Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Blaðsíða 6
matur Argentína ★★★ Barónsstíg lla, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað. Dýrustu og enn þá bestu nautasteik- ur landsins, en ekki alveg eins innanfeitar og safa- rikar og áður." Op/'ð 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. Einar Ben ★★ Veltusundl 1. 5115 090. „Fremur þemahús en veitingahús og leggur meiri áherslu á umbúðir en innihald. Einar Ben. býður yfirleitt ekki upp á vondan mat og verður því seint jafnvinsæll og Fashion Café eða Planet Hollywood." Op/'ð 18-22. Café Ópera ★ Lækjargötu 2, s. 522 9499 „Undarlegir stælar einkenna þetta Café Óperu og þar virðist vera takmarkaöur áhugi á mat- reiöslu." Op/'ð frá 17.30 til 23.30. Hard Rock Café ★★ Krlnglunnl, s. 568 9888 „Staðurinn hæfir fólki, sem ekki þekkir annað en skyndibita ogvill ekki annað en skyndibita; fólki, sem þolir tvöfalt verð fyrir góða ham- borgara og daufa ímynd þess að vera úti að borða. Þjónustan jafn alúðleg og ágæt og fyrr." Op/'ð 11.30-23.30. Hótel Holt ★★★★★ Bergstaðastrætl 37, s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber í matargerðarlist af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og nærfærin mat- reiðsla, ser. gerir jafnvel baunir að Ijúfmeti." Op/'ð 12-14.30 og 19-22.30 v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og Id. Hótel Óðinsvé ★★ v/Óðinstorg, s. 552 5224. „Stundum góöur matur og stundum ekki, jafn- vel í einni og sömu máltíð." Op/'ð 12-15 og 18-23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id. Ítalía ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630. „Eignarhaldið er ítalskt, kokkarnir eru ítalskir og gæðaþjónustan er hálfítölsk. Það, sem tæpast hangir í ítölskunni, er matreiðslan." Op/'ð 11:30-11:30. Lauga-ás ★★★★ Laugarásvegi 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að íslenskum hætti sem dreg- ur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda í kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferða- menn utan af landi og frá útlöndum. Hér koma hvorki uppar né ímyndarfræðingar." Op/'ð 11-22 og 11-21 um helgar. Lækjarbrekka ★★ Bankastrætl 2, s. 551 4430. „Matreiðslan rambar út og suður, góð, fram- bærileg eöa vond eftir atvikum. Með annarri hendinni eru gerðar forvitnilegar tilraunir en með hinni er farið eftir verstu hefðum." Op/'ð md.-mid. 11-23.30, fld.-sd. 11-0.30. Mirabelle ★★★ Smlðjustíg 6., s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir I profiteroles og créme brulée. Mirabelle er komin á gott skrið." Op/'ð 18-22.30. Pasta Basta ★★★ Klapparstíg 38, s. 561 3131 „Ljúfir hrísgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði af góðum pöstum en lítt skólað og of uppá- þrengjandi þjónustufólk." Op/'ö 11.30-23 virka daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka daga og til 3 um helgar. La Primavera ★★★★ Austurstrætl 9, s. 561 8555 „Sjálfstraust hússins er gott og næg innistæða fyrir þvf." Op/ð 12,00-14,30 og 18,0022,30 virka daga og um helgar frá 18,0023,30. Rauðará ★ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766. „Túrista-steikhús." Op/ð frá kl. 18 og fram eft- ir kvöldi. Hversu lengi fer eftir absókn. Skólabrú ★★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en dálítið frosin. Þjónustan er kurteis og hóf- söm.“ Op/ð frá kl. 18 alla daga. Við Tjörnina ★★★★ Templarasundi 3, s. 551 8666 „Nú viröist Tjörnin endanlega hafa gefið for- ystuna eftir og raunar annað sætið líka, gerir oftast vel, en ekki alltaf og mistekst raunar stundum." Op/'ð 12-23. Þrír Frakkar ★★★★ Baldursgötu 14, s. 552 3939 „Þetta er einn af hornsteinum íslenskrar mat- argerðarlistar og fiskhús landsins númer eitt." Op/ð 12-14.30 og 18-20 virka daga og 18-22 um helgar en til 23 föstudag og laugardag. meira á. www.visir.is Mál háhyrningsins Keikós fyrir rétt í Newport Ákærður fýrir kynferðislega áreitni Það hefur ekki farið hátt í ísensk- um fjölmiðlum en í liðinni viku var lögð fram í undirrétti í Newport í Oregon ákæra á hendur háhyrn- ingnum Keikó fyrir meint kynferð- isbrot hvalsins sem hann er sakað- ur um að hafa framið í laug sinni I Newport fyrir fjórum árum. Það er Robert Utziger, höfrungatemjari og formaður umhverfissamtakanna Blue-Peace, sem leggur kæruna fram og sakar Keikó um að hafa haft í frammi ósæmilegar athafnir við skjólstæðinga sína, höfrungana Ben og Ken. Kæra þessi hefur sögulegt gildi því þetta mun vera í fyrsta sinn í réttarsögunni sem sjávardýr er kært fyrir slík afbrot. Samkvæmt bandarískum lögum eiga eigendur gæludýra rétt á skaðabótum verði skjólstæðingar þeirra fyrir nauðgun eða öðru kynferðislegu óréttlæti og eru mýmörg dæmi um það að hundaeigendur hafi fengið dæmdar bætur fyrir sálfræðilegan skaða sem ferfættir vinir þeirra hafa orðið fyr- ir. í mars síðastliðnum var fimmtug- ur karlmaður í Utah dæmdur i eins árs fangelsi fyrir að bera kynfæri sín fyrir framan tík af labrador-kyni að fjarstöddum eiganda hennar. í því máli vó þungt á vogarskálum framburður hundasálfræðings. Þar til nýverið tóku lög þessi þó ein- göngu til svokallaðra „almennra gæludýra" svo sem hunda, katta, hamstra og fugla ýmiss konar, en fyrr á þessu ári voru dýraverndar- lögin framlengd í þremur ríkjum á vesturströnd Bandarikjanna og taka nú til allra dýra, á landi, í lofti og láði. Samkvæmt þessum lögum á Keikó því yfir höfði sér allt að sext- án ára fangavist ef taka má mark á kæruatriðum. Kæran hefur reyndar ekki verið gerð opinber enn nema að hluta til. Sökum þess hve mikill- ar virðingar hvalurinn nýtur, og einkum þó vegna vinsælda hans meðal barna um heim allan, hefur berorðum lýsingum og nákvæmum útlistunum á meintri hegðun hans verið sleppt úr fréttatilkynningum. Fókus hefur þó grafist fyrir um málið og samkvæmt traustum heimildum er hér um að ræða mjög alvarlegar ásakanir. Forsaga málsins er sú að sumar- ið 1994 dvöldu tveir ungir höfrung- ar, Ben og Ken, um sex vikna skeið í lauginni hjá Keikó I Sædýragarð- inum í Newport. Ætlunin með þessu var að hvalurinn fengi félags- skap, hinir leikglöðu höfrungar myndu létta honum lífið, en vikurn- ar þar á undan hafði borið á svokölluðu djúpsjávar-þunglyndi, eða deep-sea-depression, hjá há- hyrningnum. Keikó brást vel við þessari ráðstöfun og tók fLjótlega gleði sína á ný, að sögn þáverandi einkaþjálfara hans. Sömu sögu var hins vegar ekki að segja um Ben og Ken sem virtust tapa nokkuð fyrra fjöri og héldu að mestu til i því horni laugarinnar þar sem mynd- bandstökuvél var staðsett. í símasamtali við Fókus segir Robert Utziger meðal ann- ars: „Það sýnir best hvað þessar skepn- ur eru miklum gáf- um gæddar að þeir skyldu flýja að myndavélinni. Þeir vissu sem var að athæfi Keikós yrði erfitt að sanna nema það næðist á myndband." Myndbandsupp- tökur úr lauginni komu nýlega fram í dagsljósið hjá fyrrum starfsmanni sædýragarðsins sem hafði varðveitt þær á laun í fjögur ár. Það sem bandarískir íjölmiðlar kalla „The Keiko-Tapes“ hefur enn ekki komið fyrir almenningssjónir en að sögn Utziger munu þau verða sýnd á nokkrum umhverfisverndar-sjón- varpsstöðvum (Sea News Network, SNN, Ocean Fox o.fl.) nk. mánudag. Hér er um að ræða sjö upptökur í allt sem hver og ein tekur um fimm og hálfan klukkutíma. Þar mun verða hægt að sjá hvar háhyrning- urinn neyðir höfrungana til munn- maka við sig auk þess sem dýrið fróar sér við hjólbarða á vegg laug- arinnar að viðstöddum þeim Ben og Ken. Utziger: „Höfrungarnir mínir komu breyttir menn frá Newport. Það var eitthvað undarlegt í fari þeirra og skýringin er að koma í ljós núna. Það sem upptökurnar sýna er mjög eigingjarn háhyming- ur sem í krafti stærðar sinnar og frægðar neyðir kynferðisathafnir upp á tvo unga og saklausa höfr- unga sem aldir eru upp í skemmti- garði á Flórida í góðu atlæti og höfðu aldrei kynnst neinu slíku fyrr. Þeir em rændir bestu árum sínum, æska þeima er ekki lengur leikur, hún hefur breyst í martröð. Þetta er mjög sárt fyrir mig því ég eyddi þremur árum í þjálfun þeirra og fyrir mér eru þeir eins og börnin mín, böm sem eru ónýt í dag.“ Að sögn Roberts var hlaupið slíkt óeðli í Ben og Ken við kom- una aftur til Flórída að nauðsyn- legt var að aðskilja þá. Eftir tveggja ára meðferð hjá sjávarsál- fræðingi hafi þeir þó mætt til starfa á ný í skemmtigarðinum en eigi nú við offituvandamál að stríða og hafi ekki sinnt starfi sinu um sex mánaða skeið. Sem fyrr segir var kæran lögð fram í undirrétti í liðinni viku. Áætlað er að yfirheyrslur hefjist þann 14. október. Hérlendis gefa menn hins vegar lítið fyrir þetta mál. í samtali við Fókus segist Hall- ur HaUsson líta á þetta sem „hvem annan brandara" og gerir ekki ráð fyrir að menn muni bregðast við kæmnni á einn eða annan hátt. „Hér er um að ræða sjö upptökur í allt sem hver og ein tekur um fimm og hálfan klukkutíma. Þar mun verða hægt að sjá hvar háhymingurínn neyðir höfrungana til munnmaka við sig auk þess sem dýrið fróar sér við hjólbarða á vegg laugarínnar að viðstödd- um þeim Ben og Ken.w Robert Utziger segir hins vegar að um mjög alvarlegt mál sé að ræða þar sem háar fjárhæðir séu í spili. Hann gerir þó ekki ráð fyrir að því að flytja Keikó aftur vestur um haf fyrir yfirheyrslumar. „Við höfum gert þær ráðstafanir að yfirheyrslan yfir Keikó verði tekin upp á myndband í kvínni hans í Vestmannaeyjum og send beint um gervihnött fyrir kviðdóm- inn í Newport. Við munum meta það síðar hvort sú upptaka fer í sjónvarp. Slíkt gæti komið til greina ef almenningsálitið verður okkur andsnúið. Þá mun fólk geta séð með eigin augum hvers konar lygari og höfrungaflagari ... já og bamaníðingur þessi skepna er.“ HaUgrímur Helgason veitingahús Kryddaour nýliði Iðnó er notalegast í björtu sum- arveðri, þegar stórir og þétt settir bogagluggar veita útsýni yfir Tjörnina, en einnig þægilegt við kertaljós að kvöldi. Salurinn er smekklega gamaldags án þess að höfða til fortíðarþrár, gulbrúnn að lit, skreyttur panil neðan og veggsúlum á eina langhlið. Lítið er um aðskiljanlegt dót, nema fuglastyttur í gluggum. Fyrst og fremst er allt vandað og stíl- hreint, borð og stólar, ísaumaðir dúkar undir glerplötum, tauþurrk- ur í hádegi sem að kvöldi og íhalds- samt borðstell. Að hætti evrópskra millistríðshótela eru pálmaplöntur á miðju gólfi. Þessu fylgir traust og góð þjón- usta og matreiðsla, sem stundum fer sinar eigin slóðir, en nær sjald- an hæstu hæðum. Enginn réttur var að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnisstæðir. Með klofn- ingi Tjarnarinnar i tvo veitinga- staði hafa báðir erfingjarnir lækk- að flugið í átt til meðalmennskunn- ar. Frá systurstaðnum er ættuð kryddnotkunin, sem er helzti styrkleiki eldhússins, í mildri sesam- og balsamsósu með léttreyktri villigæsabringu, í saffr- an- og engiferblandaðri tómatsósu með hörpuskelfiski, í möndlu- blandaðri portvínssósu með sil- ungi, og í hvítlauks- og fáfnis- grasasósu með lambarifjasteik. Þetta kemur líka fram í súpun- um, magnaðri tómatsúpu dagsins með steinselju og tómatbitum, og hvitvínslagaðri tómatsúpu með kræklingum í skelinni. Ljúflega eldaður hörpuskelfiskur var nærri eins góður og skemmtilega krydd- aður humar að hætti hússins, hor- inn fram með rauðlauk og steikt- um kartöfluræmum. Sízti aðalrétturinn var ofeldaður silungur, skemmtilega húðaður smásöxuðum möndlum. Betri var olíusteiktur saltfiskur með hvit- lauk og basilikum, undir hatti af kartöflustöppu og með rauðlauk til hliðar. Kanínukjöt er á boðstólum, mitt á milli kjúklinga og grísakjöts og heldur betra, með blóðbergi og rauðvínssósu. Góð var hæfilega fituskorin og nákvæmlega elduð Iðnó: ★★★ „Öll umgjörð Iðnó er vönduð og stílhrein. Henni fylgir traust og góð þjónusta og matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóðir, en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnisstæðir lambarifjasteik, fallega upp sett með kryddlegnum gulrótum. Bezti aðalrétturinn var eggjaspínatbaka fyrir grænmetisætur. Svokölluð eplakaka var sívalt frauð án eplabragðs á litlum brauð- botni, með þeyttum rjóma, gulri kanilsósu og rauðri berjasósu. Hefðbundin var súkkulaðiterta með koníakssósu, tvenns konar berjum og þeyttum rjóma. Kaffi var gott. Iðnó er heldur dýrara en systur- húsiö, 4.100 krónur á mann fyrir þrí- réttað með kaffi og 1.600 krónur fyr- ir súpu og aðalrétt í hádeginu. Verð- lagið vekur spuminguna, hvort ekki sé komið nóg af dýrum sæmdarstöð- um, sem líkjast hver öðrum. Jónas Kristjánsson 6 f Ó k U S 25. september 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.