Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Síða 10
plötudómur
Jurassic 5: ★★★★
Feeeliftttt dja
Ég var búinn aö bíða nokkuð
lengi eftir þessari plötu frá Ju-
rassic 5 vegna þess að ég hafði
heyrt eitt lag með henni á Lyricist
Lounge og það er í fáum orðum
sagt klikk i haus. Ég hafði því mikl-
ar væntingar þegar ég fékk plötuna
í hendur og var óneitanlega dálítið
smeykur um að ég væri að gera
mér of miklar væntingar um hana.
En viti menn. Mér til óblandinnar
ánægju var platan jafnvel betri en
ég þorði nokkurn tíma að vona.
Þetta er tvímælalaust break-
through plata. Plata sem breytir
hugmyndum okkar um hvernig
hiphop á að vera. Jurassic 5 fer
svipaðar slóðir og De La Soul í
gamla daga og notar jass-sömpl og
mjög rúllandi takt ofan á, svona dá-
lítinn sumarfíling. Hún eru heldur
ekkert að böggast með einhver
byssu- og bófalæti heldur bara að
chilla og jamma feeeiiitttt.
Það er hvergi veikur punktur á
plötunni. Maður hlustar bara í
gegn og hugsar ... hvemig er hægt
að búa til svona brjáluð lög? Þótt
öll lögin á plötunni séu góð þá
stendur eitt upp úr að mínu mati.
Það er fyrsta lag á B-hlið, Concrete
Schoolyard. Það eru einfaldlega
ekki til orð yfir þetta lag. Það er
Það er hvergi veikur punktur
á plötunni. Maður hlustar
bara í gegn og hugsar ...
hvernig er hægt að búa til
svona brjáluð lög?“
bara, eins og þeir segja i laginu
sjálfu: „I get goosebumps when the
bassline thumps". Gagnrýnandi hjá
Músík orðaði þetta líka mjög vel:
„Þetta er fallegasta rapplag sem ég
hef heyrt eftir C.R.E.A.M. með Wu-
tang clan“.
Hvað get ég sagt meira? Fáið
ykkur þessa plötu þótt það sé það
eina sem þið gerið af viti á ævinni.
Guðmundur Halldór Guðmmidsson
íslenski
HR. 290
vikuna 24.9-1.10. 1998
1 4 IFY0UT0LERATETHIS . .MANIC STREET PREACHERS 2 26
2 4 WALKING AFTER Y0U F00 FIGHTERS 8 11
3 13 1 D0NT WANTT0 AER0SMITH 1 1
4 4 SUBSTITUTE F0R L0VE MAD0NNA 4 6
5 3 0NEWEEK BARANAKED LADIES 14 34
6 7 SÍLIK0N SKÍTAMÓRALL 6 16
7 8 1 BEL0NG T0Y0U LENNY KRAVITZ 3 7
8 2 B00TIE CALL ALLSAINTS 24 -
9 7 TIME AFTER TIME IN0J 7 4
10 2 BURNING BABY BUMPS 22 -
11 3 WHATS ITLIKE EVERLAST 12 13
12 8 AN0THER 0NE BITES THE DUST . QUEEN/WYCLEF FEAT... 5 2
13 2 D00 W0P (THATTHING) LAURYN HILL 13 -
14 4 LUV ME, LUV ME SHAGGY a JANET 10 10
15 4 N0 MATTER WHAT B0YZ0NE 19 27
16 5 ENJ0YTHE SILENCE FAILURE 9 3
17 3 MILLENNIUM R0BBIE WILLIAMS 18 18
18 10 0RGINAL ... .SÁLIN HANS JÓNS MÍNS 20 22
19 10 INTERGALACTIC BEASTIE B0YS 11 9
20 3 WHAT CAN 1 D0 (TIN TIN MIX) .. L0VESTATI0N 21 29
21 1 TEARDR0P (FLAVA REMIX) .... MEJA |N YTT
22 3 EVERYBODY GET UP FIVE 25 33
23 10 IMM0RTALITY CELINE DI0N 15 8
24 5 NEW KIND 0F MEDICINE ULTRA NATE 28 30
25 3 LASTTHING 0N MY MIND STEPS 33 40
26 8 VIVA F0REVER SPICE GIRLS 17 14
27 5 PURE M0RNING PLACEB0 29 31
28 1 NEEDIN’YOU DAVID M0RALES FEATTHE FACE IIIMI
29 2 l'LLNEVER BREAKYOUR HEART BACKSTREET B0YS 31 -
30 8 ALL'BOUTTHE M0NEY (REMIX) . MEJA 16 15
31 2 FALLING IN L0VE AGAIN EAGLE EYE CHERRY 35 -
32 3 IF Y0U C0ULD READ MY MIND . ’.STARS 0N 54 23 23
33 2 ALLTHE WR0NG PE0PLE SELMA 38 -
34 2 FLAGP0LE SITTA HARVEY DANGER 40 -
35 1 THE FIRST NIGHT M0NICA 1 H V T T
36 5 L00KING F0R L0VE KAREN RAMIREZ 27 21
37 1 MYSTERIOUS TIMES . .SHASH FEATTINA C0USINS mm
38 6 MY FAVOURITE MISTAKE SHERYL CR0W 37 35
39 1 1 WILLWAIT .H00TIE ANN THE BL0WFISH 1 H v T T I
40 1 FINALLY F0UND H0NEYZ
Taktu þátt í vali listans
í síma 550 0044
^ 989
'PMWJUU
fslenskl listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er
f 300 tll 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öHu landinu.
Elnnig getur fálk hringt f sfma 550 0044 og tekiS þátt f vali
listans. íslenski listinn er frumfluttur á fimmtudagskvöldum á
Bylgjunnl kl. 20.00 og er birtur á hverjum föstudegi f DV. Ustinn
er Jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegl kl.
16.00. Ustinn er birtur, að hluta, f textavarpi MTV sjónvarps-
stöðvarinnar. íslenski listinn tekur þátt f vali „World Chart" sem
framlelddur er af Radio Express f Los Angeles. Elnnlg hefur hann
áhrlf á Evrdpulistann sem birtur er f tdnlistarblaðinu Music &
Media sem er rekið af bandarfska tdnlistarblaðlnu BiHboard.
YFiruimjdn með skoðdndkfinnun: Hdlidðra Hauksdóttir - Framkvarmd kðnnunar Markaðsdeild 0V - Tölvuvinnsla: Dódá • Handrit, heimildaröílun og
yfirumsjón með Framlelðslu: ívar Guímundsson - Taeknistjórn og framleiðsla: Rorsteinn Ásaeirsson og Rrálnn Steinsson - Utsendingastjóm:
Ásgeir Kolbeinsson og Jóhann Jóhannsson - Kynnlr f útvarpl: Ivar Guðmundsson
Þau kalla sig theaudience (og
vilja að það sé skrifað svona) og
eru á hraðri siglingu til gæfulegra
popplanda með fyrstu plötunni
sinni, „theaudience". Þau eru ensk
og poppuð, hljóma oft eins og að-
laðandi samsteypa af Cardigans og
The Smiths. Mestu púðri hefur
popppressan eytt í söngkonuna,
hið 19 ára megabeib Sophie Ellis
Bextor, en bak við tjöldin er þó
höfuðpaur, Billy Reeves, 32 ára
gítarleikari, sem hafði unnið sem
fjölmiðlafulltrúi hjá plötufyrir-
tækjum. Einn daginn kenndi
kærastan hans honum nokkur
gítargrip og fyrr en varði var hann
farinn að semja lög með þeim fáu
gripum sem hann kunni. Hann var
í einhverjum óþekktum indíbönd-
um, en fyrir rúmlega ári haföi
hann smalað saman í nýtt band,
m.a. fyrrverandi meðlimum úr
The Sundays og The Charlatans,
og fór að taka hlutina alvarlega eft-
ir að Sophie rak á fjörur hans. Hún
mætti á æfingu með Oasis-lög á
spólu sem hún hafði sungiö inn á
og Billy viðurkennir að hafa hugs-
að: „Æ, æ, hún er gullfalleg; hún
hlýtur að syngja hörmulega."
Hann og félagar hans urðu heillaö-
ir af öruggri rödd Sophie, sem
minnir um margt á Debbie Harry
úr Blondie og Chrissie Hynde úr
The Pretenders, og Billy fór að
semja lög á fyrstu plötuna með
hana í huga. Svo vongóður var
hann um blóm í haga að hann
seldi allar vinylplöturnar sínar,
fékk samtals 458 pund fyrir og
hafði efni á að taka upp kynning-
arspólu. Hún varð síðan til að
kveikja athygli plötufyrirtækja og
eftir nokkurn slag beit Mercury-út-
gáfan á agnið.
„Ef þú ert að leita að hljómsveit
sem breytir lífi þinu þá hefurðu
fundið hana,“ segir Billy öruggur.
Þetta er týpiskt froðusnakk úr
honum, enda vann hann sem áður
segir sem fjölmiðlafulltrúi og veit
að hvers konar slagorð ganga í
pressunni. Bandið þykist vera með
glamúrinn á hreinu og þó meðlim-
irnir séu fremur lúðalegir er
Sophie efnileg daðurdrós, þó hún
sé hálfgerður krakki enn þá: „Ég
er í popphljómsveit af því ég flla
allan glamúrinn í kringum það,“
segir hún. „Ég elska að fá athygli
og að sýna mig á sviði. Ég er eins
og krakki sem stendur upp í mat-
arboði og fer að syngja. Ég ætlaði
þó aldrei að fara í hljómsveit, hafði
hugsað mér að verða leikari eða
komast að í sjónvarpi. En ég ákvað
að slá til.“
-glh
plötudómur
22 Pistepirkko - Eleven: ★★★
Finnar lulla í fyrsta gír
Ekki veit ég af hverju Finnarnir
frísku í 22 Bjöllum kalla nýju plöt-
una sína Ellefu, því þótt þeir hafi
lengi verið að er platan bara sú
sjötta frá þeim. Þeir ólust upp í
pönki og bartarokki í einhverjum
finnskum skítabæ en fluttu til
Helsinki til að meikáða. Nú eru
þeir virtasta bandið í Finnlandi og
hafa teygt anga sína um alla Evr-
ópu, gott ef þeir eru ekki að fá at-
hygli í Englandi líka með þessari
nýju plötu. Stöðugt tónleikaflakk
þeirra um heiminn hefur m.a. fleytt
þeim tvisvar til fslands, og þeir sem
sáu þá hér ættu að vera mér sam-
mála um að betra tónleikaband er
erfitt að ímynda sér. Allar plötum-
ar hafa verið frábærar og þegar svo
er fer maður að gera sífellt meiri
kröfur. Maður heimtar stöðugt betri
verk og því er maður frekar von-
svikinn með hana þessa, því þó að
þetta sé góð plata, er hún bara í
meðallagi hvað 22PP viðkemur.
Hún er róleg, yfirveguð, vönduð og
slétt, og það er dálítið djúpt á
finnska sjúskið sem maður vill að
sveitin haldi sig við. Þeir hafa lagt
meiri vinnu i gerð þessarar plötu en
hinna, kannski dvalið fulllengi í
verinu við að pússa og gjörslípa.
Fyrsta lagið stelur aðeins frá Mich-
ael Jackson-laginu „Billy Jean“ og
er teppalagt með fiðlumottum en
strax í þvi næsta bankar gamal-
kunnugur poppgroddi á dyr. Síðan
lulla þeir í fyrsta gir fram á tíunda
og síðasta lagið þegar enn er bank-
að með sannri gaxi-gaxi sveiflu. En
hægigirinn venst vel og er skreytt-
ur faglega með íðilfogrum strengj-
um, nýtísku taktboxi og svo vitan-
lega hvellhásri röddinni í PK, sem
er það eina sem minnir mann á
hverjir eiga í hlut. Þegar þessi er
sett á er því gráupplagt að eiga
rauðvín og kerti á heimilinu og
vera tilbúinn til að láta 22PP vagga
sér blítt og létt.
Gunnar Hjálmarsson
*asE»ELEVEN«fflSi»
„Það er dálítið djúpt á finnska
sjúskið sem maður vill að
sveitin haldi sig við.“
10
f ÓktlS 25. september 1998