Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Síða 20
Bíóborgin Lethal Weapon 4 ★ ★★ Þessi nýjasta víðbót í seríuna er ágætis afþreying. Hún er fyndin og spennandi og áhættuatriðin flest til fyrirmynd- ar. Þótt hún nái aldrei að toppa það besta úr fyrstu tveimur myndunum ætti hún ekki aö valda aðdáendum þeirra Riggs og Murtaugh vonbrigðum. Þetta verður líklega síöasta myndin og ekki amaleg endalok á eftirminni- legri seríu. -ge Clty of Angels ★★★ Þrátt fyrir að vera klisju- kennt bandariskt ástardrama eru fallegar og áhrifamiklar senur inni á milli þar sem leik- stjóra og kvikmyndatökumanni tekst vel upp aö skapa þá stemningu sem upprunalega hug- myndin um (ó)sýnilega engla býður upp á. -úd Slx Days, Slx Nlghts ★★★ Fremur hug- myndasnauð en þó skemmtilega rómantlsk gamanmynd sem gerist I fallegu umhverfi á eyjum I Kyrrahafinu. Myndinni er haldið uppi af góðum leik aðalleikaranna, Harrisons Fords og Anne Heche, sem ná einstaklega vel sam- an. Aðrir leikarar standa sig ágætlega en hverfa I skuggann af gneistandi samleik Fords og Heche. -HK Bíóhöilin/Saga-bíó Hopo Floats ★★ Sterkt byrjunaratriði vekur falskar vonir. Rjótt verður myndin að meló- dramatískum klisjum sem haldið er uppi af góðum leikurum. Einstaka atriði ná þó að lyfta henni upp úr meöalmennskunni en nægir ekki að til að fela augljósa galla sem koma einkum fram I lokin. -HK Armageddon ★★ Bruce Willis stendur fyrir slnu sem mesti töffarinn I Hollywood I mynd þar sem frammistaða tæknimanna er það eina sem hrós á skilið. Leikstjórinn Michael Bay gerir það sem fyrir hann er lagt og þvl er Armageddon meira fyrir auga en eyru. -HK Háskólabíó Dansinn ★★★ Ágúst Guðmundsson með sína bestu kvikmynd frá því hann gerði Meö allt á hreinu. Áhrifamikil saga sem lætur eng- an ósnortin. Vel gerð og myndmál sterkt. Oft á tíðum frumleg þar sem dansinn dunar I for- grunni og eða bakgrunni dramatískra atburða. Leikarar I heild góðir og ekki hallað á neinn þegar sagt er að Gunnar Helgason, Pálína Jónsdóttir og GIsli Halldórsson séu best með- al jafningja. -HK BJörgun óbreytts Ryan ★★★★ Stríð I sinni dekkstu mynd er þema þessa mikla kvikmyndaverks. Stórfenglegt byrj- unaratriði gæti eitt sér staðið undir ómældum stjörnufjölda, en Steven Spielberg er meiri maður en svo aö hann kunni ekki aö fylgja þessu eftir og I kjölfar- ið kemur áhugaverð saga um björgun manns- lífs, saga sem fær endi I öðru sterku og löngu lokaatriöi þar sem barist er gegn ofureflinu. -HK Predikarinn ★★★ Robert Duvall fer á kostum I hlutverki predikara sem fremur glæp en frelsast á flótta. The Apostle er kvikmynd Roberts Duvalls I meira en einum skiiningi, hann er einnig leik- stjóri og handritshöfundur Með mynd sinni sýnir Duvall að hann er mikill listammaður og vonandi er að hann geri aðra mynd sem fyrst. -HK Sporlaust ★★★ 1 Leikararnir skila j slnu og sögufléttan , er að mestu I anda j góðra spennu- mynda. Þó er að I flnna slæmar holur I plottinu sem eru i leiðinlegar fyrir þá . sök aö auövelt hefði verið að bjarga þeim. Þessir hnökrar spilla þó tæplega miklu og myndin ætti ekki aö valda vonbrigðum. -ge Washlngton torg ★★★ Skáldsögu Henry James fylgt vel eftir I sterkri mynd um ráörík- an föður sem ekki sættir sig viö eiginmanns- efniö sem einkadóttirin hefur valið sér og stlg- ar þeim I sundur á grimmilegan hátt. Hvað er rétt og hvað er rangt er þemaö. Jennifer Jason Leight er misgóð I erfiðu hlutverki, en Albert Finney er sem oftast áður sterkur á svellinu þegar kemur að klassíkinni. -HK Dark Clty ★★ Dark City er metnaðarfull og ansi mögnuð mynd, og vekur tilfinningar bæði um ofsóknir og innilokun. Hún er full af ótrú- lega eftirminnilegum myndrænum skeiðum, sérstaklega þar sem geimþjóðin „tjúnar" og lætur borgina bókstaflega vaxa, hús spretta upp úr götum, stækka, minnka eða taka öðr- um breytingum. Hins vegar veldur handrits- skortur þvl að oft var eins og um langa auglýs- ingu aö ræða. -úd Martha, má ég kynna ... ★★ Marta o.s.frv. er gamanmynd I rómantískari kantinum og helst sérstök fýrir þá sök hversu bandarísk hún er. Monica Potter minnir um margt á Juliu Roberts og er hér I svipuðu hlutverki og Julia gerði sér mat úr á árum áður. Stærsti gallinn liggurí hand- ritinu sem skrifað var af Peter Morgan. -ge-k Psycho 1960 Leikstjórl: Alfred Hitchcock. Norman Bates: Anthony Perkins. Marion Crane: Janet Leigh. Kostnaður: 800.000 dollarar. Tökutími: 36 dagar. Psycho 1998 Leikstjóri: Gus Van Sant. Norman Bates: Vince Vaughn. Marion Crane: Anne Heche. Kostnaður: 25.000.000 dollarar Tökutími: 38 dagar. Leikstjórinn Gus Van Sant réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar hann afréð að endurgera eitt af lofuðustu meistara- verkum kvikmyndasögunnar - Psycho eftir Alfred Hitchcock. En það má hann eiga að hann fór varfærnislega í verkið. Psycho endurgerð - ramma fyrir ramma Fyrir marga aðdáendur Alfreds Hitchcocks er Psycho heilög og margir hafa farið fram á ritvöllinn og sagt að það væri nánast eins og mannsmorð að endurgera hana. Það er þvi engin furða að sömu menn hneykslist á þvi að hinn ágæti leikstjóri Gus Van Sant (My Private Idaho, Good Will Hunting) er að endurgera Psycho og það ramma fyrir ramma, og vilja fá að vita hver eiginlega gaf honum leyfi til að stæla Psycho svona nákvæm- lega. Gus Van Sant hefur ekki haft miklar áhyggjur af þessum að- fmnslum og hélt sínu striki og lauk tökum fyrir þremur vikum. Hann notaði upprunalegt handrit og segir að sagan sé að 95% leyti eins og mynd Hitchcocks, eina stórvægilega breytingin er að Psysho 1998 er í lit. Sjálfsagt vekur mesta forvitni sturtuatriðið fræga þar sem Norman Bates gerir út af við Marion Crane. Þetta atriði er löngu orðið klassískt og hefur orð- ið fyrirmynd óteljandi eftirlíkinga. Meðan Gus Van Sant var að taka þetta atriði með aðalleikurum sín- um, Vince Vaughan og Anna Heche, var hann alltaf með mynd- bandaútgáfú af upprunalega atrið- inu og renndi því í gegn samtímis sínu atriði til að sjá hvort ekki væri ekki örugglega eins. Ef Pscycho Gus Van Sants er 95% eins og Psycho Hitchcocks hvernig eru þá hin 5%. Þetta vekur mörg- um forvitni en fátt verður um svör og Van Sant segir það koma í ljós þegar myndin verður frumsýnd. Einn af kostum Psycho var ótrú- lega sannfærandi leikur Anthony Perkins í hlutverki Norman Bates og var hann allan siim feril minnt- ur á þetta hlutverk og endurtók það í tveimur framhaldsmyndum. Það verður því erfitt fyrir hinn unga sjónvarpsleikara Vince Vaughn að fara í spor Perkins og víst er að gagnrýnendur bíða þess með óþreyju að fá að tæta hann í sig: „Ég reyndi ekki að betrumbæta leik hans og þótt ég stundum hermi eftir honum þá held ég að mikið komi frá mér sjálfum, sem ég tel nauðsynlegt svo ég hreint og beint traðki ekki á minningu Anthony Perkins.“ Anna Heche er í þakklátara hlutverki. Þótt hlutverkið sé frægt í sögu kvikmyndanna þá er það ekki stórt og byggist mest á lík- amshreyfingum og öskrum. Anna Heche segir að henni hafi þótt gaman að endurtaka allcir hreyf- ingar Janet Leigh og neitaði hún að nota staðgengil sem henni bauðst þar sem hún þarf að vera nakin: „Þetta voru þrír dagar sem fóru í að fara í sturtu, þurrka sér, fara aftur í sturtu, þurrka sér aft- ur og svona koll af kolli.“ Tiu ár eru síðan Gus Van Sant reyndi að fá einhverja til að styrkja sig fjárhagslega í að endur- gera Psycho. Til þess að svo gæti orðið varð að semja við Universal, sem átti réttinn. Á þeim bæ var hlegið að honum. Það var ekki fyrr en eftir miklar vinsældir Good Will Hunting að það gaf grænt ljós og var það ekki síst vegna þess að Gus Van Sant var búinn að tryggja sér stuðning framleiðandans Bri- an Grazer (Liar, Liar, Apollo 13). Ljóst þykir að þrátt fyrir að Gus Van Sant segi að hann sé að gera spegilmynd af Psycho verði útlitið öðruvísi, það gerir liturinn og einnig það að sagan er færð í nú- tímann, meðal annars er tekið Visa í afgreiðslunni á Bates- móteli. -HK Hryllingsmyndin Phantoms frumsýnd í Regnboganum: Vofur Regnboginn tekur til sýninga í dag hryllingsmyndina Phantoms sem gerð er eftir skáldsögu Deans Koontz sem margir telja að sé næst- ur Stephen King í gerð hryllings- skáldsagna. Hafa sumar skáldsögur Koontz verið þýddar yfir á íslensku og gefnar út. Nokkrar bóka hans hafa verið kvikmyndaðar. Að þessu sinni skrifar Koonzt sjálfur handrit- ið og er einn af framleiðendum myndarinnar sem segir frá prófess- or Timothy Flyte sem fenginn er til að koma til smábæjar sem er í hel- greipum dularfullra afla og bæjar- búum hafa borist þau skilaboð að Flyte sé sá sem vofurnar vilji hafa samband við. Það er breski stórleikarinn Peter O'Toole sem leikur prófessorinn. í öðrum hlutverkum eru ungir leik- arar sem mikið hafa látið að sér kveða að undanfömu. Má þar nefna Ben Afílect (Good Will Hunting, Armageddon), Rose McGowan i (Scream) og Liev Schreiber 1 (Sphere). Auk þess leikur Joanna Going stórt hlutverk í myndinni. Leikstjórinn Joe ChappeUe er með Phantoms að gera aðra kvik- mynd sína. Fyrir þremur árum Í skrifaði hann handrit og leikstýrði j Thives Quartett fyrir nánast engan i pening og þótt ekki vekti hún neina ! alheimsathygli var það nóg til þess 5 að kvikmyndaiðnaðurinn tók eftir þessum unga manni og fékk hún góða dóma. Áður hafði hann unnið við gerð sjónvarpsauglýsinga. -HK Peter O'Toole leikur prófessor Timothy Flyte sem velt ýmislegt sem aörir vita ekki. bíódómur Sam-bíóin: Hope Floats ★★ Hjónaskilnaður í beinni „Þegar maður er búinn að gefast upp á að bíða eftir einhverju í líkingu við byrjunina er fátt annað að gera en fylgjast með góðum leik Söndru Bullock og Genu Rowland.“ Lelkstjórl: Forest Whitaker. Handrlt: Steven Rogers. Kvlkmyndataka: Caleb Deschanel. Tónllst: Dave Grusin. Aðallelkarar: Sandra Bullock, Harry Connick, jr. Gena Rowlands og Michael Paré. Bandaríkjamenn eru einkenni- lega samsettir, svo ekki sé meira sagt. Þjóð þessi sem er mesta fram- leiðsluþjóð í heiminum á sviði klámmynda er nú á fjölmiðlatrippi yfir kvenseminni í forseta sínum og þótt hinn almenni Bandaríkjamað- ur kæri sig ekki um að sjá forset- ann viðurkenna yfirsjón sína í sjón- varpinu demba fjölmiðlarnir soran- um yfir þjóðina. Þetta er tiltekið hér því að í byrjun Hope Floats er sterk ádeila á þá vinsælu þætti í bandaríska sjónvarpinu, sem stjóm- að er af Rosie O'Donnell, Ricki Lake, Geraldo og fleirum þar sem mesta áhorf er þegar manneskjan er niðurlægð í beinni útsendingu á þann hátt að öðrum finnst það snið- ugt. Aðalpersónan Birdee Pruitt er fengin til að koma í slíkan þátt (seinna þegar hún er spurð hvers vegna segist hún hafa gefið kost á sér vegna þess að hún hafi fengið fría andlitsmálun og hárgreiðslu). Hún fær ekki að vita fyrirfram hvað bíður hennar og fær beint i æð í beinni útsendingu, af vörum eigin- manns síns, að hann hafi haldið við bestu vinkonu hennar, sem einnig er í þættinum, og ætli að yfirgefa hana. Þaö má segja að þetta sterka at- riði, sem hefur yfirbragð svartrar kómedíu, gefi falskar vonir um það sem á eftir kemur því í framhaldi fáum við melódramtíska frásögn þegar Birdee, sem er niðurbrotinn manneskja, er á leið til móður sinn- ar í smábænum Smithville í Texas þar sem hún hafði eitt sinn verið fegurst kvenna. Heimkoman er öm- urleg, allir sáu að sjálfsögðu sjón- varpsþáttinn og er ekki laust við að það hlakki í sumum. Birdee þarf ekki bara að eiga við eigin tilfinn- ingar heldur hafa stjóm á erfiðri móður, og barni sem saknar föður síns. Rómantíkin er þó ekki langt undan þegar fyrrum vonbiðill gerir sig líklegan, með hjálp móður Birdee, til að fylla skarð eigin- mannsins. Þegar allar persónumar hafa ver- ið kynntar til leiks má segja að myndin fari í fastar skorður meðal- mennskunnar þar sem kunnugleg atburðarás ræður ríkjum. Þegar maður er búinn að gefast upp á að bíða eftir einhverju i líkingu við byrjunina er fátt annað að gera en fylgjast með góðum leik Söndru Bullock og Genu Rowland í hlut- verki móðurinnar. Vert er einnig að benda á hina ungu Mae Whitman sem sýnir einstaklega þroskaðan leik í áhrifamiklu atriði þegar faðir hennar yfirgefur hana öðm sinni. Hilmar Karlsson 20 f ÓkllS 25. september 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.