Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Side 14
myndlist
f ÓkllS 25. september 1998
Bmðkaup í skugga strands
„Þegar á heildina er litið er Dansinn vel heppnuð kvikmynd og góð
búhót í íslenska kvikmyndagerð, kvikmynd sem vissulega á erindi
á alþjóðlegan markað og víst er að hún verður góður fbrunautur
Ágústs yfir í næstu kvikmynd sem verður vonandi sem fyrst.“
Leikstjórl: Ágúst Guðmundsson. Handrit:
Kristín Atladóttir og Ágúst Guómundsson. AB-
alleikarar: Gunnar Helgason, Pálína Jónsdótt-
ir, Dofri Hermannsson, Baldur Trausti Hreins-
son og Gísli Halldórsson.
Ágúst Guðmundsson var einn
þeirra kvikmyndagerðarmanna
sem kom með „vorið“ í íslenskri
kvikmyndagerð í lok áttunda ára-
tugarins. Hans fyrsta framlag var
Land og synir sem frumsýnd var
árið 1980. Hann fylgdi henni eftir
með þremur kvikmyndum fram
til ársins 1984, Útlaganum, Með
allt á hreinu (vinsælustu íslensku
kvikmyndinni til þessa) og Gull-
sandi, sem frumsýnd var 1984.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan og reglulega hefur Ágúst
verið inntur eftir því hvort ekki
færi að koma ný kvikmynd frá
honum, en aðstæður og erfiðleik-
ar í íslenskri kvikmyndagerð hef-
ur gert það að verkum að íjórtán
ár hafa liðið frá Gullsandi að
Dansinum, sem nú eru að hefjast
sýningar á.
„Pálína Jónsdóttir leikur
Sirsu. Þetta er þriðja hlut-
verkið hennar í kvikmynd og
hefur henni farið mikið fram
og er Sirsa sannfærandi,
villuráfandi eftirlætisbarn í
hennar fórum."
Oft er sagt þegar góð og metnað-
arfull verk líta dagsins ljós eftir
langa fjarveru listamannsins í
sinni listgrein að biðin hafi verið
þess virði. Það er samt kaldhæðn-
islegt að nota slíka staðhæfingu
nú þótt vissulega sé endurkoma
Ágústar mjög gleðileg, því vitað
er að lagt hefur verið af stað með
önnur verk sem hafa síðan dagað
uppi, aðllega vegna peninga-
skorts. En hvað um það, Dansinn
er góð endurkoma Ágústs inn í ís-
lenska kvikmyndagerð, vel gerð,
dramatísk og um leið skemmtileg
kvikmynd sem skilur eftir sig
vellíðan sem alltaf er velkomin til-
finning þegar farið er með von í
brjósti á nýja íslenska kvikmynd.
Dansinn er byggð á ágætri smá-
sögu færeyska skáldsins William
Heinesen sem ósjálfrátt verður
myndræn við lestur. Hún gerist í
Færeyjum á fyrsta tug aldarinnar
og segir frá brúðkaupi sem haldið
er i skjóli strands sem kostar
mannskaða. Þessir tveir atburðir
eru svo tengdir saman með sér-
stökum hringdansi Færeyinga
sem þeir stunda enn þann dag í
dag þegar veislur eru haldnar og
þá er dansað eins og segir í vís-
unni fram á rauða nótt.
í Dansinum höfum við sögu-
manninn Pétur sem háaldraður
rifiar upp atburðina sem honum
eru enn i fersku minni. Pétur er
utan við sjálft brúðkaupið, aðeins
gestur, en vinskapur hans við
brúðurina, brúgumann og örlaga-
valdinn ívar, sem telur sig eiga
hlut í brúðurinni, gerir það að
verkum að ósjálfrátt leiðir Pétur
af stað drEunatíska atburði sem
vefja síðan upp á sig.
Margt er sameiginlegt með ís-
lensku og færeysku landslagi og
þess vegna gæti myndin alveg
eins gerst á íslandi, þungbúin
veðráttan sem skilar sér vel í góð-
um myndskeiðum er verðugur
bakgrunnur fyrir góðan stíganda í
atburðarrásinni. Strandið sem
verður í miðju brúðkaupinu hefur
ekki þau áhrif á gestina sem
menn myndu ætla, þeir vilja
dansa áfram þrátt fyrir varnaðar-
orð djáknans. „Því ættum við að
syrgja á gleðistund mann sem
enginn þekkir," segir einn gestur-
inn og talar þar fyrir munn
margra og má með sanni segja að
þegar dansinn er stöðvaður þá
kemur fram óróinn sem býr und-
ir niðri. Öllu þessu er komið vel
til skila í ágætu handriti og lif-
andi myndatöku. Klipping er
einnig góð og skynsamleg og tón-
list fellur vel að myndinni og
verður aldrei í neinu aðalhlut-
verki.
Leikarar standa sig yfirleitt vel.
Það er ekki að sjá að þetta sé
fyrsta kvikmyndin sem Gunnar
Helgason leikur í. Hann veldur
vel sínu stóra hlutverki og hefúr
þann léttleika í hreyfingum sem
með þarf og er greinilegt efni í
góðan kvikmyndaleikcU'a. Pálína
Jónsdóttir leikur Sirsu. Þetta er
þriðja hlutverkið hennar i kvik-
mynd og hefur henni farið mikið
fram og er Sirsa sannfærandi,
villuráfandi eftirlætisbam í henn-
ar förum. Dofri Hermannsson og
Baldur Trausti Hreinsson leika
brúgumann og elskhugann,
kannski þau hlutverk sem van-
þakklátust era, eiga þeir ágæta
spretti inn á milli. Vert er í lokin
að geta þáttar Gísla HaUdórsson-
ar sem í Dansinum er að leika sitt
síðasta kvikmyndahlutverk og
gerir það með glans eins og ávallt
áður. Gísli leikur hinn skemmti-
lega karl, Nikulás, forsöngvara og
dansara mikinn, sem býður upp á
soðna þorskhausa þegar hann fær
unga fólkið í heimsókn.
Þegar á heildina er litið er
Dansinn vel heppnuð kvikmynd
og góð búbót í íslenska kvik-
myndagerð, kvikmynd sem vissu-
lega á erindi á alþjóðlegan mark-
að og víst er að hún verður góður
forunautur Ágústs yfir í næstu
kvikmynd sem verður vonandi
sem fyrst.
Hilmar Karlsson
Opnun
Elol Pulg er spænskur myndlistarmafiur,
fæddur 1966, sem hefur fengifi ágætt hrós
fyrir list sína, einkum vídeóverk sín. Þessi
ágæti maður er kominn hingað upp á skerið
meö Ijósmyndaverk og videó og hefur stillt
þessu upp I Ingólfsstræti 8. Viðfangsefni
hans eru ekki smá heldur upphafið (Big Bang)
og endalokin (Big Crush). Aö sögn Eddu
Jónsdóttur sýningarstjóra er þessi sýning
Puig ólík flestum sem settar hafa veriö upp í
galleriínu hennar, nálægðin í verkum hans er
mikil en salurinn lítill. Sýningin er opin kl.
14-18 frá fimmtudegi til sunnudags.
Síöustu forvöð
Gerðarsafn, Kópavogi.
Sýning á olíumálverkum
Slgrúnar Eldjárn í aust-
ursal klárast um
helgina. Opið frá kl.
12-18 alla daga nema
mánudaga,
Nýllstasafnlö. Samsýning nokkurra vel
þekktra listamanna lýkur á sunnudaginn.
Safnið er opið frá 14-18 alla daga nema
mánudaga.
Vlnnustofan, Laugavegi 18 B. Sýning Hauks
Dórs lýkur um helgina. Hún er opin kl. 13-18.
Slunkaríkl, ísafirði. Mál-
verkasýningu Húberts
Nóa lýkur á sunnudag-
inn. Hún er opin fimmtu-
daga til sunnudaga kl.
16-18 og lýkur sunnu-
daginn 27. september.
Aðrar sýningar
Art Hún, Stangarhyl 7. Toshlko Takaezu sýn-
ir leirlistaverk í tilefni af 10 ára afmælis
safnsins.
Gallerí Geyslr. Yfirlitssýning á verkefninu
20,02, hugmyndir um eiturlyf. Sýningin er
r opin á virkum dögum frá kl. 8-23 og um helg-
ar frá kl. 13-18.
Galleri Fold. Gunnar R. BJarnason með mál-
verk í baksalnum. Opið er daglega frá kl.
10-18, Id. 10-17 og sd. 14-17.
Gallerí Hár og llst. Yngvl Guömundsson. Opið
virka daga frá kl. 9-18 en um helgar frá kl.
14-18.
Ráðhúslö. Ketlll Larsen
með sýningu sem hann
nefnir .Sólskin frá öðr-
um heimi". Opin frá kl.
« 12-19 virka daga og kl.
12-18 um helgar.
Gallerí Hornlö, Hafnarstræti 15. Vapen
(Valdlmar BJarnfreösson) meö sýningu á mál-
verkum sínum, Kaffibollinn er mitt internet.
Sýningin er opin alla daga kl. 11-24.
Geröuberg menningarmiöstöð. Sýning á verk-
um BJargar ísaksdóttur á vegum Félags-
starfsins. Sýningar á verkum Krlstlns G.
Haröarsonar í Galleríl Sævars Karls og
Geröubergi. Sýningin í Geröubergi er opin
mán.-fim. kl. 9-21, fös. kl. 9-16, laug. og
sun. 12-16. Sýningin í Galleri Sævars Karls
er opin á verslunartímum.
KJarvalsstaölr v/Flókagötu. Samsýning
tveggia kynslóöa: -30 / 60 +. Fjölmargir lista-
menn úr báðum aldurshópum taka þátt. Opiö
kl. 10-18 alla daga; leiösögn kl. 16 á sunnu-
dögum.
Ustasafn íslands, Frikirkjuvegi 7. „Draumur-
Inn um hreint form.“ jslensk abstraktlist
1950-60". Safnið er opiö kl. 11-17 alla
daga nema mánud.
Usthúslö Laugardal. Islensk náttúra. íslenskt
landslag eftir SJöfn Har. Opiö virka daga kl.
12-18. Ld. kl. 11-14.
Norræna húslö. Sýning á verkum Rojs Frl-
bergs opin kl. 14-18 alla daga nema mánud.
Sýning á náttúrulífsljósmyndum sem Andý
Horner hefur tekiö á Álandseyjum er opin kl.
9-18 alla daga nema sunnudaga frá kl.
12-18.
Árþúsundasafnlö, í risi Fálkahússins, Hafnar-
stræti 1. Sýning Grelpars Ægls er opin frá
9-19 alla virka daga og um helgar frá 10-19.
Ustahátíö í Reykjavík. Höggmyndlr. Sýningin
er 6 km löng og nær frá Sörlaskjóli í vestri og
inn í Fossvogsbotn.
Háskólabíó: Dansinn ★★★
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði.
Anna Slgríöur Slguijónsdóttlr myndhöggvari
meö sína sýningu og Margrét Guömunds-
dóttlr með aöra er hún kallar „Land elds og
ísa". í Apótekinu, nýjum sýningarsal á fyrstu
hæö Hafnarborgar, eru Ijósmyndir Bernds
Schlusselburg frá Cuxhaven til sýnis. Sýning-
arnar eru opnar alla daga nema þd. frá kl.
12-18.
Ustasafn ASÍ, Freyjugötu. Tvær myndlistar-
sýningar, Þóra Slguröardóttlr sýnir þrívíö verk
og Ijósmyndir I Ásmundarsal og Jun Kawag-
uchl sýnir lágmyndir úr postulíni í Gryfjunni.
Safnið er opið alla daga nema mánud. frá kl.
14-18.
meira á.
www.visir.is