Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Síða 3
Club Fisher verður opnaður um helgina. \ >
V,. Dagskrárstjóri Mono, Raggi V
^ - Blöndal, og skemmtana-
00*'Y ’ sljóri klúbbsins er ekki 4
ánægður með af- \
stöðu R-listans til
dansmenningar í
verðandi menning-
arborg Evrópu.
Hann sendir menn-
ingaróvitunum í
borgarstjórn tóninn,
meömæl i
e f n i
Barði í Bang Gang
Barði á Guði 4
Risadanslelkur í Broadway á vegum Fók-
uss og útvarpsstöðvarinnar Mono í
kvöld. Vinsælasta hljómsveit sumarsins
SKÍTAMÓRALL rokkar feitt fram á nótt.
Ef þú mætir upp á Hótel íslands á milli
fjögur og sex í dag með þennan Fókus
færðu ókeypis miða á ballið.
Farðu I næstu dóta-
búö og kauptu þér
Star Wars beibið Lilju
prinsessu. Hægt er
að ímynda sér að
maður sé að bjarga
henni úr prísund
verslunarinnar. Þegar
heim er komið held-
urðu utan um hana
með sterklegum
krumlum og segir henni að hér eftir geti
hún verið heimavinnandi húsmóðir og
séð um börnin. Til að fá fjölbreyttni í
fantasíuna er um aö gera að redda sér
henni þegar hún meö sexí keðju, eins og
hérvið hliðina.
Heimsæktu Vefþjóövlljann á slóðinni:
http://www.treknet.is/andriki/thjod-
vil.htm. Þetta er hápólitískur samsær-
isvefur sem segist gera sitt besta til að
blaðið sé eins ólíkt Þjóðviljanum heitnum
og mögulegt er. Aðstandandi vefsins seg-
ist einnig vilja minna á að aðeins einstak-
lingar hafi vilja - ekki þjóðir. Þaö titlar sig
enginn ritstjóra blaðsins en það er kostur-
inn við netið. Anarkistarnir eiga þennan
miðil og fara ekki eftir hefðbundnum regl-
um I blaðamennsku. Hann heitir samt
Glúmur Jón BJörnsson sem skrifar grein-
amar á þennan vef. Um er að ræöa
mussukomma-samsærisfréttaskýringar í
heimsklassa. DV (og þá Fókus) er sam-
kvæmt Glúmi heltekiö af kommúnista-
veirunni, svo og fréttastofa rikissjónvarps-
ins og Stöðvar 2. Þetta er sem sagt með
forvitnilegri vefjum sem eru I boði í dag.
Svo er málið að
fara á Danslnn
um helgina. Fín
ræma og Gunnar
Helgason leikari
flaggar öllu. Sjón
er sögu rikari.
Ragnar Blöndal, ekkert skyldur
Blöndulunum sem ráöa þessu landi, er
nýskipaður dagskrárgerðarstjóri út-
varpsstöðvarinnar Mono og einnig
skemmtanastjóri Club Fisher sem
verður opnaður í kvöld.
„Ég held þessu alveg aðskildu," seg-
ir Raggi Blöndal, sem hefur staðið í
ströngu við að opna skemmtistaðinn
og taka við Mono af Andrési Sigurðs-
syni, sem er horfinn til annarra staða.
Verða einhverjar breytingar á Mono?
„Engar drastískar. Það eru vissar
áherslubreytingar en stöðin heldur
áfram að vera útvarp fyrir ungt fólk,
rekið af ungu fólki. Breytingarnar sem
ég er að gera og mun koma til með að
þróa lengra er að marka stefnuna
skýrar hvað tónlist og dagskrá varðar.
Við munum ekki eltast við að þóknast
öllum því það getum við að sjálfsögðu
ekki. Mono mun halda sig við að spila
það heitasta hverju sinni ásamt því að
vera skrefi á undan í að kynna þá tón-
list sem er á jaðrinum fyrir ungu
fólki."
Ekkert „mainstream" kjaftœói?
„Nei, við eltum að sjáifsögðu ekki
nein trend nema þau sem við sköpum.
Það þýðir ekkert að elta æðin því þá
gerirðu ekkert annað og hefur ekkert
að spila þegar ekkert er trendið. Stöð-
in er náttúrlega á landsvísu og nú
fram undan er að stöðin sé sýnilegri
úti um allt land. Þetta er stöð fyrir
ungt fólk á öllu íslandi og þá er bara
að bera út fagnaðarerindið með góðri
tónlist og frábærum þáttum. Á virkum
dögum er það tónlistin sem ræður,
kvöldin Páll Óskar með Sætt og sóða-
legt og um helgar reynum við að fylgja
fólki í gegnum djammið á nóttunni og
bömmerinn daginn eftir. Stefnan er að
hafa dagskrána svolítið lifandi."
Club Fisher í kvöld?
„Já, klúbburinn opnar i kvöld
klukkan ellefu. Tæknistrákarnir í
Skýjum ofar munu spila Drum N' Bass
á neðri hæðinni og Bjössi með teknó á
þeirri efri. Það verður því dansveisla
frá helvíti í kvöld. Kokkteill, og mið-
bænum í heild sinni boðið upp í dans
með ótrúlegu hljóðkerfi."
Eins og flestir vita þá var Club Fis-
her lokað stuttu fyrir borgarstjómar-
kosningar. Þeir misstu vínveitinga-
leyfið og voru ofsóttir af öllum eftirlit-
unrnn. Brunaeftirlitið kom og fann
ekkert að, byggingareftirlitið kom og
fann ekkert og allt var reynt til að
loka staðnum. Á endanum var vinveit-
ingaleyfið tekið af staðnum vegna þess
að teikningar vantaði á viðbyggingu
sem byggð var fyrir mörgum árum.
Þetta teikningarugl hafði engin áhrif
fyrr en R-listinn tók málið í sínar
hendur, að sagt er. Duus-hús og fleiri
staðir höfðu fengið vinveitingaleyfi án
þess að vera með þessar teikningar.
En Club Fisher missti ekki skemmt-
analeyfið og sátu danshúsamennimir
því á sér og biðu síns tíma.
Hvert var málió?
„Þetta byrjaði allt á því að íbúar í
Grjótaþorpinu, nágrannar staðarins,
fóru að kvarta í R-listanum og heimta
að þeir fengju að vita hvar listinn
stæði varðandi skemmtanahald í Club
Fisher. Og R-listinn var á atkvæða-
veiðum eins og frægt er orðið og við
enduðum uppi án vínveitingaleyfis
stuttu fyrir kosningar. Nú eru kosn-
ingar liðnar fyrir nokkrum mánuðum
og ekki seinna vænna fyrir R-ið en að
taka upp á því að svíkja kosningalof-
orðin og þá erum við komnir aftur. í
kvöld bjóðum við Grjótaþorpinu upp í
dans með það hrikalegu hljóðkerfi að
vonandi hristist Ráðhúsið sjálft.“
Eru borgaryfirvöld ekkert aö gera til
aö hjálpa fólki í skemmtanaiönaöin-
um?
„Nei, það er allt í rugli í miðbæn-
um. Það er hreinlega verið að reyna
allt sem hægt er til að leggja hann í
eyði. Tunglið brann og borgin gerði
allt sem hægt var til að ekki yrði opn-
aður nýr skemmtistaður þar. Rétt eins
og þegar þetta lið lokaði Casablanca á
Skúlagötu. Borgin byggði elliheimili
umhverfis staðinn og lét síðan loka
honum því hann truflaði gamalmenn-
in. Ég held að fólk í miðbænum verði
bara að fara að átta sig á að þetta er
höfuðborg íslands og það eru skemmt-
anir í miðbænum. Flytjið i Grafarvog-
inn ef þið þolið ekki lætin. Þetta
kjaftæði í íbúasamtökunum fer bara
að vera komið út í öfgar. Þetta er álíka
og að flytja upp á Höfða, við hliðina á
Hampiðjunni, og heimta að verksmiðj-
unni verði lokað því hún trufli svefn-
inn.“
Er þá verið aö reyna aö flœma ykkur
úr miöbœnum?
„Það er verið að reyna að flæma allt
úr miðbænum með öllum þessum elli-
heimilum sem eru byggð ofan á falin
bílastæðahús og svo eru það íbúasam-
tökin sem hyggjast eiga áhyggjulaust
ævikvöld í downtown Reykjavík. Þver-
sagnimar í þessu fólki eru ekki einu
sinni fyndnar. Það er allavega pottþétt
að það er ekki hægt að reka skemmti-
stað í Foldahverfi í Grafarvoginum,
svo dæmi sé tekið. En ég veit fyrir víst
að það er hægt að búa þar í ró og
næði. Því hvet ég þá íbúa miðbæjarins
sem láta miðbæjarmenninguna fara í
taugarnar á sér til að flytja upp í Graf-
arvog hið fyrsta."
-MT
ST0°
11 ástæður fyrir því
hvers vegna gott er
að vera KR-ingur
- jafnvel þótt KR verði ekki íslandsmeistari á morguff
I ■ KR snýst ekki um að sigra. KR snýst um að temja
sér þolgæði gagnvart skakkaföllum í lífinu.
Allir þeir sem ætla sér alvöruframa í pólitík í Reykjavík snobba
fyrir KR. (Alfreð Þorsteinsson er Frammari.) Þeir vilja því allt
fyrir gamla og rótgróna KR-inga gera.
Vegna horfinnar gullaldar líta KR-ingar á sig sem góðan stofn.
Þeir sækja í hana gorgeir sem getur komið sér vel þegar þeir
þurfa að troða sér fram fyrir í biðröðum í bakarium.
KR á stúku. Þar er hægt að horfa á heimaleiki í rigningu.
Það er lítil hætta á að KR-ingar drekki í sig alkóhólisma
á látlausum sigurhátíðum.
KR-ingar eru komnir yfir það stig að láta meistaraflokkinn
syngja hvatningariög inn á plötur. Þeir fá Bubba til að gera það. A|*|JI|I
Þaðerhægtað hlustaáhann. WIW vlUIII
7. KR-ingar hafa lært að bera virðingu fyrir konum. Þeir hafa
neyðst til þess þar sem konurnar eru einu KR-ingarnar sem
hafa unnið titla undanfarna áratugi.
8. Þú þarft ekki að hafa áhuga á handbolta. KR rekur ekki
handboltadeild nema sem þróunaraðstoð við Seltirninga.
9. Geir Haarde er KR-ingur. Hann er fjármálaráðherra
- æðsti yfirmaður skattamála.
10. Það er engum sama um KR-inga. Þeir sem vilja ekki
faðma þá vilja sparka í þá.
II . Aðrir en KR-ingar virðast halda að KR sé eins konar mafía
þar sem einn styður annan. Vesælustu KR-ingar geta því
látið eins og þeir eigi eitthvað undir sér, séu jafnvel hættulegir
ef gert er á hlut þeirra.
2.
3.
4.
5.
6.
KR-ingurinn Bubbi Morthens verður í spjallinu á visir.is frá
16-17 í dag ásamt Unni Steinsson:
svartir
- við erum
hvítir
„Eftir þrjátíu ár án titils má kannski bú-
ast við þjóðhátíð í vesturbænum ef við
vinnum. En ég vona þó að sem fæstir fagni
með því að detta í það eða fái sér í pípu eða
í nefið,“ segir Bubbi Morthens í rólegheit-
unum í laxveiði austur í Hreppum. Þar var
hann áð byggja sig upp fyrir úrslitaleikinn
í íslandsmeistaramótinu á morgun.
„KR vinnur Vestmannaeyjar tvö, eitt,“
bætir kóngurinn við sigurreifur. Búinn að
| setja sig í rétta gírinn fyrir leikinn.
IEr líf eftir úrslitin, hvernig sem þau svo
fara?
„Já, já. Ég er að fara á stað með tónleika-
röð á Borginni á þriðjudag. Verð að spila
svipað efni og ég var með á Kaffi Reykjavík
í sumar. Lög af Konu, Fingrafór, ísbjamar-
blús og eitthvað af nýju plötunni sem ég
var að klára.“
Hvaö heitir yngsta barniö?
„Platan er nafnlaus í augnablikinu. Mig
vantar nafn á hana en ég ætla að spila eitt-
hvað af henni og þessi tónleikaröð mun
jafnvel ganga fram að Þorláksmessu."
í dag, frá 16-17, verður Bubbi í spjallinu
á visir.is ásamt Unni Steinsson. Netverj-
um gefst kostur á að koma sér í rétta gírinn
fyrir leikinn með þvi að spjalla við þessa
eldheitu KR-inga. Það er því bara að logga
sig inn og byrja að vélrita. -MT
7
Hallgrímur Helgason
Keikó kærður fyrir
kynferðislega áreitni
y Auður
barnabarn
" - Laxness
^ Lifirog
hrærist
. lukku
Krakkar í stjórnmálaflokkum
Hafa þeir setið inni,
reykt hass eða stolið
frá foreldrunum? 8
Bjartmar
Guðlaugsson
Kominn
heim úr
útlegð í
Danaveldi
Courtney Love
Rokk-
ekkjan
tónar sig
niður
16 glæsikonur í
bikarkeppni í glæsileika
Hnífjafnir leikir
og rótburst 12-13.
Árni Daníel Júlíusson
Anarkí og rokk
- hvernig blanda
er það? 19
Gus Van Sant
Endurgerir Psycho -
ramma fyrir ramma20
Róbert Arnar
Magnússon
Var
Robbi
rapp,
síðan
Robbi
Cronic
og loks Dj Rampage
Hvað er að gerast?
Veitingahús ............6
Leikhús ...............8
Popp..................11
Myndlist..............14
Sjónvarp...........15-18
Bíó...................20
Hverjir voru hvar.....22
BMHB Fókus
r jpi fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók
Hilmar Þór af Unni Steinsson,
bikarmeistara kvenna.
25. september 1998 f ÓkllS