Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Qupperneq 21
Grease ★★•*. Oft hafði ég á tilfinningunni að þab eina sem bjargaði þessu 20 ára afmæli Grease væri að hún hefði með árunum tekið á sig „kamp“-ímynd Rocky Horror Picture Show. Þannig gengur hún upp fyrir mér. Að þessu sögðu má síðan bæta við ab lögin standa enn (yrir sínu og dansatriðin eru skemmtileg. -ge Kringlubíó Mafia ★ Mafia er ein af langri og merkri röð grínmynda sem taka fyrir og hæða tiltekin fyr- irbæri úr kvikmyndaheiminum. Háðiö var allt hálfvolgt, sem lýsti sér kannski best í því hvað ofbeldisatriðin voru blóðlaus. Þrátt fýrir nokk- uð góða byrjun og skondin atriði inn á milli nær Mafia ekki einu sinni að vera meðalhund- ur I þessum parodíu-bransa. -úd Töfrasverðið ★★ Þetta er ekki fyrsta og ör- ugglega ekki síðasta kvikmyndin þar sem Arh- ur konungur, riddarar hans við hringboröiö og sverðið Excalibur koma við sögu. Það sem greinir Töfrasverðið frá öðrum er að hún er teiknimynd, en stendur ekki undir samanburði við það besta sem komið hefur í þessum flokki. Islenska talsetningin er góð. -HK Laugarásbíó The Patriot ★ The Patriot er ekki fyrsta mynd Seagals sem boðar náttúruverndarguðspjail en hún er líklega sú sem gerir slíkan boðskap minnst heillandi. Fyrirsjáanleg saga f bland við óvenju slappt handrit gerir þessa mynd að allélegustu Seagal-myndinni. Myndmál, hand- rit, saga, persónur og leikendur, allt var þetta ekki bara kunnuglegt, heldur beinlínis vand- ræðalega ofnotað. -úd Sam-bíóin frumsýna í dag The Horse Whisperer sem Robert Redford bæði leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í ásamt Kristin Scott Thomas. Kvikmyndahandritið er gert eftir skáldsögu Nicholas Evans en slegist var um kvikmyndaréttinn að henni áður en hann lauk við bókina. Sam-bíóin frumsýna í dag The Horse Whisperer sem Robert Red- ford bæði leikstýrir og leikur aðal- hlutverkið í. Mótleikari hans er Kristin Scott Thomas og er þetta fyrsta kvikmyndin sem hún leikur í eftir að hún sló í gegn í The English Patient. Er kvikmyndahandritið gert eftir skáldsögu Nicholas Evans en mikill slagur var um kvikmyndaréttinn á skáldsögunni áður en Nicholas Evans skrifaði bókina en hafði látið söguþráðinn berast til réttra aðila. Fjallar mynd- in um reyndan hestamann sem hef- ur dulræna hæfileika til að nálgast hestinn á þann hátt sem engum öðr- um tekst. Er hann fenginn til að bjarga sálarlífi ungrar stúlku sem lenti í miklu slysi á hestbaki ásamt vinkonu sinni, vinkonan dó en stúlkan lokaðist inni í sjálfri sér og hestahvíslarinn reynir að ná til hennar í gegnum hest hennar sem hún vill ekki líta við lengur. Robert Redford er einn af vinsæl- ustu leikurum nútímans og er einnig einn virtasti leikstjórinn í Hollywood. í raun hefur gengi hans sem leikstjóri verið mun árangurs- ríkara á undanfórnum árum heldur en leikferillinn. Það hefur þó ekki alltaf verið svo, Robert Redford þótti mjög spennandi leikari í upp- hafi ferils síns. Það hlutverk sem færði honum heimsfrægð var Harry „Sundance Kid“ Longabaugh í Butch Cassidy and the Sundance Kid (1969). Það gekk ekki þrauta- laust fyrir hann að fá þetta hlut- verk. Leikstjórinn George Roy Hill vildi hafa hann sem mótleikara Pauls Newmans, en framleiðand- inn, Richard Zannuck, vildi fræg- ari leikara. Þegar hér var komið sögu hafði Robert Redford aðeins Mótleikkona Redfords er Kristin Scott Thomas og er The Horse Whisperer fyrsta kvikmyndin sem hún leikur í eftir leiksigurinn í The English Patient. leikið í sex kvikmyndum. Hill fékk Paul Newman i lið með sér og Zann- uck gaf loks eftir. Myndin sló í gegn og Robert Redford varð eitt helsta kyntákn á áttunda áratugnum. Efnilegur íþróttamaður Charles Robert Redford jr. fædd- ist í Santa Monica í Kaliforníu 18. ágúst 1937 og var faðir hans mjólk- urpóstur og móðirin heimavinn- andi. Þegar faðirinn fékk vinnu hjá olíufyrirtæki í byrjun seinni heims- styrjaldarinnar var hægt að kosta bömin í skóla. Redford hinn ungi hafði lítinn áhuga á skólanámi en var virkur í unglingaklíkum. Hæfi- leikar hans vom á. iþróttasviðinu og þótti hann sérlega efnilegur í hafnabolta. Redford hafði samt ekki nægilegan áhuga til að leggja fyrir sig íþróttir og var rekinn úr at- vinnumannaliði fyrir drykkjuskap. Næstu árin tók hann ýmislegt að sér, var meðal annars málari, með litlum árangri. Hann flæktist um Evrópu, oftast staurblankur, og sníkti mat og svefnpláss þar sem hann var staddur þá stundina, lengst dvaldi hann í Florens þaðan sem hann fór aftur vestur um haf, tuttugu og tveggja ára gamall. Þar kynntist hann Lolu Jean Van Wa- genen, stúlku frá Utah, sem ein sá að eitthvað bjó í þessum rótlausa manni og flutti með honum til New York þcir sem hún giftist honum, hvatti hann til að setjast á skóla- bekk í leiklist og vann fyrir þeim. Meðan á náminu stóð fékk hann smáhlutverk í leikritum og sitt fyrsta kvikmyndahlutverk í War Hunt árið 1962. Brátt gat hann farið að greiða reikninga með vinnu í sjónvarpi og leikhúsi þótt ekki væru hlutverkin stór. í einu slíku hlutverki tók Mike Nichols eftir honum og fékk honum aðalhlutverk í leikriti Barefood in the Park á Broadway, sem Nichols leikstýrði. Þetta var byrjunin á farsælum ferli sem enn sér ekki fyrir endann á. Umhverfissinninn Of langt mál væri upp að telja alla leiksigra Roberts Redfords en í mörg ár var hann vinsæl- asti ungi leikarinn og gat valið úr þeim hlutverkum sem í boði voru. Þegar ald- urinn fór að færast yfir hann fór hann að skipta sér af umhverfisvemd. Hann keypti 7000 hektara land í Utah þar sem hann kom á fót ým- issi starfsemi, meðal annars skíða- svæði og virtu umhverfissetri. Þar setti hann einnig á stofn Sundance kvikmyndahátíðina þar sem ein- göngu eru sýndar kvikmyndir frá óháðum framleiðendum og hefur þessi kvikmyndahátíð verið að vinna sér sess sem ein sú allra virtasta í heiminum. Áttundi áratugurinn var tímabil leikarans og kyntáknsins Roberts Redfords. Árið 1980 leikstýrði hann sinni fyrstu kvikmynd, Ordinary People, og fræðarsól hans steig enn hærra. Hann hlaut óskarsverðlaun sem besti leikstjóri og myndin var valin besta kvikmyndin. Eftir því sem Robert Redford hefur látið til sín taka á fleiri sviðum hefur hlut- verkum hans í kvikmyndum fækk- að og hefur hann aðeins leikið í sjö kvikmyndum að The Horse Whisperer meðtalinni, frá því hann leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd. Þessa dagana er hans helsta áhuga- mál að koma upp fleiri kvikmynda- húsum í Sundance og gera þennan smábæ að miðstöð kvikmynda og svo er hann einnig að undirbúa næstu kvikmynd sem hann mun leikstýra og leika í, The Legend of Bagger Vance, þar sem sagan teng- ist golfi. -HK Slidlng Doors ★★* Paltrow er Helen, ung kona á uppleið, þegar hún er óvænt rekin af hópi karlremba og líf hennar tekur stakka- skiptum tvöfalt. Leikurinn er almennt góður en þó handritið innihaldi heilmikiö af skemmtileg- um punktum og klippingarnar milli sviða/veru- leika séu oft skemmtilegar þá vantar hér ein- hvern herslumun. -úd Regnboginn The X-files ★★ Einhvern veginn þýddust ráðgát- urnar illa á stóra tjaldið. Þarna er sannleikann bak við þættina að finna, en það er eins og að- standendur hafi aldrei almennilega getað gert upp við sig hvort gera skuli langan sjónvarps- þátt eða bíómynd. David Duchovný sýnir enn og sannar að hann er og verður aldrei annað en þriðja flokks sjónvarpsleikari, meðan Gillian Anderson ber breiðtjaldið betur. -úd Falry Tale: A True Story ★★* Álfasaga er hugljúf mynd en líður svolítið fyrir þá sök að handritshöfundurinn getur ekki gert upp hug sinn. Stúlkurnar eru annaðhvort iitlir svindlar- ar eöa börn sem vissulega búa í undraverðum heimi. Myndin sveiflast milli þessara skýringa og ómögulegt er að segja fýrir um hvort álfarn- ir séu raunverulegir eða ímyndun. -ge Næturvörðurlnn ★*■*. Hvernig á að meta og dæma mynd sem er nákvæm eftirgerð á annarri, bætir engu við; en tekur hún þá frá? Einhvern veginn var hinn bandan'ski Næturvörð- ur ekki eins heillandi og sláandi upplifun og sá danski. Aðalleikaraparið McGregor og Arquette ná sér aldrei á strik og það vantaði Ifka mikið upp á að Nick Nolte væri nógu góður. -úd Les vislteurs 2 ★ Þótt Jean Reno sé skemmti- legur leikari með mikla útgeislun getur hann ekkert gert til þess að bjarga þessari mynd sem líður fýrir óvenjuvont handrit. Þegar upp er stað- ið er myndin ekkert annað en tímaeyðsia. -ge Senseless ★ Marlon Wayans nær stundum upp ágætri stemningu og sumir brandararnir eru nógu fáránlegir til að vera sniðugir en mað- ur fær fljótt leiö á einhæfum leik hans. Nokkr- ar aukapersónur lífga upp á myndina. -HK Stjörnubíó Tíu bestu myndirnar um pólitfska skandala 1. All the President's Men 1976 Leikstjóri: Alan J. Pakula 2. Primary Colors 1998 Leikstjóri: Mike Nichols. 3. The Best Man 1964 Leikstjóri: Franklin Schaffner. 4. Advise and Consent 1962 Leikstjóri: Otto Preminger 5. Bulworth 1998 Leikstjóri: Warren Beatty Nixon 1995 Leikstjóri: Oliver Stone 7. The Life of Emile Zola 1937 Leikstjóri: William Dieterle 8. Scandal 7989 Leikstjóri: Michael Caton-Jones Absolute Power 1997 Leikstjóri: Clint Eastwood 1C Wag the Dog 1997 Leikstjóri: Barry Levinson Bíómyndir um pólitíska skandala i betra bíófóður en Forseti Bandaríkjanna, BiU Clinton, hefur ekki getað litið til sólar vegna þess hneykslis sem hann hefur vald- ið í pólitíkinni í Washington og sumum finnst forseta- stóllinn orðinn ansi heitur undir honum. Víst er að kvik- myndagerðarmenn eiga eftir að notfæra sér hneykslið sem neminn í Hvíta húsinu, Monica Lewinsky, hefur valdið með því að ljóstra upp leynifundum sínum með Clinton, en forsetinn neitar enn að hafa átt í kynferðis- legu sambandi við hana og er víst með eigin skýringu á þvi hvað kynferðislegt samband er. Þetta mál er skandall, svo mikið er víst. Pólitískir skandalar hafa verið gjöfult viðfangsefni í kvikmyndum, hvort sem skandaflinn byggist á raunverulegum atburðum eða ímynduðum. Hér fer listi yfir tíu góðar skandalamynd- ir þar sem pólitíkin kemur við sögu og allir ættu að sjá. Tvær af þessum tíu hafa enn ekki komið fyrir augu bíógesta hér á landi. The Mask of Zorro ★★* Þeir nafnarogfélagar Antonio Bander- as og Anthony Hopkins náðu einhvern veginn aldrei sérlega vel saman í þessari mynd um tvær kynslóðir skylm- ingahetjunnar Zorró. Hins vegar mátti vel skemmta sér yfir þessum ýktu hetjulátum og útblásnu rómantík og myndin var ákaflega áferðarfalleg, glæsileg og glamúrus og flott og smart, en einhvern veginn vantaði herslumuninn. -úd Himnabál ★★* Gráleit gamanmynd sem byrj- ar vel, bætir jafnt og þétt við sig og hrynur svo á síðustu 20 mínútunum. Ég var þess lengi vel fullviss að þessi ástralska vegamynd næði að feta einstigið milli ofbeldis og húmors, en myndin taþar áttum og missir flugið. Það er miður því að lengi vel átti ég von á að þetta yrði ein eftirminnilegasta mynd haustsins. -ge Godzilla ★★★ Godzilla er skemmtileg en ekki gallalaus. En hún hefur það sem máli skiptir: Godzillu. Og hún er stór, og hún er flott og hún er afskaplega tæknilega fullkomin; og hún er myndin. Emmerich tekst að ná flottum senum með magnaðri spennu, sérstaklega var lokasenan algerlega frábær og nægir ein og sér til að hala inn þriðju stjörnuna. -úd Dustin Hoffman og Robert Redford í All the Presldent's Men. ifieura a w w w„/i/■ s ■ r. ■ s 25. september 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.