgerðir Kíríjenkós vom þrátt fyrir allt þær einu sem dugðu. Rúnir lánstrausti með rúblima gengisfellda er hrun í fjármálalífi Rússa miklu nær en Vesturlönd grunar. í skjóli hinna nýríku baróna mun Tsjemómýrd- ín í besta falli troða marvaðann. Jeltsín hefúr hins vegar tekið að sér að afhenda ófyrir- leitnum fiármálabarónum lykilinn að Kreml. Niður- læging hans er fúllkomnuð. Össur Skarphéðinsson Ég spáði því í byrjun þessa kjörtímabils, þegar núverandi stjórnarflokkar fóru í eina sæng, að þessir flokkar myndu fyrir lok kjörtímabils fara hamforum í einkavinavæðingunni. Það er að koma á daginn. Nafn- giftin á stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins fyrr og nú, helmingaskiptastjóm, varð ekki til fyrir tilviljun. Það virðist einfaldlega óum- flýjanleg staðreynd, að þeg- ar þessi flokkar taka hönd- um saman við landsstjóm- ina, þá sjást þeir ekki fyrir í hagsmunagæslunni. Hama- gangur við kjötkatlana við útdeilingu þjóðarverðmæta til flokksvina og -gæðinga, „einn fyrir þig og annar fyr- Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. - Það virðist einfaldlega óumflýjanleg staðreynd, að þegar þessir flokkar taka höndum saman við lands- stjórnina, þá sjást þeir ekki fyrir í hagsmunagæslunni, segir Guðmundur Árni í grein sinni. Dansinn í kring- um bankana að selja í grænum hvelli. Rýmingarsalan er að hefjast. Og helst á að ganga frá öllum endum í sept- embermánuði næst- komandi, áður en Al- þingi kemur saman. Það virðist engu skipta að lagaheimildir standa alls ekki til þess að selja megi þessar bankastofnanir. Þvert á móti er löggjöfm, sem er ný af nálinni, og til orðin samkvæmt tillögum stjórnarliða sjálfra, á þann veg að hægt og yfírvegað eigi að auka hlutafé um 35% og það eigi að „Kjörtímabilid er að renna sitt skeið á enda og ríkisstjórnar- fíokkarnir vilja enga áhættu taka. Þeir vilja koma bönkunum í „réttar" hendur samkvæmt helm- ingaskiptareglunni, áður en kjós- endur fá að kveða upp sinn dóm....u Kjallarifin Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður ir mig“ viðlagið, er eitthvað sem ætíð fylgir þessum flokk- um þegar þeir starfa saman. Aðdragandinn og undirbúningurinn að þeirri aðgerð, svo sem hlutafélagavæð- ing Pósts og síma og síðan Búnaðarbanka og Landsbanka var aðeins reykurinn af réttunum. Fullyrð- ingar stjórnarliða um að þær breyting- ar væru fyrst og síð- ast gerðar til að tryggja jafna sam- keppnisstöðu í bankakerfinu og að meirihlutaeign þjóð- arinnar væri tryggð næstu fjögur árin, fannst mér ekki merkilegar né trú- verðugar. í bakherbergjum Þetta hefur gengið eftir. Nú er allt kom- ið á blússandi ferð í bakherbergjum stjómarflokkanna og þar er verið að skáka milljörðunum fram og til baka yfir borðið í formi hlutabréfa í Búnaðarbanka og Landsbanka. Nú skiptir ekki leng- ur máli að bankamir fái ráðrúm og tíma til bregðast við nýjum og breyttum tímum í íslensku fjár- málaumhverfi og keppa og sanna sig á þeim markaði. Né heldur finnst mönnum ástæða fyrir ráð- rúm til að styrkja og efla stöðu Landsbankans og sumpart Búnað- arbanka eftir erfitt vor og sumar vegna lax- og risnuumræðu. Að- gerðir sem myndu vafalaust auka verðgildi þeirra umtalsvert, áður en ráðist yrði í sölu á hlutabréfum. Nei, enginn tími fyrir slíkt. Allt á selja, jafnhliða því sem selja eigi 49% í hinum nýstofnaða banka rík- isstjórnarinnar, Fjárfestingar- bankanum. Útsalan er hafin En nú er þetta allt ómögulegt. Nú á að selja allt laust og fast. Út- salan er hafin. „Tilboðin" streyma inn þótt formlega hafi enginn aug- lýst eignimar til sölu, enda slíkt óheimilt samkvæmt gildandi lög- um. En það skiptir bara engu máli. Kjörtímabilið er að renna sitt skeið á enda og ríkisstjórnarflokk- amir vilja enga áhættu taka. Þeir vilja koma bönkunum í „réttar“ hendur samkvæmt helminga- skiptareglunni, áður en kjósendur fá að kveða upp sinn dóm í þing- kosningunum í maíbyrjun á næsta ári. Starfsfólk bankanna fylgist með fréttum í forundran og enginn for- svarsmanna stjómarinnar lætur svo lítið að heyra þess viðhorf, enda þótt störf hundraða þessara starfsmanna séu í húfl. Ráðamenn em uppteknir við það að taka á móti stórum sendinefndum er- lendra banka og þjónusta þá á alla lund við að gera tilboð í bankana. Þess á milli taka þeir við tilboðum frá öðrum fjármálastofnunum, sem ætla að fjármagna kaupin með spamaði og niðurskurði (uppsögn- um) í hinum nýkeyptu eignum. Og svo er bragðbætt með því, að fjárlagahallinn - raunar í mesta góðæri siðari tíma - sé og verði svo mikill að ríkið verði að fara í umfangsmikla eigna- sölu. Síðan er reynt að telja fólki trú um að allir milljarðamir sem skipta eiga um vasa í þessari bankauppákomu verði um leið ávísun á lægri vexti og þjónustu- gjöld í bankakerfinu! Og það þótt kaupendur ætli að flármagna kaupin úr rekstri þeirra stofn- ana sem keyptar em. Með öðrum orðum viðskiptavinir borga auð- vitað eins og fyrri daginn. Næsta „frétt“ í bankafarsanum verður ef til vill sú, að bankamála- ráðherrann komi fram fyrir alþjóð og segi málið allt á misskilningi byggt. Sér hafl verið gefnar rangar upplýsingar og hann hafl í bestu trú talið þær réttar, komið þeim áfram og því haflst handa. Þess háttar fréttum hefur þjóöin átt að venjast á undanfömum mánuðum, þegar bankamálaráðherrann er annars vegar. Það yrði þó senni- lega, eftir allt saman, skásta niður- staðan í þessum sumarsmelli rík- isstjómarinnar í bankamálunum. Guðmundur Ámi Stefánsson Skoðanir annarra Tímamót hjá Flugleiðum „Það era vissulega tíðindi og tímamót þegar stjórn Flugleiða ákveður að hætta flugi til og frá Lúxem- borg, sem skipað hefur háan sess í íslenzkri flug- sögu. Flugleiðir og áður Loftleiðir hafa haft viðkomu i Lúxemborg í áætlunarflugi í 43 ár. Þessi þungbæra ákvörðun er hluti af aðgerðum sem taldar voru nauðsynlegar til að rétta af reksturinn. 1.578 milljón króna tap varð af reglulegri starfsemi Flugleiða á fyrri helmingi líðandi árs. Að auki skilaði Flugfélag íslands 216 m.kr. tapi á sama tíma ... Mikilvægt er að félaginu heppnist aftur að snúa vörn í sókn og byggja upp arðbæran rekstur til langrar framtíðar." Úr forystugrein Mbl. 22. ágúst. Sálin og vísindin „Rannsóknimar miða að því að gera mönnum kleift að hafa meiri stjóm á tilvem sinni og mögu- leika á þvi að hafa áhrif á gæði þess lífs sem þeir lifa ... Þótt erfðafræðin væri húin að vinna alla þá sigra sem hún getur nokkum tímann unnið þá verður áfram sál í okkur öllum og einhvers konar guð í um- hverfi okkar. Það er svo ótal margt sem aldrei verð- ur skýrt með erfðum eða aðferðum visindanna. Það verður einfaldlega aldrei hægt að taka mystíkina úr tilverunni. Og svo sannarlega hef ég engan áhuga á að svo verði.“ Kári Stefánsson í Degi 22. ágúst. Kampavín á Kaffivagninum „Fólk kaupir hlutabréf með von um ágóða og miðl- arar þurfa því að hafa góða innsýn; geta séð vel fram í tímann og verða að fylgjast vel með. Dæmi: í dag er verð sjávarafurða að hækka verulega og sjávarút- vegurinn því á mikilli uppleið. En ekki munu allir í sjávarútveginum græða á því. T.d. munu fS og SH lenda í basli þar sem hráefiiisverð hækkar til verk- smiðja þeirra í Evrópu og Bandaríkjunum ... Þess vegna ráðlegg ég viðskiptavinum mínum að selja bréf í þessum fyrirtækjum og kaupa í fyrirtækjum sem eiga kvóta, t.d. HB, ÚA, Granda og Samherja. Og ég efast ekki um að farið verði að selja Dom Perignon kampavín á Kafflvagninum bráðlega (!); trillukarlanir græða á tá og fingri þessa dagana." Ragnar Þórisson í Mbl. 23. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.