Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1998, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1998, Blaðsíða 21
 bíódómur Háskólabíó / Sambíóin Að hverfa Lelkstjóri: Hilmar Oddsson. Handrit: Svein- björn I. Baldvinsson. Kvikmyndataka: Sigurö- ur Sverrir Pálsson. Tónllst: Hjálmar H. Ragn- arsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Aó- alhlutverk: Guómundur Ingi Þorvaldsson, Þrúður Vilhjálmsdóttir, Dofri Hermannson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ingvar E. Sig- urðsson, Jóhann Siguröarson, Kjartan Bjarg- mundsson, Valdimar Örn Rygering og Edda Heiðrún Backman. Sporlaust er eins og flestir vita íslensk spennumynd um félaga úr Reykjavík sem halda villt partí til að fagna því að einn þeirra er kom- inn í ólympíuliðið í sundi. Sund- kappinn Gulli (Guðmundur Ingi Þorvaldsson) vaknar upp með lík af ungri konu í rúminu hjá sér og vin- ir hans, Beggi (Dofri Hermannsson) og Óli (Ingvar E. Sigurðsson), hjálpa honum að fela líkið. Þegar lögreglunni berast myndir af stúlkunni í rúminu hjá Gulla fer allt úr böndunum. Ásamt vinkon- um sínum, Ellu (Þrúður Vilhjálms- dóttir) og Dísu (Nanna Kristín Magnúsdóttir), þurfa þeir félagar að takast á við dularfulla glæpa- menn á sama tíma og lögreglan spyr óþægilegra spuminga um kon- una sem hvarf. Sporlaust hefur bæði kosti og galla sem spennumynd. Hún er hröð og kemur á óvart (ef menn hafa ekki lesið viðtöl og séð kynn- ingarbútinn). Að sama skapi er söguþráðurinn fremur óvenjulegur sem alltaf hjálpar í mynd af þessu tagi. Leikaramir skila hlutverkum sínum með stakri prýði þrátt fyrir að ekki fari mikið fyrir persónu- sköpun í ójöfnu handriti Svein- bjamar I. Baldvinssonar. Það er í handritinu sem helst er að finna hnökrana eins og svo oft vill verða í íslenskum kvikmynd- - Sporlaust ★★★ um. Þrátt fyrir að sagan rúlli ágæt- lega og sé spennandi eru slæmar holur í plottinu og sumar þeirra með öllu óskiljanlegar. Að sama skapi dettur hraðinn óþarflega mik- iö niður um miðbik myndarinnar. Að mínu mati hefði mátt kippa út sögunni af krakkanum og drykk- felldu ömmunni og einbeita sér frekar að niðurlaginu sem kemur vel út. Þessir hnökrar spilla þó tæp- lega miklu og myndin kom mér oft skemmtilega á óvart. Tónlist, kvik- myndataka og leikstjóm eru góð og ef menn voru á þeirri skoðun að Hilmar Oddsson gæti bara gert tregafullar myndir um mædda listamenn mætti sú skoðun hverfa. Guðni Elísson „Ef menn voru á þeirri skoð- un að Hilmar Oddsson gæti bara gert tregafullar myndir um mædda listamenn mætti sú skoðun hverfa.“ b í ó Frances og Elsie uppltfa það sem alla krakka dreymir um; að vera þátttakandi í ævlntýrl. Regnboginn frumsýnir Ævintýri - Sönn saga; Gæska og skemmtilegheit Allir krakkar þekkja þá þrá að vilja vera þátttakandi í ævintýri. Þetta upplifði hin tíu ára Francis Griffiths fyrst árið 1917 þegar hún var að horfa á leikgerð að Peter Pan. í nokkrar mínútur varð hún þátttakandi í ævintýri og gleymdi um leið þeirri sorglegu staðreynd að faðir hann var talinn af í fyrri heimsstyrjöldinni. Fairy Tale - A True Story er byggð á sannri sögu um frænkumar Frances og Elsie sem settu af stað ótrúlega atburða- rás sem meira að segja Sir Arthur Conan Doyle trúði. Líf stúlknanna breyttist mikið og urðu þær sam- nefnari fyrir von og kærleika á erf- iðum tímum. Fairy Tale - Tme Story, sem Regnboginn frumsýnir í dag, hefur á undanfornum misserum fengið mjög góðar viðtökur bæði hjá áhorfendum og gagnrýnendum. Myndin þykir hlaðin af gæsku og skemmtilegheitum. Leikstjóri er Charles Sturridge. Flestir aðalleik- aranna em óþekktir en í hlutverk- um Arthurs Conans Doyles og Harrys Houdinis em Peter O'Toole og Harvey Keitel. Regnboginn Les vlslteurs 2 ★ Þótt Jean Reno sé skemmti- legur leikari með mikla útgeislun getur hann ekkert gert til þess aö bjarga þessari mynd sem líöur fyrir óvenju vont handrit. Þegar upp er stað- iö er myndin ekkert annað en timaeyösla. -ge Senseless ★ Marlon Wayans, með öllum sín- um kjánalátum, nær stundum upp ágætri stemningu og sumir brandararnir eru nógu fá- ránlegir til að vera sniöugir en eins og með nokkra kynbræður hans í leiklistinni, sem hafa sérhæft sig í farsakenndum eftirlikingum af götulífi í úthverfum stórborga, þá fær maö- ur fljótt leið á einhæfum leik hans. Nokkrar aukapersónur lífga upp á myndina. -HK The Object of My Affection ★★★ Nicholas Hytner ætlar sér mikið með þessari mynd enda hefur hann leikstýrt metnaöarfullum kvikmynd- um á borð við The Madness of King George og The Crucuble. Honum tekst að sneiða fram hjá ýmsum gildrum en handritið kemur I veg fyrir að honum takist ætlunarverk sitt. -úd Tltanlc ★★★★ Stjörnubíó Godzllla ★★★ Godzilla er skemmtileg en ekki gallalaus. En hún hefur þaö sem máli skiptir: Godzillu. Og hún er stór, og hún er flott og hún er afskaplega tæknilega fullkomin; og hún er myndin. Emmerich tekst að ná flottum senum með magnaðri spennu, sérstaklega var lokasenan algerlega frábær og nægir ein og sér til aö hala inn þriðju stjörnuna. -úd He Got Game ★★★ Spike Lee er kominn aft- ur á blaö eftir skrykkjótt gengi aö undanförnu. Hann missir aöeins tökin á góðri sögu í lokin en þegar á heildina er litið er myndin gott drama þar sem Lee liggur sem fýrr ekki á skoðunum sínum á ýmsum þáttum mannlífs- ins. Densel Washington nær sem fyrr í mynd- um Lees að sýna stórleik. -HK Helft ★★ Heift (Hush) skartar tveimur glæsileg- um leikkonum af tveimur kynslóðum, Jessicu Lange og Gwyneth Paltrow, sem báðar hafa það mikla útgeislun að það liggur við að þeim takist að fela alla stóru gallana sem eru á sögu sem er augljóst hvernig endar og nær aldrei al- mennilegri spennu. Það að útkoman skuli ekki slefa upp í meðalafþreyingu verður aö skrifast á leikstjórann sem veldur ekki sínu starfi. -HK meira a. www.visir.is Fyrirsætu-& framkomunámskeið 9 vikna námskeiö hefjast 14. september Innsýn í fyrirsætustörf Föroun Umhiröa húðar & hárs Undirbúningur fyrir myndatöku Tískusýningarganga Myndataka (1 8 myndir sv/hv) Fíkniefnafræosla Vídeomyndir Starfanai fyrirsætur koma í heimsókn Fyigst með gerð auglýsingar Tjáning allir nemendur fá eskimo models boli, ky viðurkenningarskjal og óvæntan glaðning frá komast á skrá fyrir sjónvarpsauglýsingar. e„s&Ví&?. eskimo Z'tiiii ipokoo*n*,., • k i m U, N auk þess aá Starfsfólk Eskimo & Vaxtalínunnar verða í Kringlunni 27. ágúst- 29. ágúst. Vaxtalínufélagar fá kr. 1.000 í afslátt skrái þeir sig á námskeið hjá Eskimo á kynningardögum í Kringlunni. Hljómsveitin Real Flavaz kemur fram á fimmtudeginum og á föstudeginum sýna fyrirsætur frá eskimo föt frá Fantasíu. Leiðbeinandi er Brynja X Vífilsdóttir auk gestakennara. Verð kr. 13,900. e s k i m o model management www.es k i m o . i s skráning er hafin í síma 552-801 2 28. ágúst 1998 f ÓkUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.