Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1998, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998
13
Fréttir
Sænska göngugarpinum vel tekið á göngu kringum landið:
Fúlsadi ekki við hákarli og brennivíni
- gekk 3000 km og ætlar næst í kringum írland
DV, Egilsstööum:
„Þetta hefur verið skemmtilegur
tími. Ég hafði ekki tjald með mér
eða svefnpoka. Bakpokinn vó aðeins
7,5 kg og ég gat oft sent hann á und-
an mér svo gangan varð léttari. Ég
fór heim á bóndabæi og bað um
mjólkurglas og fékk þá alltaf kökur
og smurt brauð.
Mér var hvergi úthýst og meira
að segja þakkaði fólk mér fyrir en
auðvitað var það ég sem stóð í þakk-
arskuld," sagði Svíinn Erik Reúer-
svard þegar hann kom til Egilsstaða
26. ágúst eftir hringferð um ísland
þar sem hann þræddi strandlengj-
una - 3000 kílómetra.
Hundarnir eltu
„Ég bjóst við að einhverjir vildu
ganga með mér en það var lítið um
það. Hins vegar fylgdu hundar mér
oft og tíðum. Einn
kom með mér 20
km og það er
heimsmet, held
ég. Hann vildi
ekki fara inn í bíl-
inn þegar harm
var sóttur. Þessir
íslensku himdar
eru stórkostlegir.
Þeir fóru á undan
mér og voru alltaf
að líta við tO að
vita hvort ég
kæmi ekki með.
Þegar þeir voru
þreyttir lögðust
þeir á vegiim með
lafandi tungu og
mændu á mig,
vonuðust greini-
lega til að ég væri
þreyttur líka. Ef
bíll nálgaðist
hlupu þeir út af
vegi og földu sig
en stukku svo upp
í veg fyrir bílinn
svo ég var dauð-
hræddur um að
þeir yrðu keyrðir niður.“
Frá Egilsstöðum lagði hann upp í
síðasta áfangann yfir Fjarðarheiði
til Seyðisfjarðar í veg fyrir Nor-
rænu. Hann kom með henni hingað
til lands og hélt utan með skipinu í
gær. Hann hefur lagt að baki 3000
km á 70 dögum og hefur þrætt
ströndina þar sem það er hægt.
Hreyfmgin
íþróttir fyrir
alla hafði lofað
Erik alls konar
fyrirgreiðslu
en hann hefur
ekkert heyrt
frá henni allan
timann. Hann
nýtur þess að
ganga en von-
ast líka til að
hafa hvetjandi
áhrif á aðra.
Hann gengur
yfirleitt 6 km á
klukkustund -
gengur um tíu
klukkustundir
þegar hann er i
sem bestu
formi.
Næsta verk-
efhi Eriks er að
ganga í kring-
um írland og
hlakkar hann
mikið til. Þar
eru malbikaðir
göngustígar
með fram sjón-
um svo hann
þarf ekki að
vera á vegunum. Þá hlakkar hann
til að fá irish coffee á hverju kvöldi
en hann fúlsaði heldur ekki við há-
karlinum og brennivíninu hér.
Erik sagðist ekki hafa búist við svo
mikilli byggð í sveitunum. Hann
hafði heyrt um mikinn fólksflótta
úr sveitum til Reykjavíkur og hélt
að sveitimar væru auðar.
Hann hrósaði mjög gestrisni
bænda og fékk alls staðar frábær-
ar viðtökur. Hann sagðist ekki
vera líkamlega þreyttur, frekar að
þetta hefði reynt á andlegu hlið-
ina. Á Seyðisfirði tók bamahópur
á móti Erik og var hann kvaddur
með prompi og prakt. -SB
Erik veifar í kveðjuskyni á leið upp á Fjarðarheiði.
DV-mynd Sigrún
Áætlunarflug
Grímsey
Raufarhöfn
TKópasker
TRs -5iií^pÞórshöfn
Flateyrflfc; Sigluflðrðucft, fl
ÞmgeyrJj GjögSfe^--4^_^M||E^ ff V
Bíldudalur Hólmavíkr Sauöárkrókur Ákureyri > ' Vopnafjoröur
... . Bo arfjoröurj
Patreksflörþur \ /7* l&KVM £*■ eVsl1
Já»sstaöir
Vestmannaeyjar
Flugfélag íslands
Islandsflug
Jórvík
—— Mýflug
^ Áætlunarflugi hætt
Vegna mistaka við vinnslu korts af áætlunarflugi flugfélaganna innanlands komu ekki allar
flugleiðir fram. Meðfylgjandi er rétt kort. Viðkomandi eru beðnir veivirðingar á mistökunum.
Fltfh sM&sfcæ slvöru JngúífsKsffifiuUiú
úúur sn stuúnum vsrúur fjrsytt.
töeínní é Oy/g/unn/
!BYL GJAN
tiiúgarú kvöló: Hútel tíinru Fðsfirúúsfirúi