Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1998, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1998, Síða 20
4 Reiknivélar frá SHAJRP í miklu úrvali í dómi Guðna Elíssonar kemur fram að leikararnir í Sporlaust sklla sínu og sögufléttan er að mestu í anda góðra spennumynda. Þó er að finna slæmar holur í plottinu sem eru leiðinlegar fyrir þá sök að auðvelt hefði verið að bjarga þeim. Þessir hnökrar spilla þó tæplega miklu að mati Guðna. Einhverra hluta vegna hafa íslendingar aldrei verið neitt sérlega góðir við að búa til afþreyingu. Það er ekki bara að þeir hafi gert lítið af því heldur hefur framleiðslan verið æði misjöfn og stundum dálítið undarleg. Úlfhildur Dagsdóttir veltir þessu fyrir sér og beinir sjónum að sakamálasögunni - en þó einkum íslenskum reyfurum í bíó í tilefni af frumsýningu Sporlaust. Klassískt þema um konu, hús og fortíð. Skammdegi ?985 ** Ung kona einangrast á afskekktum sveitabæ. f Ó k U S 28. ágúst 1998 Foxtrot 1988 * Bíóborgin CltyofAngels Þrátt fyrir aö vera klisju- kennt bandarískt ástardrama eru fallegar og áhrifamiklar senur inni á milli þar sem leik- stióra og kvikmyndatökumanni tekst vel upp aö skapa þá stemningu sem upprunalega hugmyndin um (ó)sýnilega engla býður upp á. -úd Bíóhöllin/Saga-bíó Lethal Weapon 4 ★★★ Þessi nýjasta viðbót í seríuna er ágætis afþreying. Hún er fyndin og spennandi og áhættuatriðin flest til fýrirmynd- ar. Þótt hún nái aldrei að toppa það besta úr fýrstu tveimur myndunum ætti hún ekki að valda aðdáendum þeirra Riggs og Murtaugh vonbrigðum. Þetta verður líklega sfðasta myndin og ekki amaleg endalok á eftirminni- legri seríu. -ge Slx Days, Slx Nlghts ★★★ Fremur hug- myndasnauð en þó skemmtilega rómantísk gamanmynd sem gerist ; fallegu umhverfi á eyjum f Kyrrahafinu. Myndinni er haldið uppi af góðum leik aðalleikaranna, Harrisons Fords og Anne Heche, sem ná einstaklega vel sam- an. Aörir leikarar standa sig ágætlega en hverfa f skuggann af gneistandi samleik Fords og Heche. -HK Háskólabíó Washlngton torg ★★★ Skáldsögu Henry James fylgt vel eftir í sterkri mynd um ráörík- an föður sem ekki sættir sig við eiginmanns- efnið sem einkadóttirin hefur valið sér og stíg- ar þeim f sundur á grimmilegan hátt. Hvað er rétt og hvað er rangt er þemað. Jennifer Jason Leight er misgóö í erfiðu hlutverki, en Albert Finney er sem oftast áður sterkur á svellinu þegar kemur að klassíkinni. -HK Dark Clty ★★ Dark City er metnaöarfull og ansi mögnuö mynd, og vekur tilfinningar bæöi um ofsóknir og innilokun. Hún er full af ótrú- lega eftirminnilegum myndrænum skeiðum, sérstaklega þar sem geimþjóöin „tjúnar" og lætur borgina bókstaflega vaxa, hús spretta upp úr götum, stækka, minnka eða taka öðr- um breytingum. Hins vegar veldur handrits- skortur því aö oft var eins og um langa auglýs- ingu að ræða. -úd Vlnarbragð ★ Helsta vandamál Vinarbragðs er kannski þaö að myndin er hreinlega of leiö- inleg, langdregin og flatneskjuleg og endirinn fýrirsjáanlegur. Kosturinn er hins vegar sá aö leikurinn er almennt góður en átakaiaus. -úd Martha, má ég kynna... ★★ Marta o.s.frv. er gamanmynd f rómantískari kantinum og helst sérstök fyrir þá sök hversu bandarísk hún er. Monica Potter minnir um margt á Juliu Ro- berts og er hér f svipuðu hlutverki og Julia gerði sér mat úr á árum áður. Stærsti gallinn liggur í handritinu sem skrifað var af Peter Morgan. -ge Blúsbræöur 2000 ★★ Grease ★★*. Kringlubíó Armageddon ★★ Bruce Willis stendur fyrir sfnu sem mesti töffarinn f Hollywood f mynd þar sem frammistaöa tæknimanna er það eina sem hrós á skilið. Leikstjórinn Michael Bay gerir það sem fyrir hann er lagt og þvf er Armageddon meira fyrir auga en eyru. -HK Laugarásbíó Slldlng Doors ★★* Paltrow er Helen, ung kona á uppleið, þegar hún er óvænt rekin af hópi karlremba og Iff hennar tekur stakka- skiptum tvöfalt. Leikurinn er almennt góður en þó handritiö innihaldi heilmikið af skemmtileg- um punktum og klippingarnar milli sviða/veru- leika séu oft skemmtilegar þá vantar hér ein- hvern herslumun. -úd Mercury Rlslng **A Tveir einstaklingar sem eru á mismunandi máta einangraöir frá um- heiminum eru gegn öllum öðrum í þessari ágætu sakamálamynd sem kemur skemmti- lega á óvart meö þéttri sögu um Stóra bróður sem gerir ekki mun á röngu og réttu og notar öll meöul, lögleg sem ólögleg, til aö halda sfnu. Bruce Willis er í mun gáfulegra hlutverki en f Armageddon. -HK Lost In Space ★★ Framtfðarkvikmynd sem byggð er á gamalli sjónvarpsseríu sem ekki þótti merkileg. Myndin er stór f sniöum og stundum mikilfengleg en sem betur fer tekur hún sig ekki alvarlega. Hægt er að mæla með henni viö alla fjölskylduna sem er meira en hægt er að segja um aðrar framtföarmyndir sem sýndar eru í kvikmyndahúsum höfuðborg- arinnar. -HK Of listrænir til að vera spennandi Átti að vera fyrsta alvöru hasarmyndin. Ég veit ekki af hvers konar völdum, en af einhverjum ástæð- um hefur íslensku afþreyingar- efni ekki reitt sérlega vel af. Það er ekki bara að það sé lítið gert af því; sú framleiðsla sem lítur dags- ins ljós er oft á tíðum misjöfn og jafnvel dálítið undarleg. Kannski er þetta norðurhjarastemningin (þunglyndi, myrklyndi) sem gerir íslendinga svona skeftíska á að skemmta sér, eða kannski skemmtum við okkur bara svo vel í skammdeginu og miðnætursól- inni að við þurfum ekki meira. Það er tölvfræðilega vitað mál að íslendingar fara einna mest í bíó af hnattarbúum (en þó ekkert miðað við marsbúa sem horfa á skjái 26 tíma sólarhrings) og inn- byrða þannig erlent afþreyingar- efni bókstaflega í vigtuðu máli. En meðan bókmenntirnar hafa eignast nokkur afþreyingar-af- kvæmi hafa kvikmyndimar verið áberandi haltar í lestinni; það næsta sem kvikmyndir hér hafa komist almennilegri afþreyingu var þegar kvikmyndagagnrýnandi Moggans skrifaði krimma í fyrra. Svo má líka spyrja sig hvað er afþreying? Sakamálasagan, eða glæpasagan, er klassískt fyrirbæri sem getið hefur af sér mikið af bókum og myndum sem standa 'listrænum' eða 'óháðum' myndum hreint ekki að baki. Fræg er orð- in 'noir'-hefðin fyrir fagurfræðileg áhrif en þar riðu glæpamenn um héruð, eltir uppi af harðsoðnum leynilöggum sem uppgötvuðu svo alltaf að konan sem þeir elskuðu stóð á bak við þetta allt saman. Þýski expressionisminn skilaði sér sömuleiðis stílfræðilega í myndum eins og M (Fritz Lang, 1931) um bamamorðingjann með bamaandlitið (Peter Lorre) sem glæpaforinginn ætlaði að taka (ó)formlega af lífí. Nú á síðustu árum má sjá myndir eins og Seven (David Fincher, 1995) og The Usual Suspects (Bryan Sin- ger, 1995) sem góð dæmi um áhugaverða úrvinnslu á glæpafor- múlunni. Og þetta er síðan fyrir utan allar þær vel heppnuðu óháðu myndir sem nota sér saka- málasöguna á einn eða annan hátt (Lost Highway, Fargo) líkt og við- gengst nú á tímum póstmódem- ismans hins ógurlega. En einhvem veginn er afrakst- urinn af íslenskmn spennumynd- um léttvægur. Morðsaga (Reynir Oddsson, 1979) var sú fyrsta og stendur enn fyrir sínu þó ekki væri nema bara sem tímabilsút- tekt. Myndin íjallar um nýríka út- hverfafjölskyldu, með tilheyrandi þunglyndi húsmóðurinnar, næt- urlifi dótturinnar og varhuga- verðri foðurást föðurins. Húsið (Egill Eðvarðsson, 1983) rataði i Aurum Horror-alfræðibókina og fær þar nokkuð jákvæða dóma. Ung kona flytur inn í hús og fínn- ur fortíð sína - klassískt tema sem hér er bara nokkuð vel út- fært, með tilheyrandi drauma og draugastemningu. Þarna var skemmtilegt að sjá fjallað um spírítismaæði íslendinga. Skammdegi (Þráinn Bertelsson, 1985) spilaði á stef einangrunar og innilokunar sem ætti að eiga vel við hér á þessu landi einangrunar og innilokunar en náði einhvem veginn aldrei taki á efni né áhorf- endum. Aftur er það ung kona sem kemur á afskekktan sveitabæ og verður þar fyrir hremmingum. Foxtrott (Jón Tryggvason, 1988) átti líklegast að vera fyrsta cdvöm íslenska hasarmyndin en mis- heppnaðist illa. Bræður í peninga- flutningum tcikast á um kven- kynslaumufarþega, með tilheyr- andi dramatískum afleiðingum. Nei er ekkert svar (Jón Tryggva- son, 1995) var undirheimamynd sem ekki þótti takast vel. Ekki fékk Blossi (Júlíus Kemp, 1997) heldur hlýjar móttökur en þar sagði frá unglingum á ferð um landið, á flótta undan eiturlyfja- sölum þeim sem þau höfðu svikið. Að lokum er ekki úr vegi að nefna myndina Ryð (Lárus Ýmlr Ósk- arsson, 1990), gerða eftir leikriti Ólafs Hauks Símonarsonar, Bílaverkstæði Badda, en sú mynd fjallaði sömuleiðis um morð úr fortíð, og - hvort sem það var langlífi leikritsins að þakka eða ekki - átti nokkuð góða spretti. Það sem helst háir þessari ís- lensku framleiðslu virðist vera ákveðin fælni við formið með til- heyrandi tilhneigingum til list- rænna bragða sem oft virka illa. Einhvern veginn er eins og það vanti alla tilfinningu fyrir þeim afþreyingarformum sem verið er að vinna með, þar sem hvorki tekst að skapa sannfærandi stemningu né að vinna á sjálf- stæðan hátt með efnið. Eitthvað af vandamálum íslenskra spennu- mynda er að sjálfsögðu að finna í samfélagssmæðinni sem gerir það að verkum að það er oft erfiðara en annars að láta plott og persón- ur ganga upp, eins og sýndi sig kannski einna best í Foxtrott. Hins vegar hefur sakamálasagan Glæpur úr fortíðinni þjakar persónurnar. Ung stúlka lendir í hringiðu glæpa í Reykjavík. Unglingar á flótta undan eiturlyfjasölum. Segir frá vinum sem sitja uppi með lík. ekki síður ljáð sig að afmörkuðum smábæjaraðstæðum það þarf ekki alltaf stórglæpamenn og hasar til að ná upp glæpsamlegri spennu. Úlfhildur Dagsdóttir EL-531 hentar framhaldsskóla nemum og nemendum í síSustu bekkjum grunnskóla 1.650,- D.A.L. innsláttarkerfi (bein aSgerS á skjá) Tvær línur á skjá 153 aSgerSir Hýberbólsk föll Almenn brot EinvíS tölfræSi Prósentureikningur HarSspjaldahlif ofl. off ORMSSON sharp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.