Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Page 19
Popparar hafa löngum gert ser dælt við anarkisma af ymsu tagi, gefið skit í lög og reglur og neitað að falla að því móti sem þjóðfélagið virðist vilja þröngva þegnunum í. En á þetta svo vel saman; klassískur anarkismi og venjulegt rokk og ról. Árni Daníel Júlíusson, sagnfræðingur og aktívur pönkari, sér það ekki alveg ganga upp að hörðustu rokkarar dagsins í dag gætu tekið upp baráttumál anarkista, alla vega ekki þeirra sem náðu tökum á góðum hluta Spánar á fjórða áratugnum. Öllum veitingahúsum í miðbænum l^að „Víða var börtun og vínveitingahúsum lokað. Þau voru talin til óþurftar, talin hvetja til illinda og ólifnaðar. Jafnvel kaffihús voru illa séð í sumum þorp- um, þótt annars staðar væri kirkjum breytt í t kaffihús." J „Ég trúði á alls konar vinsælda- lista / ég trúði á pönk og anarkista" syngja Maus í topplagi sumarsins, „... en allt sem þú lest er lygi“ segja þeir svo. Það er auðvitað fullkom- lega rökréttur anarkismi að trúa alls ekki á það sem skrifað hefur verið um anarkisma. Reyndar hefur mikið verið skrif- að um þetta fyrirbæri. Burnett Bolloten heitir maður, látinn fyrir rúmum áratug, þá 87 ára að aldri, og lét eftir sig 1074 siðna bók. Hún var afrakstur 50 ára ævistarfs Bollotens, og eitt af áhugamálum hans var einmitt anarkismi, nánar tiltekið anarkisminn á Spáni 1936-1939. Að sögn tók það hann tíu ár að finna útgefanda að bókinni, því enginn vildi gefa út bók sem fjallaði um það sem enginn hafði áhuga á í sambandi við spænsku borgarastyrjöldina: Byltinguna í borgarastyrjöldinni. Líklega hafa Islendingar fyrst og fremst kynnst anarkisma í gengum pönkið og Sex Pistols sem sungu um Anarchy in the UK fyrir margt löngu. En þessi tenging pönks og anarkisma er tiltölulega nýtilkom- in. Á Spáni gerðist það að anarkist- ar gerðu byltingu, löngu áður en nokkur hafði fundið upp pönk, hvað þá rokk. Það voru meira að segja 20 ár í það að Elvis gerði allt vitlaust með rock 'n roll í fyrsta sinn. Bylt- ingin á Spáni varð 1936, nákvæm- lega 40 árum áður en Sex Pistols gáfu út Anarchy in the UK, en nú eru liðin 62 ár. Fyrir margt yngra fólk eru báðir þessir atburðir lík- lega huldir mistri Qarlægrar fortíð- ar, en líklega finna þó fleiri tengsl við Sex Pistols en spænska anar- kista. Sex Pistols lögðu jú grund- völlinn að stórum hluta þeirrar rokktónlistar sem nú telst góð og gild, meira að segja finnast áhrifin hjá Maus, en flestir hafa gleymt spænsku byltingunni. Hún hefur reyndar aldrei verið mikið auglýst. Menn hafa haft miklu meiri áhuga á borgarastyrjöldinni sem fylgdi, baráttunni gegn fasismanum og öll- um þeim fjölda útlendinga sem af hugsjónaástæðum kom til að berj- ast fyrir lýðveldið. Ríkisvaldið hvarf eins og hendi væri veifað Raunar var anarkistahreyfingin á Spáni allgömul og hafði lengi ver- ið mjög virk. Auk anarkista var á vinstri vængnum stór flokkur sósí- alista og lítill kommúnistaflokkur. Þessi öfl fengu ásamt Lýðveldis- flokknum (flokki millistéttarinnar) meirihluta á þingi eftir kosningar í febrúar 1936. Ríkisstjómin, sem ein- göngu var skipuð ráðherrum úr Lýðveldisflokknum, réð illa við vinstri öflin, sem víða stóðu fyrir kirkjubrennum og öðrum róttækum aðgerðum. Hægri öflin voru skipu- lögð í flokk falangista (fasista), sem efLdist mjög á kostnað hófsamra hægri afla við valdatöku vinstri afl- anna vorið 1936, og gerðu loks um sumarið alvöru úr áformum um valdarán í samvinnu við nokkra herforingja. Ekki tókst þeim betur til en svo að þeir náðu aðeins einum þriðja hluta landsins, en annars staðar í landinu hmndi ríkisvaldið algjörlega - lögregla, her, dómsvald og stjómkerfi hvarf eins og hendi væri veifað þegar vinstri öflin kváðu niður uppreisn hægri manna með vopnavaldi. í stað rikisvaldsins kom alþýðuvald, almenningur skipulagði nýja tegund stjórnkerfis, alþýðulýðveldi á grundvelli anark- isma. í Madrid, Valencia, Malaga, Bil- baó, Gíjón, Barcelona, Alicante og sveitahéruðunum umhverfis þessar borgir, alls tveimur þriðju hlutum Spánar, náði anarkistahreyfingin CNT-FAI víða völdum. Líklega þekkja margir íslendingar þessi nöfn úr sólarlandaferðum til Spán- ar, en tengja þau kannski ekki sér- staklega við byltingu eða anark- isma. I sveitunum voru stofnuð samyrkjubú að frumkvæði smá- bænda, í borgum voru öll stærri fyrirtæki þjóðnýtt og sett undir stjórn þess verkafólks sem þar vann. Eigendur þessara fyrirtækja misstu allt sitt. Þeir sem ekki voru skotnir eða flúðu fengu tilboð um að vinna í fyrirtækinu á sömu laun- um og almennt verkafólk. Allar rak- arastofur, hárgreiðslustofur, skó- smíðastofur, sjoppur, kjörbúðir, bakarí, fiskbúðir, barir, blómabúð- ir, bílaverkstæði og annað slikt var gert upptækt af byltingarmönnum og eigendunum boðin vinna í fyrir- tækinu á sömu kjörum og almennt starfsfólk þeirra hafði. Mikið var um smárekstur á Spáni, oft illa skipulagðan og rekinn við heilsu- spillandi aðstæður. Margar smáar járnsmiðjur, sem alræmdar voru fyrir berklasmit og því skaðlegar heilsu manna voru lagðar niður, en járnsmiðimir fengu vinnu í stórum, vel skipulögðum járnsmiðjum með góðri vinnuaðstöðu sem komið var á fót í staðinn. Kirkjur brenndar eða breytt í kaffihús Það var sem sagt gerð bylting í landi sem í sjálfu sér var ekkert mjög ólikt því sem við þekkjum sem nútímaþjóðfélag (þó að búið sé að komast fyrir berklana að mestu). Anarkistar gerðu ýmislegt af því sem búast má við af fólki af því tagi, kveikt var í mörgum kirkjum og þær sem ekki voru brenndar voru gerðar að kaffihúsum eða vöru- geymslum. Einnig er ekkert óvænt við að frétta af því að peningar voru lagðir niður í þeim sveitum þar sem anarkistar voru við völd, og í stað þess voru afhentir miðar sem menn gátu notað til að verða sér úti um nauðsynjar: Fatamiðar, brauðmið- ar, miðar fyrir ólífuolíu, og hver maður fékk úthlutað þremur til flmm lítrum af borðvíni á viku. Miðum var úthlutað eftir fjölskyldu- stærð, og hver fékk það sem hann þurfti óháð vinnuframlagi. Á þess- um samyrkjubúum fengu menn að- eins peninga ef þeir þurftu til borg- arinnar einhverra erinda, t.d. til læknis. Jafnvel var talsvert spáð í frjálsar ástir og kvenfrelsi (raunar varð minna úr kvenfrelsinu en. kenningin boðaði, t.d. komst ekki á jafnrétti kynja í launum á frelsuðu svæðunum). En ýmislegt kemur ekki heim og saman við þá ímynd sem við höf- um af anarkistum. T.d. gerðist það víða að börum og vínveitingahús- um var lokað. Þau voru talin til óþurftar, talin hvetja til illinda og ólifnaðar. Jafnvel kaffihús voru illa séð í sumum þorpum, þótt ann- ars staðar væri kirkjum breytt i kafiihús eins og áður segir. Tó- baksreykingar voru taldar algjör óþarfi og viða bannaðar. Hér er ég hræddur um að sé farið að fara um ýmsa nútímaanarkista, en líklega hefðu gamlir bændur að norðan á fyrri hluta aldarinnar kunnað bet- ur við sig í anarkistaþorpunum á Spáni. Margir þeirra töldu einmitt brennivín, kaffi og tóbak hinn mesta óþarfa. Einkabílar seldir úr landi Spænsku anarkistarnir voru semsagt hinir mestu púrítanar, jöfnuðust á mörgum sviðum á við þá púrítana sem námu land í Nýja- Englandi á 17. öld. Byltingin gekk bara alveg ágætlega takk fyrir, fá eða engin vandamál virtust fylgja þvi að leggja niður lögmál frjálsrar samkeppni, sveitarstjórnir, rikis- vald og annað slíkt, sem yfirleitt er talið grundvöllur siðmenningar. Siðmenningin lifði ágætu lífi þrátt fyrir það. ímyndum okkur nú að anarkistar af þessum toga kæmust skyndilega til valda hér á landi. Hverju myndu þeir byrja á? Tökum dæmi af Mos- fellsbæ, þar sem ég þekki sæmilega til sem neytandi. Ég hef á tilfinning- unni að anarkistum fyndist ansi fá- ránlegt að hafa hvorki meira né minna en þrjár stórar kjörbúðir, all- ar á sama blettinum og allar með sama úrvalið: Nóatún, Hagkaup, nei afsakið, Nýkaup, og 11-11. Nýkaup er nýbúið að opna búð 25 metrum frá Nóatúni af öllum stöðum, í stað þess að koma sér fyrir einhvers staðar þar sem engin búð var, enda koma þangað fáir. Flestir halda þeim vana að fara í Nóatún. Líklegt er að spænsku anarkist- arnir myndu leggja niður tvær búð- anna og leyfa einni að vera opinni. Sparnaðinn myndu þeir leggja í að bæta strætisvagnaþjónustuna, því þeim myndi sennilega blöskra hin gífurlegi Sáraustur í bíla og allt sem þeim fylgir. Að öllum líkindum yrðu einkabílar gerðir upptækir og seldir úr landi, til að fjármagna um- bætur í heilbrigðis- og menntakerfi, og gott aimenningssamgöngukerfi sett í staðinn. Líklegt er að ýmiss konar þjónustu, sem er í hverju smákaupfélagi úti á landi, svo sem verslun með fatnað, byggingarvörur og fleira slíku yrði komið á fót til að stytta leiðina í þjónustuna, og spara fólki ferðir til Reykjavíkur. Að sjálf- sögðu yrði báðum kránum í bænum lokað, og spurning er hvort nýopn- að kaffihús fengi að hafa opið. Ég tel það frekar líklegt, því kaffihús eru gróðrarstíur anarkisma. íslenska þjóðveldið fyrirmyndar-anarkí Önnur slík gróðrarstía er Netið. Nýlega rakst ég þar á Anarchist FAQ, þ.e. þar getur maður fengið að vita allt sem maður vill vita um an- arkismann. Það er staðsett í Banda- ríkjunum. Meðal annars er fjallað um hvort íslenska þjóðveldið (930-1262) geti verið fyrirmynd þjóð- skipulags nútíma anarkisma, eins og maður að nafni David Fried- man hefur haldið fram, og því hafn- að. Miklu púðri er eytt til að gagn- rýna svokallaða anarkó-kapítalista, sem telja að unnt sé að samræma kapítalisma og algert anarkískt ein- staklingsfrelsi. Það er sjálfsagt sér- amerískt vandamál. En þarna eru líka langir kaflar sem minna mjög á röksemdafærslu gömlu spænsku an- arkistana. T.d. er mælt með því að framleiðsla og neysla fari fram í samvinnufélögum. (íslendingar ættu að geta upplýst um hætturnar sem þannig skipulagi eru samfara). Mér sýnist á öllu að enn sé til fólk sem tekur anarkismann alvarlega, og ef einhver vill fræðast meira um það þá er slóðin hér: http://www.et- ext.org/Politics/Spunk/library/in- tro/faq/sp001547/index.html Líklega kemur spænski anark- isminn þeim spánskt (ha ha) fyrir sjónir sem helst hafa kynnst anark- isma í sambandi við pönkið í Rokk í Reykjavík, þar sem Bjarni mó- hlkani lýsti yfir að hann stundaði límsniff. Ætli það hafi verið í nafni anarkismans? Síðast þegar ég hitti Bjarna var hann að vinna á Hafnar- kránni. En skyldi Bjarna nokkurn tima hafa dottið í hug að berjast fyr- ir lokun allra vinveitingahúsa í miðbænum í nafni anarkismans? Ég efast um að það sé forgangsverk- efni hjá íslenskum anarkistum. Það fór nú reyndar illa fyrir an- arkistunum á Spáni á endanum. Falangistarnir og Frankó sigruðu í borgarastyrjöldinni og allur anark- ismi var þurrkaður út. Um þá sorg- arsögu má lesa hjá Bolloten og víð- ar. Árni Daniel Júliusson fold ánæíjja! Hringdu og pantaðu 16" pizzu með 5 áleggsteg fyrir aðeins 1400 kr. 25. september 1998 f ó k U S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.